Morgunblaðið - 19.10.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997 17
ÍÞRÓTTIR
Tveir íslenskir
umboðsmenn fá
FIFA-réttindi
EYJÓLFUR Bergþórsson og
Ólafur Garðarsson verða fyrstu
Islendingarnir sem fá réttindi
frá Alþjóða knattspyrnusam-
bandinu, FIFA, til að starfa sem
alþjóðlegir umboðsmenn í
knattspyrnu. Fulltrúar Knatt-
spyrnusambands íslands ræddu
við þá á föstudag og fóru yfir
gögn þeirra en í kjölfarið fær
FIFA málið til afgreiðslu.
Aðeins umboðsmenn með
fyrrnefnd réttindi mega starfa
að sölu og kaupum leikmanna
og til að fá viðurkenningu FIFA
til starfans verða þeir að upp-
fylla ákveðin skilyrði, m.a. að
leggja fram bankatryggingu að
upphæð 200.000 svissneskra
franka (um 10 millj. kr.) og
sakavottorð.
Tvímenningarnir uppfylla öll
sett skilyrði og því má gera ráð
fyrir því að þeir verði viður-
kenndir umboðsmenn innan
skamms.
Morgunblaðið/Kristinn
ANJA Andersen, handknattleikskonan frábæra, í úrslita-
leiknum gegn Suður Kóreu á Ólympíuleikunum í Atlanta í
fyrra. Hún átti mikinn þátt í að Danlr urðu Ólympíumeistarar.
Anjaerbetri
en karimenn
Danska handknattleikskonan
Anja Andersen er leikur með
norska félaginu Bækkelaget hefur
oft verið talin besti handknattleiks-
maður heims í kvennaflokki, en
þjálfari hennar Frode Kyvág var
ekki nokkrum vafa og eftir stórleik
Anju með félaginu sínu í EHF-
keppninni um síðustu helgi. Þá
sagði Kyvág að hún væri betri en
flestir karlmenn í íþróttinni. „Þeir
eru ekki margir karlmennirnir sem
standa henni framar," sagði
þjálfarinn í samtali við Verdens
Gang
í umræddum leik Bækkelaget í
Evrópukeppninni sem var gegn
Olimpija Ljubljana frá Slóveníu
skoraði hún 16 mörk í 33:21 sigri
norska liðsins. Mörkin voru í öllum
regnbogans litum og réðu mark-
verðir Olimpija ekkert við þau.
„Vera kann að margir karlmenn
skjóti fastar, en ég fullyrði að eng-
inn karlamaður skjóti betur á
markið en hún gerir. Anja er einn
einn allra besti handknattleiksmað-
ur heims og fáir karlmenn standa
henni á sporði. Engin vörn hefur
enn fundið leið til þess að stöðva
stökk- og gólfskot hennar. Hún
skorar frá stöðum á vellinum þar
sem halda mætti að ómögulegt
væri að skora.“
Helga í 3. sæti
Helga Magnúsdóttir skylminga-
maður er í efsta sæti í stiga-
keppninni um N-Evrópubikarinn í
skylmingum með höggsverði. Eftir
sigur í fyrsta mótinu þá varð hún
í þriðja sæti í 2. umferðinni sem
fram fór í Amsterdam um síðustu
helgi. Þá varð Sigrún Geirsdóttir í
19. sæti en alls voru keppendur 23
í kvennaflokki.
í karlaflokki voru 69 keppendur
og þar náði Ragnar Sigurðsson
bestum árangri en hann varð í 17.
sæti. Kári Björnsson varð 42., Guð-
jón Gestsson í 52. sæti, Kristmund-
ur Bergsveinsson hlaut 54. sæti og
Sigurður Guðbjörnsson hreppti 60.
sætið.
Árangur Helgu er athyglisverður
þar sem hún gekk ekki heil til skóg-
ar í einstaklingskeppninni eftir að
hafa meiðst illa í baki í liðakeppn-
inni á laugardag. Að sögn Nikolays
Mateevs landsliðsþjálfara sýndi
Helga mikla keppnishörku í ein-
staklingskeppninni með því að
keppa meidd og ná þriðja sætinu.
Hún sigraði í stigakeppninni um
N-Evrópubikarinn sl. vor, en alls
eru mótin átta í röðinni. Næst verð-
ur keppt í Kaupmannahöfn í nóv-
embermánuði.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 24. og 25. október 1997
Við styðjum Júlíus Vífil
í eitt af efstu sætunum
Magnús L. Sveinsson, formaður vr.
Þuríður Pálsdóttir, óperusöngkona.
Jón Þórarinsson, tónskáld.
Gunnar Jóhann Birgisson, borgarfuiitrúi.
Asta Möller, hjúkrunarfræðingur.
Guðmundur H. Garðarson, fyrrv. alþingismaður.
Jónas Hvannberg, menntaskólanemi.
Ellert B. Schram, fyrrv. alþingismaður.
Valdimar Grímsson, handboltamaóur.
Sigríður Ragna Sigurðardóttir, dagskrárfuiitrúi.
Daði Guðbjörnsson, listmáiari.
Páll Gíslason, læknir.
Sigfús Sigfússon, forstjóri.
Egill Eðvarðsson, kvikmyndagerðarmaður.
Margrét Theodórsdóttir, skóiastjóri.
Lárus Sigurðsson, knattspyrnumaður.
Hilmar Guðlaugsson, borgarfulltrúi.
Guðrún Pétursdóttir, háskólakennari.
Jónas Fr. Jónsson, lögmaður.
Hjálmar Blöndal Guðjónsson, menntaskólanemi.
Þorbjörn Jensson, landsUðsþjáifari.
Sigurður Helgi Guðmundsson, forstjóri Skjóis og Eirar.
Sindri Sindrason, framkvæmdastjóri.
Guðmundur Torfason, knattpyrnuþjálfari.
Unnur Jónasdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar.
Baldvin Tryggvason, fyrrv. sparisjóðsstjóri.
Jóhanna Thorsteinson, leikskóiastjóri.
Stefán Gunnarsson, byggingameistari.
Björg Einarsdóttir, rithöfundur.
Sigurbjörn Magnússon, hæstaréttarlögmaður.
Katrín Fjeldsted, læknir.
Andri Sigþórsson, knattspyrnumaöur.
Kosningaskrifstofan er að Suðurgötu 7.
Opið alla daga kl. 13-22
Símar 561 7640 og 561 7641 • Símbréf 561 7643