Morgunblaðið - 13.01.1998, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998__________________________
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
Sjálfstæðismenn
tvísaga
NOKKUR umræða
hefur orðið um grjót-
nám í Geldinganesi og
framtíðarhafnarað-
stöðu í Eiðsvík. Málið
var rætt á tveimur síð-
ustu fundum í borgar-
stjóm. Umræðan þar
sýndi að Sjálfstæðis-
menn vilja stefna Eiðs-
jvíkurhöfninni í tvísýnu
og þar með besta
svæðinu í Reykjavík til
uppbyggingar framtíð-
arhafnar og atvinnu-
þróunar.
Landnotkun
í Geldinganesi
Aðalskipulag Reykjavíkur 1996-
2016 gerir ráð fyrir að á megin-
þorra Geldinganess geti verið at-
vinnulóðir og/eða íbúðarlóðir.
Nánari útfærsla og ákvarðanir
verða teknar á næstu árum. Það
er ekki tímabært að taka endan-
lega ákvörðun um landnotkun á
■yr.orðan- og vestanverðu nesinu
fyrr en frekari framkvæmdaáform
liggja fyrir af hálfu ríkisvaidsins
um Sundabraut. Sjálfstæðismenn
hafa því ekki tilefni til að gera
ágreining um þennan þátt Aðal-
skipulagsins eins og þeir kusu að
gera við afgreiðslu þess nú í haust.
Ný höfn í Eiðsvík
Til þessa hefur enginn ágrein-
ingur verið um það í borgarstjórn
að framtíðarhöfn Reykvíkinga
>tverði í Eiðsvík. I aðalskipulagi
Reykjavíkur hefur um
langt skeið verið gert
ráð íyrir höfti þar og
athafnasvæði tengt
henni. Skipulag hafn-
arsvæðisins var sam-
þykkt ágreiningslaust í
hafnarstjórn og fékk
jákvæða umfjöllun í
öðrum nefndum. Grjót-
námið er liður í undir-
búningi hafnarsvæðis-
ins. I Aðalskipulaginu
íyrir 1990-2010 var
tekið fram að mikið
grjótnám yrði í Geld-
inganesi vegna hafnar-
aðstöðu í Eiðsvík. Við
fjárhagsáætlun 1998
sátu sjálfstæðismenn hjá við alla
liði nema fjárhagsáætlun hafnar-
innar sem þeir samþykktu. í henni
er áætlað fyrir grjótnáminu
þannig að i borgarstjórn 18. des-
ember gerðu þeir hvort tveggja í
senn: að greiða atkvæði gegn
deiliskipulagi grjótnámsins og
samþykkja fjárveitingu til verks-
ins. Það skýtur skökku við að sjálf-
stæðismenn skuli færa ágreining
sinn um landnotkun á Geldinga-
nesinu yfir á grjótnámið, sem er
hluti hafnarsvæðis í Eiðsvík. Hafn-
arsvæðið hafa þeir samþykkt og
eru þeir því orðnir mjög tvísaga í
málinu öllu.
Blómlegt atvinnulíf
- forsenda hagsældar
Reykjavíkurhöfn gegnir mikil-
vægu hlutverki í atvinnulífi borg-
Sjálfstæðismenn gerðu
hvort tveggja í senn,
--------7-------------
segir Arni Þór Sig-
urðsson, greiddu at-
kvæði gegn deiliskipu-
lagi grjótnámsins sjálfs
og samþykktu fjárveit-
ingu til verksins.
arbúa og landsins alls. Höfnin er
lífæð sem við Reykvíkingar hvorki
getum né viljum án vera. I nýrri
stefnumótun hafnarinnar er stefnt
að því að Reykjavík verði alþjóðleg
miðstöð viðskipta og þjónustu í
Norður-Atlantshafi. Til þess að
svo megi verða er brýnt að tryggja
höfninni framtíðarathafnarými og
um það hafa allir borgarfulltrúar
verið sammála. Með sameiningu
Reykjavíkur og Kjalarness skap-
ast nýir möguleikar, m.a. með því
að skipuleggja íbúðarbyggð með-
fram ströndinni. Blómlegt atvinnu-
líf er forsenda hagsældar og höf-
uðborgin þarf í því efni að leggja
sitt af mörkum. Hafnarsvæðið í
Eiðsvík er liður í þeirri uppbygg-
ingu sem ekki má tefla í tvísýnu
eins og Sjálfstæðismenn virðast
ætla að gera.
Höfundur er borgarfulltrúi R-list-
a/is og formaður hafnarstjdrnar.
Árni Þór
Sigurðsson
Borgin fyrir borg*arbúa
REYKJAVIKUR-
BORG er þjónustufyr-
irtæki borgarbúa. Hún
á að veita sem besta
þjónustu og stuðla að
því að hámarka velferð
íbúanna. Þetta á að
vera markmið borgar-
fulltrúa. Fulltrúaráð
Alþýðuflokksfélaganna
í Reykjavík valdi mig
'*'til að taka þátt í próf-
kjöri Reykjavíkurlist-
ans fyrir komandi
kosningar.
Atvinna skapar
þjónustu
Til að halda uppi vel-
ferð verða tekjur að
Stefán Jóhann
Stefánsson
skapast í
borginni með atvinnu sem flestra á
vinnualdri. Fyrirtækjum þarf að
veita eins góða aðstöðu og unnt er
svo að þau geti skilað viðunandi af-
komu. Þetta hefur tekist bærilega
í Reykjavík og at-
vinnuleysi er nú með
því lægsta frá 1992.
Uppeldis- og vel-
ferðarmál
Borgarstjórn á að
stuðla að góðum
grunnskóla, þar sem
metnaður er lagður í
að auka fæmi nem-
enda. Jafnframt á
skólinn að vera
ánægjulegur sam-
verustaður fyrir nem-
endur og kennara, og
fyrir foreldra þegar
svo ber undir. Það
þarf einnig að efla
starfsemi leikskóla og hlúa þannig
að ungmennum að þau finni verk-
efni við sitt hæfi. I því skyni má
t.d. auka samstarf skóla við
íþróttafélög, tónlistarskóla og aðra
aðila, svo að sem flestir geti notið
uppbyggjandi frístundastarfs og
leiðist síður á villigötur.
Að mörgu er að hyggja. Sam-
göngur og skipulagsmál þurfa að
vera í lagi og í sem bestri sátt við
íbúa og lífríki. Og borgin þarf að
Glæsilegur nærfatnaöur
BLIKKAS hf
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
KÓPAVOGI
Laugavegi 4, sími 551 4473
bæta lífskjör þeirra sem vegna
sjúkleika eða annars hafa ekki tök
á að afla sér tekna til jafns á við þá
sem eru fullhraustir og á vinnu-
aldri. Þjónusta við borgarbúa hef-
ur á margan hátt verið bætt og
aukin á tímabili Reykjavíkurlist-
ans um leið og festa hefur verið í
fjármálastjóm eins og afkomutöl-
ur sýna.
Eftirlíkingar
Fyrir síðustu kosningar reyndi
íhaldið að líkja eftir stefnu Reykja
Skólinn á að vera
ánægjulegur samveru-
staður fyrir nemendur
og kennara, segir Stef-
án Jóhann Stefánsson,
og veita þarf börnum
og unglingum tóm-
stundastarf við hæfi.
víkurlistans í þeirri von að halda
völdum. Það dugði ekki þá. En nú
hefur íhaldið leitað að frambjóð-
anda sem nálgast getur ímynd
borgarstjóra. Hvomgt breytir því
að gamli valdakjarninn er fyrst og
fremst handbendi ákveðinna
þröngra sérhagsmuna.
Reykjavíkurlistinn hefur sýnt
það að borgin er fyrir borgarbúa
alla. Klíkuskap við úthlutanir hef-
ur verið útrýmt, en í staðinn settar
skýrar reglur. Vegna þessa og
margs annars er brýnt að borgar-
búar fylki sér um Reykjavíkurlist-
ann í komandi prófkjöri og í kosn-
ingum til borgarstjómar í vor.
Höfundur er frambjóðandi (próf-
kjöri Reykjavfkurlistans fyrir kom-
andi borgarstjómarkosningar.
Verslimarmið-
stöðin Smáralind
í Kópavogi
AÐ UNDANFORNU hefur mik-
ið verið rætt um áform ýmissa aðila
um uppbyggingu verslunarhúsnæð-
is á höfuðborgarsvæðinu. I sjón-
varpsfréttum nýverið var rætt um
að samanlagðar áætlan-
ir fjárfesta gengju út á
það að tvöfalda gólfflat-
armál verslunarhús-
næðis á svæðinu á
nokkrum árum. I því
reikningsdæmi gleymd-
ist reyndar að telja með
allar verslanir í mið-
borg Reykjavíkur og á
svæðinu í kringum Ar-
múla og Skeifuna,
hvort sem það var með
vilja gert eða ekki.
Mest hefur verið
rætt um væntanlega
verslunarmiðstöð, sem
hlotið hefur nafnið
Smáralind og á að rísa í
Kópavogsdal við
Reykjanesbraut. Gert er ráð fyrir
að gólfflatarmálið verði nálægt
45.000 m2 eða um 50% meira en í
Kringlunni. Staðsetning Smára-
lindar verður eins og best verður á
kosið, bæði nálægt miðju höfuð-
borgarsvæðisins og eins vel. stað-
sett gagnvart stofnbrautakerfinu.
Það er ótvírætt til
framdráttar fyrir
Kópavogsbæ, segir
Halla Halldórsdóttir,
að fá svo stóran vinnu-
stað sem verslunar-
kjarninn Smáralind
mun verða.
Reykjanesbraut er ein þýðingar:
mesta stofnbrautin á svæðinu. I
næsta nágrenni við Smáralind er
verslunarkjarninn Smáratorg, en
bygging hans er langt komin og
ráðgert að verslanir þar opni í mars
á þessu ári. Samanlagt gólfflatar-
mál verslana í Smáratorgi er um
14.000 m2.
Einkum eru það ráðamenn í
Reykjavík sem sjá ofsjónum yfir
þessari uppbyggingu verslunarmið-
stöðva í Kópavogi. Ég gæti skilið
þá umræðu, ef þessi stóra verslun-
armiðstöð ætti að lenda á útjaðri
höfuðborgarsvæðisins, þar sem
ekki væri von á íbúafjölgun í næsta
nágrenni, en það er öðru nær. Eins
og áður er getið, verður Smáralind
staðsett nálægt miðju höfuðborgar-
svæðisins. Jafnframt verður versl-
unarmiðstöðin vel staðsett gagn-
vart nýju hverfunum í Kópavogi,
þ.e. Smárahverfi og Lindahverfi, en
íbúar í þeim hverfum verða nálægt
7 þúsund. Þarna er einn meginvaxt-
arbroddur höfuðborgarsvæðisins,
en íbúum í Kópavogi fjölgaði um
1.250 manns á síðasta ári. Ef á ann-
að borð er þörf fyrir nýja verslun-
armiðstöð af þessari stærðargráðu,
þá er ekki hægt að hugsa sér betri
staðsetningu. Eftir að hafa hlustað
á niðurstöður athugana sem vænt-
anlegir fjárfestar Smáralindar hafa
staðið fyrir, þá er ég persónulega
sannfærð um að þörfin sé fyrir
hendi. Allt bendir til þess að á
næstu árum verði mikil aukning í
veltu smásöluverslunar á höfuð-
borgarsvæðinu. Spáð er töluverðri
aukningu á kaupmætti einstakling-
anna auk þess sem reiknað er með
áframhaldandi fólksflutningum frá
landsbyggðinni til höfuðborgar-
svæðisins.
Ibúafjöldinn á svæðinu er í dag
um 165.000, en gert er ráð fyrir að
hann verði um 195.000 eftir 10 ár,
þ.e. 7 árum eftir að Smáralind verð-
ur orðin að veruleika. Eflaust eru
þessir fólksflutningar þjóðhagslega
óhagkvæmir, en þetta er einfald-
lega það sem fólk vill og að mínum
dómi vonlítið að snúa
þessari þróun við.
Ekki má gleyma því í
þessari umræðu að það
eru uppi áform um
stækkun verslunarmið-
stöðva á fleiri stöðum á
höfuðborgarsvæðinu.
Meðal annars er fyrir-
hugað að stækka
Kringluna umtalsvert.
Má ekki alveg eins
spyrja, hvort þær fyrir-
ætlanir séu þjóðhags-
lega hagkvæmar? Ég
man ekki betur en
ákvörðun um stækkun
Kringlunnar hafi verið
tekin eftir að fréttist af
áformum undirbún-
ingsfélags Smáralindar.
Þótt við stjórnmálamennimir
teljum okkur hafa vit á ýmsu, þá
getum við ekki endalaust haft vit
fyrir fólki. Ef hópur fjárfesta vill
leggja fé sitt í byggingu stórrar
verslunarmiðstöðvar á stað þar sem
á annað borð er gert ráð fyrir versl-
un í skipulagi, er hæpið fyrir sveit-
arstjórn í viðkomandi sveitarfélagi
að reyna að breyta ákvörðun fjár-
festa og reyna að fá þá til að
minnka verslunarmiðstöðina, nema
til þess liggi vitrænar skipulagsleg-
ar forsendur. I sumum tilvikum
þarf t.d. að byggja upp fyrir vissa
stærð til að tryggja aðdráttarafl
verslunarmiðstöðvarinnar. Það er
engum betur treystandi en verslun-
areigendum til að dæma um það,
hver sé hagkvæmasta stærðin. A
hinn bóginn þarf viðkomandi sveit-
arfélag að gera upp við sig hvar sé
best að staðsetja verslunarmið-
stöðvar. Með sama hætti þurfa
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu að semja um það sín á milli,
hvar stærstu verslunarkjörnunum
er best. fyrir komið. Best er að taka
á slíku í svokölluðu svæðisskipu-
lagi, þar sem lagðar eru meginlín-
umar í skipulagi höfuðborgarsvæð-
isins. Til er svæðisskipulag fyrir
höfuðborgarsvæðið frá árinu 1985
og er í því skipulagi gert ráð fyrir
verslunarhverfi á þeim stað sem
Smáralind á að rísa. Borgaryfirvöld
hafa ekki gert athugasemd við
þetta skipulag. Það er því skrýtið
að þau séu að fetta fingur út í vænt-
anlega framkvæmd skipulagsins.
Hvorki bæjaryfirvöld í Kópavogi né
kaupmenn í miðborg Reykjavíkur
voru spurð um leyfi þegar ákvarð-
anir um byggingu Kringlunnar
voru teknar á sínum tíma.
Það er ótvírætt til framdráttar
fyrir Kópavogsbæ að fá svo stóran
vinnustað sem verslunarkjarninn
Smáralind mun verða. Gert er ráð
fyrir að þar muni vinna um 1000 -
1200 manns. Engum blöðum er um
það að fletta að tilkoma Smáralind-
ar flýtir fyrir uppbyggingu enn
frekari verslunar en þó einkum
þjónustufyrirtækja í næsta ná-
grenni. Um leið og áform um
Smáralind lágu fyrir jókst verulega
eftirspurn eftir lóðum undir þjón-
ustustarfsemi í næsta nágrenni. Oll-
um má vera ljóst, að hin hraða upp-
bygging nýrra íbúðarhverfa í Kópa-
vogi hefúr flýtt fyrir og tryggt
ákvarðanir um uppbyggingu
Smáralindar. Ég er stolt af því að
hafa tekið þátt í þeim ákvörðunum
bæjaryfirvalda sem leiddu til þess
að þessi mikla verslunarmiðstöð er
að verða að veruieika um aldamótin.
Höfundur er forseti bæjarstjómar
Kópavogs.
Halla
Halldórsdóttir