Morgunblaðið - 02.11.1997, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Íslqnd Í21. sæti i The World CompetStive Yearbook
ísland lægst
Nerðurlanda
Meó nánari samskiptum þjóóa í millum
fer áhugi á alþjóólegum samanburói
vaxandi. Anna G. Ólafsdóttir gluggaói t
The Worid Competitiveness Yearbook
1997 um samkeppnishæfni 46 þjóóa.
--------------------------7---------
Hún komst aó því aó þó svo Islendingar
séu komnir í 21. sæti er enn langt í
land aó þjóóin nái frændum sínum á
hinum Noróurlöndunum.
ISLAND hefur hækkað um
fjögur sæti á lista „The
World Competitive Yearbook
1997“ yfír samkeppnishæfni
46 Jjjóða frá því í fyrra. Nú
er Island í 21. sæti eða um
miðjan lista. Hinar Norðurlanda-
þjóðirnar standa allar betur að vígi
og Finnar best eða í 4. sæti. Norð-
menn fylgja á hæla Finnum í 5.
sæti og Danir mega þokkalega við
una í 8. sæti. Svíar hafa verið að
lækka sig á listanum og eru nú í
16. sæti.
Við gerð skýrslunnar er sérstak-
lega hugað að 8 liðum, hagkerfi,
alþjóðavæðingu, stjórnsýslu, fjár-
málum, innviðum þjóðfélagsins,
stjórnun, tækni og vísindum og
fólkinu í landinu. Hverjum flokki
fylgja tveir undirflokkar og er sam-
tals tekið tillit til 244 breyta. Ekki
verða öllum breytunum gerð skil
hér. Hins vegar er forvitnilegt að
huga að því hvaða breytingar í lið-
unum 8 hafa haft áhrif á hreyfingu
íslands á listanum.
Hástökk hagkerfisins
Jákvæðustu áhrifín eru án efa
falin í hagkerfínu. íslenska hag-
kerfíð stekkur nefnilega upp um
10 sæti á listanum. Helstu ástæð-
urnar eru taldar vera aukin einka-
neysla, fjárfesting, virðisauki (s.s
verðmætasköpun, landsframleiðsla
o.fl.) og framtíðarspá. Neikvæðari
þróun hefur orðið í frammistöðu
atvinnugreina og framfærslukostn-
aðar. Sparnaður stendur illa en því
miður lágu ekki fyrir samanburðar-
tölur frá fyrra ári.
Að fjármál fari upp um 6 sæti
er rakið til jákvæðrar þróunar á
fjármagni (s.s. á sviði aðgangs að
fjármagni innanlands og erlendis
auk aukins áhættufjár), fjármála-
þjónustu, hlutabréfamarkaði og
fjármagnskostnaði. íslendingar
hækka um eitt sæti í flokkunum
stjórnun og stjómsýsla. Litlar
breytingar verða í flokkunum fólkið
í landinu og innviðir þjóðfélagsins.
Alþjóðavæðing fellur niður um 3
sæti. Ekki er hins vegar öllum
breytum þar um að kenna því að
innflutningur hækkar um 15 sæti
og þjóðleg verndarstefna (t.d. við-
horf manna gagnvart erlendri fjár-
festingu) um eitt. Á öðrum sviðum
versnar staðan, t.d. varðandi við-
skiptahalla, útflutning á vöm og
þjónustu og móttækileika fyrir er-
lendum áhrifum. Á sviði erlendrar
fjárfestingar standa íslendingar illa
að vígi í 45. sæti eða sama sæti
og árið áður.
Afleit staða tækni
og vísinda
Lang verst, og versnar mest eða
um 8 sæti, er ástandið á sviði tækni
og vísinda. Helst er að telja að
einkaleyfi falla niður um 6 sæti,
starfsfólk í rannsóknum og þróun
um 4 sæti og stjórnun tækniþróun-
ar um 1 sæti. Aðeins á sviði út-
gjalda er þróunin jákvæð og munar
þar 2 sætum.
Almennt er staða íslands á sviði
hagkerfisins (7), fólksins í landinu
(7), innviða þjóðfélagsins (10)
þokkalega góð. Sæmileg eða léleg
staða er í stjómsýslu (19), stjómun
(23) og fjármálum (26). Eins og
áður er getið er staðan á sviði tækni
og vísinda (31) og alþjóðavæðingar
(39) slæm.
Gagnlegar alþjóðlegar
athuganir
Baldur Pétursson, deildarstjóri í
iðnaðarráðuneytinu, minnir á að í
ráðuneytinu sé unnið að fjölmörgum
verkefnum til að auka samkeppnis-
hæfni atvinnulífsins, m.a. með ráð-
stefnu með aðild OECD og fleiri
verkefnum. Eins og fyrirtækja-
rekstur verði rekstur efnahags-
stefnu sífellt flóknari og byggi ár-
angursrík efnahagsstefna í æ ríkari
mæli á faglegum, þróuðum alþjóð-
legum athugunum sem greini á
kerfísbundinn hátt styrkleika og
veikleika hagkerfa. „Því hefur ráðu-
neytið m.a. aukið áherslu á þátttöku
í alþjóðlegum athugunum á þessu
sviði, m.a. verkefnum innan ramma
EES-samningsins og á vegum
OECD og á öðrum sviðum. Þessi
verkefni hafa sum hver verið kynnt
og önnur verða kynnt innan tíðar,“
segir hann.
Hann minnist sérstaklega á IMD-
skýrsluna. „IMD-skýrslan er einnig
mikilvægt innlegg til umfjöllunar
um samkeppnishæfni og hvernig
megi bæta samkeppnisstöðu ís-
lands til aukinnar verðmætasköp-
unar og atvinnu. Hún er ekki síst
mikilvæg til að þróa og þroska frek-
ar almenna umfjöllun um þessi mál
hér á landi, ekki bara í iðnaði, held-
ur öllum atvinnugreinum."
Hann segir að árangursrík efna-
hagsstefna byggi heldur ekki leng-
ur einungis á árangri á sviði al-
mennra efnahagsatriða, s.s. ríkis-
ijármála, gengis eða skatta, heldur
í vaxandi mæli á markvissum al-
mennum aðgerðum á sviði starfs-
skilyrða fyrirtækja, s.s. á sviði al-
þjóðavæðingar, tækni og vísinda,
fjármála, stjórnunar, stjórnsýslu,
innviða þjóðfélagsins, fólksins í
landinu og á sviði hagkerfisins, auk
verkefna á sviði stuðningsaðgerða,
í samkeppni við það sem erlendis
gerist á þessu sviði.
Ekki sérlega góður
árangur
Baldur segir því ekki að leyna
að ánægjulegt sé að samkeppnis-
staða íslands hafí batnað um fjögur
sæti á milli ára. „Hins vegar dregur
úr ánægjunni að 21. sætið er ekki
sérlega góður árangur. Ég get nefnt
því til stuðnings að allar hinar Norð-
urlandaþjóðimar standa okkur
framar og flestar töluvert framar.
Á móti kemur að hafa verður í
huga ýmsa fyrirvara við saman-
burðinn. Annars vegar er byggt á
tölulegum upplýsingum úr hagkerf-
um þjóðanna og hins vegar viðtölum
við áhrifamenn og er í þeim hluta
ekki tekið tillit til áherslumunar á
milli þjóða.“
Samkeppnishæfni
þjóðanna 1997
Metin samkvæmt átta mismunandi
þáttum eða sjónarhornum
ROÐ var RIKI
1 (D Bandaríkin
2 (2) Singapore
3 (3) Hong Kong
4 (15) Finnland
5 (6) Noregur
6 (7) Holland
7 (9) Sviss
8 (5) Danmörk
9 (4) Japan
10 (12) Kanada
11 (19) Bretland
12 (8) Lúxemborg
13 (11) Nýja-Sjáland
14 (10) Þýskaland
15 (22) írland
16 (14) Svíþjóð
17 (23) Malaysía
18 (21) Ástralía
19 (20) Frakkland
20 (16) Austuríki
21 (25) ÍSLAND
22 (17) Belgía
23 (18) Taiwan
24 (13) Chile
25 (29) Spánn
26 (24) ísrael
27 (26) Kína
28 (32) Argentína
29 (30) Thailand
30 (27) Kórea
31 (31) Filippseyjar
32 (36) Portúgal
33 (37) Brasilía
34 (28) Ítalía
35 (34) Tékkland
36 (39) Ungverjaland
37 (40) Grikkland
38 (35) Tyrkland
39 (41) Indónesía
40 (42) Mexíkó
41 (38) Indland
42 (33) Kolombía
43 (43) Pólland
44 (44) Suður-Afríka
45 (45) Venesúela
46 (46) Rússland
'•.rsfy
isXíffiSlfí®
Heimild: IMD - The World Competitiveness Yearbook 1997
Samkeppnis-
staða
ÍSLANDS
árin 1995-1997
Aðdráttarafl landsins
23
Framsókn atvinnulífs
25 25
Hagkerfið
Alþjóðavæðing
Stjórnsýsia
{jϾKDgnHBi
23
1995 1996 1997
1995 1996 1997
20 20
19
Fjármái
31 32
1995 1996 1997
Innviðir þjóðfélagsins Stjórnun
Tækni og vísindi
1995 1996 1997
Fólkið í landinu
31
1995 1996 1997
1995 1996 1997