Morgunblaðið - 02.08.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
JAKOB
BJARNASON
+ Jakob Bjarna-
son fæddist í
Hörgsdal á Síðu 4.
júlí 1910. Hann lést
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 28. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Bjarni
Bjarnason, f. 27.
júlí 1871, d. 17.
september 1946, og
Sigríður Kristó-
fersdóttir, f. 7.
október 1879, d. 11.
maí 1966. Systkyni
hans voru Bjarni,
f. 1902, Helga, f. 1903, Rann-
veig, f. 1904, Kristófer, f. 1906,
Jón, f. 1907, Guðríður, f. 1908,
Friðrik, f. 1910, Siguijóna, f.
1912, Þorvarður, f. 1914, Páll,
f. 1915. Eftirlifandi systkini eru
Helga, Jón, Guðríður og Friðrik
tvíburabróðir Jakobs.
Hinn 31.12. 1940 kvæntist
Jakob Róshildi Hávarðsdóttur
f. 29.04. 1913, d. 23.11. 1993.
Dætur þeirra eru: 1) Sigurveig,
f. 1938, maki Óli Jósepsson, f.
1924, börn þeirra eru a) Bjami,
f. 1969, b) Rósa Björg, f. 1972,
maki Bergsveinn Marelsson, f.
1970, c) Halldór, f. 1974, maki
Sigrún Hrefna Arnardóttir, f
1974. 2) Ólafía, f. 1944, maki
í dag kveðjum við Jakob Bjarna-
son bónda á Hörgslandi á Síðu.
Hann verður til moldar borinn frá
Prestbakkakirkju. Jakob var tvíburi,
hinn er Friðrik sem enn býr á
Hraunbóli á Brunasandi. Það var
4. júlí 1910 að Bjarna Bjarnasyni
og Sigríði Kristófersdóttur í Hörgs-
dal bættust þessir tveir synir í stór-
an barnahóp. Jakob var því nýlega
orðinn 87 ára er hann lést að kvöldi
28. júlí síðastliðinn.
Jakob ólst upp í foreldrahúsum
og mannaðist vel. Náttúran er fögur
þar austurfrá og síbreytileg. Veð-
urfar með þvi besta sem þekkist hér
á iandi. Innanum alla blíðuna verða
þó sviptingar í veðrinu og úrhelli
með ótrúlegum vatnavöxtum, sumar
sem vetur. Þar gekk því margur til
verka með votan ljá og fólk lærði
að hver sem sparar sjálfan sig kemst
illa af. Þau vísindi mun ekki hafa
þurft að tyggja í Jakob því hann
var garpur til verka.
Hann kvæntist Róshildi Hávarðs-
dóttur frá Mörtungu í árslok 1940
og árið eftir hófu þau sjálfstæðan
búskap í Kálfafellskoti í Fijóts-
hverfí. Þar bjuggu þau og bættu
jörðina til ársins 1960. Þá keyptu
þau hluta af Hörgslandi á Síðu og
bjuggu þar. Áfram áttu þau Kálfa-
fellskot og nýttu til búskapar sam-
hliða Hörgslandi. Þau eignuðust
þijár dætur og síðan komu ættliðirn-
ir hver af öðrum og ailir eiga skjól
á Hörgslandi.
Það eru orðin allmörg ár síðan
ég kynntist þessu ágæta fólki. Dótt-
ir mín giftist inn í fjölskyldu Jakobs
og Rósu og þar með fylgdi að um-
hyggja þeirra fýrir öllu sem lifði og
hrærðist náði líka til okkar. Þau
létu sig ekki muna um það, enda
munu þau hafa litið á það sem sér-
stakan greiða við sig að fá að sýna
öðru fólki umhyggju og greiða götu
þess. Þannig var íbúðarhúsið á fyrri
bújörð þeirra nýtt sem orlofsbústað-
ui- fyrir ættingja og vini og svo mun
verða áfram trúi ég, því vináttuþráð-
»
Kristinn Siggeirs-
son, f. 1939, börn
þeirra eru a) Jakob,
f. 1963, maki Edda
Huld Sigurðardótt-
ur, f. 1965, börn
þeirra Flóki, f.
1992, Líneik, f.
1994, b) Sigurður,
f. 1964, maki Anna
Harðardóttir, börn
þeirra Elín, f.1984,
Lára, f. 1988, Atli,
f. 1992, c) Soffía, f.
1966, maki Rúnar
Þór Bjarnþórsson,
f. 1963, börn þeirra
Kristinn, f. 1990, Birkir Þór, f.
1997, d) Gunnlaugur, f. 1968.
3) Jóna, f. 1950, maki Hörður
Hauksson, f. 1963, börn þeirra
a) Lilja, f. 1990, b) Egill Sölvi,
f. 1993.
Jakob ólst upp hjá foreldrum
sínum í Hörgsdal. Hann stund-
aði ýmis störf til sjávar og
sveita á sínum yngri árum.
Hann bjó í húsmennsku í
Hörgsdal 1937 til 1941, var
bóndi í Kálfafellskoti í Fljóts-
hverfi 1941 til 1960 og bóndi á
Hörgslandi á Síðu frá 1960 til
dánardægurs.
Útför Jakobs fer fram frá
Prestbakkakirkju á Síðu og
hefst athöfnin kl. 14.
urinn tengist frá kynslóð til kynslóð-
ar.
Jakob var sem fyrr segir garpur
til verka og sparaði ekki sjálfan sig.
Fyrir löngu fékk hann liðagigt og
þó mikið væri gert til hjálpar með
skurðaðgerðum og fleiru urðu hend-
ur hans mjög bæklaðar. Hann lét
þetta ekki aftra sér og féll ekki
verk úr hendi. Hann sinnti nú mest
viðhaldi á húsum og girðingum.
Hann ræktaði líka garðinn sinn í
bókstaflegri merkingu enda komu
kartöflur, rifsber og rabarbari úr
þeim garði og fóru víða. Hann reykti
líka kjöt betur en aðrir menn og á
jólaföstu kom góð lykt í húsið okkar
því þá kom hangikjötið að austan.
Jakob var einstaklega hógvær
maður og hlýr. Hann otaði hvergi
fram skoðunum sínum en á rólegum
stundum kom fram hversu athugull
hann var og hafði frá mörgu að
segja. Við áttum nokkrar góðar
stundir saman hin síðari ár þar sem
hann opnaði dálítið inn í sinn hug-
ar- og reynsluheim. Þær stundir
voru þó alltof fáar. Konu sína missti
Jakob í nóvember 1993. Tveir ætt-
liðir niðja þeirra búa á Hörgslandi
og hinn sami góði andi' mun svífa
þar yfir vötnum í framtíðinni.
Þá er eftir að þakka fyrir allt sem
ég og mitt fólk nutum hjá Jakobi á
Hörgslandi bæði í veraldargæðum
og hollri vináttu. Afkomendum hans
öllum og venslamönnum votta ég
einlæga samúð og kveð Jakob með
mikilli virðingu.
Sigurður Pálsson.
í dag er til grafar borinn Jakob
Bjarnason eða Kobbi eins og hann
var oft kallaður. Það eru tíu ár síð-
an ég hitti þau Jakob og Rósu fyrst
þegar leiðir okkar Jónu dóttur þeirra
lágu saman. Þær eru mér ógleyman-
legar stundimar sem ég átti með
þeim í Kálfafellskoti. Þar fékk ég
að kynnast þeirri þrautseigju sem
bjó í honum Jakobi og entist honum
allt fram á síðustu stund. Ég var
oftast útkeyrður eftir daginn þegar
ég hafði gengið með honum á allar
girðingar og annað sem lagfæra
þurfti. Ekkert verk mátti liggja
óklárað heldur skyldi það lagfært
sem ekki var í lagi þá þegar. Þessi
lífsregla hefur sannarlega dugað vel
enda hefur hann verið farsæll.
Það hefur verið stórvirki hjá ungu
og efnalitu fólki þegar þau Jakob
og Rósa festu kaup á Kálfafellskoti
í Fljótshverfi og hófu búskap. Fram-
undan var uppbygging bústofns og
uppgræðsla túna án véla og tækja.
Lífsbaráttan hefur verið hörð, langt
þurfti að fara til að gefa fénu, sama
hvernig viðraði og í leysingum þurfti
oft að skara af ristinni til að heima-
rafstöðin fengi sitt. Þótt náttúruöfl-
in geti verið óblíð og veturnir lang-
ir hefur þó vorið alltaf hleypt birtu
í bæinn og kjarki í fólkið.
Svo faliegt er í Kotinu með Lóma-
gnúp í forgrunni og Öræfajökul litlu
fjær, að jafnvel Jóhannes Kjarval
kom þangað til að mála og gisti
hann um tíma í Kotinu. Mér eru
minnisstæðar skemmtilegar frá-
sagnir þeirra hjóna af dvöl Kjar-
vals. Árið 1960 fluttust þau að
Hörgslandi á Síðu enda Kotajörðin
of Iítil fyrir þetta stórhuga fólk.
Eftir þennan langa og farsæla bú-
skap hefur það verið honum kært
að sjá afkomendur sína taka við
búskapnum enda er búið nú rekið
með sama myndarskap og áður.
Á Hörgslandi er jafnan margt um
manninn og margar vinnufúsar
hendur, sem ber gott vitni um það
hvernig gömlu hjónin hafa innrætt
sitt fólk og gert starfið í sveitinni
skemmtilegt.
Hjartans þakkir fyrir samveru-
stundirnar, Jakob minn.
Hörður Hauksson.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
VALBJÖRG KRISTMUNDSDÓTTIR,
Höfða,
Akranesi,
sem andaðist laugardaginn 26. júlí sl., verður jarðsungin frá Akranes-
kirkju miðvikudaginn 6. ágúst kl. 14.00.
Elín Jónsdóttir,
Guðný Harðardóttir,
Emil Pálsson,
Valur Emilsson,
Halldóra Emilsdóttir,
Brynjar Emilsson, Eyrún Thorstensen,
barnabarnabörn.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tötvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
uð disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld ( úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins I bréfaslma 5691115, eða á netfang
þess þess (minning@mbl.is) — vinsam-
lcgast sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar
wá lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg
tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina
órk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
+ Bróðir okkar, mágur og frændi,
SKÚLI ÁGÚSTSSON,
Hátúni 10a,
sem iést á Reykjalundi föstudaginn 25. júlí, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 6. ágúst kl. 13.30.
Gunnar Ágústsson, Halldóra Jónsdóttir,
Victor Ágústsson, Ásgerður Ingimarsdóttir,
Elín Ágústsdóttir,
Unna Ágústsdóttir, Ólafur Kristófersson,
Ingi Ágústsson, Mariann Hansen,
Aldís Ágústsdóttir, Stefán Konráðsson,
systkinabörn og systkinabarnabörn.
LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 51
Vinur minn, sonur og bróðir,
SKÚLI JÓN THEODÓRS
flugvélstjóri,
Rekagranda 2,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi,
aðfaranótt föstudagsins 1. ágúst.
Þorbjörn Garibaldason, Guðlín Jónsdóttir,
Auður Ingibjörg Theodórs,
Arndís Gná Theodórs,
Elín Þrúður Theodórs,
Ásgeir Theodórs.
+
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
ÞORBJÖRG INGÓLFSDÓTTIR,
Lindási,
lnnri-Akraneshreppi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn
31. júlí.
Páll Eggertsson
Erling Þór Pálsson, Jóna Bj<
Arnar Þór Eriingsson, Kristinn
Páli Eriingsson, Rúna Hr
Erling Þór Pálsso
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
ARINBJÖRN STEINDÓRSSON,
Steinagerði 19,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 31. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Steinunn Jónsdóttir,
Kristján Arinbjarnarson.
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
JAKOBÍNA BJÖRG EINARSDÓTTIR,
Furugerði 11,
Reykjavík,
lést á sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi
aðfaranótt þriðjudagsins 29. júlí.
Jarðarförin fer fram fró Bústaðakirkju miðviku-
daginn 6. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu
bent á Fljartavernd.
Birna Magnúsdóttir, Þráinn Karlsson,
Magnús Þráinsson,
Karl Þráinsson, Helga M. Óttarsdóttir,
Björg Jakobína Þráinsdóttir, Guðmundur Torfason,
Auður Þráinsdóttir, Marco Dellernfa
og langömmubörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR GEIRSSON,
Gilsárstekk 7,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík þriðjudaginn 5. ágúst kl. 13.30.
Ólína Ragnarsdóttir,
Geir Sigurðsson, Erna Jóna Eyjólfsdóttir,
Sigríður Sigurðardóttir, Óskar Axel Óskarsson,
Erlingur Sigurðsson,
Kristjana Sigurðardóttir, Grímur Helgi Pálsson,
Sigurður Sigurðsson, Hildur Sif Arnardóttir
og barnabörn.
Lokað
Lokað verður þriðjudaginn 5. ágúst milli kl. 13.00—16.00 vegna
jarðarfarar SIGURÐAR GEIRSSONAR.
Lyngvík, fasteignasala.
minnast hinnar látnu, er
-L