Morgunblaðið - 02.11.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.11.1997, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 26/10-1/11. ^BS P&S dregnr úr hækk- ► SAMKOMULAG í lífeyr- isnefnd fjármálaráðherra felur í sér aukið svigrúm lífeyrissjóða til að ákveða lágmarksiðgjald til sam- tryggingar. Telji lífeyris- sjóður að hann geti uppfyllt skilyrði lífeyrissjóðafrum- varpsins um lágmarks tryggingarvernd sjóðfélaga með 8-9% iðgjaldi er honum heimilt að ákveða að hafa það svo lágt. Sjóðfélaginn sjálfur ætti þá að geta tekið ákvörðun um i hvaða sjóð hann greiðir það sem vantar upp á lágmarksiðgjaldið sem verður eftir sem áður 10%. ► Útvarpsréttarnefnd hef- ur veitt Pósti og síma hf. 24 leyfi til endurvarps á sjónvarpsdagskrá um breið- band. Formaður nefndar- innar segir nefndina telja þörf á að endurskoða út- varpslög og bæta við þau skýrum ákvæðum um rétt- indi og skyldur þeirra sem reka kapalkerfi. ► ALLT útlit er fyrir að þroskaþjálfar fari í verkfall á morgun, mánudag, en samninganefnd ríkisins hef- ur hafnað því að veita þroskaþjálfum sambærileg- ar hækkanir og leikskóla- kennarar og grunnskóla- kennarar hafa samið um. un á gjaldskrá SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur til- kynnt að hækkun sem boðuð var í byij- un vikunnar á gjaldskrá Pósts og síma hf. fyrir staðarsamtöl 1. nóvember þegar ailt landið verður eitt gjaldsvæði verði lækkuð, en kröftug mótmæli bárust yfír- völdum og P&S hvaðanæva að vegna hækkunarinnar. Eftir fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra tilkynnti Halldór Blöndal samgönguráðherra að hann hefði gert tillögu um að þriggja mínútna staðarsímtöl hækkuðu um 20,8% í staðinn fyrir þá 40% hækkun sem tekið hefur gildi. Ákvörðun sem tekin hafði verið um 22% lækkun á milli- landasímtölum stendur óbreytt og mun P&S bera kostnaðinn af henni án þess að komi til hækkunar á innanlandstaxt- anum. Breytingamar sem ákveðnar höfðu verið hefðu þýtt um 100 milljóna króna kostnað fyrir P&S, en eftir að dregið verður úr hækkununum mun það hafa í för með sér 380 milljóna króna tekjurýmun fyrir fyrirtækið. Kennarar fá 33% SAMNINGANEFNDIR kennarafélag- anna og launanefndar sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning þegar verkfall grunnskólakennara hafði staðið yfír í tæpan sóiarhring. Samningurinn giidir frá 1. ágúst sl. og felur í sér um 33% meðalhækkun launa á samnings- tímanum sem stendur út árið 2000. Er þá meðtalin 4% launahækkun sem sam- ið var um með bráðabirgðasamkomu- lagi í mars síðastliðnum. Samið um síldina ► EFTIRSPURN eftir vinnuafli hefur ekki verið jafnmikil og nú frá því i septembermánuði árið 1991. Vi\ja atvinnurekendur fjölga starfsmönnum um 535 manns á landinu öllu eða sem nemur 0,6% af mannafla á vinnumarkaði. SAMNINGAR hafa tekist um heildar- veiði úr norsk-íslenska síldarstofninum á næsta ári, og verður heildarveiðikvóti næsta árs 1.290.000 tonn, sem er tæp- lega 200 þúsund tonnum minna en heimilað var að veiða í ár. í hlut íslend- inga kemur 202 þúsund tonna veiði- kvóti, sem er sama hlutfall af veiðikvót- anum og á þessu ári. Ciinton og Jiang semja BILL Clinton Bandaríkjaforseti ræddi á miðvikudag við Jiang Zemin, forseta Kína, en opinberri heimsókn þess síð- arnefnda til Bandaríkjanna lýkur í dag. Á fundi leiðtoganna í Washington samþykkti Clinton að heimila sölu á kjamakljúfum til Kína eftir að Jiang hafði lofað að Kínveijar myndu ekki aðstoða ríki eins og íran við smíði kjarnorkuvopna. Þetta er fyrsti leið- togafundur Bandaríkjanna og Kína í átta ár en mótmæli almennings við ástandi mannréttindamála í Kína hafa sett svip sinn á heimsóknina. Bamfóstra hlýtur lífstíðardóm NÍTJÁN ára bresk bamfóstra var á föstudag dæmd í fangelsi til lífstíðar í Bandaríkjunum fyrir að hafa myrt ungbarn sem hún gætti, með því að slá höfði þess utan I vegg. Dómur- inn hefur vakið hörð viðbrögð, ekki síst í Bretlandi, þar sem mörgum þyk- ir að ekki hafí verið sannað að um morð hafí verið að ræða. Verðfall á mörkuðum GENGI verðbréfa á fjármálamörkuð- um heims var orðið tiltölulega stöð- ugt undir lok vikunnar eftir miklar dýfur og uppsveiflur í vikunni. Á mánudag varð mesta lækkun sem orðið hefur á Dow Jones vísitölunni í áratug og voru viðskipti stöðvuð í tvígang á Wall Street. Var verðfallið rakið til ólgu á verðbréfamörkuðum í Hong Kong. Daginn eftir kúventu bandarískir markaðir og varð mesta hækkun sem orðið hefur á einum degi. ►ÍRÖSK stjórnvöld bönn- uðu í vikunni Bandarikja- mönnum að taka þátt i vopnaeftirliti Sameinuðu þjóðanna í landinu. SÞ stöðvuðu þegar vopnaeft- irlit í írak og lýstu bresk og bandarísk stjórnvöld því yfir að ekki væri úti- Iokað að gripið yrði til hemaðaraðgerða gegn írökum ef þarlendir ráða- menn stæðu við ákvörðun sina. ►MARY McAleese var i gær kjörin forseti írlands. Hlaut hún 59% atkvæða en kjörsókn hefur aldrei verið minni á írlandi, um 47%. ►GORDON Brown, íjár- málaráðherra Bretlands, lýsti því yfir á mánudag að Bretar myndu standa utan Efnahags- og mynt- bandalags Evrópu, er þvi yrði hleypt af stokkunum 1999 og útilokaði nánast að þeir yrðu aðilar fyrr en eftir árið 2002. ►LITHÁAR hafa hafnað tilboði rússneskra sljóm- valda um öryggistrygg- ingar, sem Borís Jeltsín Rússlandsforseti lagði fram á fundi sinum og Algirdar Brazauskas for- seta landsins. Lettar hafa einnig hafnað tilboðinu. ►DANSKUR fangi, sem fiúði til Finnlands, er hon- um var gefið helgarfrí úr fangelsi, hefur játað að hafa myrt tvo lögreglu- menn í Helsinki. Þeir vom skotnir er þeir eltu Dan- ann, sem hafði framið rán á hóteli. Félagsvísindastofnun kannar kerfi almannatrygginga Útbreiðsla almenn en hlutfall greiðslna lágt ALMANNATRYGGINGAR á Islandi eru mjög yfírgripsmiklar að því leyti að þær ná til þorra landsmanna, en hins vegar eru íslendingar eftirbátar flestra annarra OECD-ríkja hvað varðar hlutfall tryggingagreiðslna af heildarlaunum verkamanna, sam- kvæmt Stefáni Ólafssyni prófessor. Stefán kynnti ófullgerða könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla ís- lands um „Almannatryggingar í fjöl- þjóðlegu samhengi" á ársfundi Tryggingastofnunar ríkisins á föstu- dag og ságði að endanlegra niður- staða væri að vænta innan nokkurra vikna, en áherslan væri mest á það hvernig ísland félli að hugmyndinni um norrænt velferðarkerfí. Jafngott og það besta? „Það mætti segja að þróun al- mannatrygginga á Islandi hafí gerst í tveimur sprengjum," sagði Stefán. „Það voru lögin um alþýðutrygging- ar árið 1936 og lögin um almanna- tryggingar árið 1947. Þau höfðu það markmið eins og kom fram við stjórnarmyndun nýsköpunarstjórn- arinnar að færa skyldi Islendingum almannatryggingakerfi, sem væri jafngott og það besta sem þekktist í heiminum. Það var sérstaklega lit- ið til Nýja-Sjálands og Bretlands." Þegar metið er hversu vel hafí tekist til er um tvo mælikvarða að ræða, annars vegar útbreiðslu og hins vegar að hve miklu leyti tekju- missir sé bættur. Neðstir með Áströlum Samkvæmt töflum, sem Stefán sýndi, var hlutfall greidds ellilífeyris sem hlutfall af heildarlaunum verka- manna árið 1985 tæplega 35 af hundraði og stóðu ísiendingar þar jafnfætis Aströlum neðstir á lista yfir 19 OECD-ríki. Efstir voru Belg- ar með rúmlega 80 af hundraðþ þá Svíar með 75 af hundraði og þá Ital- ir með rúmlega 70 af hundraði. Út- breiðsla ellilífeyristrygginga á Is- landi hefði hins vegar verið nálægt 100% á sama tíma, en meðaltal 18 OECD-landa rúmlega 90 af hundr- aði. Samkvæmt tölum Stefáns var útbreiðsla tekjutryggingar sjúkra- trygginga árið 1985 100% í sex af þeim 19 OECD-löndum, sem hann hafði til samanburðar, Þau ríki voru ísland, Sviss, Danmörk, Finnland, Svíþjóð og Noregur. Á þeim tíma var ísland hins vegar með lægsta hlut- fall af heildariaunum verkamanns af löndunum 19 fyrir utan Bandaríkin. Upphæð sjúkradagpeninga á íslandi var þá um fjórðungur heildarlauna verkamanns. Næstir fyrir ofan voru Bretar þar sem hlutfallið var um þriðjungur og síðan Ástralir með um 40 af hundraði. Hin ríkin 16 borguðu helming heildarlauna verkamanns í slysatryggingu eða meira og Þjóð- veijar og Norðmenn bættu þá iauna- missi að fuilu. * A landsliðs- æfíngu LANDSLIÐ íslands í handbolta keppir öðru sinni við lið Litháa í íþróttahúsinu við Kaplakrika í Hafnarfirði í kvöld, sunnudags- kvöld. Leikurinn er liður í Evr- ópukeppni landsliða. íslenska lið- ið tapaði fyrri leiknum með þrem- ur mörkum sl. miðvikudag. Landsliðsmennirnir æfðu í Kapla- krika á föstudag, sjálfsagt til að tryggja að sagan frá Litháen end- urtaki sig ekki. Ungur stuðnings- maður liðsins stóð utan við gler- vegg og fylgdist spenntur með. ----------*------- • • Olvaður og réttindalaus ÖLVAÐUR og réttindalaus ungling- ur ók utan í vegg í Vestfjarða- göngunum aðfaranótt laugardags. Farþegi sem var í bílnum slasað- ist, en þó ekki alvarlega að sögn lögreglu. Bíllinn er talinn gjörónýtur. Þá var annar ölvaður ökumaður tekinn um svipað leyti í göngunum. — ♦ ♦ ♦ * A batavegi STÚLKAN frá Egilsstöðum, sem brenndist í heitu baðvatni í fyrra- kvöld var flutt á gjörgæsludeild Landspítalans. Að sögn lækna er líðan hennar góð og er hún á batavegi. Morgunblaðið/Golli Lokun Goethe-stofnunarinnar Gæti skaðað viðskiptatengsl landanna I FRETTATILKYNNINGU sem sendinefnd á vegum þýska Sam- bandsþingsins hefúr sent frá sér til þýskra Qölmiðla segir að íslend- ingar í viðskiptalífínu telji að lokun Goethe-stofnunarinnar í Reykjavík muni hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðskiptasamband landanna tveggja. Ástæðan er sú að möguleikar íslendinga til að læra þýsku muni minnka og ís- lenskum námsmönnum í Þýska- landi þar af leiðandi fækka. í tilkynningunni segir ennfrem- ur að nefndin muni beita sér gegn lokun stofnunarinnar meðal ann- ars með því að ræða við Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýska- lands. Þingnefndin, sem fæst við sam- skipti Þýskalands og Norðurlanda, var á ferð á íslandi um miðjan október og ræddi við fulltrúa fé- lagsins Germaníu, Þýsk-íslenska verslunarráðsins, ýmsa þingmenn, ráðherra og embættismenn. í fréttatilkynningunni segir að nefndarmennimir hafi fundið fyrir miklum áhuga íslendinga á Þýskalandi og að allir sem þeir hafi rætt við hafi sagt Goethe- stofnunina mikilvæga fyrir tengsl landanna. Viðmælendurnir tjáðu nefndinni að íslendingar litu á boðaða lokun stofnunarinnar sem móðgun, því að ef hún kæmist í framkvæmd yrði ísland eina land Norður-Evrópu þar sem ekki væri starfandi nein Goethe-stofnun. Álíka upphæð og efnaður Hamborgarbúi svíkur undan skatti Fyrirhuguð lokun stofnunarinn- ar hefur einnig orðið aðalritstjóra blaðsins Súddeutsche Zeitung, eins stærsta og virtasta dagblaðs Þýskalands, tilefni til greinaskrifa. Ritstjórinn, Herbert Riehl-Heyse, rekur lokunina til fámennisins á íslandi. Hann bendir þó á að kostn- aðurinn af rekstri stofnunarinnar, sem er um 350 þúsund þýsk mörk, eða rúmar 14 milljónir íslenskra króna, sé hverfandi í þýsku sam- hengi, ekki meira en það sem efn- aður Hamborgarbúi svíki undan skatti á ári að meðaltali.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.