Morgunblaðið - 02.11.1997, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SCOTT (efri röð fyrir mióju) ásamt félögwm sinum á suéwr-
pólnum. Oates höfuósmaóur er lengst til vinstri.
Fimbul-íshellan /
7
Island i sama
mælikvarða
Msbr-Larsen
\ íshellan '
laud drottningar-
land
ddell
Leið íslensku Suður-
skautsfaranna
'fíanne-
ishéfíon
SUÐURSKAUTSLANDIÐ
C Póls-
sléttan -•' __
u r pól I
Ó 0 2.835 m (—
Wesí-’
ÍShellan
Patriot
\»n0........
Leiö Amundsens 1911 ..
\
Mari,e-\' ' / í vl /.
Qrlando
í fíos. -
mhellan
ikautslar
2000km
junblaðið
FYRIRHYGGJA OG
FEIGÐ Á ÍSNUM
Þrír Islendingar hyggjast ganga á skíðum á
suðurskautið í vetur. Krístján Jónsson
kynnti sér undirbúninginn að ferðinni og
afrek fyrirrennara íslensku garpanna
á Suðurskautslandinu.
NORÐMAÐURINN Roald
Amundsen, stjórnandi
fyrsta hópsins sem
komst á suðurskautið
árið 1911, var ekki í vafa um ástæð-
una fyrir því að hann sigraði. „Sá
sigrar sem tryggir að allt sé í lagi.
Það er kallað heppni. Ósigur er
Roald Amundsen
Robert Scott
bein afleiðing þess að grípa ekki
til nauðsynlegra varúðarráðstafana
í tæka tíð. Það er kallað óheppni.“
Ferðin á skautið og aftur til skips
tók Amundsen 99 daga og hann
varð þjóðhetja í Noregi. Skömmu
áður hafði Bandaríkjamaðurinn
Robert Peary gengið á Norður-
pólinn en þangað hafði Norðmaður-
inn ætlað að fara fyrstur manna.
Smáþjóðin hafði nú sigrað breska
stórveldið í staðinn. Sjálfur hyllti
Amundsen minningu látinna keppi-
nauta sinna, Bretans Roberts Scotts
og félaga hans sem fórust á ísnum.
MEO REYNSLU AF
GRÆNLANDSJÖKLI
FRÁ vinsfri erw þeir Haraldur Ólafsson, Óiafwr Örn Haraldsson og ingþór
Bjarnason. Myndin var fekin sumarió 1993 áówr en þeir lögów af staó
yfir Grænlandsjökul.
ARIÐ 1993 gengu þrír íslendingar á
skíðum yfir Grænlandsjökul og tók
ferðalagið tæpan mánuð. Garparnir þrír,
þeir Ólafur Öm Haraldsson alþingis-
maður, sonur hans, Haraldur Öm Ólafs-
son lögfræðingur, og Ingþór Bjarnason
sálfræðingur, ætla að bæta um betur í
nóvember og ganga á skíðum á suður-
heimskautið.
Gert er ráð fyrir að ferðin yfir ísinn
taki um tvo mánuði, timalengdin fer
nokkuð eftir veðrinu. Lagt verður upp
í byijun nóvember frá íslandi. Ferða-
langarnir fara með flugi um Orlando í
Florida, Santiago í Chile og þaðan til
borgarinnar Punta Arenas í suðurhluta
Chile. Frá Punta Arenas verður farið
með Hercules-flugvél flugfélagsins Ad-
venture Network International til bæki-
stöðvar félagsins á Suðurskautslandinu
er nefnist Patriot Hills.
Leiðin er löng og getur þurft að bíða
eftir heppilegu veðri. Flugbrautin í
Patriot Hills er úr rennisléttum og glær-
um ís, mynduð af náttúmnni og viðhald-
ið því ekki dýrt.
Islendingarnir þrir hefja gönguna á
strönd Suðurskautslandsins, á mörkum
svonefndrar Ronne-íshellu og þurrlend-
isins og nefnist staðurinn Hercules In-
let. Búnaðurinn allur, matur, eldsneyti
og annað sem til þarf, verður bundinn
á sleða sem skíðamennirnir draga á eft-
ir sér og munu þeir ekki fá neina aðstoð
á leiðinni. Á hveijum sleða verður í
upphafi um 120 kílógramma byrði eða
nokkm meira en þurfti í Grænlands-
göngunni. Þeir munu sofa í þriggja
manna tjaldi allan timann.
Allir era þeir vei á sig komnir. Ólafur
er elstur, fimmtugur, Ingþór 47 ára en
Haraldur 25 ára gamall. Er Roald
Amundsen stýrði fyrsta leiðangrinum
sem komst á skautið 1911 var hann lið-
lega fertugur.
Félagarnir þrír tileinka fötluðum
ferðina. Þess má geta að árið 1994 gengu
þrír norskir skiðamenn á suðurskautið
og meðal þeirra var Cato Zahl Peders-
en, sem þá var 35 ára. Er hann var fjórt-
án ára missti hann báða handleggi og
aðra öxlina í slysi. Hann hefur ekki lát-
ið fötlun sína aÍFtra sér frá því að vinna
ýmis íþróttaafrek, hefur t.d. unnið fjölda
gullverðlauna á Ólympíumóti fatlaðra.
Leiðin er um 1.200 km, tvöfalt lengri
en Grænlandsgangan, og gera íslending-
amir ráð fyrir að verða tvo mánuði á
áfangastað. Yfirborðið er óslétt og þar
myndast víða svonefndir rifskaflar, sas-
tmgi, vegna stöðugra vinda er blása allan
ársins hring. Skaflamir em allt að tveir
metrar að hæð, harðir og hvassbrýndir
og getur verið erfítt að draga sleðana
yfir þá.
Ofar er háslétta en einnig þung yfír-
ferðar. Sumir lílqa yfírborðinu við sand,
Amundsen fannst skíðin límast við snjóinn
eins og hann væri úr fískilimi. Ríkjandi
vindátt er á móti göngugörpunum, kuld-
inn getur vel farið í 40 mínusstig á cels-
ius. Er \jóst að ferðin verður að öllu leyti
mun meira átak en gangan yfír Grænland-
sjökul.
Meðal búnaðar verður Argos, nýtt stað-
setningar- og eftirlitskerfi sem sendir
reglulega merki og ætti því að vera hægt
að fylgjast með því hvemig ferðalöngun-
um miðar. Þegar á suðurskautið kemur
verður ef tíl vill hægt að ná fjarskiptasam-
bandi við ísland.
Twin Otter vél frá ANI mun sækja þá
félaga þegar þeir era komnir á leiðarenda
og fara með þá til Patriot Hills-bækistöðv-
arinnar. Þeir Ólafur, Haraldur og Ingþór
gera ráð fyrir að koma heim til íslands
í lok janúar.
Nokkrir íslendingar hafa þegar komið
á Suðurskautslandið, einkum er um að
ræða vísindamenn sem hafa farið þangað
með starfsmönnum sænsku pólstofnunar-
innar. Blaðamanni tókst hins vegar ekki
að fá úr því skorið hvort nokkur íslending-
ur hefði komið á sjálft suðurskautíð en
ekki er alveg útílokað að einhver hafí
farið þangað með flugvél. Þess má geta
að í vetur taka tveir Islendingar, Freyr
Jónsson og Jón Svanþórsson, þátt í leið-
angri sænsku pólstofnunarinnar tíl Suður-
skautslandsins. I þeirri ferð verða reyndir
jöklajeppar sem breytt hefur verið að
hættí íslenskra fjallamanna.