Morgunblaðið - 28.05.1998, Síða 31
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 31
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
FRÁ tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands ásamt kór heimamanna.
Sinfóníuhlj ómsveitm
á Hvammstanga
Hvammstanga. Morgunblaðið.
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT íslands
hélt tónleika í Félagsheimilinu á upp-
stigningadag, en heimsóknin var á
vegum Tónhstarfélags V.-Hún. Voru
tónleikarnir vel sóttir og hljómsveit-
inni fagnað innilega. Stjórnandi vai'
Bernharður Wilkingson og konsert-
meistari Guðný Guðmundsdóttii'.
Hljómsveitin vai- skipuð um 50
hljóðfæraleikurum.
Fyrir hlé lék hljómsveitin Sinfóníu
nr. 7 í d moll op. 70 efth- Antonin
Dvorka. Efth' hlé söng blandaður
kór heimamanna, um 40 manna,
fjögur lög með hljómsveitini. Fyrst
var sunginn þjóðsöngurinn, þá Ave
verum coipus efth' Mozart, þá Þótt
þú langfórull legðir eftir Sigvalda
Kaldalóns og loks Fangakórinn úr
óperunni Nabucco eftir Verdi. Alls
voru þá á sviði Félagsheimilisins um
90 manns. Tónleikunum lauk síðan
með léttri sveiflu hljómsveitarinnar,
er hún lék vals eftir A. Khatchatur-
ina og Dans trúðanna efitr B. Smet-
ana. Hljómsveitin lék svo tvö
aukalög fyi'h' þakkláta áheyrendur.
Það munu vera 25 ár síðan Sin-
fóníuhljómsveit Islands kom til
Hvammstanga, en stjórnendur
höfðu orð á að svo langur timi
mætti ekki líða þar til næst yrði
komið. Kórfélagar lýstu mikilli
ánægju yfir að hafa fengið tækifæri
til að taka þátt í svo skemmtilegum
tónleikum.
Ljós á líðan Park-
insonsjúklinganna
BÆKUR
Fræðslurit
PARKINSONVEIKI
Höfundar: Henning Pakkanberg
og Erik Dupont. Þýðendur úr
dönsku: Arnfríður Arnmundsdóttir
og Jónas Gíslason.
PARKINSONSAMTÖKIN á ís-
landi voru stofnuð fyrir 15 árum,
nánar tiltekið 3. desember 1983.
Samtökin eru meðlimir í norrænum
samtökum Parkinsonsjúklinga og
sömuleiðis í Evrópusamtökum sem
standa að rannsóknum á Parkinson-
veiki. Tilgangur samtakanna er m.a.
að aðstoða Parkinsonsjúklinga og
aðstandendur þehra við að leysa
þann vanda sem sjúkdómnum fylgir,
bæta þekkingu almennings á sjúk-
dómnum og styðja rannsóknir á hon-
um. Samtökin halda almenna félags-
fundi og gefa út fréttabréf. Þau hafa
opnað þjónustumiðstöð að Lauga-
vegi 26 í Reykjavík.
Foi-mála að fræðsluritinu skrifar
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir læknh',
og tek ég undir þau orð hennar að
það sé lofsvert framlag hjá Parkin-
sonsamtökunum á íslandi að standa
að þessari útgáfu. Hún bendir á að
tilfinnanleg þörf hafi verið á bók sem
þessari, ekki einvörðungu til að
fræða sjúklinga og ættingja þeirra
heldur einnig til að upplýsa starfs-
fólk á stofnunum þar sem Parkinson-
sjúklingar vistast tímabundið eða
varanlega. Við þetta vil ég bæta því
að starfsfólk í heilsugæslunni getur
ekki síður haft gagn af því að lesa
þetta rit. Margir Parkinsonsjúkling-
ar vistast tímabundið eða varanlega
á stofnunum, en fjöldi þeirra nýtur
einnig heimahjúkrunar eða leitar til
sinna heimilislækna.
I bókinni er fyrst farið yfir ýmsan
fróðleik um sjúkdóminn, gerð og
starfsemi heilans, efnabreytingai'
sem verða í heila sjúklinga, út-
breiðslu Pai'kinsonveiki, félagsleg
áhrif og hugsanlegar orsakh'. Þá er
farið yfir helstu sjúkdómseinkenni,
hvernig þessi sjúkdómur Iýsir sér í
upphafi og einkenni sem honum geta
fylgt, bæði algeng og sjaldgæf.
Þessu næst er sagt frá því hvernig
sjúkdómurinn er meðhöndlaður,
sagt frá algengustu lvfjum og lýst
skurðaðgerðum sem reyndar hafa
verið, raflost, sjúkra- og iðjuþjálfun
og talkennslu. Ritinu lýkur svo með
því að farið er skipulega yfir ýmis at-
riði í daglegu lífi og gefin góð ráð,
ekki síst um mataræði og hreyfingu.
Mér fannst ég rekast á margt í
þessari bók sem varpar betra ljósi á
Ííðan fólks sem haldið er þessari
veiki. Hjá mörgum er hún væg,
breytist lítið árum saman og fólk
getur sinnt sinni vinnu, séð um sig
sjálft og lifað nokkuð eðlilegu lífi.
Aðstandendur lenda oft í miklum
erfiðleikum þegar langvinnur sjúk-
dómur sem þessi heldur innreið sína
og bent er á í ritinu að það sé bjarn-
argreiði að hjálpa sjúklingnum með
hvað eina sem erfitt kann að reynast,
því mikilvægt er að fólk sé fært um
sem flesta hluti sem lengst.
Sjúkdómurinn dregur nafn sitt af
enskum lækni, James Parkinson,
sem lýsti einkennum sjúkdómsins
1817 í grein sem hann kallaði ,An
essay on the shaking palsy“. Þar var
fyrst og fremst lögð áhersla á tvö
aðaleinkenni af þremur, skjálfta og
hægar hreyfingar. Það var síðan
Chai-cot sem síðar á sömu öld bætti
þriðja einkenninu við, en það var
stirðleiki í hreyfmgum.
I aðalatriðum má segja að bókin
sé auðlesin, skiljanleg og kærkomin.
I henni er talsvert af prentvillum og
virðist eins og prófarkalestur hafi
farið nokkuð úr böndunum en ég tel
fræðsluritið vera Parkinsonsamtök-
unum á Islandi til sóma og veit að
fjölmargir eiga eftir að lesa það
spjaldanna á milli.
Katrín Fjeldsted
Tónlistarskóli Garðabæjar frumsýnir Brúðkaup Figaros
ATRIÐI úr Brúðkaupi Figaros í uppfærslu
Tónlistarskóla Garðabæjar.
Brúðkaup
Figaros í
Garða-
bænum
TÓNLISTARSKÓLINN í
Garðabæ frumsýnir Brúðkaup
Figaros eftir W.A. Mozart,
föstudaginn 29. maí ld. 20 í
Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju.
Óperan verður sýnd í fullri
lengd og er þetta lokaverkefni
Tónlistarskólans á þessu vori.
Þetta er veigamesta verkefni
skólans til þessa í 34 ára sögu
hans og frumkvöðull og stjórn-
andi þessarar viðamiklu sýning-
ar er Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir. Hún hefur um margra
ára bil verið aðalkennari við
söngdeild skólans og útskrifað
fjölda nemenda sem margir
hverjif starfa nú við óperuhús
víða um heim. Leiksljóri sýn-
ingarinnar er Hrafnhildur
Hagalín og píanóleikarar eru
Valgerður Andrésdóttir og Kol-
brún Ósk Óskarsdóttir.
I öllum aðalhlutverkum eru
nemendur Snæbjargar og
nokkrir kennarar skólans. Með
helstu hlutverk fara: Benedikt
Elfar, Figaro, Margrét Ásgeirs-
dóttir, Susanna, greifinn af
Almaviva, Gunnar Kristmanns-
son og Jóhann Stefánsson, með
hlutverk greifynjunnar af
Almaviva fara þær Margrét
Perla Leifsdóttir og Jóhanna
Héðinsdóttir. Alls taka um 40
manns þátt í þessari uppfærslu
og tengjast allir Tónlistarskóla
Garðabæjar á einn eða annan
hátt.
Óperan Brúðkaup Fígarós
var frumflutt í Vínarborg árið
1786 og er talin eitt mesta
snilldarverk þessa mikla
tónskálds. Höfundur handrits
var Italinn Lorenzo da Ponte,
en efnið er fengið frá leikritinu
„La folle journée, ou Le mari-
age de Figaro" frá 1778 eftir
Frakkann Pierre-Augustin Car-
on de Beaumarchais (1732-99),
en bannað var að sýna leikritið
í París og Vínarborg vegna
þeirrar ádeilu sem þar kemur
fram á aðalinn. Da Ponte og
Mozart milduðu verkið, en samt
var það talið á mörkum þess að
vera boðlegt þegar það var
frumflutt.
Fyrirhugaðar eru þrjár sýn-
ingar og verður önnur sýning
miðvikudaginn 3. júní og þriðja
sýning föstudaginn 5. júní, kl.
20 báða dagana.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og
eru til sölu á skrifstofu skólans
í Smiðsbúð 6 í Garðabæ, frá kl.
18, og í Kirkjuhvoli sýningar-
dagana.
10 tíma kort
kynrúngarverði kr. 3.700.
Engar timatakmarkanir
staðurJýrirÞte
| Jsb kort veitir
I 30% afslátt i ljós
Sumarkortið
.‘5j;i mánnóa kort á 7200.-
(iilda I'i'á 1 (I - .‘50 S 1008
eysjutimar
Jsb tímar, púlsinn upp
irautir, þrekliestar ofl
Fa. heilsusturtur.
Munið að endurnýja JSB kortið!
Lágmúla 9 • Stmí 581 3730