Morgunblaðið - 02.11.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 9
_________FRÉTTIR________
Sala ÍS til Rússlands 15.000 tonn í ár
Géðu Rússa til
starfa í Reykjavík
ÞAÐ sem af er þessu ári hafa ís-
lenskar sjávarafurðir hf. selt 15.000
tonn af sjávarafurðum til Rúss-
lands. Fyrirtækið réð fyrr á þessu
ári rússneskan starfsmann til starfa
á söluskrifstofunni í Reykjavík til
að vinna að sölu til Rússlands.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hf. opnaði í vikunni söluskrifstofu
í Moskvu, en fyrirtækið reiknar með
að sala þess til Rússlands tífaldist
á þessu ári og verði 9.000 tonn.
Sæmundur Guðmundsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri ÍS, sagði
að sala ÍS til Rússlands hefði geng-
ið mjög vel á þessu ári. Það sem
af er árinu hefði salan numið um
15.000 tonnum. Flest benti til að
þessi markaður ætti eftir að
stækka. Sala á síld til Rússlands
hefði gengið vel og markaður fyrir
loðnu hefði einnig verið að styrkj-
ast. Ef loðnuvertíð gengi vel ætti
salan til Rússiands án efa eftir auk-
ast umtalsvert.
Sæmundur sagði að sjálfsagt
kæmi að því að ÍS stofnaði sölu-
skrifstofu í Moskvu. Það væri hins
vegar mikilvægt að reyna að halda
sölukostnaði niðri, ekki síst til landa
þar sem pakkningar væru frekar
einfaldar. ÍS hefði þess vegna
ákveðið að fara þá leið að ráða
rússneskan starfsmann til starfa á
skrifstofu ÍS í Reykjavík, en auk
þess væri einn starfsmaður ÍS starf-
andi í Moskvu. Þetta fyrirkomulag
hefði gefist mjög vel og skilað góð-
um árangri.
Bílasala greiði STEF-gjöld
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt Bilasöluna Borg ehf.
til að greiða Sambandi tónskálda
og eigenda flutningsréttar,
STEF, og Sambandi flytjenda og
hljómplötuframleiðenda, SFH,
20.199 kr. með dráttarvöxtum frá
15. apríl 1995 tii greiðsludags
vegna þess að tónlist var leikin á
bílasölunni á árinu 1995 með
þeim hætti að viðskiptavinir hafi
heyrt hana.
I niðurstöðu héraðsdóms segir
m.a. að nægilega þyki sannað að
mati dómsins að tónlist hafi verið
flutt i starfstöð Bilasölunnar
Borgar með gjaldskyldum hætti
á árinu 1995 samanber 4. máls-
grein 2. greinar höfundarlaga nr.
73 frá 1972. Þar segir að það
teljist sjálfstæð opinber birting á
tónverki þegar útvarpsflutningi
á tónlist sé dreift til almennings
með hátalara eða á annan hátt.
Yeiði-
menn fari
vel útbún-
ir til fjalla
SLYSAVARNAFÉLAG ís-
lands hefur sent frá sér áminn-
ingu til rjúpnaskyttna. Þar
kemur fram að strax í upphafi
veiðitímabilsins hafi björgun-
arsveitir skipulagt fimm leitir
að sex rjúpnaskyttum. SVGÍ
ítrekar mikilvægi þess að
veiðimenn fari vel útbúnir til
fjalla.
í því sambandi vill Slysa-
varnafélagið benda á eftirfar-
andi atriði: „Huga að veðurspá
og veðurútliti. Láta aðstand-
endur vita um ferðaáætlun og
hvenær ráðgert er að koma til
baka. Staðsetja bíl á áberandi
stað þannig að hann sé auð-
fundinn þegar komið er til
baka og einnig fyrir leitar-
menn ef svo ber undir. Ef fleiri
en einn fara saman, að sjá til
þess að allir hafi möguleika
til að komast inn í bílinn, ef
þeir koma á mismunandi tíma
niður af fjalli. Búa sig undir
að geta hafst við í allt að 24
tíma, þó upphaflega hafi verið
gert ráð fyrir skottúr. Hlýr og
skjólgóður fatnaður ræður
mestu um hvernig_ mönnum
reiðir af á fjöllum. Áttaviti og
kort af viðkomandi svæði er
nauðsynlegur búnaður, einnig
er gott að vera með GPS stað-
setningartæki."
Sunnudags-kaffihlabborb Skíöaskálans stendur frá 14 til 17
Kaffihlaðborð í dag
Skíðaskálinn Hveradölum
Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935. Borbapantanir ísíma 567-2020
Útsölustaðir: Snyrtivöruverslunin Clara, Kringlunni
- Snyrtivöruverslunin Glæsibæ - Andorra, Hafnarfirði
- Oculus, Austurstræti - Apótek Keflavíkur - Amaro, Akureyri.
Barnainniskór marqar
gerðir og stærðir
Verð kr. 1.490
Smáskór
Sími 568 3919
YOGASTÖÐ VESTURBÆJAR
í HÚSI SUNDLAUGAR SELTJARNARNESS
YOGA YOGA YOGA
Mánudaga og fimmtudaga kl. 17:30 og 19:00
Leiðbeinandi: Anna Björnsdóttir, yogakennari
Innritun og upplýsingar í síma 561 0207
Samkvæmisfatiiaðiir til leigu
NÝ SENDING
AF GLÆSILEGUM
SAM KVÆ MIS FATNAÐI
í STÆRÐUM 10-24
Fataleiga Garðabæjar,
Garðatorgi,
sími 565 6680.
tískuhúsi,
Hverfísgöt-
í dag
Við kynnum sérstaklega
hina glæsilegu
Ariella samkvæmiskjóla
á tískusýningunni um
kl. 15 í dag, sunnudag.
Opið frá kl. 13—17.
tí&kuhú^,
Hverfisgötu 52, sími 562 5110
Útsölustaðir á Ariella samkvæmisfatnail:
Versl. Rósalind, Keflavík, Versl. Jón og
Gunna, ísafirði, ísold, Sauðárkróki,
Akurliljan, Akureyri, Versl. Lónið,
Hornafirði, Smart, Vestmannaeyjum.
Hádegisleikfimi kl. 12:05
Afla mánudaga og
miðvikudaga, styrkjandi
æfingarogpaflar!
Það er fjör i hádeginu hjá Lindu i Faxafeni. Timinn byrjar stundvíslega kl.
12:05 á upphitun, síðan er létt styrkjandi leikfimi - með og án palla, og
að lokum teygjur og slökun. Allt undir viðeigandi tónaflóði.
Fyrír alfa korthafa, líka þá sem eiga ódýru dagskortin.
Stakur tími kostar 600- krónur.
• Umsjón hefur Linda Björk Ólafsdóttir, leiðbeinandi
• Fjörugir og skemmtilegir tímar, í FAXAFENI.
• Hver timi er ein klukkustund
• Tækjasalurinn opinn fyrir og eftir tímann
• Gufubað og nuddpottur fyrir þá sem vilja
• Veitingasala í kaffihorninu
• Hentar bæði konum og körlum - blandaðir tímar
• Dagskortin gilda til kl. 16 á daginn, þau kosta
3.500- mánuðurinn og 3ja mánaða 8.500- kr.
HEILSURÆKT
Faxafeni, Skipholti og Langarima I Rvík. Upplýsingasími 568-9915
____________________________________________________________________________P