Morgunblaðið - 19.10.1997, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997 53
FÓLK í FRÉTTUM
i
I
í
I
í
-J
i
i
i
i
i
i
i
Öflugt sjálf-
boðaliðastarf
eldri borgara
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FREMST á myndinni fyrir miðju sitja Ragnar Jörundsson, framkvæmdastjóri FEB, og Páll Gíslason læknir, sem er formaður félagsins.
►í FÉLAGI eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni eru á
sjöunda þúsund félagsmanna.
Mikið sjálfboðaliðastarf fer
fram í þágu félagsins og á haust-
mánuðum ár hvert býður fram-
kvæmdastjórn FEB sjálfboðalið-
um til samverustundar einn eft-
irmiðdag.
Myndin hér að ofan var tekin
í vikunni á slíkri stundu, en
marga sjálfboðaliða vantar þó í
hópinn.
MYIMDBÖIMD
Glæfraför til
Grænlands
Lesið I snjéinn_____
(Smilla’s Sense of Snow)
-k-k'h
Framleiðandi: Bernd Eichinger.
Leikstjóri: Bille August. Handrits-
höfundur: Ann Biderman eftir sam-
nefndri skáldsögu eftir Peter Hoeg.
Kvikmyndataka: Jörgen Persson.
Tónlist: Harry-Gregson Williams.
Aðalhlutverk: Julia Ormond, Gabri-
el Byrne og Richard Harris. 124
mín. Danmörk/Bandaríkin. 20th
Century Fox/Sam myndbönd 1997.
Útgáfudagur: 13. október 1997.
Myndin er bönnuð börnum yngri
en 16 ára.
SMILLA er hálfgrænlensk og er
lærð stærðfræðingur og jöklafræð-
ingur. Þegar grænlenski drengurinn
Isaiah, sem er vinur hennar, deyr
eftir að hafa stokk-
ið fram af húsinu
sem þau búa í fer
Smilla að rannsaka
málið. Hún kemst
fljótt að því að
málið er mjög flók-
ið og brátt er setið
um líf hennar.
Þegar kvikmyndir
eru gerðar eftir
bókum er alltaf
gerður samanburður. Það sem gerir
þessa bók góða er mannlegi þáttur-
■nn. Glæpafléttan er samt marg-
slungin og vel uppbyggð, en ekkert
sérstök að öðru leyti. Hér hefur tek-
ist vel til að einfalda þessa flóknu
glæpasögu en því miður hefur mann-
legi þátturinn orðið útundan. Smilla
er í bókinni mjög sérstakur og aðlað-
andi persónuleiki, en hér er hún
köld og leiðinleg. Samband hennar
við drenginn Isaiah er allt of yfir-
borðskennt, og smiðurinn sem hér
er leikinn af Gabriel Byrne er mun
geðslegri en hann er í bókinni. Eini
iifandi karakterinn er Nils, leikinn
af Jurgen Vogel.
Kvikmyndin ætti að fá að vera kvik-
mynd í friði fyrir bókinni, en það
er einfaldkega erfitt að horfa upp
á hvernig frábært tækifæri til að
gera sérstæða mynd er eyðilagt svo
herfilega. Það hefði verið gaman
að sjá heimspeki Smillu skila sér á
einhvern hátt því hún er alveg ein-
stæð ásamt athugunum hennar um
snjó. Grænlensk menning gleymist
að mestu, og er það miður því ég
man ekki eftir að gerð hafi verið
æynd um Grænlendinga í Dan-
mörku og hvernig sú menning hefur
liðið.
Ef við lofum bókinni að hvíla í friði,
verður að segjast að myndin er vel
gerð tæknilega. Hún er vel kvik-
mynduð og eru atriðin frá Græn-
landi mjög falleg. Leikmyndin er
flott og mikið stórvirki í því sem
snýr að Grænlandi. Þannig verður
myndin mjög ánægjuleg að horfa
á. Það má því vel vera að þeir sem
ekki hafa lesið bókina um Smillu í
glæfraför geti notið hennar.
Hildur Loftsdóttir
TOYOTA
Goðsögn meðal lyftara
1 - 1.8 tonn
2-3 tonn
1 -1.5 tonn
2-3 tonn
FBESF
5FBE
FBMF
6 FDF DISEL