Morgunblaðið - 02.11.1997, Blaðsíða 64
Þaö tekur aöeins
einn m u
■virkan
dag
aö koma póstinum
þínum til skila
tfgnnMftfrlfe
<o>
AS/400 er...
...þar sem grafísk
notendaskil eru
í fyrirrúmi
03> NÝHERJI
MORGUNBLADW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristj án
Unnið við flottrollið
STARFSMENN veiðarfæragerðar Útgerðarfélags
Akureyringa hf. lögðu undir sig helminginn af bfla-
stæði félagsins er þeir voru að vinna við flottroll frysti-
togarans Akrabergs, enda eru flottroll gríðarlega stór
og fyrirferðarmikil. Akraberg er í eigu Framherja,
dótturfyrirtækis Samherja í Færeyjum. Eins og sést á
myndiimi þurftu þeir Guðmundur Pétursson og Hjalti
Þór Þórólfsson að taka hraustlega á við vinnu sína.
Röntgenlæknar á Landspítalanum
Lausn kann að
vera í sjónmáli
LAUSN kann að vera í sjónmáli í
kjaradeilu röntgenlækna á Land-
spítalanum, en þeir hafa sagt upp
störfum frá 1. desember næstkom-
andi. Eru röntgenlæknarnir óá-
nægðir með kjör sín sem eru mun
lakari en kjör röntgenlækna á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur samkvæmt
niðurstöðu Ríkisendurskoðunar.
Að sögn Þorvalds Veigars Guð-
mundssonar, forstöðumanns lækn-
ingasviðs Ríkisspítalanna, hafa við-
ræður við'læknana átt sér stað og
stendur til að sett verði önnur vakt
á röntgendeildinni með vaxandi
sérhæfingu á deildinni. Hann sagði
að læknamir hefðu sannanlega
unnið yfii'vinnu við undirbúning
morgunfunda sem ekki hefði verið
greitt fyrir, en yfirvinnubann er
mjög strangt. Því banni verður létt
af og fá læknarnir því greitt fyrir
þessa yfirvinnu. Þá hefur verið
ákveðið að gera skipulagsbreyting-
ar á röntgendeildinni og fjölga yfir-
læknum.
„Þetta eru meginþættirnir sem
hafa gerst núna og þetta jafnar
stöðu þeirra eitthvað, en ekki nærri
því eins og Ríkisendurskoðun segir
að mismunurinn hafí verið. Aður
var búið að vinna dálítið í þá átt að
þeir fengju hlutdeild í viðbót sem
kom inn á deildina, og allt er þetta
auðvitað lagt saman,“ sagði Þor-
valdur.
Yfirlæknar verða
Qórir talsins
Röntgenlæknar á Landspítalan-
um eru átta talsins og sagðist Þor-
valdur Veigar vonast til að þeir
hættu við uppsagnii’ sínar. Einn af
þeim sem sögðu upp hefur dregið
uppsögnina til baka vegna þess að
hann fékk launalaust ársleyfí frá
störfum.
Auglýst hefur verið laus til um-
sóknar staða yfirlæknis og prófess-
ors í röntgenlækningum, en jafn-
framt verður bætt við einni stöðu
yfirlæknis og mun hún koma í hlut
einhvers læknanna sem þegar
starfa á deildinni. Verða yfirlækn-
arnir á deildinni þar með fjórir tals-
ins.
Alþjóðlegur listi um samkeppnishæfni þjóða
Island í 21. sæti og
lakast Norðurlandanna
Atkvæða-
greiðsla um
sjómanna-
verkfall
Á FUNDI formanna aðildarfélaga
Sjómannasambands Islands í gær
var samþykkt ályktun þess efnis að
samninganefnd SSI beini því til að-
ildarfélaga að þau láti fara fram at-
kvæðagreiðslu um vinnustöðvun á
fiskiskipaflotanum til að knýja fram
kjarasamninga.
Fundurinn, sem haldinn var í
Vestmannaeyjum í gær og fyrra-
dag, harmar að enn skuli ekki lokið
gerð kjarasamnings fyrir sjómenn
og að engar viðræður skuli eiga sér
stað. Þá segir í ályktuninni að fram
hafi komið ákveðinn vilji á fundum
forystumanna SSÍ og FFSI með
sjómönnum til að beita þrýstingi til
að ljúka gerð kjarasamnings.
TRÉSMIÐI vantar í uppsláttar-
vinnu á höfuðborgarsvæðinu, verk-
efni eru næg næstu tvö árin hjá
mörgum verktakafyrirtækjum á
suðvesturhorni landsins og kaup
fer hækkandi vegna mikillar eftir-
-—^kspurnar eftir iðnaðarmönnum.
„Það er ákveðin þensla í augnablik-
inu og meiri spenna en við höfum
séð í nokkur ár,“ segir Haraldur
Sumarliðason formaður Samtaka
iðnaðarins.
Haraldur segir að oft hafi verk-
efni verið næg á haustin og
framundir áramót ef tíð hefur verið
^góð. „Það er mikið að gera núna og
ÍSLAND hefur þokast upp um fjög-
ur sæti á lista yfir samkeppnishæfni
þjóða og er nú í 21. sæti meðal 46
þjóða. Listinn er birtur í The
Competitiveness Yearbook 1997 og
eru þar skoðuð atriði eins og hag-
kerfi, alþjóðavæðing, stjómsýsla,
fjármál, tækni og vísindi.
Fram kemur í lista þessum að já-
kvæðasta breytingin er varðandi
hagkerfið en þar stekkur Island
upp um 10 sæti. Eru ástæðurnar
m.a. taldar aukin einkaneysla, fjár-
festing, virðisauki og framtíðarspá.
Neikvæðari þróun hefur orðið í
frammistöðu atvinnugreina og
heldur skortur á mönnum en engin
vandamál á ferðinni. Mest er að
gera hér á suðvesturhominu en
ekki má gleyma því að víða úti á
landi er atvinnuleysi meðal iðnaðar-
manna.“ Haraldur kvaðst hafa
heyit talað um að mönnum væra
boðnar allnokkrar kauphækkanir
en erfítt hefði reynst að fá það stað-
fest. Hann benti einnig á að mjög
mikið væri að gera um þessar
mundir hjá verktökum í hvers kon-
ar jarðvinnu og þar vantaði tækja-
menn og bflstjóra.
Finnbjöm Hermannsson, formað-
ur Trésmiðafélags Reykjavíkur,
sparnaður er talinn standa illa.
Verst er staðan varðandi tækni og
vísindi og versnar um átta sæti.
Þar eru talin atriði eins og starfs-
fólk í rannsóknum og þróun,
stjórnun tækniþróunar og einka-
leyfi. Island stendur mun lakar að
vígi en hin Norðurlöndin en af
þeim er Finnland í fjórða sæti,
Noregur í fimmta, Danmörk í átt-
unda og Svíþjóð er í 16. sæti og
hefur sigið.
Baldur Pétursson, deildarstjóri í
iðnaðarráðuneytinu, segir að ár-
angursrík efnahagsstefna byggist í
æ ríkari mæli á faglegum, þróuðum
segii’ að smiði vanti við uppslátt á
höfuðborgarsvæðinu. „Ymis stór
byggingarverkefni í nágrenni borg-
arinnar hafa áhi’if á markaðinn í
Reykjavík og taka til sín fjölda
smiða,“ segir Finnbjöm og nefnir
sem dæmi að 60 smiðir séu við störf
við álverið á Grundartanga, stór
hópur við byggingu Rúmfatalagers-
ins í Kópavogi og liokkrir tugir
smiða séu nú á leið í Sultartanga-
virkjun. Hann segir laun svipuð í
þessum verkefnum, ekki sé hægt að
segja að vinna við uppslátt sé vem
greidd en vinna við annars konar
stórframkvæmdh’.
og alþjóðlegum athugunum sem
greini á kerfisbundinn hátt styrk-
leika og veikleika hagkerfa. Því
hafi ráðuneytið lagt aukna áherslu
á að taka þátt i alþjóðlegum athug-
unum.
Baldur segir að árangursrík efna-
hagsstefna byggist einnig í vaxandi
mæli á almennum aðgerðum á sviði
starfsskilyrða fyrirtækja, svo sem á
sviði alþjóðavæðingar, tækni og vis-
inda, fjármála og stjórnunar auk
ýmissa stuðningsaðgerða í sam-
keppni við það sem gerist erlendis.
■ ísland í 21. sæti/28
„Þegar vanta fer smiði hækkar
kaupið, það er bara lögmálið um
framboð og eftirspurn," sagði Finn-
björn en kvaðst ekki geta nefnt
ákveðnar tölur í því sambandi, þar
væra þó engar stökkbreytingar.
„Við sjáum fram á næstu tvö til
þrjú árin með miklum uppgangi
miðað við verkefnastöðuna núna.“
í könnun Þjóðhagsstofnunar á
ástandi í september kemur fram að
atvinnurekendur í byggingastai-f-
semi vildu fjölga um 65 starfs-
menn, 50 á höfuðborgarsvæðinu og
15 á landsbyggðinni. Er fjölgunin
0,6% af vinnuafli í greininni.
Morgunblaðið/Golli
A dúfna-
veiðum
DÚFUR eru enn vinsælar hjá
strákum og með pappakassa og
korn koma þeir sér fyrir við
Tjörnina í von um að ná í eins
og einn Toppara, fsara eða
Skræpu.
-----------
Banaslys
í Keflavík
MAÐUR um þrítugt lést í vinnu-
slysi í Keflavík síðdegis síðast
liðinn föstudag.
Maðurinn varð undir vinnuvél
við Mánatorg, þar sem verið er að
gera hringtorg. Ekki er unnt að
birta nafn mannsins að svo stöddu.
Næg verkefni í byggingariðnaði og hjá verktökum næstu tvö árin
- Smiðaskortur á höfuðborg-
arsvæðinu og kaup hækkar