Morgunblaðið - 13.01.1998, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fann
haus-
kúpu af
rostungi
HAUSKÚPA af rostungi fannst
í fjörunni í landi Bæjarskeija í
Sandgerði síðastliðinn sunnu-
dag, en um 100 ár eru liðin síð-
an hauskúpa af rostungi fannst
síðast á Suðurnesjum.
Það var níu ára gamali
drengur, Elías Mar Caripis
Hrefnuson, nemandi í 4. bekk
grunnskólans í Sandgerði, sem
fann hauskúpuna þegar hann
var á gönguferð um Qöruna
ásamt Gunnlaugi Sveinbjörns-
syni. Hauskúpan er komin á
Fræðasetrið í Sandgerði og
verður hún væntanlega aldurs-
greind þegar fram líða stundir,
að sögn Helgu Ingimundardótt-
ur, forstöðumanns Fræðaset-
ursins.
Helga sagði að hauskúpan
væri líklega 7-10 kíló að þyngd,
en á hana vantar aðra vígtönn-
ina og neðri kjálkann.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
ELÍAS Mar Caripis Hrefnuson heldur hér á rostungshauskúpunni sem
hann fann á fjörugöngu sinni með Gunnlaugi Sveinbjörnssyni,
sem er til hægri á myndinni.
„Þetta er frekar sjaldgæft, en
fyrir um 100 árum fannst haus-
kúpa af rostungi í Leirunni hin-
um megin á skaganum og árið
1694 fundust hauskúpur tvisvar
sinnum í Sandgerði. Þetta
svæði sem nú heitir Miðnes hét
áður Rosmhvalanes og þar
sáust oft áður fyrr rostungar,
eða rosmhvalir, og einmitt
vegna þess var ákveðið að hafa
rostung í bæjarmerkinu,“ sagði
Helga.
NEÐRI kjálkann og aðra víg-
tönnina vantar á hauskúpuna.
Tillaga að framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík
Ekki hreyft við
átta efstu sætunum
Guðrún Péturs-
déttir í 9. sæti
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins fyrir borgarstjómarkosn-
ingamar í Reykjavík, sem haldnar
verða í vor, verður ákveðinn á
fundi Varðar - fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík - á
Hótel Sögu annað kvöld. Fyrir
fundinn verður lögð tillaga kjör-
nefndar um skipan listans.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins leggur nefndin til að átta
efstu sætin verði skipuð í samræmi
við úrslit prófkjörsins, sem haldið
var í október síðastliðnum. Efstu
átta menn í prófkjörinu hlutu
meira en helming greiddra at-
kvæða, en þar sem færri en helm-
ingur flokksmanna í Reykjavík
kaus í prófkjörinu voru niðurstöður
þess ekki bindandi.
Kjömefnd leggur til að í níunda
sætinu verði Guðrún Pétursdóttir,
Norðurál hefur tryggt átta milljarða lán frá 12 bönkum
Hálfur milljarður frá FBA
GENGIÐ hefur verið frá láni tólf
banka til byggingar álvers á vegum
Norðuráls hf. á Grundartanga.
Kenneth Peterson, stjómarformaður
Norðuráls og eigandi Columbia
Ventures Corporation, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að alls
væri um að ræða lán að andvirði 110
milljóna dollara (tæplega átta millj-
arða króna) og þar af myndi Fjár-
festingabanki Islands (FBA) lána sjö
milljónir dollara eða tæplega 510
milljónir króna.
Norðurál gekk í ágúst frá samning-
um við hollenskan og franskan aðila,
ING Barings og Banque Paribas, og
ábyrgðust þeir fjármögnun álversins.
Peterson sagði að það hefði komið sér
á óvart hvað margir bankar hefðu vilj-
að lána fé.
„Við áttum von á að sex eða átta
bankar tækju þátt í þessu,“ sagði
hann. „En þeir voru orðnir 12 þegar
upp var staðið og enginn þeirra gat
lagt fram jafh mikið fé og vilji stóð til.“
Peterson kvaðst ekki geta sagt um
það hver hefði átt frumkvæði að því
að Fjárfestingabanld atvinnulífsins,
sem hóf formlega störf í upphafi árs,
lánaði til framkvæmdanna. Hann
benti þó á að Erlendur Magnússon,
sem nú er framkvæmdastjóri fyrir-
tækjasviðs FBA, hefði í sínu fyrra
starfi hjá Nomura Bank Inter-
national unnið í rúmt ár að málum
Norðuráls. Hann hafi því vitað af því
að verið var að semja um lán fyrir
Norðurál. Fjármálaráðgjafar Col-
umbia Ventures eru tveir, Nomura
og Babcock & Brown í London.
„Það er mér ánægjuefni að Fjár-
festingabankinn sé með í þessu,“
sagið hann. „Við stefndum að því að
fá íslenskt fé inn í þetta verkefni og
það gekk eftir.“
Peterson sagði að framkvæmdir á
Grundartanga gengju samkvæmt
áætlun og líklegt væri að það gengi
eftir að hægt yrði að hefja starfsemi
eftir fimm mánuði. Sennilega hefðu
lán að andvirði fjögurra milljarða
króna verið afhent nú þegar.
forstöðumaður Sjávarútvegsstofn-
unar Háskóla íslands, en hún tók
ekki þátt í prófkjörinu. Eyþór Am-
alds, sem hlaut níunda sætið í próf-
kjörinu, verður í því tíunda sam-
kvæmt tillögu kjörnefndar.
Kristján Guðmundsson hlaut 11.
sætið í prófkjörinu og skipar það
áfram samkvæmt tillögu kjör-
nefndar. í 12. sætinu verður Bryn-
dís Þórðardóttir, sem hafnaði í 16.
sæti í prófkjörinu, og í 13. sæti
Snorri Hjaltason, en hann hafnaði í
10. sæti í prófkjörinu.
Baltasar Kormákur hlaut 14.
sætið í prófkjörinu og leggur kjör-
nefnd til að hann skipi það áfram.
Nefndin setur Helgu Jóhannsdótt-
ur í 15. sæti, en hún hlaut 12. sætið
í prófkjörinu. I 16. sæti er Agústa
Johnson, sem lenti í 13. sæti í próf-
kjörinu.
Oddviti Kjalnesinga í 17. sæti
Kjömefnd leggur til að Pétur
Friðriksson, framkvæmdastjóri og
oddviti hreppsnefndar Kjalames-
hrepps, skipi 17. sæti listans en
hann tók ekíd þátt í prófkjörinu. Þá
er lagt til að Svanhildur Hólm Vals-
dóttir skipi 18. sætið, en hún hlaut
17. sætið í prófkjörinu.
Kjömefndin leggur því tíl, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, að efstu 18 sæti listans verði
skipuð þannig: 1. Ami Sigfússon. 2.
Viihjálmur Þ. Vilhjálmsson. 3. Inga
Jóna Þórðardóttir. 4. Júlíus Vífill
Ingvarsson. 5. Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir. 6. Ólafur F. Magnússon. 7.
Guðlaugur Þór Þórðarson. 8. Kjart-
an Magnússon. 9. Guðrún Péturs-
dóttir. 10. Eyþór Amalds. 11.
Kristján Guðmundsson. 12. Bryn-
dís Þórðardóttir. 13. Snorri Hjalta-
son. 14. Baltasar Kormákur. 15.
Helga Jóhannsdóttir. 16. Ágústa
Johnson. 17. Pétur Friðriksson. 18.
Svanhildur Hólm Valsdóttir.
Vigdís Finnbogadóttir formaður ráðs á vegum UNESCO
Andlát
„Brýn nauðsyn að ræða
siðferði vísinda og tækni“
Reuter
VIGDÍS Finnbogadóttir og Federico Mayor, aðal-
framkvæmdastjóri UNESCO, takast í hendur á
fundi í höfuðstöðvum stofnunarinnar í París í gær.
VIGDÍSI Finnbogadóttur, fyrrver-
andi forseta íslands, hefur verið falið
að taka við formennsku fyrirhugaðs
Alþjóðaráðs um siðferði í vísindum
og tækni, sem mun starfa á vegum
UNESCO, Menningar- og vísinda-
málastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Á fundi í höfuðstöðvum UNESCO í
París í gær varð Vigdís jafnframt við
þeirri beiðni Federicos Mayor, aðal-
framkvæmdastjóra UNESCO, að
vera honum til ráðuneytis við að
velja fólk til setu í ráðinu og sníða
því skipulagsramma.
Aðalráðstefna UNESCO fór þess
á leit við Mayor á síðasta fundi sín-
um í nóvember sl. að ráðinu yrði
komið á fót „til að stuðla að fjölþjóð-
legri og þverfaglegri umræðu um
ýmsa siðferðilega þætti, sem upp
kunna að koma í kjölfar nýjunga í
vísindum og tækni og hafa í för með
sér hugsanlega áhættu fyrir mann-
legt samfélag," eins og segir í frétta-
tilkynningu frá UNESCO.
Einbeitir sér að
þremur málaflokkum
Federico Mayor lagði til að al-
þjóðaráðið einbeittí sér í fyrstu að
þremur málaflokkum; þeim er varða
orku, nýtingu ferskvatnsforða og sið-
ferði upplýsingasamfélagsins. í ráðið
verða valdir einstaklingar frá öllum
heimshlutum, sem hafa getíð sér
gott orð fyrir vel unnin störf á sviði
vísinda, lögfræði, heimspeki, menn-
ingar og stjómmála.
„Mér þykir afar vænt um það
traust og þann trúnað sem mér er
sýndur með því að kalla mig þama
tfi verka,“ sagði Vigdís í samtali við
Morgunblaðið eftir fundinn með með
Mayor. „Þetta var langur og góður
fundur og víða komið við. Við rædd-
um m.a. aðdraganda þess að þetta
alþjóðaráð er stofnað. Hjá UNESCO
hefur starfað um árabil nefnd sem
fjallar um siðferðileg álitamál sem
koma upp í líffræði og læknavísind-
um. Sú nefnd hefur gefið það góða
raun að farið var að huga að því að
víkka sviðið. Margir þekktir visinda-
og fræðimenn hafa lagt til að stofnað
yrði alþjóðaráð um siðferðilegar hlið-
ar vísindanna.“
Fyrsta skrefið
verður að sögn
Vigdísar að finna
um það bil tuttugu
manns í ráðið og
hefja könnun á því
hvar eigi að bera
niður. „í ráðið
verða auðvitað
valdir menn sem
era vel kunnugir
vísindum og tækni
í heiminum og við
munum hafa að
leiðarljósi hvar
þeir hafa beitt sér
á siðgæðisgrund-
vellij" segir hún.
„Útnefningin er
mikill heiður fyrir
frú Vigdísi og jafnframt viðurkenn-
ing á störfum hennar í alþjóðaþágu
og staðfestir enn einu sinni hvílíkr-
ar virðingar hún nýtur,“ segir
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
sendiherra í París og fastafulltrúi
íslands hjá UNESCO. Hann segir
alþjóðaráðið mjög sambærilegt við
heimsnefndir sem stofnaðar hafa
verið til að leysa ákveðin verkefni,
eins og t.d. nefnd Willys Brandt um
norður-suður-vandamálið, nefnd
Gro Harlem Brundtland um um-
hverfismál og ekki síst nefnd sem
nú er að störfum undir forystu
Marios Soares, fyrrverandi forseta
Portúgals, sem fjallar um málefni
hafsins.
ÞORVALDUR
GUÐMUNDSSON
ÞORVALDUR Guð-
mundsson, forstjóri í
Síld og fiski, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur að kvöldi laugar-
dagsins 10. janúar sl.,
86 ára að aldri.
Þorvaldur fæddist
9. desember 1911 í
Holti undir Eyjafjöll-
um. Foreldrar hans
voru Guðmundur Þór-
arinn Sveinbjörnsson
sjómaður, síðar verk-
stjóri í Reykjavík, og
Katrín Jónasdóttir
húsmóðir. Þorvaldur
fluttist með móður sinni til
Reykjavíkur árið 1913.
Þorvaldur stundaði um skeið
nám í Verzlunarskóla Islands og
lærði niðursuðufræði og skyldar
greinar í Þýskalandi og Danmörku
1935-1936. Hann var við verslun-
arstörf og fleira hjá Sláturfélagi
Suðurlands á árunum 1929-1935.
Árið 1937 kom hann á fót Rækju-
verksmiðju ísafjarðar og var /or-
stjóri niðursuðuverksmiðju SIF í
Reykjavík 1937-1944. Þá var hann
ráðunautur við stofnun niðursuðu-
verksmiðju á Bíldudal og víðar á
þeim árum. Þorvaldur stofnaði
fyrirtækið Síld og fisk 1944 og rak
það allt til dauðadags auk þess
sem hann rak búskap á Minni-
Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd frá
1954 til dauðadags.
Þorvaldur var umsvifamikill at-
hafnamaður og auk
þess að reka Síld og
fisk og búið á Minni-
Vatnsleysu var hann
atkvæðamikill í hótel-
og veitingarekstri.
Hann var fyrsti hótel-
stjóri Hótel Sögu og
Hótel Loftleiða, reisti
Hótel Holt og rak það
frá 1965 til 1980. Lista-
verkasafn Þorvalds var ?
eitt hið stærsta í einka- |
eigu á íslandi. |
Þorvaldur sinnti
ýmsum stjórnar- og
nefndastörfum. Hann
sat í stjórn Verzlunarsparisjóðsins
frá 1956 og síðan í bankaráði
Verzlunarbanka íslands hf. frá
stofnun hans 1960 og var um skeið
formaður bankaráðsins. Þá var
hann formaður Verzlunarráðs ís-
lands 1962-1965, í stjórn Kaup-
mannasamtaka íslands, í stjórn
Sambands veitinga- og gistihúsa-
eigenda, í stjórn VSÍ og í ráðgjaf-
arnefnd Rannsóknastofnunar iðn-
aðarins.
Þorvaldur var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku Fálkaorðu,
riddarakrossi Dannebrogsorðunn-
ar og riddarakrossi finnsku Hvítu
rósarinnar.
Þorvaldur kvæntist Ingibjörgu \
Guðmundsdóttur lyfjafræðingi ár-
ið 1938 og lifir hún mann sinn. Þau |
eignuðust þrjú börn, Geirlaugu, |
Skúla og Katrínu.