Morgunblaðið - 28.05.1998, Síða 50

Morgunblaðið - 28.05.1998, Síða 50
^Fp FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Maðurinn minn, SIGURÐUR HELGASON hæstaréttarlögmaður, fyrrverandi bæjarfógeti á Seyðisfirði og sýslumaður Norður Múlasýslu, lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðju- daginn 26. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna, Gyða Stefánsdóttir. er látinn. + GUÐMUNDUR M. KRISTINSSON skipstjóri Inga Sigurjónsdóttir, Garðar Guðmundsson, Sigrún Kristín Guðmundsdóttir. + HULDA KRISTJÁNSDÓTTIR lést á elliheimilinu Grund þriðjudaginn 26. maí. Aðstandendur. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Vfðihlíð, Grindavík, áður Sólheimum 14, Reykjavík, lést fimmtudaginn 21. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum af alúð öllum þeim, er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför hennar. Sérstakar þakkir til Guðnýjar Sæmundsdóttur fyrir veitta aðstoð. Innilegar þakkir til starfsfólks Víðihlíðar fyrir góða umönnun. Gísli Þórðarson, Jón Þórðarson, Helena Ólafsdóttir, Björk Þórðardóttir, Aðalheiður Finnbogadóttir, Ásgerður Óskars Lauritsen, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengafaðir og afi, EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON sjómaður, er lést á Stapafelli fimmtudaginn 21. maí sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 29. maí, kl. 13.30. Jarðsett verður í Borganeskirkjugarði sama dag. Ágústa Einarsdóttir, Ríkharður Mýrdal Harðarson, Alexander Jarl Ríkharðsson, Gabríela Sól Ríkharðsdóttir, Kristján Einarsson, Kolbeinn Tumi Kristjánsson, Hafdís Einarsdóttir, Albert, Una Albertsdóttir, Jóhanna Birna Einarsdóttir, Leifur Guðmundsson, Aníta Brá Leifsdóttir, Björn Hjörtur Einarsson. + Okkar ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, RÍKARÐUR SUMARLIÐASON fyrrv. yfirdeildarstjóri hjá Pósti og síma, Ástúni 8, Kópavogi, lést á Landakotsspítala sunnudaginn 24. maí. Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn 28. maí, kl. 13.30. Sigrún Einarsdóttir, Tómas Ríkarðsson, Steinunn Arnórsdóttir, Ágústa Ríkarðsdóttir, Gunnlaugur Nielsen, Ríkarður Ríkarðsson, Friðbjörg Sif Grétarsdóttir, Einar Már Ríkarðsson og barnabörn hins látna. EGGERT BOGASON + Eggert Bogason fæddist á Laug- ardælum í Hraun- gerðishreppi í Ár- nessýslu 4. ágúst 1931. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 19. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Bogi Eggertsson, bóndi í Laugardæl- um, síðar verkstjóri í Áburðarverk- smiðju ríkisins, f. 25.11. 1906 í Laug- ardælum, d. 22.7. 1987, og kona hans Hólmfríður Guðmundsdóttir, frá Læk í Hraungerðishreppi, f. 31.12. 1906, d. 27.3. 1972. Bogi var sonur hjónanna Eggerts Bene- diktssonar bónda og alþingis- manns í Laugardælum og Guðrúnar Sólveigar Bjarna- dóttur, Hólmfríður var dóttir Guðmundar Snorrasonar vega- vinnuverksljóra og bónda á Læk og Sigríðar Bjarnadóttur. Systkini Eggerts voru: Guð- mundur, f. 7.6. 1930, d. 16.10. 1945, Benedikt, f. 17.9. 1933, d. 30.6. 1989, verkfræðingur og alþingismaður, var kvæntur Unni S. Magnúsdóttur. Hún lifir mann sinn. Sigurður Gunnar, f. 16.4. 1939, bifreiðastjóri. Var kvæntur Birnu Einarsdóttur. Guðmundur, f. 20.9. 1945, grafískur hönnuður og bifreiða- stjóri, kvæntur Sóleyju Ragn- arsdóttur, myndlistarkennara. Guðrún, f. 26.11. 1947, skrif- stofumaður, í sambúð með Egg- erti Haukdal, fyrrverandi alþingismanni. Ragna, f. 26.11. 1947, skrifstofumaður, er gift Viðari Halldórssyni, fram- kvæmdasljóra. Eggert kvæntist 22. septem- ber 1958 Þórunni Þorgeirsdótt- ur, f. 10. febrúar 1930, dóttur Þorgeirs G. Eyjólfssonar og Hólmfríðar Guðjónsdóttur. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: 1) Bogi, f. 3.12. 1954, bifreiðarstjóri, sam- býliskona var Þóra Bjamadóttir, börn þeirra: Þórunn Eva, Júhanna Rut og Eggert Bjarni. Fósturbörn Boga eru Bjarnhildur og Ólöf Olafsdætur. 2) Guðmundur Þor- geir, f. 23.2. 1957, teppalagnignamað- ur, sambýliskona var Birna Jensdóttir, börn þeirra eru: Valgeir, Hólmfríður Harpa, Sævar Karl, Þórarinn Rafn og Marta Bára. 3) Hólmfríður, húsmóðir, f. 15.4. 1958. Maki Helgi Helgason, f. 16.8. 1956, flokkstjóri. Börn þeirra eru: Helgi, Stefán, Eggert Öm og Inga Rut. 4) Stefanía, f. 16.12. 1965, förðunarmeistari. Eggert fluttist með foreldr- um sinum frá Laugardælum 1936, og ólst að mestu upp í Laugardalnum í Reykjavík. Hann stundaði hefðbundið nám í barna- og unglingaskóla, síðan hóf hann nám í Iðnskólanum f Reykjavik og nam húsgagna- smíðar, hann lauk sveinsprófi árið 1953 með miklum ágætum og vann til verðlauna í nokkmm greinum. Hann vann hjá nokkmm húsgagnaverkstæðum í Reykjavík, þar á meðal hjá Meiði og Heimilisprýði, en stofnaði fljótlega sitt eigið fyr- irtæki Húsgagnaverkstæði Eggert Bogasonar og rak það til dauðadags. Eggert hafði mikið yndi af hestum og stundaði hestamennsku meðan heilsan leyfði. Útför Eggerts fer fram frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Okkur kæri bróðir og mágur Egg- ert Bogason andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hinn 19. maí síðast- liðinn, eftir erfiða sjúkrahúslegu og langvinn veikindi. Mínar fyrstu minningar um Egg- ert bróður minn eru þegar hann setti plötu á fóninn, hallaði sér aftur í stól, lygndi aftur augunum og hlustaði á óperutónlist eða aðra klassíska tón- list sem hann hafði mikið yndi af. Sérstakar mætur hafði hann á hinum frægu tenórsöngvurum nútímans Pavarotti, Placido Domingo og Car- reras, og ekki má gleyma 9. sin- fóníunni eftir Beethoven. Ég tel það honum að þakka að ég kann að meta þessa tegund tónlistar við hlustun allt frá blautu barnsbeini. Einnig Legsteinar Lundi , v/Nýbýlaveg SÓLSTEINAR 564 4566 minnist ég þess sem lítil stúlka, hvað mér þótti alltaf gaman hve glatt var á hjalla á spilakvöldum sem Eggert hélt heima með vinum sínum. Þá sýndi hann mér þá þolinmæði að leyfa mér að fylgjast með þeim vin- um spila svona rétt fyrir háttinn. Eggert hafði einnig mikið yndi af hestum og umgekkst þá frá barnæsku. Hann var mjög góður í reiðmennsku, hafði músíkina og reið- mann í sér. Komst hann mjög vel í samband við hestinn og náði út úr honum mikilli mýkt og góðum gangi. Hann náði því sem flestir hestamenn sækjast eftir, góðu samspili milli manns og hests. Ekki var hann síðri í að laða hrossið að sér í haga og að venja það á bás með natni sinni. Eggert ferðaðist líka talsvert á hest- um um landið. Mér er minnisstætt þegar Eggert, ásamt foreldrum okk- ar, fóru á fyrsta Evrópumót ís- lenskra hesta árið 1970, sem haldið var í Þýskalandi, ferðuðust þau einnig um landið, og höfðu mikla ánægju af. Gamlársdagur hefur alltaf verið sérstakur dagur hjá okkur systkin- unum. Þennan dag átti móðir okkar afmæli, og kom öll fjölskyldan saman heima hjá foreldrum okkar og var verið frameftir kvöldi. Þetta voru mjög ánægjulegar samverustundir. Eftir að mamma lést héldum við uppteknum hætti, hittust fjölskyld- urnar hver hjá annarri, lengst af hjá Benedikt bróður meðan hann lifði. Eggert naut sín vel, sérstaklega þeg- ar komið var að því að skjóta upp flugeldum, hann lumaði alltaf á myndarlegum flugeldapakka. Hann lifnaði allur við og varð eins og ung- ur strákur við að sjá ljómann í aug- um barnanna yfir allri dýrðinni. Eggert hafði hlýtt hjai-talag og var með drengskaparlund en afar dulur maður, alltaf samkvæmur sjálfum sér, með léttan og skemmti- legan húmor. Hann var afar bóngóð- ur, alltaf var hægt að leita til hans ef gera þurfti við húsgögn eða lagfæra eitthvað. Fórst honum það með af- brigðum vel úr hendi, hann hafði næmt auga fyrir litasamsetningu og hafði listagott handbragð og var afar vandvirkur. Hann var mjög góður teiknari, það hafa legið margar skopteikningai- eftir hann frá yngri árum. Hann var einnig mjög hagur í útskurði og skar út ýmsa skemmti- lega muni. Meðal muna sem hann gerði mikið af var skóhorn í konulíki, sem hann af kankvisi sinni kallaði Skvísuna. Eggert lenti í alvarlegu bif- reiðaslysi sumarið 1985 og slasaðist mikið. Þá urðu mikil kaflaskil í lífi hans. Uppfrá því fór heilsu hans að hraka verulega, hann hætti að geta stundað hestamennskuna að ein- hverju ráði, en kom samt upp í hest- hús öðru hvoru, þar var Guðmundur sonur hans með sína hesta og annaðist gömlu klárana hans. Hann naut þess að koma í hesthúsið og gefa hestunum brauð, dunda sér við að klappa þeim og kemba. Ekki má láta staðar numið án þess að minnast með þakklæti á þá um- hyggju og hlýju sem börnin hans sýndu honum eftir slysið og í veik- indum hans, og þá sérstakega Hólm- fríður og Stefanía dætur hans. Vöktu þau yfír honum síðustu sólarhring- ana sem hann lifði. Við hjónin vott- um ykkur og öllum þeim sem syrgja Eggert okkar dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Blessuð sé minning Eggerts Bogasonar og megi guð varðveita hann. Ragna Bogadóttir, Viðar Halldórsson. Minn besti vinur Eggert er farinn í sinn síðasta reiðtúr. Áreiðanlega þeysti hann á einum af sínum gæðingum yfir móðuna miklu. Hest- ar og allt þeim viðkomandi var hon- um og hans fjölskyldu þeirra líf og yndi. Ég kynntist Eggerti þegar ég kom til Reykjavíkur í skóla fyrir hál- fri öld. Við vorum sambekkja í Ingi- marsskólanum og síðar báðir í Iðnskólanum í Reykjavík. Oft var komið á hans æskuheimili að Laug- arlandi, þar var mér alltaf tekið opn- um örmum af allri fjölskyldunni. Oft var farið í reiðtúra eða hlustað á sígilda tónlist, þá helst Jussi Björl- ing, Carúsó eða Stefán íslandi. Ég tel mig meiri mann að hafa átt Egg- ert sem vin, því tryggari félaga hef ég ekki átt. Eggert minn, ég kveð þig, vinur, með þessum fáu línum. Börnum og ættingjum sendi ég mína dýpstu samúð. Pétur Árnason. Suðurhlíð 35 ♦ Súni 581 3300 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri ötfararstjóri Útfararstofa íslands LEGSTEINAR í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. Íi S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410 Allan sólarhringinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.