Morgunblaðið - 13.01.1998, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998 53
i
i
i
í
i
i
i
i
:
i
i
i
i
i
i
i
4
i
i
i
i
i
i
j
i
i
J
i
1
FRÉTTIR
Málþing um skattborg
arann og skattkerfíð
„GJALDIÐ keisaranum það sem
keisarans er...“ Skattborgarinn
og skattkerfíð er heiti á opnu mál-
þingi sem Félag löggiltra endur-
skoðenda og Lögmannafélag Is-
lands gangast fyrir föstudaginn 16.
janúar nk. á Hótel Loftleiðum,
Þingsölum 1-4, kl. 13.20-16.30.
Að undanfornu hafa skattamál
verið ofarlega á baugi í fjölmiðlum.
Tilefnið er m.a. nýlegir dómar
Hæstaréttar íslands sem hafa vak-
ið athygli meðal almennings, lög-
manna og löggiltra endurskoðenda.
Þá vakti einnig verulega athygli
hugmynd Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra um stofnun sérstaks
embættis umboðsmanns skatt-
borgaranna, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Markmiðið með málþinginu er
að vekja umræðu í þjóðfélaginu, í
skattkerfinu og hjá löggjafanum
um stöðu skattborgaranna gagn-
vart skattframkvæmdavaldinu, um
setningu laga og reglna á sviði
skattaréttar, um skattálagningu,
skattinnheimtu og viðurlög og
hvemig tekið er á ágreiningsmál-
um í stjómsýslunni og fyrir dóm-
stólum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
ávarpar málþingið við setningu
þess. Framsögumenn verða Krist-
inn Bjarnason, héraðsdómslögmað-
ur, en hann fjallar um lagasetningu
á sviði skattamála þ.á m. hvort lög-
gjafarvaldið dragi taum fram-
kvæmdavaldsins á sviði skattarétt-
ar og refsiheimildir. Kristján
Gunnar Valdimarsson, skrifstofu-
stjóri hjá Skattstjóranum í Reykja-
vík, fjallar um skattaframkvæmd
frá sjónarhóli framkvæmdavalds-
ins, Olafur Nilsson, löggiltur end-
urskoðandi, ræðir um framkvæmd
og eftirlit samkvæmt skattalögum
m.a. um það hvort jafnræði ríki
með gjaldendum og gjaldkrefjend-
um og Árni Tómasson, löggiltur
endurskoðandi, fjallar um skipan
og starfssvið yfirskattanefndar.
Loks mun Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttarlögmaður fjalla um
dómsúrlausnir í skattamálum m.a.
út frá því sjónarmiði hvort skatt-
borgarar hafi verið látnir njóta
fullnægjandi verndar eins og þeir
eiga rétt til samkvæmt stjórnar-
skránni.
Að lokinni framsögu verður pall-
borðsumræða. Auk framsöguerinda
mun Sveinn Jónsson, löggiltur end-
urskoðandi taka þátt í henni. Ráð-
stefnustjóri verður Óli Bjöm Kára-
son, ritstjóri Viðskiptablaðsins.
Málþingið er opið öllum þeim
sem hafa áhuga á skattamálum hér
á landi. Þátttökugjald er 3.600 kr.
Þátttöku ber að skrá fyrirfram á
skrifstofu Lögmannafélags ís-
lands.
Fyrirlestur um
sildveiðar Svía
við Island
HREFNA M. Karlsdóttir sagníræð-
ingui' heldur fyrirlestur fimmtudag-
inn 15. janúar í boði Rannsóknaset-
urs í sjávarútvegssögu og Sjóminja-
safns Islands og nefnist hann: Síld-
veiðar Svía við ísland 1945-1962.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
Sjóminjasafni íslands, Vesturgötu 8
í Hafnarfirði, og hefst kl. 20.30. Fyr-
irlesturinn, sem styrktur er af Spari-
sjóði Hafnarfjarðar, er öllum opinn
og hefst eins og áður segir kl. 20.30.
Ron Phillips á Islandi
DR. RON Phillips, for-
stöðumaður Central
Baptist Church, í
Bandaríkjunum verður
staddur hér á landi dag-
ana 13.-15. janúar. Hann
er mörgum kunnur úr
sj ónvarpsþáttunum
„Boðskapur Central
Baptist kirkjunnar“ sem Ron phllI,Ps
sýndir eru á sjónvarpsstöðinni
Omega. I kvöld verður hann í
viðtali í beinni útsendingu í
Kvöldljósi á Omega kl. 21.30.
Ron Phillips hefur
áhuga á að hitta sem
flesta leiðtoga kristilegs
starfs á íslandi meðan
hann er hér á landi þar
sem hann hefur áhuga á
að halda hér stórsam-
komu síðar á árinu.
Á morgun, miðvikudag-
inn 14. janúar, verður
samkoma með honum í Hvíta-
sunnukirkjunni Fíladelfíu, Há-
túni 2, kl. 19.30 og eru allir vel-
komnir á þá samkomu.
Úr dagbók lögreglunnar
Fámennt í miðborg
á rólegri helgi
9. til 12. janúar
HELGIN var fremur róleg hjá lög-
reglu. Fámennt var í miðbænum á
föstudag en heldur fleira á laugar-
daginn.
Um helgina voru 14 ökumenn
stöðvaðir vegna gruns um ölvun við
akstur. Þá voru hátt á níunda tug
ökumanna stöðvaðir vegna hraðakst-
urs og urðu sumir þehTa að sjá á eft-
ir skírteinum sínum. Lögreglu var
tilkynnt um árekstur á Stekkjar-
bakka á föstudagskvöld og hafði
annar ökumanna ekki sinnt laga-
skyldu sinni og stöðvað. Lögreglu
tókst með aðstoð vegfaranda að
stöðva bifreiðina í Skeifunni eftir
nokkra eftirfor. Ökumaðurinn var
handtekinn meðal annars vegna
gruns um akstur undir áhrifum
áfengis.
Umferðarslys
Bifreið var ekið á gangandi veg-
faranda í Lönguhlíð við Mávahlíð á
föstudag um klukkan 20. Sá gang-
andi var fluttur á slysadeild til að-
hlynningai- en hann er talinn fót-
brotinn og með áverka á öxl og
höfði. Þá var ungabarn sem var í
bifreiðinni flutt á slysadeild vegna
glerbrota sem fóru yfir það.
Þá varð árekstur á Njálsgötu er
bifreið var ekið utan í aðra kyrr-
stæða. Við skoðun kom í ljós að öku-
maðurinn, sem hafði valdið tjóninu,
var aðeins 14 ára en auk þess að hafa
ekki ökuréttindi er hann grunaður
um akstur undir áhrifum áfengis.
Ekið var á stúlku á reiðhjóli í
Pósthússtræti um miðjan laugar-
dag. Hjólreiðamaðurinn var fluttur
á slysadeild með sjúkrabifreið en
meiðsli voru ekki talin alvarleg.
Innbrot
Brotist var inní skóla í Grafarvogi
og þaðan stolið tækjabúnaði. Þá var
farið inní lagerhúsnæði hjá verslun-
arfyrirtæki í Skeifunni. Einhverju
var stolið af sælgæti, snyrtivörum
og fatnaði. Þá var brotin rúða í
hljómtækjaverslun í Skeifunni á
laugardagsmorgun. Úr útstillingar-
glugga var stolið hljómtæki og
myndbandstæki.
Líkamsmeiðingar
Karlmaður var fluttur á slysa-
deild með gat á höfði og vankaður
eftir að dyravörður veitingahúss í
miðbænum hafði hent honum út.
-----------------
LEIÐRÉTT
Formaður
N eytendasamtakanna
í VIÐTALI við Jón Magnússon lög-
mann í síðustu viku kom fram að
hann hefði verið formaður Neyt-
endasamtakanna frá árunum
1978-1981. Hið rétta er að þá var
Reynir Armannsson formaður sam-
takanna en Jón sat í stjórn þeirra.
Jón var formaður Neytendasamtak-
anna frá 1982-1984.
___'TWf'l? rw-
tbyb ’-v tVriVt 1
\\ #_ -lo
■' iMS'
v ____ .•
^ dMl*6
Glcðiborgm þar sem þú uppliíir
skoska rómantík, ósvikna
kráarstemningu og eftirminnilega
skemmtun.
Heimsborgin þar sem bíða þín
veitingastaðir, notalegir pöbbar,
leikhús, skemmtistaðir, söfti og
ysmiklar verslunargötur.
Verðfrá
Verðfrá
23.210kL
28.610kr.
á iiiann í tvíbýli í 2 nætur
með morgunverði
á Charing Cross Tower.
á mann í tvíbýli í 3 nætur
með morgunverði
á Blakemore Hotel.
Flogið er út á lhnnitudagskvöldi
og heim aftur á suimudagskvöldi.
knnmni
Þessi tilboð eru í gildi frá 15. janúar til 21. mars
Greiða mánlla upphæðina með raðgreiðslu.
Raðgreiðslur EIIRO og VISA til 24 mán.
Hver greiðsla þó að lágmarki 2.500 kr.
Hafðu samband við söluskrilstoftir okkar, ferðaskrifstoftimar eða slmsöludeild Flugleiða í síma 50 SO100
(svarað mánud. - fösmd. kl. 8 -19 og á laugard. kl. 8 -16).
'Innifalið: flug, gisting með moiguvcrði og flugvallarskattar.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi