Morgunblaðið - 02.11.1997, Side 8
8 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vinaspj allid hækkar^
mn 124% á einu ári
ÞAÐ þýðir ekkert að hringja í lögguna, blaðrararnir ykkar.
Þetta er topp leyndó rán . . .
Fyrirlestur sérfræðings um öryggi gagnabanka
Ekki má gleyma hættunni
af ónákvæmni og villum
ÞEGAR rætt er um persónuupplýs-
ingar er yfirleitt einblínt á friðhelgi
þeirra, en Leslie Roberts, sem hefur
sérhæft sig i öryggi gagnabanka í
áratug og flutti fyrirlestur á ráð-
stefnu Skýrslutæknifélags íslands
í vikunni, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ekki mætti heldur
gleyma hættunni af ónákvæmni eða
villum í gögnum.
Roberts sagði að þegar setja
ætti upp gagnabanka þar sem til
dæmis væru upplýsingar um starfs-
menn fyrirtækja eða gögn úr rann-
sóknum til hvers nota ætti upplýs-
ingamar og hvað mundi gerast ef
þær yrðu misnotaðar. Síðan yrði
að gera nauðsynlegar ráðstafanir
með hvað hagkvæmustum hætti til
að fyrirbyggja misnotkun og draga
úr þeim áhrifum, sem hún gæti
haft í för með sér.
„Það er mikilvægast að gleyma
ekki hættunni og afleiðingunum,"
sagði hún. „Það verður að nást jafn-
vægi.“
Ýmsar gildrur
Að hennar sögn Ieynast ýmsar
gildrur þegar slík kerfi eru skipu-
lögð. Sérstaklega beri að huga að
því hversu mikil nákvæmni sé við-
höfð vegna þess að fólk sé mann-
legt, geri mistök og geti skjátlast.
„Tökum sem dæmi að skráð hafí
verið rangt eða villa leynist í gögn-
um,“ sagði Roberts. „Síðan verði
farið að nota röng gögn. Þá væri
hættan ekki aðeins sú að öll vinnan
færi forgörðum heldur gæti komið
fram beinlínis hættulega vara, til
dæmis lyf. Því er nauðsynlegt að
tryggja að gögnin standist þannig
að menn fái ávinninginn, sem þeir
sækjast eftir.“
Með síaukinni tölvu- og netvæð-
ingu eykst samgangur milli gagna-
banka. Upplýsingar, sem áður voru
aðeins aðgengilegar í ákveðinni
stofnun, er nú hægt að nálgast milli
stofnana og jafnvel utan þeirra.
Roberts sagði að í þessu sam-
bandi væru vandamálin meiri í
Bandaríkjunum en á Bretlandi. „í
Bandaríkjunum er hægt að komast
að nánast hveiju sem er um hvem
sem er og innan um alla þá, sem
nota þetta í saklausum tilgangi,
lejmast einn eða tveir þijótar,"
sagði hún.
„Þegar verið er að vernda gögn
þarf að huga að þrennu," sagði
hún. „Til að misnota gögn þarf
þekkingu, menn þurfa að fá tæki-
færi til þess og hafa viljann. Það
er ekki hægt að stjóma þekking-
unni og enginn hefur hugmynd um
hvað annað fólk vill, en það er
hægt að stjórna því hvort menn fá
tækifæri til þess að vinna einhvern
óskunda. Aðeins þar er hægt að
taka á vandanum. Stór fyrirtæki
og stofnanir ganga hins vegar oft
út frá því að fólk annaðhvort hafí
ekki þekkinguna eða viljann og sú
ályktun er ekki á traustum gmnni
byggð.“
Misnotkun valdið uppnámi
en ekki ijóni
Hún sagði að afstaða Breta til
varðveislu gagna væri af tvennum
toga. Annars vegar væm þeir, sém
stæði á sama um það hver vissi
hvað um þá. Hins vegar væm þeir,
sem teldu að verið væri að ryðjast
inn á borgaraleg réttindi þeirra.
Ýmis lög hefðu verið sett til að
vemda rétt þessa fólks, en það
væri enginn vafí á því að upplýs-
ingar væru misnotaðar. „Þetta hef-
ur valdið mörgum uppnámi," sagði
Roberts. „En ekki beinlínis tjóni.“
Hún sagði að í Bretlandi væri
sérstakt embætti til vemdar upplýs-
ingum, sem sækti mál þegar upp-
lýsingar væm notaðar í öðm skyni
en þær væm varðveittar. Hún
nefndi sem dæmi heilsugæslustöð á
Bretlandi þar sem upplýsingar um
sjúklinga hefðu legið á glámbekk
og heyrst hefði til starfsmanna þar
sem þeir voru að ræða alnæmis-
sjúklinga með nafni yfír hádegis-
verði í mötuneytinu. I þessu tilfelli
hefði sennilega enginn orðið fyrir
beinu tjóni, en hins vegar væri það
ekki ósk sjúklinga að mál þeirra
væm borin á torg með þessum
hætti.
A MITSUBISH
Sjónvörp og myndbandstæki í hæsta gæðaflokki
i - *%.
/9.0.
29” með öllu!
Hicam Stereo - Digítal S&und
Dolby Pro Lo«jrc hcimabíð
nneð 4 aukahátólurum ofl.
"Best buy Av/ard"
verðtaun fyrlr bostu kaupin!
MITSUBISHI M-7S1
Mest selda STEREO
myndbandstæki á íslandi!
6 hausa Hi-Fi Nicam Stereo,
Myndvaki (Show View), NTSC
afspilun (USA kerfið), sjátfvirk
stöðvaleitun, góð kyrrmynd, ofl. ofl.
HIJÓMCO
Fákafen 11 Simi 568 8005
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Námstefna um forvarnir og krabbamein
Tengsl krabba-
meins og
áhættuþátta
Kristín Sophusdóttir
FAGDEILD hjúkmn-
arfræðinga á
krabbameinssviði
var stofnuð hinn 12. maí
árið 1996 og vom félagar
hinn 1. apríl síðastliðinn
90 talsins. Markmið deild-
arinnar er að stuðla að efl-
ingu forvama og auka
gæði hjúkrunar krabba-
meinssjúklinga með því að
veita stjómum og nefndum
Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga, FÍH, ráðgjöf
um hjúkrun einstaklinga
með krabbamein, hafa
áhrif á stefnu stjómvalda
í heilbrigðismálum og
standa vörð um hagsmuni
sjúklinganna. Jafnframt að
stuðla að aukinni fræðslu
til skjólstæðinga um and-
leg, líkamleg og félagsleg
viðbrögð og viðeigandi úrræði á
öllum stigum krabbameins.
Einnig að bæta menntun á sviði
hjúkmnar einstaklinga með
krabbamein, hvetja til aukins sam-
starfs við hjúkmnarfræðinga og
stuðla að aukinni samvinnu við
aðrar heilbrigðisstéttir til þess að
tryggja samfellu í þjónustu við
krabbameinssjúklinga og fjöl-
skyldur þeirra. Loks að hvetja til
þróunar og þátttöku í rannsóknum
á sviði hjúkmnar sem snúa að ein-
staklingum með krabbamein og
mynda og efla tengsl við stofnanir
og félög sem veita þjónustu á sviði
krabbameins.
- Hvernig er starfsemi fag-
deildarinnar háttað?
„Við höldum reglulega fræðslu-
fundi fyrir meðlimi fagdeildarinn-
ar og emm meðlimir í Evrópusam-
tökum krabbameinshjúkmnar-
fræðinga. Stofnaðir hafa verið
vinnuhópar innan fagdeildarinnar;
forvamarhópur, rneðferðarhópur
og líknarhópur. Ákveðið var að
helga árið forvörnum og því ætlum
við að þessu sinni að efna til nám-
stefnu, meðal annars um krabba-
meinsforvarnir."
Námstefnan verður haldin á
morgun, mánudag, í Tæknigarði
og hefst klukkan 17. Hún er opin
þeim sem vinna með krabbameins-
sjúklinga og hafa áhuga á umfjöll-
unarefninu.
- Hvert verður umfjölluniirefn-
ið?
„Yfirskrift námstefnunnar er
forvamir og krabbamein því við
viljum hvetja hjúkmnarfræðinga
og aðra til umhugsunar um tengsl
ákveðinna áhættuþátta við
krabbamein og hvaða hugsanlegar
leiðir má fara til þess að fjarlægja
hætturnar; breyta lífsstíl og greina
sjúkdóminn snemma eða á forstigi.
Árið 1995 greindust
1.024 íslendingar með
krabbamein, sem er
heldur hærra hlutfall
en árin áður, og í árs-
lok vom um 6.000
krabbameinssjúklingar á lífí. Á
hveiju ári deyja um 500 einstakl-
ingar vegna krabbameins, fíestir
úr lungnakrabbameini. Vitað er
að reykingar em aðaláhættuþáttur
lungnakrabbameins og talið að
yfir 90% tilfella megi rekja til
þeirra.“
- Um hvaða þætti verður heist
fjallað?
„Dr. Hólmfríður Gunnarsdóttir
hjúkmnarfræðingur byijar á því
að tala um vinnu og krabbamein,
dr. Snorri Ingimarsson læknir
fjallar um streitu og krabbamein,
en talið er að streita bæli ónæmis-
kerfið, Margrét Hákonardóttir
hjúkmnarfræðingur fjallar um
► Kristín Sophusdóttir fæddist
í Reylgavík árið 1952. Hún lauk
prófi frá Kvennaskólanum árið
1969 og útskrifaðist sem hjúkr-
unarfræðingur frá Hjúkrunar-
skóla íslands árið 1974. Árið
1979-1980 stundaði hún nám í
hand- og lyflæknishjúkrun við
Nýja hjúkrunarskólann og
krabbameinshjúkrun við Fins-
en-sjúkrahúsið {Kaupmanna-
höfn 1981-82. Kristín iauk síðan
BS-prófi í hjúkrunarfræði frá
Háskóla íslands árið 1995. Hún
er hjúkrunarframkvæmdastjóri
handlækninga- og krabba-
meinsdeilda Landspítalans og
formaður Fagdeildar hjúkrun-
arfræðinga á krabbameinssviði,
sem er deild innan Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga.
slökun og sálarró, Bryndís Eva
Birgisdóttir matvælafræðingur
fjallar um mataræði, vítamín og
andoxunarefni, Ingileif Ólafsdóttir
hjúkmnarfræðingur fjallar um
reyklausa kynslóð og Steinunn
Thorlacius líffræðingur talar um
krabbamein og erfðir.
- Hvernig er forvarnarstarf
fiokkað?
„Forvamir á fyrsta stigi felast
meðal annars í því að draga úr
áhættu með skynsamlegu matar-
æði og breyttum lífsstíl. Talið er
að rekja megi 30-50% krabba-
meinstilfella til mataræðis og
20-30% til reykinga.
Með annars stigs forvömum er
átt við það að greina sjúkdóminn
snemma eða á forstigi svo með-
ferð beri sem mestan árangur. Ein
leið til þess er sjálfsskoðun, til
dæmis á bijóstum, eistum, húð og
munnholi. Sjö hættumerki sem
fólk getur verið á varðbergi gegn
eru breytingar á hægðum og
þvaglátum, sár sem
ekki grær, óeðlileg
blæðing eða útferð,
þykkildi eða hnútar,
meltingartmflanir eða
kyngingarerfiðleikar,
breyting á vörtu eða fæðingar-
bietti og þrálátur hósti eða hæsi.
Með þriðja stigs forvörnum er
reyr.t að koma í veg fyrir eða
draga úr afleiðingum sjúkdóms og
veikinda með viðeigandi meðferð
og endurhæfíngu."
— Hvað annað hefur fagdeiidin
verið að fást við?
„í haust var boðið upp á viðbót-
arnám í krabbameinshjúkrun á
námsbraut í hjúkrunarfræði.
Námskeiðið er sett upp í samvinnu
við fagdeildina en Nanna Friðriks-
dóttir lektor hefur umsjón með
því. Þar er meðal annars fjallað
um fyrsta og annars stigs krabba-
meinsforvarnir."
500 deyja
árlega vegna
krabbameins