Morgunblaðið - 02.08.1997, Page 26
HES HUOMiSVEITI Nil S.QMA
Morgunblaðið/Golli
a sviðÉ en
26 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
m # sóma hjá Smmm.
Morgunblaðið/Halldór
□
n HLJÓMSVEITIN Soma lék ásamt
u nokkrum af vinsælustu hljóm-
sveltum landsins f Njðlsbúð fyrir
skömmu og trylltu þar ungmennl
sem komu vífla afl til að skemmta
sér á sveitaballi.
L1SÖNGVARINN, Guðmundur
^ Annas, matreiddi, lék á gítar og
söng fyrir gesti veltingastaflar á
grfskrl eyju f tæpt ár en hélt sfð-
an heim og og eldar nú ofan f
ferflalanga og gangagerflarmenn f
Hvalflrði (með viðkomu f húsa-
smfflum sem hann gaf upp á bát-
inn eftlr að hafa hrapafl sjö metra
niður af þaki nýbyggingar án £j]
þess afl bffia skaða af). Kærasta
Mumma er Eva Bergþóra, frétta-
maður hjá SJónvarpinu.
H QÍTARLEIKARINN Halldór Sölvi
u starfar á gefideild á Kleppsspft-
ala og kveðst sá annafihvort ætla
afi eyfia fullorflinsárunum f rekst-
ur bars á Spánl efla taka vlfl Q
tvinnaheildsölu föflur sfns.
Kærasta Halla er Edda Lára,
barnaskólakennari og flokksstjóri
f unglingavinnunni.
riGÍTARLEIKARINN Snorri starfar á
“ geðdeild Landspftala, en stefnir á
myndlistamám f Mexfkó og hefur
lofafl sjálfum sér afl fara á eftir-
laun f rokkinu þegar hann nær
þrítugu. Kærasta Snorra heitir
Isól, flugfreyja hjá Atlanta.
TROMMARINN Jónas starfar
sem járnsmiður og hamrar
málma og logsýður hjá Hlera-
gerfl Ögurvikur, eftir afl hafa
m.a. nokkrum slnnum farlfi á
sjólnn og orfllfl tekjukóngur
hljómsveitarinnar. Kærasta hans
heitir Kolbrún, flokkstjóri f ung-
llngavinnunnl.
BASSALEIKARINN Kristinn Jón er
menntaður félagsfræðingur,
starfar við kannanir og rannsókn-
ir hjá Félagsvísindadeild HÍ og er
á leifl f framhaldsnám. Hann er
elni piparsveínninn f hljómsveit-
inni og mlkill tónlistarpælari afi
sögn hlnna.
HLJÓMBORÐSLEIKARINN Þorlák-
ur hefur lagt stund á heimspeki
og bókmenntir f HÍ og fæst nú vifl
graffska tðlvuhönnun ásamt þvf
afl verkstýra vinnuhópi unglinga
hjá Hinu húsinu. Kærasta hans
heitir Linda, prentsmfflanemi hjá
Odda.
Rokkið hefur löngum
haft á sér blæ ólifnaðar
og margir sjá fyrir sér
útlifaða djammara þeg-
ar rokkarar berast í tal.
Þessi ímynd reyndist þó
ekki alsönn þegar að var
gáð. Fyrir valinu varð
hljómsveitin Soma.
Hvað er til ráða gegn psoriasis ?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Hvað er það nýjasta
og árangursríkasta gegn psorias-
is?,
Svar: Ekki hafa nýlega fundist lyf
sem valda straumhvörfum í með-
ferð á sóra (psoriasis). Þó hefur
ýmislegt gerst og m.a. er farið að
nota við þessum sjúkdómi lyf sem
áður voru notuð við öðru. Sjúk-
dómurinn sóri getur tekið á sig
ýmsar myndir og verið misjafn-
lega svæsinn þannig að ekki á það
sama við hjá öllum. Meðferðin
skiptist í tvennt, lyf og annað sem
verkar staðbundið á húðina og lyf
sem tekin eru inn. Þægilegasta
meðferðin er eflaust sól- eða ljósa-
böð og saltvatnsböð, t.d. í Bláa
lóninu. Áhrif af útfjólubláu ljósi
aukast af sumum lyfjanna og eru
lyf og Ijósaböð því oft notuð sam-
an. Af lyfjum sem borin eru á húð-
ina má nefna krem sem innihalda
efni úr tjöru, dítranólkrem,
kalcípótríól (Daivonex) og stera-
1
Sóri
(psoriasis)
smyrsli. Þessi lyf hafa öll í för með
sér aukaverkanir og óþægindi,
dítranól hefur ágæta verkun og
lítið af aukaverkunum en fyrir til-
stilli andrúmsloftsins litast það
brúnfjólublátt og litar húð, neglur,
hár og föt. Tjörulyf og steralyf
ei-u talin varasöm við langtíma-
notkun en kalcípótríól (Daivonex)
verkai’ oft ágætlega og þolist vel.
Til inntöku má nefna metoxalen
sem oft er notað með ljósaböðum
og í erfíðum tilfellum er gripið til
acitretíns (Neotigason), metótrex-
ats eða ciclosporins, en þessi lyf
eru einnig notuð við öðrum sjúk-
dómum. Verið er að þróa nýtt lyf,
tazaróten, sem verkar svipað og
acitretín en er borið á húðina og er
þess vegna laust við flestar auka-
verkanir þess lyfs. Rannsóknir á
þessu lyfí lofa góðu en það er lík-
lega hvergi komið á markað enn.
Spurning: Ég hef haft kláða í
endaþarmi nokkuð lengi og veit
ekki hvað veldur. Mér hefur nú
dottið í hug hvort ég geti verið
með njálg. Hvemig get ég vitað
það, og ef svo væri, hvemig get ég
læknað það? Ég hef ekki farið til
læknis en hef áhuga á að fá svar í
blaðinu.
Svar: Njálgur er lítill innyflaorm-
ur og er algengasta sníkjudýrið
hjá börnum og fullorðnum í lönd-
um með svipað veðurfar og hjá
okkur. I sumum nálægum löndum
er talið að allt að 20% bama séu
smituð. Njálgurinn er þráðlaga,
hvítleitur að lit og er kvendýrið
um 10 mm að lengd en karldýrið
um 3 mm. Smitun verður á þann
hátt að egg berst frá smituðum
einstaklingi og í munn annars.
Eggin berast milli manna með
Kláði
í endaþarmi
fíngmm, fótum, sængurfötum og
leikföngum og þau geta lifað í um-
hverfmu í allt að þrjár vikur við
venjulegan stofuhita. Eggin geta
einnig svifið um í loftinu og borist
þannig í öndunarfæri og síðan
meltingarfæri manna. Eggin
klekjast fljótt út í meltingarfær-
unum og dýrin ná fullum þroska í
neðri hluta þai-manna á 2 til 6 vik-
um. Kvendýrin skríða síðan út úr
endaþarminum, oftast að nætur-
lagi, og verpa eggjum sínum í húð-
fellingar og festa þau þar með lím-
kenndu efni. Hreyfingar ormanna
og límið sem þeir festa eggin með
valda kláða. Ékki er með vissu vit-
að til þess að njálgur valdi öðrum
óþægindum en kláða og margir
þeirra sem ganga með njálg hafa
engin einkenni. Hægt er að greina
njálg með því að finna orma eða
egg umhverfis endaþarminn eða í
saur. Til eru ágæt lyf við njálg en
eins og ætti að sjást af þessari lýs-
ingu er ekki alltaf einfalt mál að
losna við hann. Það verður að
meðhöndla alla fjölskyldumeðlimi,
oftast þarf að endurtaka meðferð-
ina nokknim sinnum og gæta
verður ýtrasta hreinlætis í hví-
vetna. Auk þess verður að þvo
vandlega föt og rúmföt (þvottur
við minnst 60 eða efnalaug). Kláði
í eða umhverfis endaþarm getur
stafað af ýmsu öðru en njálg og
ætti bréfritari hiklaust að fara til
læknis og fá hjálp við greiningu og
meðferð.
• Lesendur Morgnnblaösins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á
hjarta. Tekið er á móti spurningum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í
síma 5691100 og bréfum eða símbróf-
um merkt: Vikulok, Fax: 5691222.