Morgunblaðið - 02.11.1997, Síða 40

Morgunblaðið - 02.11.1997, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 MININIINGAR MORGUNBLAÐIÐ Elskulegi eiginmaður minn, faðir okkar, teng- dafaðir, afi og langafi, MATTHÍAS GUÐMUNDSSON húsasmíðameistari, Hringbraut 104, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju mið- vikudaginn 5. nóvember kl. 14.00. Friðbjörg Ólína Kristjánsdóttir, Sigurður Sævar Matthíasson, Hafdís Matthfasdóttir, Sigbjörn Ingimundarson, barnabörn og barnabarnabarn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNA WINSLOW, búsett í New York í Bandaríkjunum, lést á sjúkrahúsi þar í borg 11. október síðast- liðinn. Jarðarförin hefur farið fram. Selma K. Albertsdóttir, Davfð Axelsson, Eðvarð Björnsson, Wendy Oviedo, Walter Oviedo, Pamela Winslow, Jeffrey Winslow, barnabörn og barnabamabörn. + Elskuleg eiginkona mín, systir okkar og mág- kona, ÓLÖF PJETURSDÓTTIR, Einarsnesí 50, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 23. októ- ber. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11-E fyrir einstaka umönnun og alúð. Bjarni Árnason, Ásgeir Pjetursson, Solvejg Pjetursson, Ármann Pétursson, Kristín Dagbjartsdóttir, Helga S. Pétursdóttir, Kristján A. Jónsson, Pétur Pétursson, Ruth Sörensen. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkaers eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR PÁLSSONAR, Hléskógum 8, Egilsstöðum. Guð blessi ykkur öll. Rakel Kristjánsdóttir, Erla Sigríður Sigurðardóttir, Jakob Pórarinsson, Anna Sigurðardóttir, Sigurður Viggósson, Kristbjörg Sigurðardóttir, Hallgrfmur Gunnarsson, Pál Sigurðsson, Sumarrós Árnadóttir, afabörn og langafabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, dóttur og systur, GUÐFINNU KARENAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, Hrauntungu 4, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Heimahlynningar Krabbameinsfólasins fyrir góða umönnun og alúð. Einnig þökkum við starfsfólki Víðistaðaskóla í Hafnarfirði hlýhug og aðstoð. Grétar K. Ingimundarson, Sigurður Ingi Grétarsson, Arnar Grétarsson, Bjarney Katrfn Gunnarsdóttir, Brynjar Grétarsson, Brynjóifur Pórðarson og systkini hinnar látnu. INGIBJORG HELGADÓTTIR + Ingibjörg Helgadóttir fæddist á Framnesi á Skeiðum í Árnes- sýslu 15. júlí 1924. Hún lést 25. október síðastliðinn. For- eldrar hennar voru María Gísladóttir, f. 30.10. 1892, og Helgi Nikulásson, f. 3.3. 1887. Ingibjörg ólst upp hjá fóstur- foreldrum sínum, Jarðþrúði Nikulás- dóttur, f. 25.3. 1881, og Sigurði Haralds- syni, f. 4.2. 1875. Uppeldissystir Ingibjargar er Rósa B. Blöndals, f. 20.7. 1913. Hálfbræður henn- ar: Vilbogi Magnússon, f. 22.2. 1922, d. 21.8. 1994, og Pétur Guðmundsson, f. 1.9. 1937. Hinn 13. maí 1944 giftist Ingi- björg Jóhanni Sæmundssyni, ættuðum úr Staðardal í Stein- grímsfirði. Hann lifir konu sína. Foreldrar Jóhanns voru Sæ- mundur Jóhannsson, f. 10.1. 1879, og Elísabet Jónsdóttir, kona hans, f. 18.5. 1870. Börn Ingibjargar og Jóhanns eru: 1) f. 30.3. 1945, maki hennar er Sigtryggur Sveinn Bragason, f. 30.7. 1943. Dætur þeirra: Ragnheiður Sigtryggsdóttir, f. 25.3. 1971, gift Ág- ústi Loftssyni, f. 2.6. 1965. Sonur hennar er Vilhjálmur Sveinn Guðmunds- son, f. 8.8. 1991. Ingibjörg Sig- tryggsdóttir, f. 30.3. 1976. 2) Sigrún Jarðþrúður, f. 6.2. 1947, maki hennar er Sigurður Július Stefánsson, f. 4.9. 1952. Sonur Sigrúnar er Jóhann Krist- jánsson, f. 10.4.1970, sonur hans er Kristján Valur, f. 25.8. 1993. 3) Sæmundur, f. 11.8. 1949. 4) Halldóra, f. 24.5. 1951. Böm hennar eru: Jóhann Helgi Sig- urðsson, f. 5.9. 1974, og Lijja María Sigurðardóttir, f. 14.5. 1976. Útför Ingibjargar fer fram frá Neskirkju mánudaginn 3. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13.30. Með Ingibjörgu er fallin í valinn kona, sem mátti ekki vamm sitt vita. Hún hugsaði mikið um eilífðarmálin, sem eru að jafnaði hulin hugarsjón- um þorra fólks, vegna daglegs starfs og amsturs. Sjaldan mun hana hafa vantað til guðsþjónustu í Neskirkju ásamt manni sínum. Þar voru þau samstiga, líkt og í lífinu sjálfu. Ung giftist Ingibjörg Jóhanni Sæmundssyni, úr Strandasýslu. Með honum eignaðist hún börn, og stuðl- aði þannig að framvindu mannlífs- ins. Hún hefur skilað góðu ævistarfi. Kynni mín af þessum ágætu hjón- um hófust fyrir um hálfri öld, er kona mín fór með mig i heimsókn til þessa kunningjafólks síns, sem þá átti heima í litlu húsi inni í Kringlumýri, skammt þar frá sem Kennaraháskólinn reis síðar. Þrátt fyrir nauman fjárhag, undu þau sér þama vel. Síðar fluttu þau þaðan, þegar fjölskyldan stækkaði og kröf- ur voru uppi um að nýta landið und- ir varanlegar byggingar. Á Fomhaga 11 bjuggu þessi ágætu hjón mörg síðustu árin, þegar lífsönnin var að baki. Þau bjuggu í notalegri kjallaraíbúð og leið þar vel. Nú kveður Jóhann sína ástkæru eiginkonu, áttatíu og fimm ára að aldri. Hann hefur mikið misst, en á einnig mikið að þakka. Eg votta honum samúð mína við fráfall henn- ar, svo og afkomendum þeirra. Ekkert auðgar lífið meira en kynni við gott fólk. Fyrir kynnin við hana Ingibjörgu á Dunhaganum þakka ég innilega. Auðunn Bragi Sveinsson. Þessi systir mín, sem var ellefu ámm yngri en ég, er farin á undan mér. Mig langar að leggja henni í munn erindi úr kvæði til fósturmóð- ur okkar: Við páskasól, Guðs ástarorð og íslands björtu nætur, við fossanið og feðra-storð, þú festir lífs míns rætur. Er finn ég hrökkva hinsta streng af hörpu ævi minnar, á línu sálms til Guðs ég geng við geisla bænar þinnar. Ingibjörg, sem var mér sönn syst- ir, fæddist á heimili fósturforeldra minna í Framnesi á Skeiðum 15. júlí 1924. Mamma okkar hét Jarð- þrúður Nikulásdóttir, Arnfirðingur, en pabbi okkar hét Sigurður Har- aldsson, Þingeyingur, úr Köldukinn og Bárðardal. Þau voru bæði stórvel gefin, stálminnug og sérlega barngóð. Mikið var nú litla stúlkan falleg og bláu, skíru, stóru og fögru augun hennar. Vissulega varð hún ijós á heimilinu. Móðir hennar hét María Gísladóttir, Árnesingur. Faðir Ingi- bjargar hét Helgi Nikulásson, ættað- ur sunnan með sjó og var sjómaður. Honum þótti afar vænt um dóttur sína og lét hana heita eftir ömmu sinni. Ingibjörg söng lög þegar hún var ársgömul. María, móðir hennar, hafði með sér lítinn tveggja ára gló- koll, sem hét Finnbogi Magnússon. Hann er nú látinn fyrir nokkrum árum. Mér fannst gaman að gæta hans, af því hann var alltaf svo þægur og góður við mig. Mikið sáum við eftir þeim mæðginum þegar þau fóru. Yngri bróðir Ingibjargar heitir Pétur Guðmundsson, prýðis drengur eins og Finnbogi bróðir þeirra. Ingibjörg var elskulegt og rólegt barn. Hún var hænd að mér og mér þótti íjarska vænt um hana. Hún var ákaflega staðfóst, trygg og vinföst. Okkur leið vel í æskunni, geymd- um þar mikið sólskin I minningu. Ingbjörg var fluglæs fjögurra ára gömul, mamma kenndi henni. Hún hafði alhliða skarpar gáfur. Ég hef ekki kynnst hraðgreindara barni. Réttritun hafði hún í sér, eins og sum böm. Hún fékk að læra á orgel í æsku. Ingibjörg var beðin um að fara og læra hjá Páli ísólfssyni, svo hún gæti tekið að sér kirkjuorganista- starf við kirkjuna í Hruna. Hún sótti námið af mikiu kappi. Páli fannst hún svo efnileg, að hann bauð henni ókeypis kennslu, ef hún vildi vera lengur og þáði hún það. Ingibjörg hafði afburða tónminni. Söngur og tónlist voru hennar líf og yndi. Hún var hjálpsöm, loforð hennar stóð eins og stafur á bók. Ingibjörg var falleg og gáfuð ung stúlka. Hún var vel að sér til munns og handa. Ég veit að mamma lét hana læra mikið af sálmum og kvæð- um auk handavinnu, enda var hún vel máli farin. Ingibjörg var organisti hjá mann- inum mínum að Stað í Steingríms- firði og æfði kóra. Á Stað hittust þau Jóhann og Ingólfur gifti þau í Staðar- kirkju. Þar eignuðust þau tvær indæl- ar litlar dætur. Elísabet heitir eftir föðurömmu sinni. En Jarðþrúður Sig- rún í höfuðið á mömmu og pabba. Eftir að þau fluttu til Reykjavíkur fæddust tvö indæl börn í viðbót, Sæmundur og Halldóra. Þetta voru allt miklir sólargeislar fyrir foreldra og afa og ömmu. Sigrún sagði ný- lega við mig: „Ég sá mikið eftir honum afa. Mér þótti svo vænt um hann.“ Síðar á ævi fluttu þau hjónin í Nessókn, þá gekk systir mín í kirkjukór Neskirkju. Nokkur síðustu ár sat hún í sóknarnefnd Nessókn- ar. Þau hjón voru virkir þátttakend- ur í safnaðarlífi Nessóknar. Þau komu oft að Mosfelli og Ingibjörg var tíðum kirkjuorganisti þar við hátíðleg tækifæri. Hún var glöð í vor þegar Lilja María dótturdóttir hennar, lauk stúdentsprófi með hárri einkunn, eins og bróðir hennar áður. Alla tíð var heimili þeirra hjón- anna mjög gestrisið. Ingbjörg var mikil móðir og amma. Heimilið bar sérstakan rausnarbrag. í veikindum sínum á Borgarspít- ala sagði hún eitt sinn við mig: „Það er góð hjúkrun hér.“ Ollum er dauðinn sár, sem hann kemur nærri. En Ingibjörg hefur áreiðanlega sagt með Hallgrími: Ég Iifi í Jesú nafni, í Jesú nafni ég dey. Með hjartans þakklæti fyrir tryggð og ástríki kveð ég systur mína. Minnumst huggunarorða Jesú: Hver sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi. Innileg samúðarkveðja, frá húsi mínu. Rósa B. Blöndals. í dag, 3. nóvember 1997, er hún Ingibjörg Helgadóttir jarðsett. Ingu hef ég þekkt frá því að ég man eft- ir mér en hún var fóstursystir henn- ar ömmu minnar. Amma og Inga voru mjög nánar en þær ólust upp saman hjá fósturforeldrum sínum, Jarðþrúði Nikulásdóttur og Sigurði Haraldssyni að Framnesi á Skeiðum. Þegar ég hugsa um þær stundir sem við Inga höfum átt saman dett- ur mér fyrst í hug þakklæti. Hún Inga var nefnilega alltaf til staðar og ekki síst þegar á þurfti að halda. Þegar ég var barn hjá afa mínum og ömmu að Mosfelli í Grímsnesi kom Inga oft til að spila undir messu hjá afa og þá sat ég alltaf við hlið hennar og við sungum. Mér fannst alltaf eins og við værum forsöngvar- ar í kirkjunni. Þannig var Inga mjög barngóð og hún hafði alltaf tíma til að spjalla við mig. Við systkinin nutum þess að koma og heimsækja Ingu og Jóa og það þótti sérstaklega gaman að fá að sofa hjá þeim. Ég man eftir því að þegar hún svæfði mig þá söng hún alltaf fyrir mig, og mikið þótti mér það notalegt. Síðar á ævinni fengu börnin mín líka að njóta hlýju hennar og alltaf spurði hún mig um það hvernig þeim gengi þegar ég hitti hana. En amma átti alltaf vísan stað hjá Ingu og Jóa þegar hún kom í bæinn, og sóttist hún eftir því að vera hjá þeim. Við dóttir mín vorum að rifja upp minn- ingamar um Ingu og var henni ekki síður minnisstætt en mér þegar hún var lítið barn í heimsókn hjá afa og ömmu, og Inga var líka í heimsókn og spiluð var vist. Þessum stundum fylgdi alltaf mikil gleði. Því miður var Inga ekki heilsuhraust síðustu árin sem eflaust hefur verið henni og eiginmanni hennar þungt í skauti. í dag kveð ég Ingu og bið góðan Guð að blessa hana og sendi samúð- arkveðjur til eiginmanns hennar Jó- hanns Sæmundssonar, barna þeirra, Elísabetar, Sigrúnar, Sæmundar, Dóm, maka þeirra og barna. Rósa Arnardóttir og fjölskylda. Ömmur og afar eru einstakar manneskjur. Til þeirra er ávallt hægt að leita, þau eru einhvernveg- inn alltaf til staðar. Vilja allt fyrir bamabömin gera og dekra jafnvel ofurlítið við þau án þess að nokkur viti. Það myndast oft svo sérstakt samband á milli barnabamanna og þeirra. Það er ekki beint eins og samband okkar við foreldra, systkini eða vini heldur eins og sambland af því besta frá hvetjum þessara um sig. Það er eins og ömmur og afar geti verið allt í senn. Það hlýtur að vera mikilvægt fyrir börn og ungl- inga að kynnast viðhorfum þeirrar kynslóðar sem ömmur og afar þeirra tilheyra. Þau muna tímana tvenna og margt þykir okkur skrítið sem yngri emm. Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum í „gamla“ daga. Ekkert sjónvarp, fáir bílar, vondir vegir, lítil og ófullkomin íbúðarhús- næði. Hvernig fór fólk eiginlega að hér áður fyrr ? Hugsanlega áttum við okkur betur á því hve undarlegt mat við höfum sjálf á hlutunum þegar við fáum að virða fyrir okkur sjónarhorn þeirra sem eldri eru. Þeg-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.