Morgunblaðið - 02.08.1997, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 02.08.1997, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR UTANRIKISRAÐHERRA hefur lýst því yfir, að embætti sitt og forseta muni ræða ummæli forsetans í Washington frekar. Hann lýsti jafn- framt þeirri skoðun sinni, að það væri ljóst að forsetinn þyrfti að geta svarað fyrir sig „og það verður hann að gera með þeim hætti að samrým- ist í einu og öllu stefnu ríkisstjórnar á hveijum tíma í utanríkismálum“. Sama dag og ummæli utanríkis- ráðherra birtust á prenti bárust þær fréttir frá Danmörku, að þar í landi hefðu fulltrúar forsætis- og utanrík- isráðuneytis náð samkomulagi um að breyta reglum um ræður Dana- drottningar. í framtíðinni mun drottning ekki tjá sig um pólitísk málefni líðandi stundar. Jafnframt var samþykkt, að danska utanríkis- ráðuneytið sjái áfram um að sam- þykkja þær ræður er drottning flyt- ur opinberlega. Þessi frétt af skipan mála í Dana- veldi og fréttaflutningur af ummæl- um forseta íslands í Bandaríkjunum, þar sem hann svaraði m.a. spurning- um um stækkun NATO, hvalveiðar og afstöðu íslands til Evrópusam- bandsins, vekja upp spumingar um stöðu forsetans og valdsvið hans. Samrýmist það embætti hans að tjá sig um pólitísk mál og ef svo er, er honum þá lögð sú skylda á herðar að framfylgja stefnu Alþingis og rík- isstjórnar? Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ummæli forseta vekja athygli og deilur um stöðu hans. Skemmst er að minnast fréttaflutnings af för Vigdísar Finnbogadóttur til Kína í september 1995. Að loknum fundi hennar og Li Peng, forsætisráð- herra, var haft eftir Vigdísi að hún og forsætisráðherrann kínverski hefðu m.a. velt fyrir sér heimspeki- legum spurningum, eins og t.d. hversu frelsið væri afstætt. Nú bar sögum ekki saman um hversu rétt var eftir forseta haft og ummælin skiptu ekki sköpum í sam- skiptum íslendinga og annarra þjóða. Ýmsum þótti þau óheppileg í ljósi mannréttindabrota kínverskra stjórnvalda, en öðrum þótti ósmekk- legt að gagnrýna forsetann fyrir ummælin. Orð Ólafs Ragnars Grímssonar í Washington voru af öðrum toga, því þar svaraði forsetinn spumingum um milliríkjamál, sem eru efst á baugi. Þrátt fyrir þá skoðun utanrík- isráðherra, að forsetinn hefði mátt orða sum ummæli sín betur hefur t.d. forsætisráðherra lýst því yfír að forseti hafi efnislega farið nákvæm- lega rétt með þá stefnu, sem ísland fyigi- Forsetinn semur ræður sínar sjálf- ur og er í sjálfsvald sett hvort hann ber þær undir aðra, samkvæmt upp- lýsingum Komelíusar Sigmundsson- ar forsetaritara. Forsetaritari benti á að forseti íslands væri þjóðkjörinn, en embættið væri ekki erfðaemb- ætti. Engar reglur giltu um ræður forseta Islands og ekki væri heldur á hefðum að byggja. „Eflaust ræðir forseti íslands við ákveðna ------- aðila um ræður sínar, ef hann telur ástæðu til,“ sagði Komelíus og benti á, að for- seti starfaði innan þess ramma, sem settur væri í stjómarskrá. Hann kvaðst ekki sjá tilefni til þess að svo stöddu að setja ákveðnar reglur um ræður forseta, hins vegar mætti vera að í framtíðinni yrði mótuð ákveðin vinnutilhögun. Forsetaritari vísar til þess ramma, sem stjórnarskrá setur embætti for- seta. Sá rammi er raunar nokkuð rúmur. Ummæli forseta og hvort þau samrýmist stöðu hans er því ekki hægt að skoða nema í ljósi þess, hver raunveruleg staða embættisins er og hvaða hefðir og venjur hafa mótast á liðnum áratugum. Skýrt er tekið fram í stjórnar- skrá, að forsetinn láti ráðherra fram- kvæma vald sitt. Hann skipi ráð- herra og veiti þeim lausn, ákveði tölu þeirra og skipti með þeim störf- um, veiti þau embætti sem lög kveða á um, geri samninga við önnur ríki, hann geti frestað fundum Alþingis eða rofíð þing, fellt niður saksókn eða náðað menn. Þessum embættis- skyldum hefur forseti ávallt gegnt í samræmi við ákvarðanir þings og ríkisstjórnar og fáir orðið til að Rétt stefna en rangt orðaval? Sum ummæli forseta íslands á blaðamannafundi í Washington í Bandaríkjunum fyrir skömmu hefði mátt orða betur, að mati Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra. í grein Ragnhildar Sverrísdóttur kemur fram að engar reglur eru til um opinberar ræður forsetans og enn eru menn ekki á eitt sáttir um hver raunveruleg völd forsetaembættisins eru eða eiga að vera. mæía gegn þeirri venju, enda tak- marka greinar stjórnarskrárinnar um ábyrgðarleysi forseta á stjórnar- athöfnum þær greinar, sem kveða á um valdsvið hans. Sú grein stjórnarskrárinnar, sem oftast er vitnað til þegar talað er um völd forseta, er 26. greinin sem fjallar um málskotsrétt hans. í grein- inni er kveðið á um, að ef Alþingi hafi samþykkt lagafrumvarp skuli það lagt fyrir forseta lýðveldisins og veitir staðfesting hans því laga- gildi. Þá segir: „Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosn- ingarbærra manna í landinu til sam- þykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.“ Bent hefur verið á, að ef forseti neitaði að skrifa undir lagafrum- varp, væri hann þar með kominn í andstöðu við meirihluta Alþingis, enda hefði hann hvorki algert neit- unarvald né frestandi neitunarvald. Hann þyrfti að gera grein fyrir ákvörðun sinni og þannig taka þátt í „kosningaslag" við þingið um hylli kjósenda fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu. Ef kjósendur reyndust hon- um sammála féllu lögin úr gildi, en ef ekki gæti reynst þrautin þyngri fyrir forseta að sitja áfram eins og ekkert hefði í skorist. Einn þeirra sem bent hefur á þennan annmarka er dr. Gunnar G. Schram lagapró- fessor, sem sagði í grein í Morgun- blaðinu í janúar 1983, að hann teldi þetta fyrirkomulag einstætt meðal sjálfstæðra þjóða. Varnagli vegna utanþingsstjómar Umijöllun um 26. grein stjórnar- skrár skýtur reglulega upp kollinum og ekki síst fyrir forsetakosningar. Fyrir kosningarnar 1968 birtist viðtal við dr. Bjama Benedikts- son í Morgunblaðinu, þar sem hann sagði greinina einungis ör- yggisákvæði, sem deila mætti um hvort heppilegt hefði verið að setja í stjórnarskrána. Hann gaf þá skýringu, að þegar verið var að semja frumvarpið að lýðveldis- stjórnarskránni hafí utanþingsstjórn setið að völdum, sem meirihluti Al- þingis undi mjög illa. „Með réttu eða röngu töldu margir þingmenn, þar á meðal ég, að þáverandi ríkisstjóri hefði við skipun utanþingsstjórnar- innar farið öðruvísi að en þingræðis- reglur segja til um. Menn óttuðust þess vegna, að innlendur þjóðhöfð- ingi kynni að beita bókstaf stjórnar- skrárinnar á annan veg en konungur hafði ætíð gert frá því að landið fékk viðurkennt fullveldi 1918-og þar með taka afstöðu með eða móti lagafrumvörpum, alveg gagnstætt því, sem ætlast er til í þingræðis- landi, þar sem staðfesting þjóðhöfð- ingjans á gerðum löggjafarþings er einungis formlegs eðlis. Menn vildu ekki eiga það á hættu, að forseti gæti hindrað löglega samþykkt Al- þingis með því að synja henni stað- festingar, heldur tæki lagafrumvarp Ummæli for- seta endur- spegli stefnu ríkisstjórnar engu að síður gildi, en vald forseta yrði takmarkað við það eitt að geta þá komið fram þjóðaratkvæða- greiðslu um málið. Þetta ákvæði skýrist þess vegna eingöngu af því tímabundna ástandi, sem hér ríkti á árunum 1942-44 og hefur reynslan síðan bent til að þessi varúð þingsins hafi verið ástæðulaus." Tuttugu og níu ár eru liðin frá ummælum Bjarna og enn hefur ekki reynt á ákvæðið. Hins vegar hafa forsetar velt möguleikanum fyrir sér, þegar kjósendur hafa beint til- mælum í þá veru til þeirra. Sveinn Björnsson var beðinn um að beita áhrifum sínum við Alþingi svo þjóð- aratkvæði yrði greitt um tillögu um samning milli íslands og Bandaríkj- anna um niðurfellingu herverndar- samningsins frá 1941. Að því er fram kemur í bókinni Stjórnarráð íslands 1904-1964 eftir Agnar Kl. Jónsson sagði forsetinn á ríkisráðs- fundi, að eftir rækilega umhugsun hefði hann komist að þeirri niður- stöðu, að stjómarskráin gerði ekki ráð fyrir slíkum afskiptum forseta af málum, sem Alþingi fjallaði um, og að slík afskipti mundu þar af leiðandi ekki vænleg til áhrifa. Þingflokkur Alþýðubandalags fór þess á leit við Asgeir Ásgeirsson árið 1966 að forsetinn beitti valdi sínu til þess að láta greiða þjóðarat- kvæði um samning ríkisstjómarinn- ar við Swiss Aluminium. Ásgeir sagði, að Alþingi hefði þegar sam- þykkt frumvarpið og hann sæi ekki ástæðu til annars en staðfesta lögin. Vigdísi Finnbogadóttur bárust áskoranir árið 1993 um að samning- urinn um Evrópska efnahagssvæðið yrði lagður undir þjóðaratkvæði. Vigdís svaraði með yfirlýsingu á rík- isráðsfundi, þar sem hún sagði að jafnt og þétt hefði styrkst sá megin- þáttur forsetaembættisins að vera óháð og hafið yfir flokkapólitík og flokkadrætti. Embættið væri tákn sameiningar, en ekki sundrungar. „Glöggt vitni um það eðli embættis- ins er að enginn forseti hefur gripið fram fyrir hendur á lýðræðislega kjörnu Alþingi, sem tekið hefur ákvarðanir sínar með lögmætum hætti,“ sagði forsetinn. Vigdís hafði áður staðið frammi fyrir 26. greininni, þótt ekki reyndi á málskotsréttinn. I október 1985 samþykkti Alþingi frumvarp ríkis- stjórnarinnar um að kjaradeilu flug- freyja og Flugleiða yrði vísað til Kjaradóms og verkfall flugfreyja bannað. Lögin voru færð forseta til undirritunar að morgni 24. október, en Vigdís tók sér umþóttunartíma. Ástæðan var ekki sú, að hún hug- leiddi að neita að undirrita lögin. „Það sér hver hugsandi maður að það þarf miklu meira til en setningu kjaralaga einnar stéttar að forseti íslands leggi undir þjóðaratkvæða- greiðslu ákvarðanir lýðræðiskjörins Alþingis og ríkisstjórnar landsins," sagði forseti í Morgunblaðinu 25. október. „En það kom mjög óþægi- lega við mig sem einstakling og for- seta íslands að íslensk stjórnvöld skyldu vera svo óheppin að þurfa að setja slík lög varðandi konur á þessum degi,“ sagði forseti og vísaði þar með til þess, að 24. október 1985 voru liðin rétt 10 ár frá kvennafrídeginum. Ástæða forseta var því persónuleg og hún undirrit- aði lögin þremur tímum eftir að hún fékk þau í hendur. Þrátt fyrir það lýsti þáverandi samgönguráðherra, Matthías Bjarnason, því yfír að hann hefði hiklaust sagt af sér ráðherra- dómi ef undirskrift forsetans hefði dregist fram eftir degi. Eins og fyrr sagði er oft fjallað um efni 26. greinar stjórnarskrár- innar fyrir forsetakosningar og frambjóðendur krafðir svara um hvernig eða hvort þeir myndu beita henni. í umræðuþætti á Stöð 2 í byijun júní á síðasta ári sagði Ólaf- ur Ragnar Grímsson að markmiðið með þessu öryggisákvæði væri ekki í sjálfu sér að forseti beitti því. Æskilegt væri að ávallt væri slíkt samræmi á milli þjóðarvilja og þing- vilja að ekki þyrfti að koma til þess að forseti vísaði máli til --------- þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það má þó ekki gleym- ast að fullveldisrétturinn er hjá þjóðinni. Ef hugs- anlega er að myndast gjá milli þjóðarvilja og þingvilja, þá erþað eðli þessa ákvæð- is að forseti veiti þeim aðila, sem hefur fullveldisréttinn, aðstöðu til þess að segja sitt álit.“ Ólafur Ragnar sagði að beiting málskotsréttar kæmi til greina ef mál snertu fullveldisrétt þjóðarinnar, svo sem aðild að Evrópusambandinu. Ef stjórnmálaflokkar gengju á bak þeirra orða að bera hugsanlega aðild undir þjóðina teldi hann tvímæla- laust að forseti ætti að beita mál- skotsrétti. Ekki heil brú í þjóðkjöri valdalauss forseta Sigurður Líndal, lagaprófessor, ritaði grein í Skírni 1992 urn stjórn- skipulega stöðu forseta Islands. Hann vísar m.a. til umræðna um lýðveldisstjórnarskrána á Alþingi 1944, þar sem látin var í Ijós sú skoðun, að þjóðkjörinn forseti ætti að vera eins konar umboðsmaður þjóðarinnar sem ætti að geta skotið lögum undir atkvæði hennar. „Þetta er eðlilegt viðhorf, enda ekki heil Hefur venja svipt forseta íslands öllum völdum? brú í því að efna til þjóðkjörs um valdalausan forseta þar sem ekki er uin annað að kjósa en persónulega eiginleika," segir Sigurður. Þegar þetta sé haft í huga og það að til- efni til íhlutunai' forseta hljóti eðli málsins samkvæmt að vera fá, sé ekki unnt að halda því fram að venja hafi svipt forseta öllum völdum. Forsetinn sé ekki valdalaust samein- ingartákn. Hann þurfi atbeina ráð- herra til flestra beinna athafna, en hins vegar ekki til synjana sem hon- um séu heimilar að stjórnlögum. Aðrir lagaprófessorar hafa verið á öðru máli. í bókinni Stjórnskipun íslands eftir Ólaf heitinn Jóhannes- son, sem nýlega var endurskoðuð i og -rituð að hluta af Gunnari G. | Schram, segir að í stjórnarskránni sé forseta í orði kveðnu fengið mik- | ið vald, en af öðrum stjórnarskrár- : ákvæðum og stjórnarvenjum hér á landi leiði að í reyndinni sé vald for- ! seta oftast nær lítið og hlutverk 1 hans í löggjöf og stjórnarathöfnum venjulega formsatriði. í bókinni seg- ir einnig, að hafa beri í huga að þó að forsetastaðan sé hér á landi fyrst og fremst táknræn tignarstaða sé forsetinn jafnframt einskonar öryggi í stjórnarkerfinu og geti komið til hans kasta ef stjórnarkerfið að öðru j leyti verði óstarfhæft. Getur forseti fylgt annarri stefnu? Forseti íslands hefur oftast tekið þann kostinn að tjá sig lítt eða ekki um stjórnmál líðandi stundar. Af ummælum núverandi forsætisráð- herra og utanríkisráðherra er ljóst að þeim þykir eðlilegt að ummæli forseta endurspegli stefnu meiri- hluta Alþingis og ríkisstjórnar. Fyrr- verandi utanríkisráðherra, Jón Bald- vin Hannibalsson, sagði í grein í ; Morgunblaðinu í maí í fyrra að þeirri spurningu hefði aldrei verið svarað,; hvort forsetinn eigi að tala máli rík- isstjórnarinnar í erlendum samskipt- um. „Getur forsetinn fylgt allt ann- arri stefnu en sitjandi ríkisstjórn og þingmeirihluti? Á hann þá að gera það fyrir opnum tjöldum og með virkum hætti - eða á laun, í einka- samtölum? Ef upp koma viðkvæm og vandmeðfarin milliríkjadeilumál (eins og t.d. í samskiptum við Norð- menn út af hafréttarmálum) á for- setinn að hafa þar frumkvæði? Eða á hann að láta eins og honum komi málið ekki við?“ spyr Jón Baldvin. Jón Baldvin segir einnig, að í sum- um ríkjum sé það skylda forsetans að tala máli sitjandi ríkisstjórnar og sums staðar sé gengið svo langt að ræður forseta séu samdar í forsætis- eða utanríkisráðuneytinu. Þá víkur utanríkisráðherrann fyrrverandi að ýmsum pólitískum átakamálum, eins og aðildinni að EFTA, aðild að EES, samskiptum íslendinga við Evrópu- sambandiðog útfærslu GATT-samn- ingsins. „Á að ætlast til þess að forseti, sem í fyrri tilveru sinni var einn harðasti andstæðingur þeirrar stefnu í utanríkisviðskiptum, sem meirihluti þings og þjóðar hefur mótað, tali þvert um hug sér í þeim málum? Eða getur hann haldið áfram að beijast fyrir því úr for- setastóli aðstefnunni verði ..... breytt og ísland segi t.d. skilið við Evrópska efnahagssvæð- ið?“ spyr Jón Baldvin. Síðar í grein- inni segir hann, að að óbreyttum lögum og reglum sé forsetaembættið komið í stjórnskipulegar ógöngur. Forsætisráðherra og utanríkisráð- herra hafa báðir lagt áherslu á mikil- vægi þess að forsetinn fylgi stefnu ríkisstjórnarinnar. í viðtali í Morgun- blaðinu í júlí í fyrra var Vigdís Finn- bogadóttir spurð hvort svigrúm hennar til að láta í ljósi skoðanir sínar eða beita áhrifum sínum, inn- anlands eða í samtölum við erlenda þjóðhöfðingja, hefði einhvern tímann verið takmarkað af hálfu stjórnmála- manna. „Nei, ég hef alltaf vitað minn ramma og ekki farið út fyrir hann,“ svaraði þáverandi forseti. „Mér myndi aldrei detta slíkt í hug, vegna þess að ég er lýðræðiskjörin en ekki kjörin af pólitískum flokkum. Ég er ekki talsmaður pólitískrar stefnu, hvorki einnar né annarrar. Ég er kjörin í þjónustuhlutverk, til að sinna þeim verkefnum sem ég er beðin um.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.