Morgunblaðið - 02.11.1997, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
þrotabúum fyrir smápeninga nán-
ast ónýtan íisk og demba honum á
markað á fullu verði í stað þess að
verðleggja í samræmi við gæðin.
Pví miður hefur það verið allt of
algengt í gegn um tíðina að léleg
vara hafí verið á boðstólum. Þá
brennir neytandinn sig og eftir það
er bleikja bara bleikja og ekki
spurt um hvort breytt vinnubrögð
liggi kannski að baki eldinu í dag.
Svona múra þurfum við að brjóta
niður ef við eigum að ná almenni-
legri fótfestu. En það er til þess
vinnandi, bleikjan er afburða mat-
fískur og þetta er að mjakast hægt
og sígandi í rétta átt.“
Ber að skiJja það sem svo að þið
séuð að setja betri físk á markað í
dagen áður fyrr?
„Eg nefndi þér dæmi um uppá-
komur sem spilltu mjög fyrir mark-
aðssetningu á bleikju sem matvöru.
Slíkar uppákomur voru allt of tíðar.
Fiskurinn sem við erum með er al-
inn í lindarvatni. Við erum ekki
með heitt vatn héma, en nóg af
köldu vatni. Fyrir vikið erum við
allt að sex mánuðum lengur að ala
fiskinn í sláturstærð og þó að það
sé auðvitað ekki gott frá hag-
kvæmnisjónarmiði, þá teljum við að
fískurinn sé betri en ella fyrir vikið.
Stóri draumurinn
Bleikjubændurnir slægja fiskinn
er hann hefur náð sláturstærð og
síðan er honum pakkað „með haus
og hala“ í kælikassa og fluttur
ferskur til fyrrgreinds kaupanda á
Niðurlöndum. Birgir segir að kíló-
verðið hafi verið stöðugt í nokkur
ár, eða nálægt 350 krónur. Þetta
fer eftir stöðu krónunnar gagnvart
erlendum gjaldmiðlum og hefur
kílóverðið minnst orðið 335 krónur
sem er mun minna en það má vera
til að fyrirtækið geti dafnað. í vet-
ur eru horfur góðar segir Birgir og
kílóverðið gæti orðið um 370 krón-
ur ef gengi verði hagstætt. Og
Birgir talar um „stóra drauminn“
og er beðinn um að reifa hann:
„Minn stærsti draumur er að
fullvinna bleikjuna og selja hana út
án og margra milliliða. Til þess
þarf að koma upp reykingarað-
stöðu. En fyrst þarf að vinna afurð-
ina betur, við fengum nýverið
gæðavottun á aðstöðu til að selja á
Evrópumarkað og erum komnir
með alla aðstöðu til að flaka og
„vacum“pakka bleikju og flytja
hana út ferska eða frysta. Reykhús
myndi hins vegar stórauka verð-
mætasköpunina.“
Nefndu mér dæmi um það?
„Jú, þetta eru einföld reiknings-
dæmi. Ef við miðum við eitt tonn af
slægðum fiski og þá upphæð sem
við fáum í dag fyrir hvert kíló, fá-
um við 350.000 krónur fyrir tonnið.
Ef við flökum bleikjuna, fáum við
milli 450.000 og 460.000 krónur fyr-
ir tonnið. Ef við hins vegar mynd-
um reykja fiskinn, fengjum við
700.000 krónur fyrir sama magn.
Það kostar auðvitað peninga að
koma upp þeirri aðstöðu sem til
þarf og stórauka þyrfti markaðs-
starfíð. En ég er ekki að segja að
Glæðir eigi að koma sér upp
reykofnunum.
Ef við lítum á þorp á borð við
Kirkjubæjarklaustur og sveitina í
kring þá hefur svæðið hðið fyrir
samdrátt í landbúnaði. Við á
Klaustri höfum staðið frammi fyrir
því að búa til okkar eigin atvinnu-
tækifæri. Margir hafa litið til
ferðaþjónustu og hún er blómleg á
svæðinu, en það geta ekki allir ver-
ið í ferðaþjónustunni og bleikjueld-
ið er viðleitni til að búa til eitthvað
nýtt. Eitthvað sem hefur í för með
sér vaxtarbrodd. Þess vegna segi
ég að Glæðir eigi ekki endilega að
stækka á því sviði að setja upp
reykofna og fullvinna bleikjuna.
Við getum aukið framleiðslu okkar,
vatnið okkar hjá Nýjabæ er fjarri
því fullnýtt. Raunar erum við að
koma fyrir nýju eldiskeri sem tek-
ur jafn mikið og öll fyiri kerin til
samans. En aðrir á svæðinu geta
komið í kjölfarið, sett upp reykofna
og fengið hráefnið hjá okkur eða
öðrum framleiðendum á svæðinu.
Samvinna getur síðan verið í mark-
aðsstarfinu.
Fyrsti vísirinn að þessu er þegar
HORFÐ UM Á
VATNIÐ FYRSTA ÁRIÐ
VJÐSKDPTIAIVINNULÍF
Á SUIMIMUDEGI
►Glæðir - Klausturbleikja, heitir ungt, lítið en ört vaxandi
fyrirtæki í þeirri grein sem áður átti að vera óskabarn þjóðar-
innar, en endaði með skelfingu, fiskeldi. Fyrirtækið er með
tvískipta aðstöðu á Kirkjubæjarklaustri. Eldiskerin eru við
fallega lindarlæki sem spretta undan Landbrotshrauni í landi
Nýjabæjar á vesturbakka Skaftár, en verkun framleiðslunnar
fer fram í litlu húsnæði inni í Klausturþorpinu. Birgir Þórisson
er framkvæmdastjóri Glæðis og hann var sóttur heim
í suddanum nú í haust.
eftir Guðmund Guðjónsson
IRGIR fæddist í Reykja-
vík 8. júlí 1947. Hann er
útskrifaður kennari frá KI
og kom fyrst til Kirkju-
bæjarklausturs til að kenna árið
1970. Fimmtán árum síðar fóru
þau hjón til Reykjavíkur. Kona
hans Ragnhildur Ragnarsdóttir
ætlaði í nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands og notaði
Birgir þá tækifærið og fór í fiskeld-
istengt nám við líffræðideild HÍ,
auk þess sem hann starfaði við
fiskeldi hjá einni af eldisstöðvum
Silfurlax í Ölfusi.
Kveikjan að bleikjueldi Glæðis
tengist þessu námi Birgis og al-
mennum áhuga hans og Jóns
Hjartarsonar, fyrrverandi skóla-
stjóra á Klaustri, á fiskirækt. Þeir
voru ötulir og duglegir stangaveiði-
menn og voru á kafi í því að sleppa
seiðum í ár og læki. Fiskeldi varð
valfag hjá elstu krökkunum í
grunnskólanum á Klaustri og að-
staða var leigð hjá eigendum
Tungulax í Landbroti.
„Hugmyndin að bleikjueldinu
kviknaði á þessum árum og við fór-
um þrír saman af stað að kanna
málið árið 1993, auk mín Bjarni
Matthíasson sveitarstjóri og Þor-
steinn Gíslason bóndi í Nýjabæ.
Það er hann sem á allt þetta vatn.
Það má segja að við höfum byrjað í
einum þvottabala og fyrsta árið
gerðum við fátt annað en að horfa á
vatnið renna til að átta okkur á eðli
rennslisins. Reyndar hefur Þor-
steinn verið með rafstöð í læknum
um áratugaskeið og þekkir rennsl-
ið út og inn, en við vildum samt
hafa þetta svona. Mörg fyrirtæki í
fiskeldi hafa farið flatt af ýmsum
ástæðum í gegn um árin og við vor-
um samstiga um að undirbúa alla
þætti þessa fyrirtækis eins og best
yrði á kosið og fara umfram allt
hægt og rólega í sakirnar,“ segir
Birgir.
Það verður seint sagt um þá
bleikjumenn á Klaustri að yfir-
byggingin á fyrirtækinu sé að sliga
það. I hraunjaðrinum eru fáein eld-
isker og rennur lækur sem vatnið
gefur í gegn um lægðina. Geymslu-
húsnæði eru tveir vörugámar sem
hafa verið grafnir inn í hól. I lækn-
um morar allt af bleikju sem sleppt
hefur verið í Nýjalón sem þarna er
skammt undan og leitar til hrygn-
ingar í straumvatnið.
Lengst af hefur framkvæmda-
stjórastaða Birgis verið nánast
hlutastarf samhliða kennslunni, en
það er til marks um vaxandi umsvif
að hann er nú í ársleyfi frá kennsl-
unni til að geta sinnt bleikjueldinu
betur. Hvað tekur við verður að
koma í ljós.
Mest til útlanda
Glæðir framleiðir sívaxandi
magn af bleikju og mest af fiskin-
um er seldur ferskur til útlanda.
En hvað er þetta mikið magn og
hvar endar þessi fiskur?
„Magnið fer vaxandi. Þetta er
svo sem ekki mikið, 11-12 tonn á
þessu ári, en til samanburðar vor-
um við með 8-9 tonn í fyrra og má
af því sjá aukninguna. Seiðin sem
við erum með í uppvexti núna duga
í 20 tonna framleiðslu á næsta ári.
Megnið af framleiðslunni fer til
dreifingaraðila í Hollandi og hann
selur um alla Evrópu. Vaxandi eft-
irspurn er eftir bleikjunni þó svo
að hún teljist vera dýr.“
Hvert sclur þessi dreifíngaraðili
fískinn ykkar?
„Ja, við vitum nú minnst um það.
Hann gætir þess mjög vandlega að
við fáum ekkert um það að vita.
Einu sinni slæddist á kassa frá ein-
um framleiðanda faxnúmerið og þá
ætlaði allt vitlaust að verða og
maðurinn tók ekki við sendingunni
fyrr en númerið var afmáð og öllu
fógru lofað að slíkt kæmi aldrei
fyrir aftur. Hann óttast það auðvit-
að að viðkomandi myndi sleppa
milliliðnum ef komist yrði að því
hverjir kaupendurnir eru.“
Væri það nú ekki bara freist-
andi? „Það er vel hægt að taka
undir það og hver veit nema við
förum út á þær brautir, en í bili
hentar þetta fyrirkomulag okkur
prýðilega. Við getum selt alla okk-
ar framleiðslu og það er ekki annað
að sjá og heyra en að þessi aðili
geti tekið við svo lengi sem við
bætum við.“
En hvað með innanlandsmarkað?
„Það er auðvitað markaður fyi’ir
bleikju innanlands og við höfum að-
eins fetað okkur þar áfram, en það
er erfitt dæmi. Það vantaði metnað
hér áður fyrr og fólk brenndi sig á
lélegri bleikju. Hún er frekar dýr
vara og þegar fólk borgar fyrir
dýra vöru gerir það réttilega kröf-
ur. En hér áður var miklu af rusli
skellt á markaðinn. Dæmi jafnvel
um að menn væru að kaupa af
ÞORSTEINN í Nýjabæ t.v. og Birgir Þórisson yfir einu eldiskerinu.