Morgunblaðið - 02.11.1997, Page 50
50 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
ÍDAG
Kristin
einingarhyggja
Eftir situr í
hugskotinu meðvit-
undin um það, segir
sr. Heimir Steinsson,
að hinztu rök tilver-
unnar hafí opinberazt
þér skilmálalaust.
KJARNI allrar trúarreynslu er
meðvitund hins trúaða um ein-
ingu við Guð, að Guð vefji bænar-
manninn örmum og sameini hinn
lotningarfulla sjálfum sér. Eining-
ar þessarar er getið víðs vegar í
heimildum um trúarbrögð mann-
kyns. Skáld yrkja um sama veru-
leika. Alkunnugt stef úr íslenzk-
um nútímabókmenntum er
„kraftbirtíngarhljómur guðdóms-
ins“ sem frá er skýrt í Heimsljósi
Halldórs Laxness. Einnig neftii
ég ljóðið „Leiðslu" eftir Matthías
Jochumsson. í kristnum sið teng-
ist umrædd meðvitund Kristi
Jesú. Vér kristnir menn, konur
og karlar, gjörumst eitt með
Kristi og í honum eitt með Guði
i sakramentum heilagrar kirkju
og í bæn vorri og íhugun.
Sú eining, sem hér um ræðir,
er leyndardómur trúarinnar.
Þetta hugsanaferli er kennt við
„mystík" á erlendum málum. Lýs-
ingarorðið sem tengist því er
„mystískur", og sá sem iðkar ein-
ingu við Guð er nefndur „mystí-
ker“. Þessi orð eru iðulega þýdd
á íslenzku sem dulspeki, dulspeki-
legur og dulspekingur. Sú þýðing
er þó á tæpu vaði þar eð íslenzku
orðin skírskota einnigtil svo-
nefndra „dulrænna fyrirbæra",
en þau eru alls óskyld „mystík“
í merkingunni eining Guðs og
hins trúaða. Betra er að þýða
orðið „mystík" sem „einingar-
hyggju" eða „einingarvitund" og
draga önnur orð og orðasambönd
af þeim frumorðum.
Einingarvitund í Nýja
testamentinu
Stundum er sagt, að það að
vera kristinn maður merki það
að trúa því, sem Jesús frá Nazar-
et trúði um sjálfan sig. Jesús var
einingarhyggjumaður. Vitund
sína um einingu við Guð föður
almáttugan skapara himins og
jarðar tjáir hann t.d. með eftirfar-
andi orðum: „Ég er í fóðurnum
og faðirinn í mér“ (Jóh. 14:10)
og síðar í sama ritningarversi:
„Faðirinn, sem í mér er, vinnur
sín verk.“ - Hliðstæðar yfírlýs-
ingar og líkingar er víða að finna
í guðspjöllunum.
í beinu framhaldi af þessu seg-
ir Jesús síðan við lærisveina sína:
„Verið í mér, þá verð ég í yður“
(Jóh. 15:4) og einu versi síðar:
„Sá ber mikinn ávöxt, sem er í
mér og ég í honum, en án mín
getið þér alls ekkert gjört." Hér
er dregin saman eining Guðs föð-
ur, Guðs sonarins Krists og hinna
trúuðu. Sömu hugsun er að finna
í „Fyrirbæn Jesú“, en þar biður
hann þess um lærisveina sína, „að
allir séu þeir eitt, eins og þú, fað-
ir, ert í mér og ég í þér, svo séu
þeir einnig í okkur, til þess að
heimurinn trúi, að þú hefur sent
mig“ (Jóh. 17:21).
Fj'ölmörgum sinnum talar Páll
postuli um það í bréfum sínum
að vera „í Kristi“. Þessi orð
merkja þá leyndardómsfullu ein-
ingu við hinn upprisna og við al-
máttugan Guð, er að ofan getur.
Fræðimenn hafa löngum talað um
„Kristsmystík" Páls postula eða
„Krists-einingarhyggju" hans.
Meðvitund postulans um einingu
við hinn upprisna og þar með við
Guð föður lýsir hvarvetna af skrif-
um hans. Sú einingarvitund er í
fyllsta samræmi við framanrituð
orð frelsarans sjálfs.
Einingarhyggja í sögu
kirkjunnar
í hugmyndasögu kristinna
manna gætir einingarhyggju nær
hvarvetna. Hún var útbreidd í
fomkirkjunni og blómstrar mjög
öldum saman í Austurkirkjunni,
þ.e.a.s. í hinni grísk-kaþólsku
kirkju. Kaþólskar miðaldir ein-
kennast ítrekað af ríkulegri ein-
ingarvitund fjölda kristinna rit-
höfunda. Margir andlegir forystu-
menn mótmælenda á síðari öldum
hafa fetað áþekka slóð.
Höfuðeinkenni þeirrar ein-
ingarhyggju, sem þróaðist meðal
mótmælenda, var sú áherzla, er
lögð var á endurheimt guðsmynd-
ar mannsins. Guðsmyndin er
nefnd „neisti", „þungamiðja" eða
„grundvöllur“ sálarinnar, „hið
heilaga sjálf‘, „innra ljós“ eða
„Kristur í hjarta voru“. Með því
að beina sjónum vomm inn á við
lítum vér þessa auðlegð augum
og sameinumst Guði í launkofa
sálarinnar.
Annað sérkenni kristinnar ein-
ingarhyggju birtist í áherzlu á
raunvemleika hugheimsins. Mað-
urinn sjálfur á innstu vem sína
þar. Hann á þess kost að stað-
reyna hinn óhaggaða raunvem-
leika hugheimsins nú þegar hér
á jörðu með bæn og íhugun.
Þegar kristin einingarhyggja
er borin saman við hliðstæðu sína
innan annarra trúarbragða, sker
það úr, að í kristnum sið samein-
ast vilji Guðs og vilji mannsins
til góðra verka hið ytra. Kristnir
einingarhyggjumenn snúa ekki
baki við heiminum. Þvert á móti
beina þeir kröftum sínum að hinni
góðu sköpun Guðs og beita sér
fyrir varðveizlu þeirrar sköpunar
og aleflingu hennar. Sú innri upp-
bygging, sem sprettur af einingu
sálarinnar við Krist og við Guð,
er hagnýtt í þjónustu Guðs ríkis
ájörðu.
Einingarreynslan sjálf
Hér að ofan er ítrekað talað
um bæn og íhugun sem forsendur
þeirrar samsemdar Guðs og
manns, er kristnir einingar-
hyggjumenn vitna um. Með þessu
fer því þó fjarri, að öll sagan sé
sögð. Kristin einingarvitund
byggir á trúarreynslu. Þá reynslu
þekkja fjölmargir. Þeir vita, að
menn verða hennar iðulega að-
njótandi fyrirvaralaust og án
nokkurra aðgjörða: Skyndilega
er Guð nærstaddur, þar sem þú
gengur eftir götunni undir þung-
búnum himni eða skínandi sól.
Hann strýkur þér um vanga,
meðan þú situr við skrifborðið
þitt eða erfiðar í skurðinum, sem
þú ert að grafa. Þú skynjar
óhagganlegan og altækan v_eru-
leika við hjartarætur þínar. í einni
andrá er öllu til skila haldið, lífi
þínu og tilverunni í heild. Full-
komin öryggiskennd er grunn-
tónn einingarreynslunnar.
Síðan líður einingin hjá. Eftir
situr í hugskotinu meðvitundin
um það, að hinztu rök tilverunnar
hafí opinberazt þér skilmálalaust.
Og einingin kemur aftur. E.t.v.
líða langar stundir, unz þú stað-
reynir hana á ný. E.t.v. skamm-
ar. En þú veizt hún kemur aftur
- og aftur. Sú vitneskja veldur
því, að dyr standa þér opnar héð-
an í frá. Þessar dyr heita „hlið
himnaríkis", ogeinn góðan veður-
dag er þér ætlað þar inn að
ganga.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ALLIR spilarar hafa bæði
unnið og gefíð „vonlaus"
þrjú grönd. En Michael
Rosenberg hefur sennilega
aldrei unnið vonlausari þijú
grönd en þessi hér gegn
Kínveijum 1 átta liða úrslit-
um HM:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ Á
4 G984
♦ 752
♦ 107652
Vestur
♦ DG42
4 KD1075
♦ 6
* DG9
Austur
♦ K9875
¥ 3
♦ KG84
♦ 843
Suður
♦ 1063
¥ Á62
♦ ÁD1093
♦ ÁK
Vestur Norður Austur Suður
Fu Zia Wang Rosenb.
1 hjarta Pass 1 spaði 2 tígiar
2 spaðai 3 tígiar Pass 3 grönd!
Pass Pass Pass
Ekki hefðu allir látið sér
detta í hug að melda þijú
grönd á spil suðurs, án
fyrirstöðu í spaða. En Ros-
enberg var að vona að spað-
inn lægi 4-4, en þá gætu
þijú grönd unnist ef mak-
ker ætti svo lítið sem tígul-
kóng og laufdrottningu.
Fu spilaði út spaða-
drottningu á ás blinds. Ros-
enberg svínaði næst tígul-
níu og spilaði svo drottning-
unni yfír á kóng austurs.
Wang spilaði spaðaníu og
átti slaginn. Síðan skipti
hann yfír í laufáttu!? Rosen-
berg drap, tók tígulás og
spilaði meiri tígli, enda ekk-
ert annað að gera. Og aftur
spilaði austur laufí.
Þrátt fyrir að vörnin
hefði tvívegis misst af tæki-
færi til að taka spilið niður,
átti Rosenberg enn aðeins
sjö slagi. En þegar hann tók
síðasta tígulinn, fór Fu í
vestur að hugsa. Hann átti
G4 í spaða, KD í hjarta og
laufdrottningu. Frá hans
bæjardyrum leit út fyrir að
suður ætti K10 í spaða, en
þá mátti ekki henda frá
spaðagosanum. Og hvar
var síðasta laufíð? Ef suður
átti það, var Fu að halda í
laufdrottningu. Eftir miklar
vangaveltur henti Fu loks
hjartadrottningunni. Kóng-
urinn kom þá í ásinn og G9
í borði gáfu Rosenberg átt-
unda og níunda slaginn.
Kirkjustarf
Framhald af bls 63
Árbæjarkirkja. Starf
fyrir 7-9 ára böm kl.
13-14 í safnaðarh.
Æskulýðsfundur yngri
deildar kl. 19.30-21.30.
Starf fyrir 10-12 ára
böm mánud. kl. 17-18.
Allir velkomnir. Félags-
starf aldraðra á mánud.
kl. 13-15.30. Fótsnyrt-
ing á mánudögum. Pant-
anir í s. 557 4521.
Fella- og Ilólakirkja.
Bænastund og fyrirbæn-
ir mánud. kl. 18. Tekið
á móti bænaefnum í
kirkjunni. Foreldramorg-
unn í safnaðarh. þriðjud.
kl. 10.
Grafarvogskirkja.
Bænahópur kl. 20.
Hjallakirkja. Æskulýðs-
félag 13-14 ára, kl.
20.30. Prédikunarklúbbur
presta þriðjud. kl. 9.15.
Umsjón dr. Siguijón Ámi
Eyjólfsson héraðsprestur.
Kópavogskirkja. Sam-
vera Æskulýðsfél. kl. 20
í safnaðarh. Borgum.
Seljakirkja. Fundur
KFUK mánud. Fyrir 6-9
ára stelpur kl. 17.15-
18.15 og 10-12 ára kl.
18.30-19.30. Mömmu-
morgnar á þriðjud. kl. 10.
Hvítasunnukirkjan
Filadeifía. Brauðsbrotn-
ing kl. 11. Ræðumaður
Vörður L. Traustason.
Alm. samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Vörður L.
Traustason. Aliir vel-
komnir.
Landakirkja. KFUM &
K kl. 20.30, unglinga-
fundur. Saumafundur
kvenfél. á morgun kl. 20.
Bænasamvera og biblíu-
lestur á morgun í KFUM
& K húsinu kl. 20.30.
Grindavíkurkirkja.
Bamastarf kl. 11. Bæna-
og minningarstund kl.
18. Sungnir verða Taizé-
söngvar. Sr. Önundur
Björnsson, héraðsprest-
ur, leiðir stundina ásamt
sóknarpresti. Allir vel-
komnir. Áður augl. fyrir-
lestur í dag fellur niður.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hækkun
mótmælt
ÖRYRKI hringdi og
kvaðst óánægður með að
Póstur og sími skuli hafa
hækkað gjaldskrá sína.
Hann telur þessa hækk-
un koma illa niður á þeim
sem hafa minna úr að
moða.
Þá kvaðst hann vera
bindindismaður og sagði
að eina leiðin til að fá
fólk til að hætta að
reykja og drekka væri
að hækka svo verð á
áfengi og tóbaki að eng-
inn hefði efni á að kaupa
það.
Hvað fá
símvirkjarnir?
ÞAÐ VÆRI gaman að
fá að vita hjá Pósti og
síma, sem alltaf er að
birta töflur og bera gjald-
skrá sína saman við önn-
ur lönd, hvað símvirkjar
í þessum sömu löndum
fá mörg skref fyrir tíma-
kaupið sitt.
Nonni
SKÁK
Umsjón Margcir
Pctursson
STAÐAN kom upp á alþjóð-
lega Hellismótinu sem lauk
í gær. Bandaríkjamaðurinn
Dan E. Myers var með
hvítt, en Ólafur Kjartans-
son hafði svart og átti leik.
Keyrt á bíl og
stungið af
INGA hringdi og sagðist
hafa orðið fyrir því að
óprúttinn ökumaður hafí
keyrt á bíl hennar og
stungið síðan af. Tjónið
var töluvert og hún situr
uppi með það. Vegna
þess hve dýrt var að láta
gera við bílinn getur hún
ekki gefíð bamabörnun-
um þær jólagjafír sem
hún hefði viljað.
Hún vill því höfða til
samvisku fólks, sérstak-
lega nú fyrir jólin, og
biðja það að hugsa áður
en það lætur aðra sitja
uppi með kostnað sem
það ber ábyrgð á.
Tapað/fundið
Bakpoki
týndist
GRÆNN og fjólublár
bakpoki týndist fyrir
utan Kvennaskólann eða
ÍTR sl. miðvikudags-
kvöld. Hafi einhver fund-
ið pokann er hann beðinn
að hringja í síma
567 3267. Anna Björg.
19. - Rxd4! 20. Bxd4 -
Hxd4 21. Hadl (Ekki 21.
Dxd4? — Bc5 og drottning-
in fellur) 21. - Hf4 22.
Hd3 - Bc5+ 23. Kg2 -
Hg8 24. Kh2 -
Bxf3 25. Bfl -
Hxh4+ og hvítur
gafst upp, því
mátið blasir við.
Islandsmót
kvenna í skák
hefst mánudaginn
3. nóvember kl. 17
í Skákmiðstöðinni
Faxafeni 12,
Reykjavík. Tefld-
ar verða klukku-
tímaskákir. Teflt
verður mánudag-
inn 3. nóvember
kl. 17, miðviku-
daginn 5. nóvem-
ber kl. 17, mánu-
daginn 10. nóvember kl. 17
og miðvikudaginn 12. nóv-
ember kl. 17.
Þátttaka tilkynnist til
Júlíusar Friðjónssonar í
síma 5533922.
SVARTUR leikur
og vinnur
Víkveiji skrifar...
TVENNIR tónleikar í Royal Al-
bert Hall vöktu sérstaka athygli
Víkveija, er hann dvaldi í London á
dögunum; frumflutt var sinfónískt
verk eftir Paul McCartney og píanó-
leikarinn David Helfgott flutti 3ja
píanókonsert Rachmaninovs.
Paul McCartney samdi Bauta-
stein að beiðni EMI-fyrirtækisins í
tilefni aldarafmælis þess. Sjálfur
kallar höfundurinn verkið sinfónískt
ljóð, en í Bautasteini eru 19 atriði,
sem flutt eru af kór og hljómsveit
og tengjast ljóði um vegferð manns-
ins, sem McCartney orti í keltnesk-
um anda. Verkið tekur um 75 mín-
útur í flutningi.
Gagnrýnendur voru yfírleitt á því
að Bítilinn fyrrverandi skorti burði
til að semja meiri háttar sinfónískt
verk. Víða megi þó sjá þess stað,
að hann sé frábær lagasmiður.
Annars las Víkveiji dóma, sem voru
allt frá því að fínna verkinu flest
til foráttu til þess að lýsa því sem
leiftrandi snilld.
Ætli sannleikurinn liggi ekki ein-
hvers staðar þarna í milli!!
NOKKRUM dögum síðar en
Bautasteinn bítilsins fyrr-
verandi hljómaði í Albert Hall steig
þar á svið David Helfgott og flutti
sinn „Rach 3“.
Þeir sem þekkja til sögu Helfg-
otts, sem kvikmynd hefur verið
gerð um, muna, að það var einmitt
þessi píanókonsert, sem hann lék
nemandi við the Royal College of
Music áður en hann féll saman.
Hann hafði ekki leikið verkið aftur
í London fyrr en nú á dögunum.
Helfgott var vel fagnað, eins og
reyndar Paul McCartney líka.
Gagnrýnendur sögðu hann greini-
lega hafa haft skemmtan af því
að spila; hann hafi víða raulað með
og þá sungið hærra en aðrir pían-
istar gera á slíkum tónleikum.
Sjálfur sagðist Paul McCartney
hafa skemmt sér vel á flutningi
Bautasteins, þótt ekki fari sögur
af söng hans. Hefur vísast látið
sér nægja að raula með í huganum.
OG ALVEG eins og gagnrýn-
endur sögðu verk McCartneys
eiga til fallega kafla, þá sögðu þeir
Helfgott hafa átt góða spretti á
píanóinu.
Því hefur verið haldið fram, að
frekar eigi að líta á Helfgott sem
furðumenni, eins konar afkáralegan
skemmtikraft, heldur en raunveru-
legan listamann. Tónleikahald hans
sé til þess eins að hala inn fé. Um
Paul McCartney hefur verið sagt,
að hann sé eins og trúður í klass-
ískri tónlist og fyrirsögn einnar
umsagnar um Bautastein var tilvís-
un til Bítlalags; „Eins og hann sagði
sjálfur, ást fæst ekki fyrir fé.“
Hvað sem mönnum nú kann að
finnast, þá fylltu þessir tveir menn
Albert Hall og komust færri að en
vildu og geislaplötur með Bauta-
steini og „Rach 3“ seldust vel.
Þannig náðu þessir menn til fjöld-
ans með tónlistinni og ef til vill er
það hún, sem hagnast mest, þegar
allt kemur til alls.