Morgunblaðið - 28.05.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.05.1998, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Samkomlag um meirihlutasamstarf Akureyrarlista og Sjálfstæðisflokks Ársfundur FSA Kristján Þór bæjarstjóri SAMKOMULAG hefur tekist milli Akureyi-ar- listans og Sjálfstæðisflokksins um meirihluta- samstarf í bæjarstjórn Akureyrar á þessu kjör- tímabili. Kristján Þór Júlíusson verður bæjar- stjóri á Akureyri, forseti bæjarstjómar verður af lista Sjálfstæðisflokksins en ekki hefur verið rætt innan flokksins hver muni skipa það, formaður bæjamáðs verður af Akureyrarlista og líklegast að Ásgeir Magnússon oddviti listans muni gegna því embætti. Byggist á trausti og eljusemi Málefnasamningur flokkanna verður lagður fyrir fundi bæjarmálafélags Akureyrarlistans og fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins næstkomandi þriðjudagskvöld. Ný bæjarstjóm tekur við á næsta fundi bæjarstjórnar sem verður 9. júní næstkomandi. Kristján Þór Júlíusson sagði að framboðin hefðu setið síðustu daga yfir gerð málefnasamn- ings og allt hefði gengið upp. Grannurinn að vinnu næstu fjögurra ára væri að finna í ítarleg- um stefnuskrám flokkanna. „Okkar starf næstu fjögur ár byggist á trausti og eljusemi, menn verða að vinna verkin sín. Það bíður mikil vinna, verkefni á mörgum sviðum, en við höfum á að skipa baráttuglöðu fólki sem er tilbúið að takast á við þau,“ sagði Kristján Þór. Ásgeir Magnússon sagði að niðurstaða að- standenda Akurewarlistans strax eftir kosningar hefði verið sú að eðlilegast væri að kanna þennan flöt fyrst í ljósi niðurstaðna kosninganna. „Stefnu- skrár flokkanna vora um margt líkar, við lögðum áherslu á svipuð atriði, m.a. að fá hjólin til að snú- ast hraðar í bænum, fara hraðar í að byggja upp t.d. á sviði skólamála og ýmsu því sem snýr að at- vinnulífinu og eins vorum við með álíka áherslur varðandi stjómsýslu bæjarins. Nú er kosninga- slagurinn frá og verkefnin framundan er að standa við það sem við lofuðum kjósendum í kosn- ingabaráttunni, að vinna þessu bæjarfélagi gagn og við það verður staðið," sagði Ásgeir. Karlakór Akureyrar- Geysir í Skemmunni KARLAKÓR Akm-eyrar-Geysir heldur vortónleika, Vorklið ‘98 í íþróttaskemmunni á Akureyri föstudagskvöldið 29. maí kl. 20.30 og laugardaginn 30. mai kl. 17. A tónleikunum verður flutt fjölbreytileg tónlist með og án undirleiks. Um er að ræða hefð- bundna karlakóratónlist, tónlist úr söngleikjum, negi-atónlist, norræna tónlist, óperatónlist og Vínartónlist. Richard Simm leik- ur einleik á píanó. Tvöfaldur kvartett skipaður kórfélögum syngur, en einsöngv- ari með kórnum verður Steinþór Þráinsson barítonsöngvari, en undirleik annast Richard Simm. Stjómandi kórsins er Roar Kvam. Upplýsingatækni í rekstri — Þjóðbraut framtíðarinnar Gildi upplýsingatækni í byggðaþróun á nýrri öld Staðsetning: Hótel Húsavílc. Tími: 29.05.1998 (föstudagur). Dagskrá: 12.45 Skráning. 13.00 Setning — Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík. 13.10 Ávarp — Halldór Blöndal, samgönguráðherra. 13.20 Stefnumótun ríkisstjómarinnar — Guðbjörg Sigurðardóttir, forsætisráðuneytinu. 13.40 ATM-rannsóknamet — Sæmundur Þorsteinsson, Landssíma Islands hf. 14.00 Upplýsingatækni og landsbyggðin — Ingi Rúnar Eðvarðsson, Háskólanum á Akureyri. 14.20 Fjarkennsla við VMA: Framtíðarsýn — Haukur Ágústsson, Verkmenntaskólanum á Akureyri. 14.40 Upplýsingatækni við Háskólann á Akureyri — Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri. 15.00 Kaffi. 15.20 Breiðbandið og ný þjónusta í fjarskiptum — Þór Jes Þórisson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Landssíma Islands hf. 15.40 Framtíðarsýn hugbúnaðarfyrirtækja úti á landi — Gunnar Ingimundarson, Hug. 16.00 Tölvutækni til fjarmælinga — Hallur Birgisson, Verkfræðistofunni Vista. 16.20 Pallborðsumræður: „Framkvœmd til framtíðar" — Bjami Kristinsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, stýrir umræðum. 17.00 Ráðstefnuslit. Ráðstefnan er öllum opin. I hjólatúr á stuttbuxum NEMENDUR í 7. bekk Brekku- skóla, alls rúmleg-a 40 börn, brugðu sér í hjólatúr inn á Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit í góða veðrinu. Með þeim í för voru nokkrir fullorðnir hjóla- garpar. Aður en hópurinn Iagði af stað fór lögregluþjónn yfir helstu umferðarreglur sem börnunum bar að virða á leið sinni inn fjörðinn. Börnin voru léttklædd, niörg þeirra t' stuttbuxum og bol en öll voru þau með reiðhjólahjálma eins og Iög gera ráð fyrir. Sigurður VE landaði sfld í Krossanesi Sfldin á leið í íslensku lögsöguna NÓTASKIPIÐ Sigurður VE land- aði um 1.200 tonnum af síld í Krossanesi í gær og hafa því alls borist um 4.700 tonn af sfld til verk- smiðjunnar á þessari vertíð. Jóhann Pétur Andersen, fram- kvæmdastjóri Krossaness, sagðist hafa heyrt af því að heldur dauft væri yfir veiðunum. Hann sagði að síldin veiddist nú í færeysku lögsög- unni suður af Síldarsmugunni en hún væri alltaf að færast nær land- inu og þá aðeins norðar. „Mér heyr- ist á mönnum að ef síldin heldur svipuðu striki verði hún komin í ís- lensku lögsöguna um helgina. Sfldin er að fitna og maður gerir sér vonir um að hún verði um leið viðráðan- legri." Forsvarsmenn Krossanesverk- smiðjunnar hafa óskað eftir því við Hollustuvemd að fá bráðabirgða- leyfi til að keyra verksmiðjuna á auknum afköstum. Áður hafði Holl- ustuvernd synjað umsókn um stækkun fiskimjölsverksmiðjunnar á þeirri forsendu að veruleg lyktai-- vandamál væra tengd verksmiðj- unni og stækkun hennar myndi ekld leysa þann vanda. Ymsar breytingar og endurbætur hafa verið gerðar í mengunarmálum verksmiðjunnar og því hafa for- svarsmenn hennar leitað eftir því að fá að keyra verksmiðjuna á auknum afköstum. Bræðslugetan er nú um 500-600 tonn á sólarhring en mun aukast um 200-250 tonn til viðbótar fáist tilskilin leyfi. Jóhann Pétur vonast eftir svari frá Hollustuvernd fyrir miðjan næsta mánuð. í göngugötunni á Akureyri Verslunarhúsnæði, ca. 50 m2 ásamt geymslu og einkabílastæði, til sölu á besta stað í göngugötunni á Akureyri. Nánari upplýsingar gefur fasteignasalan Holt. □□HOLT _ILJ FAST EIGNASALA Sími 461 3095. Hlutverk til fram- tíðar ÁRSFUNDUR Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri verð- ur haldinn í dag, fimmtudaginn 28. maí, í nýbyggingu sjúki-a- hússins á þriðju hæð og hefst hann kl. 14. Á fundinum verða fluttar skýrslur um starfsemi sjúkra- hússins á liðnu ári og fjallað um stöðu þess nú. Viðurkenn- ingar verða veittar þeim starfs- mönnum sem starfað hafa í 25 ár á sjúkrahúsinu. Sérstök umfjöllun verður um „hlutverk og þróun Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri í næstu framtíð". Stutt erindi þar um flytja Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðisráðherra, Jak- ob Björnsson bæjarstjóri, Júlí- us Gestsson, varaformaður læknaráðs FSA, Ólafur H. Oddsson héraðslæknir og Baldur Dýrfjörð, formaður stjórnar FSA. Tónleikar í Akureyrar- kirkju ELMA Atladóttir sópransöng- kona og Eyrún Jónasdóttir mezzó-sópransöngkona ásamt Ólafi Vigni Albertssyni píanó- leikara halda tónleika í Safnað- arheimili Akureyrarkirkju laugardaginn 30. maí kl. 16. Á efnisskránni era dúettar, íslensk og erlend sönglög og ariur eftir H. Purcell, G.B. Pergolesi, Pál Isólfsson, Jór- unni Viðar, J. Brahms, F. Liszt, P.I. Tsjajkovskí, A. Dvorák og G. Rossini. Elma lauk 8. stigi í söng frá Tónlistarskólanum á Akureyri vorið 1995 og hóf þá nám við framhaldsdeild Söngskólans í Reykjavík ogg tók burtfarar- próf - Advanced Certificate vorið 1996. Eyrún lauk 8. stigi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 1994, og tók burtfarar- próf - Advanced Certificate frá sama skóla vorið 1996. Elma og Eyrún luku báðar söngkennaraprófi frá Söng- skólanum í Reykjavík, nú í vor. Þær hafa báðar tekið þátt í uppfærslum Nemendaóperu Söngskólans og komið fram sem einsöngvarar við ýmis tækifæri. Miðaverð á tónleikana er 1.000 krónur. Vordjass KVARTETT Árna Scheving ásamt söngkonunni Þóra Grétu Þórisdóttur leikur í Deiglunni á fimmtudagskvöld, 28. maí kl. 21. í kvartettinum era Carl Möller á píanó, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa, Ein- ar Valur Scheving á trommur auk Áraa sem leikur á ví- brafón. Efnisskrá tónleikanna verður með vorbirtu og sann- kallaður upptaktur heitrar stemmningar á listasumri. Okeypis er inn fyrir félaga í Jazzklúbbi Akureyrar en fyrir aðra kostar 700 krónur. Aksjón Fimmtudugur 28. Maí 21 .OOÞ-Tall Guy Leikarinn Dexter á ekki frama vísan meðan hann er mótleikaiá Rons sem er nýskupúki og leiðindagaur. Iðil- fögur hjúkka flækist í málin og úr verða di'epfyndnar flækjur og djarfar uppákomur. Aðalhlut- verk: Jeff Goldblum, Rowan Atk- inson og Emma Thompson. 1990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.