Morgunblaðið - 28.05.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 33
Meistarar hins
danska djass
TÓJVLIST
llljómdiskar
SVEND ASMUSSEN:
FIT AS A FIDDLE
Svend Asmussen, fíðlu, Jakob
Fischer, gítar, Jeper Lundgaard,
bassa og Aage Tangaard, trommur.
Running wild, Bye bye blaekbird,
Take off blues, I love you Porgy,
Wrapping it up, Groove merchant,
Latino, Coiumbine polka marzurka,
The mooche, Prelude to a kiss, A
night in Tunisa. dacapo 9429. Upp-
taka DDD, Kaupmannahöfn,
Linköping, Vaxjö, 1996. Utgáfuár:
1997. Lengd: 63:32. Verð (Japis):
1899 kr.
ÞAÐ er kunnara en frá þui-fi að
segja að fáir djassleikarar eru
vinsælli á Islandi en jöfrarnir tveir
af Skjöldungakyni, Svend Asmus-
sen og Niels-Henning 0rsted Ped-
ersen. Það er því gleðiefni að nýj-
ustu diskai' þeirra skuli fást í flest-
um betri hljómplötuverslunum á ís-
landi.
Svend kom í fyrsta skipti til ís-
lands 1993 og hafði þá nýstofnað
kvartettinn með Jakob Fischer,
Jesper Lundgaard og Aage Tang-
gaard. Fit as a fiddle er annar disk-
ur kvartettsins. Sá fyrri, Fiddling
around (Imogena), kom út 1993.
Hann var tekinn upp í hljóðveri
ólíkt þessum sem hljóðritaður var á
tónleikum í Danmörku og Svíþjóð.
Sven er haldinn mikilli fullkomn-
unaráráttu, sem oft hefur reynst
honum skeinuhætt í hljóðverum.
Hann hefiu á stundum slípað tónlist
sína of mikið og fægt svo djass-
augnablikin hafa ekki orðið eins
beitt og ella. Á tónleikum lætur
hann fleira vaða þó ekkert sé gert
sem ekki stenst kröfur meistarans.
Ég efa að Svend hafi nokkni sinni
leikið með hrynsveit er hæfir hon-
um betur en þessi. Þeir félagar ei'u
einsog einn maður þó aldurmunur
Svends og Jakobs Fischers gítar-
leikara sé rúm hálf öld og þessir
piltar kunna það sem Svend kann
best - að svinga.
Flest laganna á þessum diski
voru á efnisskrá Svens er hann lék í
fyrrasumar í Reykjavík og á Egils-
stöðum - klassísku djassverkin The
mooche og Prelude to a kiss eftir
Duke Ellington, Wrap it up eftir
Fletcher Henderson, A night in
Tunisia eftir Dizzy Gillespie og
Grove merchant eftir Jerome Ric-
hardsson svoog gömlu slagararnir
Runnin’ wild og Bye, bye blackbird
og I love you Porgy úr ópera Gers-
hwinsbræðra. Latino eftir Jacob
Fischer sömuleiðis. Afturá móti hef
ég ekki fyrr heyrt hann leika lag
Lumbyes, Columbine polka maz-
urka. Take off blues eftir Svend var
bæði á dagskrá 1993 og 1997. Þar er
þriggja hljóma hefðin brotin á bak
aftur og í tónleikaútgáfunni hefur
hver sinn sóló, Svend meirað segja
tvo - annar strokinn á fiðlustreng-
ina samtímis en hinn pikkaður
bogalaust.
Það er mildl ánægja að hlusta á
þennan disk, og aldrei hættir Jakob
Fischer að koma manni á óvart í
einfóldum en glæsilegum sólóum
þarsem hver tónn og hljómur er
sem demantur í tónakórónu. Einu
fær þó geislinn aldrei komið til
skila. Persónutöfrunum sem geisla
frá Svend Asmussen og gera hverja
tónleika með honum að sérstakri
upplifun - þó efnisskráin breytist
lítið frá ári til árs.
NIELS-HENNING 0RSTED PED-
ERSEN: THIS IS ALL I ASK
Niels-Henning 0rsted Pedersen,
bassa, Ulf Wakenius, gftar og Jonas
Johanssen, trommur. Gestir: Oscar
Peterson, pianó, Phil Woods, altó-
saxófón, Monica Zetterlund og
Menguba, söngur. O tysta ensam-
hed, I skovens dype stille ro,
Traces of the past, Just in time,
Summer song, The song is you,
This is all I ask, As is, Taking a
chance on love, Fantasy in D
minor.Verve 539 695-2. Upptaka:
DDD, Vanlose 1997. Útgáfuár:
1998. Verð (Skífan) 1.999 kr.
THIS is all I ask er annar diskur
Niels-Henning er hann hljóðritar
fyrir Verve. Hann er byggður upp á
sama hátt og fyrri diskurinn, Those
who where (Verve). Tríó og gestir.
Á Those who where voru gestir
aðeins tveir, tenórsaxófónsnilling-
urinn Johnny Griffin og sænska
poppsöngkonan Lisa Nilsson. Nú
eru þefr fjórir.
Niels hefur diskinn á útsetningu
sinni á sænska þjóðlaginu, 0 tysta
ensamhed. Magnaður bassaleikur-
inn gefur til kynna það sem koma
skal: Noiræna fegurð og sterka
sveiflu. Það þarf ekki að hafa mörg
orð um fyrsta gest Niels, sjálfan
Oscar Peterson. Viðfangsefnið er I
skovens dype stille ro sem Niels
hljóðritaði með Kenny Drew og út
kom á söluhæstu djassplötu Dan-
merkursögunnar: Duo (Steep-
leChase). Oscar fékk heilablóðfall
fyrii' nokkrum árum og hefur orðið
að aðlaga stíl sinn lömun í vinstri
hendi. Stíll hans er einfaldari og
einsog Niels orðar það: „tærari".
Oscar hafði lengið langað að leika
þetta undurfagra danska þjóðlag,
sem hann hafði heyrt Niels leika á
ótal hljóðprufum þegar hann var
bassaleikari Oscars. Nú rættist
draumurinn og Oscar túlkar lagið
af næmi, en hann hefur ekki þann
norræna tón sem Kenny heitinn
Drew, Kaupmannahafnarbúi til
langs tíma, bjó yfir.
Tvær söngkonur, jafn ólíkar sem
dagur nóttu, syngja sitt hvort lagið
á diskinum. Hin egypsk/danska
Monique syngur Summer song eftir
Niels, en það lag var á Jaywalkin’
(SteepleChase), fyrstu breiðskíf-
unni er hann gaf út með eigin
hljómsveit. Sú útgáfa var notuð í
kvikmynd Baldurs Hrafnkels Jóns-
sonar um Tryggva Olafsson. Mon-
ique er vinsæl poppsöngkona í Dan-
mörku og rödd hennar af sólætt-
inni, dálítið tilgerðarleg, og ekki
jafnast þessi útgáfa á Summer song
á við þá fyrri, enda var Jaywalkin’
einstaklega vel heppnuð skífa og
ein sú besta er NH0P hefur sent
frá sér. Monica Zetterlund hin
sænska er afturá móti klassa djass-
söngkona og þó hún sé farin að eld-
ast er tilfinningin hrein í ópusi
Greshwins, Takin’ a chance on love.
Þar blæs Phil Wood í altóinn og
hann er einnig einleikari í titillagi
disksins, This is all I ask eftir Gor-
don Jenkins. Þessi yndislega ball-
aða er meistaralega blásinn af
Woods og ekki er einleikskafli Niels
síðri. Af ballöðunum skuluð þið
þekkja djassmeistarana.
Ulf Wakenius hefur verið gítar-
leikari í tríói Niels um árabil, en
trommarar margir. Aleks Riel, Al-
vin Queen, Adam Nussbaum, Victor
Lewis og Jonas Johansen. Jonas er
trommari þessa disks og leysir
verkið vel af hendi. Ulf á nokkra
góða einleikakafla á diskinum en er
þó heldur í bakgrunni miðað við það
sem gerist á tónleikum tríósins.
Þrjú ný verk eftir Niels eru á disk-
inum, Traces of the past, As is og
Fantasy in D minor, sem er bassa-
sóló innblásinn af Bela Bartok. Auk
þess leikur tríóið Just in time og
The song is you eftir Jerome Kern,
ranglega eignað Niels á umslagi.
Traces of the past er léttfónkað og
As is er í klassískum latínfónkstíl
sem tíðkaður var hjá Blue Note á
árum áður.
Niels er fyrst og fremst
ryþmatröll og spunameistari, tón-
smíðarnar eru unnar í hjáverkum.
Mörg laga hans eru þó grípandi, en
ekki býst ég við að þessi fari í flokk
með My little Anne, Dancing girls,
The puzzle og Petit samba.
Allur hljóðfæraleikur á This is all
I ask er frábær, en það vantar
herslumuninn í tónsköpuninni til að
skífan komist í hóp hinna bestu sem
Niels hefur sent frá sér.
Vernharður Linnet
LISTIR
KRAFTMIKILL dans hinna ungu dansara NDT 2. Úr verkinu Un Ballo eftir Jirí Kylián,
Morgunblaðið/Golli
DANSARAR, framkvæmdastjórar og aðrir meðlimir Nederlands Dans
Teater 2 og 3 stilltu sér upp fyrir framan Borgarleikhúsið við komuna
til landsins í gær. Flokkurinn sýnir í Borgarleikhúsinu í kvöld og
annað kvöld.
Dans-
veisla í
Borgar-
leikhúsinu
DANSARAR Nederlands Dans
Teater komu til landsins í gær
og sýnir flokkurinn á stóra sviði
Borgarleikhússins í kvöld og
annað kvöld. Nederlands Dans
Teater er einn virtasti og eftir-
sóttasti dansflokkur heims og
hefur hlotið frábæra dóma, bæði
fyrir frumleg og framsækin
verk en einnig fyrir framúrskar-
andi túlkun dansaranna, sem
eru á aldrinum sautján ára til
rúmlega fertugs.
Nederlands Dans Teater sam-
anstendur í raun af þremur ólík-
um hópum dansara sem kallast
NDT 1, NDT 2 og NDT 3, og
heimsækja tveir hinir síðast-
nefndu Listahátíð í Reykjavík að
þessu sinni.
Á efnisskránni eru fjögur
verk. Kvöldið hefst með verkinu
Uu Ballo sem Jirí Kylián,
listrænn stjórnandi flokksins,
samdi sérstaklega fyrir hina
ungu dansara NDT 2, en þeir
eru allir á aldrinum 17 til 22
ára. Að loknu hinu kraftmikla
Un Ballo dansa tveir meðlimir
NDT 3 verkið The Old Man and
Me, en dansarar NDT 3 eru allir
yfír fertugu og eiga að baki
glæstan dansferil sem þeir nýta
í þessu verki. Danshöfundur er
Hans van Manen.
Þriðja verk kvöldsins er eftir
Jirí Kylián og ber nafnið
Compass og er einnig dansað af
NDT 3. Fjórða og síðasta verk
kvöldsins er Mellantid eftir
sænska danshöfundinn Johan
Inger, dansað af NDT 2.
EYJÓLFUR ásamt eigendum gallerísins Art Diana.
EYJÓLFUR Einarsson sýndi mál-
verk og grafík í Gallerí Art Di-
ana í Helsinki í janúar síðast-
liðinn. Galleruð er til húsa í sama
húsi og íslenska sendiráðið. Fjöl-
menni var við opnun og hélt
Hannes Heimisson forstöðumað-
ur sendiráðsins ræðu og kynnti
listamanninn.
I Helsingin Sanomat, stærsta
dagblaði Finnlands, skrifar gagn-
rýnandinn Anne Rouhiainen grein
um sýninguna þann 16. janúar.
Eyjólfur í
Art Diana
Þar ber hún verk Eyjólfs saman
við verk nokkurra annarra mál-
ara sem sýndu mn sama leyti og
segir m.a.: „Málvek íslendingsins
Eyjólfs Einarssonar í Art Diana
eru fullkomlega frábrugðin ofan-
nefndum málverkum. Blanda
abstraksjónar, þekkjanlegra og
symbólískra hluta fæst við rými
landslagsins á nýstárlegan hátt:
sjóndeildarhringur rennur með
speglum sjávar saman við alheim-
inn, skilningur á þyngdarlögmál-
inu umturnast og himinninn
þyugslast þyngri en jörðin. Með
fábrotnum táknum og litum sam-
einar hann gömul og ný symból.
Það er erfitt að segja til um hvort
krossarnir hanga á himninum eða
svífa“.