Morgunblaðið - 28.05.1998, Page 29

Morgunblaðið - 28.05.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 29 LISTIR LEIKARARNIR Pálmi Gestsson, Tinna Gunnlaugsdóttir og Jóhann Sig- urðarson virða fyrir sér bókagjöfina, ásamt Stefáni Baldurssyni Þjóð- leikhússtjóra, Gunnari Eyjólfssyni og gefendunum Erlendi Einarssyni og Margréti Helgadóttur. Ljósblá sýnir í Pakkhúsinu á Höfn Morgunblaðið. Höfn. HELGA Erlendsdóttur, sem notar myndlistarnafnið „Ljósblá“, opnaði sl. laugardag sölusýningu á verk- um sínum f Pakkhúsinu á Höfn. Hún sýnir 51 vatnslitamynd og 24 olíumálverk, sem hún hefur málað á þessu ári og seinni hluta síðasta árs. Helga hefur stundað listmálun af kappi í 15 ár og er þetta fyrsta einkasýning hennar en hún hefur áður tekið þátt í fjór- um samsýningum. Sýningin í Pakkhúsinu verður opin til sunnudagsins 30. maí. Morgunblaðið/Sigurður Hannesson HELGA Erlendsdóttir við verk sín í Pakkhúsinu á Höfn. Gáfu Þjóðleik- húsinu Shake- speare-safn ERLENDUR Einarsson, fyrrver- andi forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga, og eiginkona hans, Margrét Helgadóttir, hafa gefíð Þjóðleikhúsinu safn Shakespeare- verka; 36 binda heildarsafn, útgáfa The Folio Society, frá árunum 1950 til 1980, og eru bækurnar skreyttar myndum þekktra búningahöfunda. Formála að bókunum, rita m.a. Laurence Ohvier, Peggy Ashcroft, Ralph Richardson og John Gielgud. Við afhendingu bókanna sagði Er- lendur m.a. að sér þætti þessar bæk- ur hvergi eiga betur heima en í Þjóð- leikhúsi íslendinga og vonaði að sem flestir listamenn sem kæmu til starfa við húsið gætu notið þeirra. Við afhendingu leikritanna las Gunnar Eyjólfsson leikari stuttan kafla úr Hamlet á móðurmáli skálds- ins fyrir viðstadda. ---------------- Lj ósmyndasýning í Epal ANNA María Sigurjónsdóttir opnar ljósmyndasýningu í versluninni Epal, Skeifunni 6, fimmtudagin 28. maí. í fréttatilkynningu segir að sýn- ingin samanstandi af 12 ljósmyndum sem eru af hinum ýmsu litasamsetn- ingum, helst af veðruðum hlutum. Síbreytilegir litir og áferð ryðgaðs járns hafi lengi heillað höfundinn. Hér hafi hún tekið ljósmyndir sem minna hana á málverk þar sem form, áferð og litir ráða ferðinni. Myndirn- ar eru prentaðar á striga. Anna María lauk B.A. prófi í gi'afískri hönnun og ljósmyndun 1993 frá háskóla í Alabama og mastersnámi í ljósmyndun frá Savannah College of Art and Design í Bandaríkjunum tveimur árum síðar. Jafnhliða mastersnámi starfaði hún sem ljósmyndari og aðstoðarkennari og hélt auk þess einkasýningar og tók þátt í samsýningum þar vestra. Sýningin er opin virka daga frá kl. 9-18 og á laugardögum frá kl. 10-14. Kemur upp um lacoste þinn góoa smekk! fterm GARÐURINN -klæðirþigvel § KRINGLUNNI OG LAUGAVEGI ° fimmtudag til sunnudags 20 (Stjúpiir blandaðir litir kr 699 6 fjúlærar plöiitiir •JJ X . . íl 1 . að eigm vali kr 699 Labelia stór Jít ‘Mald í útikerin ULkr 516S>

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.