Morgunblaðið - 13.01.1998, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRETTIR
Hættuástandi
Þú getur hætt þessu veggjakroti, góði, ég flengi bara sjóinn ef hann fer eitthvað
að ylgja sig...
□AIHATSU
Fáðu þér nýjan bíl
á nýju ári
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • 515 7010
Brlmborg-Þórshamar * Tryggvabraut 5 BMasala Keflavlkur * Hafnargötu 90
Akureyrl • slml 462 2700 Reyklanesbæ • slml 421 4444
Fjármögnun heimildarmynda
Skortir íslenskt
fjármagn
Þór Elís Pálsson
Fjármögnun
handritagerð
heimildarmynda er
yfirskrift á nám-
skeiði sem haldið verður
í byijun febrúar næstkom-
andi.
Þór Elís Pálsson kvik-
myndaframleiðandi hefur
séð um skipulagningu
námskeiðsins.
„Ég er fulltrúi Islands
i Filmkontakt Nord sem
eru heimildar- og stutt-
myndasamtök styrkt af
norrænu ráðherranefnd-
inni. Þau standa fyrir
heimildar- og stuttmynda-
hátíðinni Nordisk panor-
ama og einnig fyrir Nor-
disk forum sem er kynn-
ing á verkefnum og fjár-
öflun þeirra. Þar kynna
sjálfstæðir framleiðendur verk-
efni sín og dagskrárstjórar frá
sjónvarpsstöðvum og ýmsum
sjóðum koma og hlýða á þá.“
Þór Elís segir að hugmynd
að námskeiðahaldinu hafi komið
í kjölfarið á setu sinni í þessum
samtökum. „Ég veit af hæfi-
leikaríkum kvikmyndagerðar-
mönnum hér á landi sem hafa
einbeitt sér að innanlandsmark-
aði en eiga góða möguleika á
að komast að erlendis. Það er
erfitt að ijármagna heimildar-
myndir á íslandi því fram til
þessa hefur lítill skilningur ver-
ið á þörf þess að setja peninga
í þennan geira kvikmyndagerð-
ar.
Mér fannst því að sem kjörinn
fulltrúi íslands á norrænum
vettvangi yrði ég að miðla af
þeirri reynslu sem ég hef hlotið
og prófa að koma námskeiði á
laggirnar hér heima.“
- Var ekki fyrsta námskeiðið
haldið í fyrra?
„Jú, og þá fengum við mjög
færa kennara frá Evrópu tii að
ieiðbeina og buðum dagskrár-
stjórum sjónvarpsstöðva og
þeim sem stýra flæði fjármagns
til kvikmyndagerðar að koma
og sjá hvað við hefðum fram
að færa.
Við fengum styrki til nám-
skeiðahaldsins frá Kvikmynda-
sjóði, menntamálaráðuneytinu,
Norræna kvikmynda- og sjón-
varpssjóðnum svo og frá Sjón-
varpinu og Flugleiðum."
- Hvernig tókst námskeiðið?
„Þetta tókst vonum framar.
Þátttakendur voru rúmlega
þijátíu talsins og af því hlutu
tólf verkefni sérstaka athygli
og sex þeirra fengu fjármagn
til framleiðslu. Meðal þeirra er
heimildarmynd um Vatnajökul
sem Saga film er að
framleiða, önnur sem
heitir Maður og lundi
sem Páll Steingríms-
son er að framleiða
og síðan er ég að
framleiða heimildarmynd um
Vilhjálm Stefánsson."
- Hvaða kennarar leiðbeina
á þessu námskeiði sem haldið
verður í febrúar?
„í fyrra voru það þeir Þor-
steinn Jónsson, sem leiðbeindi
með handritagerð, John Mars-
hall, sem er vel kunnugur evr-
ópskum fjármögnunarmarkaði,
og Sibylle Kurz, sem kennir
„ait of pitching", eða sölutækni
á fundum þar sem verkefni eru
kynnt.
Sibylle mun kenna aftur á
þessu námskeiði sem við erum
að fara af stað með og Andre
Singer sem framleiðir heim-
►Þór Elís Pálsson er fæddur
í Reykjavík árið 1952. Eftir
að hann lauk námi í myndlist
og kvikmyndun hefur hann
starfað við kvikmyndagerð.
Þór Elís hefur unnið við gerð
auglýsinga og starfað hjá
Sjónvarpinu um árabil. Síð-
ustu tíu ár hefur Þór Elís að
mestu fengist við stutt-
myridagerð og gerð heimild-
armynda en einnig unnið við
skjáíist.
Eiginkona Þórs Elísar er
Jóhanna Bernharðsdóttir
hjúkrunarfræðingur og eiga
þau tvo syni.
ildarmyndir í Bretlandi kemur
til landsins af þessu tilefni. Þá
mun Thomas Heurlin sem er
danskur kvikmyndaframleið-
andi verða með fyrirlestur um
stöðu norrænna kvikmynda-
gerðarmanna á alþjóðavett-
vangi.“
Þór Elís bendir á að síðan
komi til íslands dagskrárstjórar
frá öllum norrænu sjónvarps-
stöðvunum, frá Discovery, frá
þýsku sjónvarpsstöðinni ZDF,
frá Kanal+ í Frakklandi og ef
til vill frá Kanada.
- Hvaða eriendu stöðvar
settu í fyrra fjármagn í verk-
efni?
„Það kom aðallega frá nor-
rænu stöðvunum en einnig frá
Discovery og Kanada.“
- Er verið að veita háar fjár-
hæðir til verkefna?
„Þetta eru verkefni sem kost-
ar á bilinu 6-30 milljónir að
framleiða og fengist hefur allt
að 75% fjármögnun frá útlönd-
um. Þetta skiptir okkur því gíf-
urlegu máli sem stöndum að
gerð heimildarmynda eða stutt-
mynda.“
Þór Elís bendir þó
á að til að fjármagn
fáist frá útlöndum
þurfi lágmark um
25% fjármagnsins _að
koma héðan frá ís-
landi. „Til að hægt sé að afla
fjár erlendis verðum við að hafa
stuðning að heiman. Allir ís-
lenskir kvikmyndagerðarmenn
eru spurðir hvort verkefni þeirra
hafi fengið góðan hljómgrunn í
heimalandinu. Og þá mega
þetta ekki vera neinir smápen-
ingar sem um er að ræða heldur
þurfa að minnsta kosti um 25%
kostnaðar við verkefni að koma
frá heimalandinu. Sjónvarpið,
Menningarsjóður og Kvik-
myndasjóður þurfa að end-
urskoða fjárveitingar sínar og
koma til móts við okkur til að
hægt sé að fá fjárstuðning frá
útlöndum.“
Allt að 75%
fjármagns frá
útlöndum