Morgunblaðið - 28.05.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 1$
AÐSENDAR GREINAR
Mannlegi
þátturinn og
vegakerfíð
I Fjarðarpóstinum
nýlega má sjá eina
grein úr röð slíkra eftir
Kristján Pétursson,
þingmann Keflavíkur,
og nú var fjallað glanna-
lega um Reykjanes-
hraðbrautina sem á að
tr.yggja Suður-
nesjamönnum greiða
leið í Mosfellsbæ.
Baksvið málsins
Nú má halda því
fram að tvöfóldun
Reykjanesbrautar sé
mildlvæg vegna um-
ferðaröryggis og um-
ferðarþunga sem lík-
lega fer vaxandi þar sem íbúar
Reykjanesbæjar sækja í ríkari
mæli inn á Stór-Hafnarfjarðar-
svæðið eftir vinnu og afþreyingu.
Þá þarf líklega að bæta umferðar-
mál úr Reykjavík og suður á bóg-
inn. Hins vegar er spurning hvort á
að halda í áragamlar hugmyndir
sem virðast hafa verið settar fram
áður en í ljós kom hve mikil byggð
Líklega er hér um að
ræða skipulagsslys og
spurning hvorir eiga
frekar að gjalda, segir
Magnús Þorkelsson,
þeir sem keyptu lóðirn-
ar eða hraðakstursliðið
af Suðurnesjum.
myndi verða í Setbergslandi, Fjár-
húsholti og Mosahlíð. íbúarnir þar
yrðu einangraðir frá meginbyggð
Hafnarfjarðar og þjónustu með
vegarferlíki sem meira að segja
tekur af hluta byggðarinnar.
Ég man eftir að hafa séð þorp og
byggðir í Þýskalandi sem urðu
svipuðum hugmyndum að bráð.
Líklega eru þetta gamlir draumar
Vegagerðarmanna að fá að leggja
almennilega vegi eins og þeir sáu í
námi sínu á árum áður. En þessi
ryk- og verðföllnu þorp sem urðu
yfirgangi ríkisvaldsins að bráð á
fjórða áratugnum eru minnisvarðar
um úrelt sjónarmið. Væri ekki nær
að tryggja það að svona umferð-
argötur fari út fyrir byggð eins og
hún nú er og beina síðan byggðinni
inn á svæði sem eru öruggari fyrir
hraðakstri, hávaða og mengun?
Breikkunarsinnar benda á
reiknilíkön sem sanni að það verði
að tvöfalda veginn og að ofan-
byggðarvegur gagnist ekki í þessu
máli. Líkt líkan lá einnig fyrir þeg-
ar núverandi skipulag var unnið.
Hvemig vita menn að þetta sé
betra?
Á að ónýta nýlegar
fjárfestingar fólks?
Þegar Setbergsland var að
byggjast fyrir tæpum áratug var
verið að láta sig dreyma um álver á
Keilisnesi, - eitt af mörgum álver-
um sem rísa myndu þjóðinni til
heilla. Það ásamt nú gjaldþrota
stálbræðslu og stærra álveri hjá
Isal átti að þýða að lagður yrði of-
anbyggðarvegur og að Hafnar-
íjörður fengi að vera í friði fyrir
vegarferlíkinu sem Kristján rifjar
upp.
Sami vegur liggur um Kópavog,
en þar koma iðnaðarhverfi á milli
vegarins og byggðarinnar, og í
Garðabæ standa húsin ýmist vel
fyrir neðan eða ofan veginn. Hér í
Magnús
Þorkelsson
bæ er aftur á móti
byggt upp að veginum
og í tillögum bæjaryf-
h-valda var gert ráð
fýrir að gróin
hljóðmön víki fyrir
steyptum hljóðvegg,
sem skv. útreikning-
um þarf að vera
margra metra hár.
Líklega er hér um að
ræða skipulagsslys og
spurning hvorir eiga
frekar að gjalda -
þeir sem keyptu lóðir
í hálffrágengnu hverf-
inu eða hraðakst-
ursliðið af Suðurnesj-
um.
Setbergsland er líklega eitt barn-
mesta hverfi höfuðborgarsvæðisins
í dag. Innan hverfisins er litla þjón-
ustu að finna. Þar er helst að nefna
ágæta skóla og leikskóla. Iþróttir
sækja börnin út fyrir hverfið, sem
og afþreyingu og aðra þjónustu.
Núna eru tvenn undirgöng frá
hverfinu. Önnur eru óupplýst og yf-
ir í Kaplakrikann. Þau yrðu
annaðhvort að lengjast eða hverfa.
Þau hafa oftar en einu sinni orðið
vettvangur skemmdarverka.
Hvernig verða þau helmingi lengri?
Við Lækjargötu eru önnur sem
munu hverfa. Ibúum hverfisins
verður gert erfiðara fyrir að sækja
sína þjónustu í bæinn og göngustíg-
ar sem eru í dag notaðir til heilsu-
bótargönguferða munu einangrast
frá bænum.
Þegar fundað var um málið, með
þeim hætti að glannalegum yfirlýs-
ingum skipulagsmanna var hafnað
og lofað að leita betri lausna, þá
kom m.a. fram að ekki þótti tiltök-
umál að nýleg hús myndu hverfa!
Að auka hraða
eða auka öryggi?
Það þarf að laga veginn, enda
ekki fært að leiða þungaumferð í
gegnum byggð eins og nú er gert.
Og það er ekki málum til fram-
dráttar að auka hraðann enn meir
en nú er. Mögnuðustu slysin þama
verða vegna of mikils hraða. Benda
má á bandarísku aðferðina, sem er
að hægja á umferð, enda eru sér-
fræðingar um umferðarmál ein-
huga um að besta leiðin til að draga
úr slysum sé að minnka hraða en
ekki að auka hann. Forystumenn í
Garðabæ hafa sagt að það sé varla
verra fýrir Hafnarfjörð að klofna
um vegarferlíki en Garðabæ. Það
segir sína sögu um viðhorf þeirra til
byggðarinnar norðan og austan Víf-
ilsstaða að þar er nú verið að reisa
vegrið og girðingar. Þetta er í anda
þess að ef ekki er hægt að tryggja
réttlæti þá verði að jafna út
óréttlætið. En væri ekki betra að
finna leiðir sem bæta lífsmöguleika
fremur en verðfella heilu byggðar-
lögin með því að gera ný hús ill-
byggileg, - svo ekki sé talað um
illseljanleg?
Bæjarfulltrúar Hafnarfjarðar
hafa lofað að endurskoða málin og
leita betri leiða. Líklega væri það
sama rétt af þingmönnum Reykja-
neskjördæmis, nema þeir séu bara
þingmenn sumra íbúa kjördæmis-
ins.
Höfundu r býr í Setbergslandi.
Þrjú skákmót
á næstunni
SKÁK
Skákmiðstöðinni,
Faxafeni 12, 16. maí
MEISTARAMÓT SKÁKSKÓL-
ANS HEFST f KVÖLD
Meistaramót Skákskdla íslands
verður haldið í fímmta sinn dagana
28. maí til 1. júní. Mdtið verður
haldið í húsnæði skdlans, Faxafeni
12, Reykjavik.
TEFLDAR verða sjö umferðir
samkvæmt Monrad eða sviss-
nesku kerfi. í fyrstu þremur um-
ferðunum verða tefldar atskákir,
en í fjórum síðustu umferðunum
verða tefldar kappskákir.
Tímamörkin í atskákunum eru 30
mínútur á hvorn keppanda. I
kappskákunum eru tímamörkin
hins vegar 1!4 klst. á 35 leiki og
síðan 30 mínútur til að ljúka skák-
inni. Mótið verður reiknað til
skákstiga, þar af fyrstu þrjár um-
ferðirnar til atskákstiga.
Fyrstu verðlaun á mótinu eru
meistaratitill Skákskóla íslands
1997/1998 og farandbikar. Auk
þess fær sigurvegarinn greiddan
kostnað vegna þátttöku í alþjóð-
legu skákmóti erlendis. í 2.-5.
verðlaun eru vandaðar skákbæk-
ur. Tvenn verðlaun verða veitt til
þeirra keppenda 14 ára eða yngri,
sem ná bestum árangri. Éinnig
verða tvenn verðlaun fyrir kepp-
endur í hópi 10 ára og yngri. Þá
verða verðlaun veitt þeim tveim
stúlkum, sem bestum árangri ná í
mótinu.
Þátttöku í mótinu er hægt að
tilkynna til skrifstofu Skákskól-
ans (Sími 568-9141. Bréfsími: 568-
9116), en einnig er hægt að skrá
sig á skákstað. Skrifstofan er opin
virka daga kl. 10-13.
Dagskrá mótsins er eftirfar-
andi:
1. umf. 28. maí kl. 20
2. umf. 28. maí kl. 21
3. umf. 28. maí kl. 22
4. umf. 29. maí kl. 20-24
5. umf. 30. maí kl. 10-14
6. umf. 30. maí kl. 16-20
7. umf. 31. maí kl. 10-14
Sigurvegari á síðasta meistara-
móti var Jón Viktor Gunnarsson,
eftir tveggja skáka úrslitaeinvígi
við Bergstein Einarsson.
Boðsmót TR
Hið árlega Boðsmót T.R. hefst
miðvikudaginn 3. júní nk. kl.
19.30. Sem fyrr verða tefldar 7
umferðir eftir Monradkerfi með
umhugsunartímanum 1,5 klst. á
30 leiki og síðan 30 mínútur til að
ljúka skákinni. Teflt verður ein-
ungis virka daga, og hefjast um-
ferðir ávallt kl. 19.30. Umferða-
taflan verður sem hér segir:
1. umf. miðvikud. 3. júní kl. 19.30-23.30
2. umf. fimmtudag 4. júní kl. 19.30-23.30
3. umf. miðvikudag 10. júní kl. 19.30-23.30
4. umf. föstudag 12. júní kl. 19.30-23,30
5. umf. mánudag 15. júní kl. 19.30-23.30
6. umf. fóstudag 19. júní kl. 19.30-23.30
7. umf. mánudag 22. júm kl. 19.30-23.30
Vegna ýmissa annara viðburða
er dagskráin fremur óregluleg,
m.a. vegna minningarmóts um
Freystein Þorbergsson hjá Skák-
félagi Hafnarfjarðar dagana 5.-7.
júní. Veitt verða þrenn peninga-
verðlaun, 12 þús., 8 þús. og 5 þús.,
auk verðlaunagripa og farandbik-
ars.
Þátttökugjöld: 16 ára og eldri
kr. 1.500 (2.300 utanfél.) 15 ára og
yngri kr. 1.000 (1.500 utanfél.)
Boðsmótið er öllum opið.
AÐ tafli við Ijörnina.
Morgunblaðið/Ásdís
Minningarmót um Freystein
Þorbergsson
Helgina 5.-7. júní mun Skák-
félag Hafnarfjarðar gangast fyrir
minningarmóti um Freystein Þor-
bergsson, sem varð m.a. íslands-
meistari árið 1960 og skákmeist-
ari Norðurlanda árið 1965. Frey-
steinn keppti á fimm Ólympíu-
skákmótum fyrir Islands hönd.
Hann fæddist 1931 og lést fyrir
aldur fram árið 1974.
Sævar Bjamason sigrar á
helgaratskákmóti
Taflfélagið Hellir efndi til helg-
aratskákmóts 22.-23. maí sl. Sæv-
ar Bjamason, alþjóðlegur meist-
ari, sigraði af öryggi á mótinu,
hlaut 6 vinninga í 7 umferðum.
Sævar hafði tryggt sér sigurinn
fyrir síðustu umferð, en þá mætti
hann Magnúsi Emi Úlfarssyni og
lauk viðureigninni með jafntefli.
Auk Magnúsar Arnar náði Bragi
Þorfinnsson jafntefli á móti
Sævari. Sævar lenti einungis einu
sinni í taphættu, en það var á móti
Bergsteini Einarssyni. Þá kom
klukkan Sævari til bjargar því
Bergsteinn var í miklu tímahraki
og féll að lokum á tíma.
Röð efstu manna varð þessi:
1. Sævar Bjamason 6 v.
2. -3. Bragi Þorfinnsson 5 v.
2.-3. Araar Gunnarsson 5 v.
4. Magnús Öm Úlfarsson i'Æ v.
5. -7. Bergsteinn Einai-sson 4 v.
5.-7. Davíð Kjartansson 4 v.
5.-7. Vigfús Oðinn Vigfússon 4 v.
8. Jóhann H. Ragnarsson 314 v.
Skákstjórar voru Þorfinnur
Björnsson og Daði Öm Jónsson.
Atkvöld Hellis
Stefán Kristjánsson sigraði
örugglega á atkvöldi Hellis sem
haldið var 4. maí 1998. Stefán fékk
5'A vinning af sex mögulegum,
gerði aðeins jafntefli við Ingóif
Hjaltalín, en vann alla aðra and-
stæðinga sína. Röð efstu manna
var eftirfarandi:
1. Stefán Kristjánsson 5‘/z v.
2. -4. Jóhann H. Ragnarsson, Davíð
Kjartansson og Ingólfur Hjaltalín 4'A
v.
5.-8. Kristján Örn Elíasson, Guðmund-
ur Kjartansson, Ólafur Kjartansson og
Sigurjón Kjæmested 4 v.
9. -10. Jón Bjamason og Vigfús Ó. Vig-
fússon 3'/2 v.
o.s.frv.
Fjöldi þátttakenda ^ var 22.
Skákstjóri var Vigfús Ó. Vigfús-
son.
Jón Torfason sigrar
á öðlingamóti
Jón Torfason sigraði örugglega
á skákmóti öðlinga sem nýlega er
lokið. Jón gerði jafntefli við
Magnús Gunnarsson í síðustu um-
ferð og hlaut 6 vinninga af 7
mögulegum. Á mótinu kepptu
skákmenn 40 ára og eldri.
Lokaúrslit mótsins:
1. Jón Torfason 6 v. a
2. -3. Gunnar Gunnarsson og Júlíus
Friðjónsson 5 v.
4.-6. Magnús Gunnarsson, Jóhann Ö.
Sigurjónss og Ögmundur Kristinss 4!4
7.-9. Sverrir Norðfjörð, Sigurður H.
Jónsson og Hörður Garðarsson 4 v.
10.-13. Ólafur S. Ásgrímsson, Halldór
Garðarsson, Grétar Á. Sigurðsson og
Bjami Magnússon 3!4
o.s.frv.
Vetrarstarf Taflfélags Hreyfils
Vetrarstarfi Taflfélags Hreyfils
er lokið. Þátttaka í mótum og
skákæfingum félagsins í vetur var
jöfn og góð. Margir af eldri skák-
mönnum félagsins hafa verið með
og nýir bæst í hópinn. Fyrirhugað
er að skákmenn frá félaginu taki
þátt í Skákþingi NSU (samband
norrænna vagnstjóra) sem haldið
verður dagana 22.-28. júní í
Stokkhólmi. Skákmót þetta er
haldið árlega og til skiptis í helstu
borgum Norðurlanda og er stefnt
er að þvi að mótið verði í Reykja-
vík árið 2000.
Úrslit helstu móta hjá Hreyfli
urðu þessi:
Hraðskákmót Hreyfils. Svonefnt
drottningarmót fór fram dagana
1. og 15. aprfl. Hraðskákmeistari
varð Friðbjörn Guðmundsson og
fékk hann til varðveislu drottning-
una, sem er veglegur farandgrip-
ur. Annar varð Trausti Pétursson
og Haukur Sveinsson þriðji.
Aðalskákmót Hreyfils var haldið
4. og 18. febrúar. Keppt var um
titilinn skákmeistari Hreyfils og
kónginn, sem er annar veglegur
farandgripur. Skákmeistari
Hreyfils varð aldin kempa, Jónas
Kr. Jónsson, sem hlaut sex og
hálfan vinning. Annar varð Baldur
Isberg með fimm vinninga og
þriðji Ketill Ólafsson með fjóra
vinninga.
Firmakeppni TFH fór fram fyrir
skömmu. Eftirtalin fyrirtæki voru
mætt til leiks og þakkar TFH
þeim kærkominn stuðning: Hjól-
barðahöllin, ESSO, Guðmundur
Arason hf., Nesradíó, Sjóvá-Al-
mennar, Múlaradíó, Toyota, Hjól-
barðastöðin, VIS, Trygginga-
miðstöðin, Þrep, Rafkaup og
Höfðadekk. Síðastnefnda fyrir-
tækið sigraði á mótinu, en fyrir
það keppti Friðbjörn Guðmunds-
son sem hlaut átta og hálfan vinn-
ing.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
■C7