Morgunblaðið - 02.11.1997, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 37
FRAMKVÆMDIR við byggingu sundlaugar á Kristnesi standa nú yfir.
1933 var byrjað á trjárækt á lóð
Kristneshælis. 1939 fékk hælið til
umráða 27 hektara spildu upp eftir
hlíðinni og í hana var plantað trjám
á hverju ári fram til 1961 og voru
þá komnar um 50 þúsundir plantna
af ýmsu tagi, birki, lerki, furu og
grenitrjám. Nú hefur þessi skóg-
rækt veitt skjól og fegurra um-
hverfi.
Viðbyggingar
Yfirlæknis- og starfsmannabú-
staður reis 1931 en tvíbýlishús fyr-
ir ráðsmann og aðstoðarlækni ‘36
til ‘38. Síðan var hver starfsmanna-
bústaðurinn af öðrum reistur árin
1945, ‘50, ‘57, ‘64, ‘65 og ‘67. 1948
var tekin í notkun viðbygging við
hælið sem rúmaði á efri hæðinni
dagstofu eða samkomusal ásamt
bókasafni og verslun. Þar er nú
sjúkraþjálfunaraðstaðan. A neðri
hæðinni voru vinnustofur. Hús
númer 20, sem upphaflega var kall-
að skrifstofuhús og nú hýsir iðju-
þjálfunaraðstöðu á efri hæðinni,
var byggt upp úr 1970. Árið 1987
| hófust framkvæmdir við lyftu og
stigahús til að tengja saman hús
nr. 20 og gömlu hælisbygginguna
og í framhaldi af því breikkun legu-
skálanna þar sem nú eru borðstof-
ur og setustofur beggja deilda sem
voru formlega teknar í notkun árið
1990. Á jarðhæð þessarar bygging-
ar er húsrými fyrir þjálfunarlaug.
Endurhæfíng
Um leið og heilbrigðisráðherra
samþykkti ráðningu nýs yfii-læknis
1976 var ákveðið að Kristneshæli
yrði framvegis rekið sem hjúkrun-
ar- og endurhæfingarspítali og í
kjölfar þess var nafninu breytt í
Kristnesspítala. Er gengið var frá
ráðningu undirritaðs í yfii’læknis-
starf í mars 1985 ályktaði stjómar-
nefnd ríkisspítalanna: ,Á neðri hæð
verði rekin endurhæfingardeild...“
Árið eftir samþykkti stjómameftid-
; in framkvæmda- og kostnaðaráætl-
un um breytingar og viðbyggingar
til að skapa endurhæfingaraðstöðu
en þessar áætlanir komust ekki
nema að hluta til í fi’amkvæmd
vegna ónógra fjárveitinga. Árið
1988 var þó komin upp góð vinnuað-
staða fyrir tvo sjúkraþjálfara og var
sjúkraþjálfari þá ráðinn til starfa.
Tveimm- áram síðar kom iðjuþjálfi
til starfa þrátt íyrir ófullnægjandi
vinnuaðstöðu. Sú vinnuaðstaða
hafði hins vegar verið útbúin og
formlega tekin í notkun árið 1996.
Sérfræðingur í endurhæfingar-
lækningum hóf störf fyrsta ágúst
1991 og var hann ráðinn yfirlæknir
endurhæfingardeildar. Síðan hefur
endurhæfingarþjónusta stöðugt
aukist en það var ekki fyrr en á
þessu ári að deildin varð að óskiptu
nýtt í þágu endurhæfingarsjúk-
linga. í upphafi deildarinnar vistuð-
ust þar enn nokkrir einstaklingar
sem dvalist höfðu langdvölum í
Ki-istnesi og við stofnun öldranar-
lækningadeildar haustið 1995 fékk
hún á leigu fjögur pláss á endur-
hæfingardeildinni tU ársloka 1996.
Oldrunarlækningar
í árslok 1992 þótti blasa við að
heilbrigðisþjónustu á Kristnesspít-
ala yrði jafnvel hætt en niðurstað-
an varð sú að rekstur Kristnesspít-
ala var færður af höndum stjórnar-
nefndar ríkisspítalanna og á hend-
ur stjórnar FSA. Það hefur orðið
starfsemi á Kristnesspítala mikii
lyftistöng og þjónusta beggja
deildanna farið stöðugt vaxandi. I
samningi um rekstur Kristnesspít-
ala lýstu FSA og heUbrigðisráðu-
neytið sig sammála um að hefja
rekstur öldranarlækningadeildar
árið 1994 sem dróst þó til fyrsta
október 1995.
Með alhliða mati á heilsufari og
félagslegum aðstæðum, meðferð og
endurhæfingu er markmið öldrun-
arlækninga að hjálpa gömlu fólki
að búa sem lengst á heimilum sín-
um. Slík þjónusta dregur úr þörí
fyrir varanlega vist á stofnun.
Nú njóta 18 tU 20 sjúklingar þjón-
ustu á endurhæfingardeUd hverju
sinni og tíu einstaklingar öldranar-
lækningaþjónustu á öldrunarlækn-
ingadeildinni en þar eru auk þess
tólf hjúkranarsjúklingar í varanlegri
vist en smám saman verður öldrun-
arlækningaplássum fjölgað á kostn-
að hjúkrunarplássa.
Lokaorð
70 ára heilbrigðisþjónusta í
Kristnesi hefur verið heilladrjúg.
Kristneshæli gegndi ómetanlegu
hlutverki í baráttunni við berklana.
Nú era endurhæfingardeild og
öldranariækningadeild FSA Krist-
nesi einu deildirnar sinnar tegund-
ar utan Reykjavíkursvæðisins og
veita mörgum mikilsverða hjálp til
sjálfshjálpar.
Höfundur er yfírlæknir öldrunar-
lækningadeildar FSA Kristnesi.
Námskeið um
guðrækni og
bænalíf
Á VEGUM Leikmannaskóla kirkj-
unnar verður haldið námskeið um
guðrækni og bænalíf dagana 5. og
8. nóvember, tvo tíma í hvort skipti.
Kennsla fer fram í stofu 5 í aðal-
byggingu Háskóla íslands.
Séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir,
sóknarprestur á Þingeyri mun fræða
um aðferðir til uppbyggingar og
íhugunar á grundvelli kristinnar trú-
ar. Nútímafólk tengir slíkar aðferðir
gjarnar austrænum trúarbrögðum
og því kemur það mörgum á óvart
að innan kristinnar hefðar sé að
finna fornar og þróaðar aðferðir til
íhugunar, segir í fréttatilkynningu.
Námskeiðið er öllum opið. Innritun
stendur yfir á Fræðslu- og þjónustu-
deild kirkjunnar.
Námskeið um
trúarlíf í sögu
og samtíð
ENDURMENNTUNARSTOFN-
UN Háskóla íslands mun í
nóvember gangast fyrir kvöldn-
ámskeiði um trúarlíf fyrr og nú
út frá kristnum heimildum og
viðhorfum. Fyrirlesari verður dr.
theol. Sigurbjörn Einarsson,
fyrrverandi biskup íslands.
í kynningu á efni námskeiðs-
ins segir: „Trú er gildur og áber-
andi þáttur í mannlegu lífi fyrr
og síðar. Hvers hafa menn leitað
í bæn sinni og trúarathöfnum
og hvaða svör hafa menn fundið
við þeim spurningum sem lágu
þeim á hjarta? Hvað má læra
nú á tímum af því sem menn
hafa talið sig reyna á þessu
sviði?“
Nánari upplýsingar og skrán-
ing eru hjá Endurmenntunar-
stofnun HI.
M%.
Tilvalið fyrir einbýlis-
Visitcam DP28 dyrasímakerfi
Tengist innð ð simtaakin ð heimilinu,
Hœgt að svara dyrabjöllunni f
þráðlausum sfma eða hvaða simtaaki
sem er. Einnig er hœgt að opna
útihurö i gegnum simann ef seguh
læsing er fyrir hendi.
ttacsLU:
Kr,
zl stgr.
c c e
e<fr
© ft-0
0 © 0
c © c
. ^ C’ 0
f & Z
O- c,
c-cc
Þráðiaus sfmi fyrir heimili og
fyrirtæki, með innbyggt sfmtæki
i móðurstöð og innanhússtal-
kerfi mllli alit að þriggja þrðð-
lausra sfma og móðurstöðvar.
Móðurstoó með etnum þröðlausum
sima og öiium fytgWuturn,
Þréöleus simi m/hleðslutaski.
msLsa
Kr.
stgr.
Pakka
htfA
Síðumúla 37 - 108 Reykjavík
S. 588-2800 - Fax 588-744?
iiifíf r ~11 I
GoldStar GT-9500 þráðlaus simi
og Visitcom dyrasímakerfi saman
f pakka é frábaaru verði.
1 IU Y J A BILASALAN ■ Löggilt bílasala Bíldshöfda 8r sími 577 2800
árg. 1993, ek. 63 þús. km. Steingrár.
Sjálfsk., ABS hemiar, toppi., þjófavörn,
álfelgur. Skipti é ódýrari. Verð kr. 1.220 þús.
árg. 1994, ek. 48 þús. km, dökkgrænn,
beinsk. 5 gíra. Verð 720 þús.
árg. 1992, ek. 89 þús. km. hvítur. ABS
hemlar, topplúga, spoiler, 17"BBS álfelgur.
Skipti á ódýrari. Verð kr. 2.200 þús.
árg. 1994, ek. 37 þús. km, rauður, sjátfsk.,
leðurákl., álfelgur, ABS hemlar. Skipti
möguleg á ódýrari. Verð kr. 3.100 þús.
árg. 1993, ek. 28 þús. km., sjálfskiptur,
vökvastýri, fjarstýrðar samlæsingar.
Verð kr. 780 þús.
Ford Escort CtX ST árg.'%, ek. 42 þus. km.
5 d, 5 gira, grænsans. Verð 1090 þús.
Ford Escort CLX ST, árg. ‘96, ek. 30 þús km.
5 d., 5 gíra, grænsans Verð 1190 þús.
MMC Galant GLSI, árg.'93, ek. 52 þús. km.
5 d„ sjálfsk., dökkblár. Verð 1350 þús.
MMC Lancer GLXI, árg. ‘96, ek. 18 þús. km.,
4 d., sjálfsk., grásans. Verð 1280 þús.
Nissan Almera SLX, árg. '97, ek. 8 þús. km„
5 d„ sjálfsk., rauður. Verð 1530 þús.
Nissan Primera SLX Sedan, árg. '96, ek. 22 þús.
km„ 4 d„ sjálfsk, grænsans. Verð 1790 þús.
Opel Astra 1.6 ST, arg. '97. ek. 15 þús. km.
4 d„ sjálfsk.. hvitur. Verð 1450 þús.
Opel Vectra 2.0 CD. ðrg. '96, ek. 26 þús. km.
4 d„ sjállsk., grásans. Verð 1820 þús
Peugeot 406 SL. árg. ‘97, ek. 6 þús. km .
4 d„ 5 glra, grásans Verð 1590 þús.
Suzuki Baleno GLX Sedan, árg. '96, ek. 46 þús.
km„ 4 d„ sjálfsk., rauður. Verð 1140 þús.
Toyota Carina E GLI Catchy, árg. '95, ek. 51 þús.
km„ 4 d„ 5 glra., rauður. Verð 1350 þús.
VW Golf GL, árg. '95, ek. 47 þús. km. 5 d .
5 gira, steingrár. Verð 990 þús.
VW Golf GL ST, árg. '97, ek. 12 þús, km„
5 d„ sjálfsk., dökkgrænn. Verð 1490 þirs.
Nissan Pathfinder 3.0, árg. '95. ek. 34 þús.
km. 5 d„ sjálfsk., gullsans. Verð 2.610 þús.
Oþel Frontera TDI, arg. '95, ek. 77 þús. km.
5 d„ 5 glra, grænsans. Verð 2.350 þús.
SSangyong Musso 602EL Turbo, árg. '97,
ek. 11 þús. km. 5 d„ sjálfsk., svartur
Verð 3.950 þús.
Suzuki Sidekick JLX, árg. '96, ek. 18 þús. km„
5 d„ sjálfsk., grænsans. Verð 1.950 þús.
Sýnishorn úr söluskrá.
Helgi Jóhannsson, lögg. bifreiðasali. ♦ Markús Pórhallsson, sölustjéri. ♦ Jósteinn Porgrímsson, sölumaður. ♦ Vantar allar gerdir bíla á skrá og á staðinn