Morgunblaðið - 28.05.1998, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 25
Indónesía
Þrýst á
um lausn
Gusmaos
Jakarta. Canberra. Medan. Reuters.
AUKINN þrýstingur er nú á stjórn-
völd í Indónesíu að láta lausan úr
fangelsi Xanana Gusmao, leiðtoga
skæruliðasveita Austur-Tímor, sem
setið hefur í fangelsi síðan 1992.
Austur-Tímor, sem var innlimað í
Indónesíu árið 1975, var áður
portúgölsk nýlenda og sagði Antonio
Guterres, forsætisráðherra Portú-
gals, á þriðjudagskvöld að stjómvöld
þar í landi legðu nú aukna áherslu á
að Gusmao og öðmm pólitískum
fóngum yrði þegar sleppt úr haldi.
Portúgalar hyggjast reyna að fá
erlenda stjórnarleiðtoga til liðs við
sig í baráttunni íyrir lausn Gusmaos
og í gær tók Chris Smith, sem situr í
fulltrúadeild bandai-iska þingsins,
undir kröfu þeirra eftir að hafa hitt
Gusmao í Cipinang-fangelsinu í
Jakarta.
Smith hafði áður hitt Jusuf
Habibie, nýjan forseta Indónesíu, og
utanríkisráðherrann Ali Alatas og
sagðist telja að indónesísk stjórnvöld
væra í alvöra að hugleiða að sleppa
Gusmao úr haldi enda þótt þau hafí
hingað til viljað flokka Gusmao sem
ótíndan glæpamann, sem beri ábyrgð
á dauða fjölda manna, en ekki sem
pólitískan fanga.
Lausn pólitískra fanga og stjórnar-
farslegar úrbætur er meðal þess sem
---------------
Nýja-Sjáland
Kosninga-
kerfínu
breytt?
Wellington. The Daily Telegraph.
JENNY Shipley, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, hefur gefíð í skyn að
hún sé fylgjandi því að ríkisstjórn
Þjóðarflokksins heiti kjósendum
þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort
leggja skuli niður hlutfallsþingkosn-
ingar, og taka aftur upp einmenn-
ingskjördæmi.
Shipley viðurkennir að tillaga
hennar um að þingsætum verði
fækkað úr 120 í 99 sé ekki samrým-
anleg við núverandi hlutfallskerfi.
Fjöldinn var aukinn í því skyni að
hægt væri að taka upp hlutfallskosn-
ingu.
Kerfinu, sem nú er notað, var
komið á eftir að meirihluti kjósenda
lýsti sig fylgjandi því í atkvæða-
greiðslu 1993. Það er að þýskri fyrir-
mynd og geta kjósendur í raun greitt
tvö atkvæði, bæði einstökum þing-
manni og einstökum flokki. Fer
fjöldi þingmanna hvers flokks eftir
því hversu hátt hlutfall flokkaat-
kvæða hann hlýtur, en þó verður
hann að fá að minnsta kosti 5% til að
hljóta þingsæti, eða fá mann kjörinn
sem einstakan þingmann.
Aður en þetta kerfi var tekið upp
voru einmenningskjördæmi á Nýja-
Sjálandi, eins og enn tíðkast í Bret-
landi. I þingkosningunum 1996, þeim
fyrstu efth' að nýja kosningaskipu-
lagið vai- tekið upp, náði enginn
flokkur hreinum meirihluta og Þjóð-
arflokkurinn myndaði samsteypu-
stjórn með smáflokki.
80% vilja þjóðaratkvæði
Skoðanakannanir benda til þess að
einungis 30% kjósenda séu nú fylgj-
andi nýja kosningafyrirkomulaginu,
og um 60% andvíg því. Hátt í 80%
vilja að innan fjögurra ára verði efnt
til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort
eigi að breyta því.
Allt að 80% kjósenda eru nú and-
víg stjórninni, þótt Þjóðarflokkurinn
sé vinsælastur flokka. Þykh- mörg-
um kjósendum sem samstarfsflokk-
urinn í stjórninni hafi óeðlilega mikil
áhrif miðað við að kjörfylgi hans var
aðeins 13%.
Reuters
ANDÓFSMAÐUR í Indónesíu kom skilaboðum sínum á framfæri í gær
með því að binda klút sem á stóð „algerar úrbætur" fyrir vit sér. Hóp-
ur manna safnaðist saman í Jakarta og krafðist lausnar allra
pólitískra fanga af íslamstrú og frá Austur-Tímor.
Jusuf Habibie, nýr forseti Indónesíu,
lofaði þegnum sínum í síðustu viku en
í gær sagði Ginandjar Kartasasmita,
ráðheraa efnahagsmála, að ólíklegt
hlyti að teljast að kosningar færu
fram í Indónesíu fyrr en í fyrsta lagi
að ári liðnu; tímafrekt væri að gera
nauðsynlegar endurbætur á kosn-
ingalögum og að skipuleggja kosn-
ingar.
Nýr stjórnmálaflokkur
stofnaður
Mien Sugandhi, fyrrum ráðherra
málefna kvenna í indónesísku stjórn-
inni, sagði í gær skilið við Golkar-
flokkinn sem ræður ríkjum í Indó-
nesíu. Sugandhi, sem er leiðtogi
Ráðstefnu um fjölskyldugildi og
gagnkvæma aðstoð (MKGR) sagði
að samtök sín, sem telja um 25 millj-
ónir meðlima, hygðust verða sjálf-
stæður stjórnmálaflokkur og berjast
um völdin við Golkar-flokkinn.
Ákvörðun Sugandhis er í samræmi
við loforð Habibies forseta um rétt
manna til að stofna stjórnmála-
flokka. Búist er við að fleiri slík sam-
tök bindi á næstunni enda á skyldu-
aðild sína að Golkar-flokknum og
leitist við að verða sjálfstæðir stjórn-
málaflokkai-.
Pakistan senn
tilbúið í tilrauna-
sprengingar
Islamabad, Nýju Dehlí, Tókýd. Reuters.
STJORNVOLD í Pakistan sögðu í
gær að aukin efnahagsaðstoð Band-
aríkjamanna myndi engu breyta
um þær fyrirætlanir sínar að
trj'ggja öryggi Pakistans eftir að
Indverjar framkvæmdu kjarnorku-
tilraunasprengingar fyrr í mán-
uðinum. Sartaj Aziz, fjármál-
aráðherra landsins, endurtók á
blaðamannafundi orð Nawaz
Sharifs forsætisráðherra þess efnis
að Pakistanar myndu einungis
hætta við tilraunasprengingar ef
þeir væru fullvissir um eigið
öi-yggi. Getgátur hafa hins vegar
verið uppi um að bandarísk stjóm-
völd myndu bjóða Pakistan aukna
efnahagsaðstoð ef þau féllu frá fyr-
irætlunum sínum.
Bandaríska leyniþjónustan
greindi frá því á þriðjudagskvöld að
Pakistanar væru nú á lokastigi
undirbúnings að eigin tilrauna-
sprengingum og að búast mætti við
að þeir létu til skarar skríða innan
skamms.
Bandaríkjamenn hafa hins vegar
lagt hart að Pakistönum að íylgja
ekki fordæmi Indverja og bent
þeim á þær gífurlegu efna-
hagsþvinganir sem beitt hefur ver-
ið gegn Indverjum eftir að þeir
sprengdu fimm kjarnorkusprengj-
ur í tilraunaskyni. Sartaj Aziz við-
urkenndi í gær að stjórnvöld í
Islamabad undirbyggju nú
viðbrögð sín við efnahagsrefsingum
Bandaríkjanna og annarra ef til til-
raunasprenginga kemur.
Sharif vill engu lofa
Ryutaro Hashimoto, forsætis-
ráðherra Japans, lagði í gær einnig
hart að pakistanska forsætis-
ráðherranum Sharif að hefja ekki
tilraunasprengingar. „Ég vona
heitt að Pakistanar sýni fullkomna
stillingu og hlýði tilmælum annarra
þjóða í þessum efnum.“ Sharif gat í
samtali þeirra Hashimotos hins
vegar ekki gefið nein loforð í þessa
veru, „við munum taka ákvörðun
okkar í samræmi við eigin hags-
muni“.
Loftmengun í Mexíkóborg hættulega mikil
Börnum bannað að leika sér
úti og fólki ráðið frá trimmi
Reuters
VERKAMAÐUR sinnir vinnu sinni uppi á hárri byggingu þar sem sér yfir Mexíkóborg og mengunar-
mistrið sem hylur hana og gerir hinum 17 milljónum borgarbúa lifið leitt þessa dagana.
Mexíkóborg. Reuters.
LOFTMENGUN í Mexíkóborg er
þessa dagana hættulega mikil og
hafa stjómvöld þess vegna lýst yfir
umhverfis-neyðarástandi í borginni.
Miklir skógareldar sem geisa í
grennd við borgina hafa fyllt loftið af
reyk, en auk þess spýr bílafloti borg-
arbúa, sem er um 17 milljónir bíla,
og verksmiðjur á svæðinu út ómældu
magni mengandi útblásturs.
Meðal neyðarráðstafana sem hef-
ur verið gripið til er að banna hluta
bílaflotans að hreyfa sig og verður
nú um þriðjungur hans að sitja
heima, verksmiðjur hafa orðið að
draga úr framleiðslu og skólabörn-
um er bannað að leika sér úti.
Verstu þurrkar í 70 ár og mikill
hiti hafa skapað aðstæður sem valda
því að mengunin er meiri nú en elztu
menn muna.
Að sögn Ingvars Emilssonar,
sjávarlíffræðings og prófessors í
Mexíkóborg, þar sem hann hefur
búið undanfarin 25 ár, helgast þetta
ástand af tíðarfarinu á svæðinu. I
venjulegu árferði er þurrkatími frá í
nóvember fram í apríl. Sumarregnið
byrjar venjulega í maí og nær há-
marki síðsumars og þá munu felli-
byljir vera tíðir við strendur lands-
ins.
í lok þurrkatímans er það
aldagömul venja að bera eld í akur-
lönd til að brenna burt þurran hálm
og sinu því þá sprettur nýgræðing-
m-inn vel strax og regnið kemur og
auk þess útrýmir eldurinn skordýr-
um og annarri óværu.
„En því miður fer margt úrskeiðis
hjá bændunum og eldurinn læsir sig
í nálægar skógarspildur og breiðist
út svo enginn fær við neitt ráðið,“
sagði Ingvar í samtali við Morgun-
blaðið. Sagði hann elda einnig oft
koma upp vegna ógætni vegfarenda,
og er því jafnvel haldið fram að
flöskubrot geti tendrað eld „með því
að virka eins og brennilinsur í sól-
skininu og lognmollunni“.
Sagði Ingvar að þessi þurrkatími,
sem nú sé vonandi senn á enda, hafa
verið óvenjulega heitur, þurr og
langvarandi, „með þeim afleiðingum
að skógareldar hafa geisað látlaust í
nær þrjá mánuði um allt svæðið“.
Þúsundir hektara skóglendis hafa
brunnið og reykjarsvæla með
hárfínu öskuryki hefur lagzt yfir
landið og svifið upp í háloftin vegna
hitans frá eldinum og sólskininu.
Ellen Gunnarsdóttir er annar ís-
lendingur sem býr í Mexíkóborg.
Þegai- Morgunblaðið náði sambandi
við hana í gær var ástandið í borg-
inni aðeins farið að skána frá því síð-
ustu dagana á undan, en neyðará-
stand var enn í gildi. Sagði EUen að
byrjað hefði að rigna í borginni
Puebla, sem er í um klukkustundar
akstursij'arlægð frá höfuðborginni,
og voru þvi bundnar vonir við að
regnið næði fljótlega að létta íbúum
Mexíkóborgar andardráttinn.
En fyrr í vikunni var haft eftir
Juliu Carabias, umhverfisráðherra
Mexíkó, að ekki væri búizt við veru-
legu regni næstu tvær vikurnar.
Veðurstofa Mexíkó greindi frá því í
gær að minni háttar regn hefði fallið
í fylkjunum Chiapas og Oaxaca í
suðurhluta landsins, og reiknað væri
með að eitthvað muni dropa úr lofti
næstu daga.
„Ástandið síðustu tvær vikur er
búið að vera nær allsendis óþol-
andi,“ sagði Ellen, og bætti við að
borgarstjómin hefði verið gagnrýnd
fyiir að grípa ekki fyrr til neyð-
arráðstafana, þar sem borgarbúar
voru búnir að þjást undan hinni
auknu loftmengun í heila viku áður
en slíkar aðgerðir hófust.
E1 Nino kennt um
„Þetta óvenjulega ástand á
auðvitað upprana sinn í fyrir-
brigðinu sem menn kalla E1 Nino,
sem meðal annars hefur orsakað
langvarandi hæð yfir svæðinu,"
sagði Ingvar Emilsson. Þetta hefur
gert það að verkum að ryk og reyk
ber yfir nágrannann í norðri, „með
þeim afleiðingum að ástandið er
komið í heimsfréttimar og Band-
aríkin bjóða nú aðstoð við að slökkva
eldana sem virðast valda mistrinu í
Texas og víðar í Bandaríkjunum.
En fyrfr okkur sem búum hér,“
segir hann, „er mengunin frá fjórum
milljónum bíla erfiðari viðfangs og
veldur augnsviða, öndunarerfiðleik-
um og jafnvel þetta ástand ríkir
meðan um þriðjungur bílaflotans er
úr umferð, verksmiðjum lokað, al-
menningi ráðlagt að halda sig inni
og sleppa öllu trimmi.
Og svona til að fullkomna mynd-
ina trónir hið fræga eldfjall
Popocatepetl yfir borginni og blæs
nú frá sér reykjarmekki og ösku í
meira magni en elztu menn muna,“
sagði Ingvar að lokum. Ekki væri þó
talin hætta á sannkölluðu eldgosi.