Morgunblaðið - 02.11.1997, Page 42

Morgunblaðið - 02.11.1997, Page 42
42 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐLAUG MAGNÚSDÓTTIR, Jaðri, Höfnum, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 29. október, verður jarðsungin frá Kirkjuvogs- kirkju miðvikudaginn 5. nóvember kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Slysavarnafélag Islands. Jón H. Borgarsson, Borgar J. Jónsson, Eygló B. Einarsdóttir, Magnús I. Jónsson, Helga Jónína Guðmundsdóttir, Sveinbjörn G. Jónsson, Ingibjörg Guðbjartsdóttir, Rúnar K. Jónsson, Hallveig Fróðadóttir, María R. Newman, Sigurður Ingimundarson, barnabörn og barnabarnabörn. Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát, ÁSDÍSAR AÐALSTEINSDÓTTUR, Efstasundi 96. Starfsfólki á Landakoti, sem hlúði að henni síðasta árið, og öllum hennar góðu vinum sem heimsóttu hana á sjúkrahúsið er þökkuð umhyggja. Aðalsteinn Hallgrímsson. Kristín Gísladóttir, Ásdís Aðalsteinsdóttir, Gísli l'sleifur Aðalsteinsson, Bergþór Jóhannsson Kristín Björg Bergþórsdóttir, Jóhanna Guðrún Bergþórsdóttir. + Þökkum innilega vináttu og samúð við fráfall og útför sambýliskonu minnar, móður okkar, tengdamóður stjúpmóður, ömmu og lang- ömmu, LÁRU GUÐMUNDSDÓTTUR, Skúlagötu 40A. Guðjón Hansson, Sjöfn Ingólfsdóttir, Birgir Sveinbergsson, Þórey Sveinbergsdóttir, Gísli Sveinbergsson, Margrét Sveinbergsdóttir, Sigurgeir Sveinbergsson, Lára Sveinbergsdóttir, Brynjólfur Sveinbergsson, Jón Sveinberg Sveinbergsson, Bjarni Ólafsson, Erla K. Jónasdóttir, Ásgrímur Jónasson, Guðrún Benediktsdóttir, Baldvin Júlíusson, Margrét Böðvarsdóttir, Örlygur Jónatansson, Brynja Bjarnadóttir, Sesselja Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, FRIÐRIKS T. BJARNASONAR málarameistara, ísafirði. Af heilum hug okkar hjartans þakkir fyrir yndislega umönnun við hann til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Isa- fjarðar. Jón Björn Friðriksson, Bjarndís Friðriksdóttir, Steinþór Friðriksson, Gróa M. Böðvarsdóttir, Helgi Mar Friðriksson, Rósamunda Baldursdóttir og barnabörn hins látna. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU ÁGÚSTU EINARSDÓTTUR, Reynimel 76. Sérstakar þakkir til starfsfólks B4, Sjúkrahúsi Reykjavíkur, fyrir einstaka umönnun og hlýju. Guðlaug Gunnarsdóttir, Ármann Óskarsson, Þóra Gunnarsdóttir, Sigurjón Ari Sigurjónsson, Gunnar Sigurjónsson, Þóra Margrét Þórarinsdóttir, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, Gunnar Stefánsson, Einar Þór Sigurjónsson og barnabarnabörn. STEINÞÓR SIG URÐSSON + í dag eru liðin 50 ár síðan Steinþór Sigurðs- son náttúrufræð- ingur fórst við Heklu, 2. nóvember 1947. Steinþór var einn af helstu frum- kvöðlum við rann- sóknir á Heklugos- inu og var að kvik- mynda hraunið þeg- ar slysið varð. Steinþór fæddist í Reykjavík 11. jan- úar 1904. Foreldrar hans voru Anna Magnúsdóttir frá Dysjum á Alftanesi og Sigurður Jónsson, skólastjóri Miðbæjarskólans. Alsystir Steinþórs var Guðrún handavinnukennari, gift Gísla Gestssyni fornleifafræðingi, en yngri hálfbræður samfeðra Hróar, Tryggvi og Konráð. Steinþór nam raungreinar í Kaupmannahöfn og útskrifaðist 1929 með stjörnufræði sem að- algrein. Hann var kennari við Menntaskólann á Akureyri til 1935 og við Menntaskólann í Reykjavík til 1938, þá skóla- stjóri Viðskiptaháskóla Islands þar til hann var sameinaður Orðstír deyr aldregi, segir þar. Og víst er að samferðamönnum Steinþórs Sigurðssonar þótti hann geta sér góðan orðstír með marg- háttuðum störfum sínum að nátt- úrurannsóknum á íslandi. Þar bar sennilega hæst Heklugosið 1947, en Steinþór skipulagði að verulegu leyti rannsóknir á því frá upphafi og lagði drjúgan skerf til þeirra sjálfur, þótt þess sjái nú ekki annan stað en kvikmynd þá sem hann gerði af gosinu ásamt Arna Stefánssyni, viðskiptadeild Há- skóla íslands 1941, og framkvæmda- stjóri Rannsókna- ráðs ríkisins frá stofnun þess 1939 til dauðadags 1947. Sumrin 1930-38 stundaði Steinþór landmælingar á há- lendi Islands með dönsku landmæl- ingastofnuninni og kortlagði þá með aðstoðarmönnum svæðið frá Hofsjökli austur og suður um til Hornafjarðar. Steinþór kenndi sem stundakennari eðl- is- og stærðfræði við MR og nýstofnaða verkfræðideild HI til dauðadags. Sem fram- kvæmdastjóri Rannsóknaráðs var hann frumkvöðull um jarð- boranir vegna jarðhita og aðrar hagnýtar náttúrurannsóknir, svo og um rannsóknir á Gríms- vötnum og Kötlu, og Ioks Heklu. Steinþór kvæntist 1938 Auði Jónasdóttur, síðar húsmæðra- kennara. Þau eignuðust tvö börn, Sigurð (f. 1940) og Gerði (f. 1944); barnabörn eru fimm og barnabarnabörn nú þrjú. því Steinþór fórst af slysförum við Hekiu 2. nóvember 1947 og lét því ekkert eftir sig á prenti um þessar rannsóknir. Þetta eldgos var hið fyrsta sem íslenzkir jarðvísinda- menn rannsökuðu alfarið sjálfir, og svo vel var að verki staðið að þar þurftu engir erlendir menn til að koma nema sem gestir. Niðurstöður rannsóknanna birtust í Ijórum bók- um sem Vísindafélagið kom út. At- kvæðamestur rithöfunda þar var að sjálfsögðu Sigurður Þórarinsson SIGRIÐUR JÓNSDÓTTIR + Sigríður Jóns- dóttir fæddist á Stóra-Seli í Vestur- bænum 9. febrúar 1916. Hún lést á heimili dóttur sinnar í Sevilla 23. september síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 28. október. Sigríður var ekkja góðvinar míns, Viggós H.V. Jónssonar, for- stjóra sælgætisgerðar- innar Freyju, en hann lést fyrir um tuttugu árum. Hún dó i Sevilla á Spáni 23. september síðastliðinn og þar fór líkbrennsla hennar fram. Sigríður dvaldi þar eins og oft £ s FOSSVOGI Þegar andlát berað höndum Útfararstofa kirkjugaröanna Fossvogi Slmi 5511200 áður hjá Ásdísi dóttur sinni o g Manuel tengdasyni sínum, ræðismanni íslands þar. Eftir að heilsu hennar tók að hraka sökum illkynjaðs sjúk- dóms, sem var henni mjög erfiður, dvaldi hún þar stundum lang- dvölum. Viggó hafði ég þekkt lengi _ áður en þau giftust. Ég kynnt- ist honum fyrst þegar hann starfaði hjá Isa- fold og átti ég margar ferðir þangað til hans vegna starfa móður minnar, Guðrúnar J. Er- lings, við útgáfu bóka föður míns, Þorsteins skálds Erlingssonar. Ég kynntist ekki Sigríði fyrr en hún giftist Viggó og ekki að ráði fyrr en ég kom frá framhaldsnámi í Danmörku sumarið 1945. Mér féll strax mjög vel við hana, enda var hún afar viðfelldin, létt í lund og skrafhreyfin. Hún varð brátt góður vinur fjölskyldu minnar, eins og Viggó. Mikill samgangur var alla tíð milli fjölskyldna okkar með- an Viggó lifði og eftir lát hans "æddum við Sigríður oft saman og rittumst á stundum. Það eru um tíu ár sem hún hefur ijáðst af þessum illkynja sjúkdómi og hef ég fylgst allnáið með heilsu- r'ari hennar þegar hún hefur verið nér heima, hringt til hennar og litið cil hennar stundum. Meðal annars lagðist sjúkdómurinn illilega á hryggjarliði og beygði hana illa í baki. Það má líklega segja að dauð- inn hafi verið einasta og besta lausnin fyrir hana blessaða, eins og komið var. Hún bar sig alltaf afar vel, kvartaði ekki þótt ærin ástæða hefði verið til eins og marg- jr hefði kannski gert. Hún var ein- jarðfræðingur, en margir aðrir eiga þar eina ritgerð eða fleiri en Stein- þór enga, enda féll hann í or- ustunni, ef svo má segja. Af þeim sökum er þáttur hans í þessum rann- sóknum nú öðrum gleymdur en þeim sem með honum störfuðu fyrir meira en hálfri öld, eins og fram kemur skýrast í því að hann er tæplega nefndur á nafn í ágætri Árbók Ferðafélags íslands um Heklu. Því sagan er jafnan skráð eftir rituðum heimildum. Annað stórvirki má það teljast að Steinþór mældi mestan hluta hálend- is íslands á ánmum 1930-38, og eru kort dönsku landmælingastofn- unarinnar í kvarða 1:50.000 byggð á mælingum frá þeim tíma svo sem fram kemur í bók Ágústs Böðvars- sonar um sögu landmælingar ís- lands. Landabréf eru nauðsynleg undirstaða allra frekari rannsókna, hvort sem þær tengjast almennri náttúrurannsókn eða mannvirkja- gerð, og því voru þessar mælingar og kort geysilega mikilvæg. En því er þetta nefnt hér, að í nýlegum greinum um jarðfræði Kreppu- tungna lætur höfundur að því liggja að hann hafí fyrstur manna stigið þar á fold. En þarna höfðu semsagt aðrir verið á undan, því kortin eru til, og á þessum tíma voru frumdrög gerð á staðnum en kortin síðan hreinteiknuð í Kaupmannahöfn. Raunar eru fyrstu amerísku kortin af íslandi líka byggð á mælingum frá þessum tíma, en þau voru teikn- uð eftir loftljósmyndum. Fráfall Steinþórs þótti á sínum tíma mikið áfall fyrir hina ungu en vaxandi rannsóknastarfsemi Islend- inga, því vegna gríðarlegrar atorku hans og hugmyndaauðgi var afar mikils af störfum hans vænzt. Ekki var það síður áfall fyrir ekkju hans og ung börn og breytti vafalaust ýmsu sem ella hefði orðið. En um það tjóir ekki að fást, því lífið held- ur áfram þótt mennirnir deyi. Stein- þórs Sigurðssonar verður nánar minnzt hér í blaðinu á næstunni. Sigurður Steinþórsson. staklega dugleg, sá mjög vel um sitt stóra heimili og var manni sín- um samhent í því að taka höfðing- lega á móti þeim mörgu gestum sem þar bar að garði. Sigríður Jónsdóttir var dugnað- arforkur til allra starfa meðan heils- an entist. Auk þess að vera mikil og góð húsmóðir var hún einnig börnum sínum hin besta móðir. Börn þeirra Viggós, sem voru þijú, þekkti ég að sjálfsögðu vel, meðan þau dvöldu heima. Því miður fórst elsta bamið, Viggó Örn, á unga aldri og Jóp Viðar fluttist ungur til Ameríku. Ásdísi sem er þeirra yngst hef ég kynnst mest enda þótt hún hafi nú búið á Spáni í mörg ár. Svo einkennilega vildi til fyrir nokkrum dögum að ég og Þórdís, kona mín, vorum á heimleið úr langferð og þurftum að fara yfír í vél Flugleiða á Brigthon flugvellipum í Lundún- um, að við hittum Ásdísi. Hún var á leið út í sömu vél og við í fylgd með manni sínum og tveim börnum þeirra; háum og grönnun pilti, dökkhærðum og ljóshærðri stúlku, laglegri og mjög líkri móður sinni. Ég kannaðist strax við stúlkuna sem var Victoria, dóttir hennar, enda hafði ég séð hana áður. Ásdís sagði okkur þá þær ömur- legu fréttir að móðir hennar hefði látist nýlega og að þau hjónin væru á leið til Islands með ösku hennar í keri til greftrunar. Þetta voru mjög sorglegar fréttir fyrir okkur. Utförin hafði verið ákveðin svo fljótlega eftir heimkomuna að úti- lokað var fyrir mig að skrifa minn- ingargrein og senda hana Morgun- • blaðinu til birtingar á útfarardag- inn. Þess vegna er þetta greinar- korn svona síðbúið. Hinn 28. októ- ber síðastliðinn fór athöfnin fram í Dómkirkjunni og vorum við hjónin þar viðstödd. Við samhryggjumst innilega öll- um aðstandendum hennar. Guð blessi Sigríði á þeim leiðum sem hún nú hefur lagt út á. Blessuð sé minning hennar. Erlingur Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.