Morgunblaðið - 28.05.1998, Page 27

Morgunblaðið - 28.05.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 27 30 einstak- lingar klæðast listaverkum MYNDLISTARMAÐURINN Ráðhildur Ingadóttir fer óvenju- lega leið í framsetningu njjustu verka sinna; verka sem íjalla um tímakeilur og verða á kjólum og bolum sem þrjátíu manneskjur klæðast í Evrópu og Bandaríkjun- um frá miðjum maí til miðs júní 1998. „Sýningin" er unnin í fram- haldi af röð bréfa sem Ráðhildur hefur dreift og sent til einstak- linga reglulega á síðustu tveimur ánim sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um ferli himin- tunglanna og eðli alheimsins. Verk sem kveikja „fallega hugs- un,“ svo vitnað sé í orð lista- mannsins. Ráðhildur hefur áður prentað á boli teikningar sem lýsa atferli himintunglanna, og fólk gat keypt á meðan á sýningunni stóð. Verk- efnið nú verður með ólíku sniði þar sem Ráðhildur hefur fengið til liðs við sig ákveðna einstak- linga sem klæðast „verkinu," í ákveðinn tíma og skila síðan flík- inni aftur til listamannsins ásamt heimild í formi myndbands og ljósmynda af sjálfum sér íklædd- um verkinu við einhverjar þær aðstæður sem þeir sjáifir kjósa að lýsa. Stuðningur fyrirtækja nauðsynlegur Ymis fyrirtæki hafa styrkt verkefnið. Vogue gaf efni í klæðin og saumaverkstæðið Nælon og jarðarber sá um að sauma fatnaðinn og mun síðan selja fatnað byggðan á verkinu. Þá lögðu fyrirtækin Umslag ehf., Fjölprent, Remazol textíl-litir og Splitt íþróttafatnaður sitt af mörkum. Ráðhildur leggur áherslu á mikilvægi stuðnings fyrirtækja við samtímamyndlist þar sem forsendur og fram- kvæmd listsköpunar hafi mikið breyst frá því sem var áður og oftar en ekki sé þetta eini mögu- leiki listamanna við að fram- kvæma hugmyndir sínar. Á korti sem kynnir verkið er mynd af kuðungi sem Ráðhildur byggir verkið á. „Þessi kuðungur hefur milljón megabæta minni. Ég fékk hann að gjöf frá gamla geometríukennaranum mínum Olive Whicher. Kuðungurinn geymir fortíð, nútíð og framtíð. Hann býr í dagdraumum um tímakeilur. Tímakeilur séðar frá stað utan alheimsins." Tímahugtakið skynjað með áþreifanlegum hætti Hugmyndin um tímakeilur kemur frá breska heimsfræðingn- um Stephen Hawking og lýsir skilyrtu innbyrðis sambandi rýmis og tíma. Hugmynd sem Ráðhildur myndgerir í 5 mismunandi teikn- ingum. Listfræðingurinn Eva Heisler hefur fjallað um verk Ráðhildar og segir að með því að útfæra hugmyndir Hawkings enn nánar og myndgera, í teikningum sem byggi á geometrískum út- reikningum, skynji áhorfandinn tímahugtakið með áþreifanlegum hætti. „I nýjasta klæða-verki sínu notar listamaðurinn mamislíka- mann til að gangsetja ferli túna- keiluteikninga, - ímynda sem hún lýsir sem engu minna og engu meira en „fallegri hugsun“.“ Ráðhildur hefur lengi unnið verk sín út frá geómetríu og heimsfræði. Vegna eðlis verkanna notast Ráðhildur við miðla sem hægt er að dreifa, - bréf, póstkort og fatnað. „Fólk getur orðið vart við verkin mín víða í umhverfinu og ekki bara þegar það fer á sýn- ingar þangað sem það er gagn- gert komið í leit að slíki'i upplif- un,“ segir Ráðhildur. MorgunDladid/Porkell ÞÁTTTAKENDUR í sýningu Ráðhildar Ingadóttur komnir saman ásamt listakonunni sem sést lengst til hægri. Sýning hennar á tímakeilum stendur samtimis yfir í Evrópu og Bandaríkjunum frá miðjum maí fram í miðjan júní. Eintakið þitt bíður þín á næsta pósthúsi Nú þarf engan miða til að fá Síma skrána afhenta. Þú ferð bara á næsta pósthús eða þjónustu- stað Símans og nærð í þitt eintak.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.