Morgunblaðið - 02.11.1997, Side 16

Morgunblaðið - 02.11.1997, Side 16
16 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Spítala- líf 2 KVIKMYNPIR Regnboginn LANSINN 2 „RIGET 2“ ★ ★ ★ Leikstjórar: Lars von Trier og Mort- en Arnfred. Handrit: Von Trier og Niels Vörsel. Kvikmyndatökustjóri: Eric Kress. Tónlist: Joachim Holbek. Aðalhlutverk: Emst Hugo Jarkard, Kirsten Rolffes, Holger Juul Hansen, Sören Pilmark og Ghita Nörby. 286 min. Enskur texti. LANSINN 2, framhaldsmynd dönsku sápuóperuhrollvekjunnar sem Ríkissjónvarpið sýndi fyrir nokkru, er á dagskrá Kvikmynda- hátíðar í Reykjavík í fullri lengd, næstum fimm tímar. Hún tekur við nákvæmlega þar sem fyrri myndin endaði og heldur áfram að rekja ákaflega dularfulla atburði er eiga sér stað á Ríkisspítalanum í Kaup- mannahöfn og snýst í kjarna sínum um baráttu góðs og ills. Þeir sem höfðu gaman af Lansanum munu örugglega skemmta sér vel á fram- haldinu, sem gert er af meira al- vöruleysi er fyndið vel og oft hroll- vekjandi. Lars von Trier og Morten Am- fred stýra framhaldinu í sameiningu og halda sama frásagnarstíl og ein- kenndi fyrri myndina. Handhelda myndavélin, sem fór fyrir brjóstið á mörgum, er enn á sífelldu iði milli persónanna og skapar óróa og yfirbragð heimilda- eða frétta- mynda. Einnig er gulleitum filter brugðið fyrir linsuna sem gefur myndinni sína sérstöku áferð hrörn- unar, er hentar vel hrollvekjandi spítalasögunni. Myndin hefst á því að gamla skyggna konan frú Drusse (Kirsten Rolffes) lendir í bílslysi á leiðinni af spítalanum hafandi leyst hina dularfullu gátu fyrri myndarinnar. En hún á greinilega verk óunnið á stofnunni og er lögð inn aftur að fást við þann úr neðra. Sænski danahatarinn (Ernest Hugo) byrlar samstarfsmanni er hann þolir ekki haitískt dásvefnlyf og yfirmaður deildarinnar (Holger Juul) leitar sér sálfræðihjálpar hjá furðufugli í kjallara spítalans. Hið illa er á sveimi um bygginguna sem fyrr og ífvimíNiAHÁn*’ \í Sunnudagur 2. nóvember Regnboginn Kl. 15.00 Hamlet (lengri útgáfa) Swingers Substance of Fire Transformer Kl. 17.00 Looking for Richard subUrbia Kl. 19.00 The Brave Othello Kl. 21.00 Hamlet The Brave Kl. 23.00 Substance of Fire Looking for Richard Laugarásbíó Kl. 15.00 En avoir (au pas) Un été á la Goulette Kl. 17.00 The Truce Kl. 19.00 The End of Violence Kl. 21.00 The Winner The End of Violence Kl. 23.00 The Truce Drunks LISTIR sækir að hinu góða í líki afmyndaðs fyrirbura. Andi David Lynch svífur hér yfír vötnum og þeim von Trier og Arn- fred tekst að skapa heilmikinn óhugnað sem góð tónlistin og áhrifshljóð ýta undir. Hinn ljúfí danski húmor er mjög áberandi í fyrri hluta fram- haldsins og oft skellir maður upp úr einkanlega að því er snýr að sænska lækninum, sem Ernest Hugo leikur af hreinni snilld. Annars eru allir leikararnir prýðilegir í hlutverkum sínum og eiga ekki svo lítinn þátt í að gera Lansann, bæði 1 og 2, að fyrirtaks- skemmtun. Þeir skapa með hjálp von Triers og félaga trúverðugar persónur innan furðuveraldar spít- alans sem þú fmnur til með og hlærð að af því þær eru fyrst og fremst manneskjulegar. Á því byggist gamansemin. Og ekki síður hrollurinn. Gægjugötin í Goulette Laugarásbíó SUMARIÐ í GOULETTE ★ ★ ★ LEIKSTJÓRINN Férid Bougnéd- ir frá Túnis kann að búa til svel- landi kynþokka úr forboðinni ást í myndinni Sumarið í Goulette. Hún er dæmisaga sem gæti gerst í nú- tímanum en gerist reyndar fyrir nokkrum áratugum á mikilvægum tímapunkti í samskiptum landanna fyrir botni Miðjarðarhafs eins og í ljós kemur í lok myndarinnar. Hún segir frá þremur feðrum, þremur dætrum og þremur vonbiðlum af flokki múslíma, kristinna manna og gyðinga í hinum gullfallega strandbæ Goulette í Túnis þar sem gægjugöt eru á öllum húsum svo auðveldara sé að njósna um ná- grannann. Frægasti íbúi landsins er leikkonan Claudia Cardinale og hún birtist í eigin persónu bæj- arbúum til ævar- andi gleði og ánægju. Sólin skín, fegurð landsins er ómæld og gleði ríkir í hjörtum mannanna nema feðurnir þrír eru miður sín vegna hinna gullfallegu dætra sinna. Andrúms- loftið er kímniblandið og með ein- dæmum kynferðislegt: Það gerist ekkert og ekkert er sýnt en samt er allt ti) staðar. Bougnédir hefur gert list úr tempraðri erótík í hitan- um í Goulette. Tvær einmana sálir Laugarásbíó AÐ HAFA EÐA EKKI ★ ★ FRANSKA myndin Að hafa eða ekki eftir Laetitia Masson segir af tveimur einmana sálum sem hittast fyrir tilviljun í stórborg í Frakk- landi og úr verður ástarsamband. Aðdragandi þess er langur. Fyrst kynnumst við högum konunnar sem missir atvinnuna og síðar mannsins sem þráir að eiga samskipti við konur en verður lítið ágengt nema með mellum. í fyrstu virðast þau ekki hæfa hvort öðru en ástin, sér- staklega Frakkanna, er óútreiknan- leg. Masson hefur gert skondna mynd um ástina, einlæga og hlýja. Arnaldur Indriðason ÚR kvikmyndinni the Brave. Háskólabió Kl. 15.00 og 17.15 Carla’s Song Kl. 21.00 og 23.00 Gridlock’d Georgia Mánudagur 3. nóvember Regnboginn KI. 17.00 og 21.00 The Brave Paradise Road Kl. 19.00 og 23.00 Cosi Intimate Relations Laugarásbíó Kl. 17.00 Drunks Kl. 19.00 The Winner Kl. 21.00 og 23.00 The End of Violence The Truce Háskólabió Kl. 17.15 Carla’s Song KI. 21.00 og 23.00 Gridlock’d Georgia ERLENDAR BÆKUR Geðlæknirinn, blaðamaðurinn og fj öldamorðinginn Caleb Carr: „The Alienist". Bantam Books 1995. 597 síður. EIN AF þeim metsölubók- um sem ég hef lengi ætlað mér að lesa en ekki komið mér til þess fyrr en nú fyrir skemmstu er „The Alienist" eftir bandaríska rithöfundinn Caleb Carr. Það var með tals- verðri eftirvæntingu sem ég loksins sett- ist niður með hana því orðspor hennar var gott. Hún kom út fyrir eitthvað um þremur árum og vakti strax mikla athygli. Hún var í sex mánuði á met- sölulista The New York Times og hlaut afbragðsgóða gagn- rýni. Höfundurinn hafði ekki skrifað mikið áður og var tiltölulega óþekktur en lofaður í hástert og sagður réttilega hafa samið bók sem var meira varið í en flestar aðrar í af- þreyingarhillum bókabúðanna, ákaf- lega vel samda sögulega spennu- sögu um leit að íjöldamorðingja. I einum dómi sagði að Caleb Carr gleddi bæði þá sem höfðu gaman af Ragtime og Lömb- unum þagna og það er nokkuð til í því. „The Alienist" gerist í New York um síðustu alda- mót og segir af leit sérvalins hóps manna að skelfilegum fjöldamorðingja, sem myrðir og limlestir börn. Spennandi sögusvið Þótt sagan sé næstum sex hundruð síður prentuð með mjög smáu letri verður hún aldrei langdregin heldur þvert á móti er eitthvað að gerast á hverri síðu sem gerir hana spennandi, óhugnanlega og kannski ekki síst fræðandi lesn- ingu um tíðarandann í New York fyrir hundrað árum. í henni koma fyrir þekktar per- sónur borgarinnar eins og lög- reglustjórinn Theodore Roose- velt, sem síðar varð litríkur for- seti, og mannlífi og umhverfi stórborgarinnar er lýst af mik- illi fæmi. Carr, sem er menntað- ur í sagnfræði, notfærir sér hið forvitnilega sögusvið og sögutí- mann til hins ýtrasta og býr til úr hvoru tveggja ákjósanlegan bakgrunn spennusögu um það hvemig menn við lok síðustu aldar tóku að beita því sem í dag em kallaðar nútímalegar aðferðir við leit að fjöldamorð- ingja. Sagan í „The Alienist" er sögð næstum aldarfjórðungi eftir að atburðir hennar eiga sér stað en sögumaður er blaðamaður við The New York Times, Moore að nafni. Heiti bókarinnar er dregið af aðal- persónu hennar geðlækninum og sálkönnuðinum Laszlo Kreizler en titillinn er gamalt enskt heiti yfir geðlækna. Kreizler er einskonar Sherlock Holmes, alvitur sérvitringur með sálvísindin að vopni, og Moore verður hans Watson þegar lögreglustjórinn Roose- velt setur þá yfír sérstakan rannsóknarhóp er fínna skal í snatri barnamorðingja sem gengur laus í borginni og myrð- ir unga drengi er selja blíðu sína í fátækrahverfunum. Hin byltingarkennda aðferð Kreizl- ers og félaga er að draga upp sálfræðilegan prófíl áf morð- ingjanum byggðan á gerðum hans, morðaðferð, tímasetning- um morðanna og morðstöðum svo nokkuð sé nefnt, þar til þeir þekkja bakgrunn hans og sögu og reyna að spá í næstu voðaverk hans í æsilegu kapp- hlaupi við tímann. Styrkur í smáatriðunum Styrkur bókarinnar liggur ekki síst í smáatriðunum. Carr hefur kynnt sér til hlýtar sögu- efni sitt og fléttar inn í söguna margskonar fróðleik um New Yórk, íbúana, ríka og fátæka, hugmyndir sem þá voru uppi í geðlæknisfræði og heimspeki, væringar á pólitíska sviðinu, undirheima New York, heimil- islíf Roosevelts verðandi for- seta og ýmislegt fleira bita- stætt. Einnig hefur hann aflað sér víðtækrar þekkingar á hug- myndum manna um hvemig fjöldamorðingjar verða til og leitar fýrst og fremst í æskuna eftir svörum. Annað sem Carr vinnur vel er persónusköpunin en geðlæknirinn Kreizler er einhver athyglisverðasta sögu- persóna bandarískra afþrey- ingabókmennta síðustu ára, nánast alvitur vísindamaður og húmanisti sem þráir að komast að sannleikanum. Aðrar per- sónur eru ekki síður vel skrifað- ar þótt þær falli nokkuð í skuggann af Kreizler. Caleb Carr gerir þessa hundrað ára sögu að ljóslif- andi, stundum hrollvekjandi, alltaf spennandi og á endanum magnaðri frásögn samda af innsæi, skilningi og þekkingu um leitina að svari við því hvað í samfélagi mannanna getur af sér fjöldamorðingja eins og þann sem Kreizler og félagar þefa uppi. „The Alienist“ brást ekki væntingunum sem til hennar voru gerðar. Hún er frábær. Arnaldur Indriðason BANDARÍSKI rithöfundurinn Caleb Carr hefur skrifað eina af betri spennusögum síðustu ára með bókinni „The Alienist", sem kom út í vasabroti fyrir tveimur árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.