Morgunblaðið - 28.05.1998, Síða 72

Morgunblaðið - 28.05.1998, Síða 72
f Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPIN KERFIHF Wm hewlett mHfiM PACKARD IBM notenda- ráðsteina Hótel Örk 23.-24. mars Skráning arhafin! www.nyherji.is MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ(áMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sigurður Þórðarson nldsendurskoðandi Hafnar kröfu um endurupptöku greinargerðar Málinu skotið til Alþingis, segir lög- fræðingur Sverris Hermannssonar Morgunblaðið/RAX Grafið og hellulagt SIGURÐUR Þórðarson ríkisend- urskoðandi hefur í bréfi til lög- fræðings Sverris Hermannssonar, hafnað kröfu Sverris um endur- upptöku greinargerðar stofnunar- innar írá því í apríl síðastliðnum kostnað bankans af veiðiferð- um, risnu og fleiru. Asgeir Þór Amason, lögfræðingur Sverris Hermannssonar, segir að ákvörðunin komi ekki á óvart. í bréfi ríkisendurskoðanda sé rökum Sverris fyrir endurupptökukröf- unni í engu svarað og málinu verði skotið til Alþingis. í umræddu bréfi, sem dagsett er í gær, segir orðrétt að í greinar- gerðinni séu „einvörðungu dregnar saman upplýsingar um staðreyndir __ J bókhaldi Landsbanka Islands“. Tlngar ákvarðanir hafi verið teknar í henni um réttindi og skyldur Sverris Hermannssonar sem geti verið grundvöllur „endurupptöku málsins", i lagalegum skilningi þess hugtaks. Beiðni Sverris um endurupptöku greinargerðarinnar, frá 18. maí síðastliðnum, byggðist meðal ann- ars á meintu vanhæfi ríldsendur- skoðanda, þar eð hann hefði verið annar tveggja endurskoðenda Landsbankans og því hefði rannsóknin varðað hann sjálfan verulega. Einnig hefði Lárus Ög- mundsson, lögfræðingur embættis- ins, sem aðstoðaði ríkisendur- -Jikoðanda, verið vanhæfur vegna 'téngsla við Jóhönnu Sigurðardótt- ur, upphafsmann málsins. Ekki vanhæfír til að vinna sérfræðiskýrslu I samtali við Morgunblaðið í gær hafnaði Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi algerlega ásök- unum Sverris um vanhæfi. „Við er- um alveg klárir á því að við vorum ekki vanhæfír til að gera sér- fræðiskýrslu," sagði hann. Að öðru leyti vildi Sigurður ekki tjá sig um einstök gagnrýnisatriði í endurupptökukröfunni. „Við erum búnir að skila skýrslunni til bankaráðsins og ef Sverrir Her- mannsson hefur athugasemdir við hana eða upplýsingar sem við höf- um ekki fengið frá honum áður og gætu haft áhrif á framsetningu málsins, þá verður hann að koma þeim athugasemdum á framfæri við bankaráðið. Við teljum að okk- ar hlut í þessu máli sé lokið.“ FRAMKVÆMDIR við Laugaveg standa nú sem hæst. Vinnuvélar eru enn að grafa upp jarðveginn milli Barónsstígs og Vitastígs, en frá Vitastíg og að Frakkastíg er byijað að helluleggja og nokkuð farið að móta fyrir endanlegu út- liti. ■ Kaupmenn jafnt /16 Kítósan- verksmiðja á Siglufirði UNNIÐ er að stofnun verksmiðju á Siglufírði til að vinna kítósan úr rækjuskel. Kítósan er verðmætt bindiefni sem notað er við iðnaðar- framleiðslu, meðal annars í mat- væla- og lyfjaiðnaði. Þormóður rammi-Sæberg hf. og SR-mjöl hf. eiga hvort félag um sig 42,5% í Kítin ehf. sem stofnað hefur verið um rekstur verksmiðjunnar og lífefnafyrirtækið Genís ehf. á 15%. Keypt hefur verið þekking til stofnunar og reksturs verksmiðj- unnar frá bandarísku félagi sem er framarlega í þróun afurða úr kítós- an. Þá er unnið að endurbótum á hús- inu Síberíu á Siglufirði en þar verð- ur verksmiðjan til húsa. Stofn- kostnaður skiptir hundruðum millj- óna en stjórnendur félagsins telja að reksturinn geti orðið arðvænleg- ur. ■ Verðmætt bindiefni/B3 ■piRr.’í~ í'.-fyLif O1 Stjórnarandstæðingar gagnrýndu Finn Ingólfsson harðlega í þingumræðum í gær Morgunblaðið/Kristján I sól og Viðskiptaráðherra ætti jafnvel skilið vantraust ÞINGMENN stjórnarandstöðu sökuðu í gær Finn Ingólfsson viðskiptaráðherra um að hafa sagt þinginu ósatt og leynt það upplýsingum þeg- ar hann svaraði fyrirspum Ástu R. Jóhannes- dóttur um tap Landsbanka íslands vegna fiár- mögnunarfyrirtækisins Lindar fyrir tæpum tveimur árum. Þingmenn sem til máls tóku sögðu að trúnaðarbrestur hefði orðið millí Alþingis og viðskiptaráðherra. Jóhanna Sigurðardóttir, Þing- flokki jafnaðarmanna, sagði að ráðherra ætti jafnvel skilið vantraust. Finnur segir að í skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem hann hafði þá undir höndum, hafi ekki verið nægilegar upplýsingar ^ til að svara fyrirspuminni. Jóhann Arsælsson, fyrrverandi bankaráðs- maður Landsbankans, og Anna Margrét Guð- mundsdóttir, sem sat bæði í fyrra bankaráði og því núverandi, segjast styðja tillögu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi fonnanns bankaráðs- ins, um að taka mál Lindar upp að nýju. Jóhann tekur undir þá hugmynd Kjartans að sakamála- rannsókn fari fram. Anna Margrét og Jóhann segja afstöðu sína til málefna Lindar á sínum tíma hafa ráðist af því að Ríkisendurskoðun óskaði ekki nánari rannsóknar og Anna Margrét segir að hún hefði aldrei samþykkt þau málalok sem urðu nema vegna þess að málið var unnið í samstarfi við Ríkisend- urskoðun og viðskiptaráðherra. Helgi S. Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka íslands, segist munu útskýra af- stöðu sína til sakamálarannsóknar vegna málefna Lindar að loknum bankaráðsfundi í dag. Halldór Guðbjarnason, fyrrverandi bankastjóri Lands- banka íslands og fyrrverandi stjómarformaður Lindar, segist ekki vilja taka afstöðu til málsins ennþá, enda hafi fæst orð minnsta ábyrgð. Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbanka íslands, segir að þegar fyrirspurnin var borin fram hafi verið talið að tapið af Lind yrði 900 milljónir króna og að Finni Ingólfssyni og ríkisstjóminni allri hafí verið fullkunnugt um það. ■ Málefni Lindar/12-13 og 36-37 sumri a Akureyri IÐNAÐARMENN kepptust við störf sín við nýju sundlaugina á Akureyri í gær, en í gömlu laug- inni, pottum og busllaugum þar í kring var hópur fólks að sleikja sólskinið. Framkvæmdir við nýju Akur- eyrarlaugina eru í fullum gangi. Að sögn Gísla Kristins Lórenzson- ar, forstöðumanns, er stefnt að því að taka laugina og nýjan pott í notkun laugardaginn 20. júní. Nýir búningsklefar verða hins vegar ekki tilbúnir fyrr en eftir um eitt ár. Nýja laugin er 25 metra löng útilaug og tæpir 17 metrar á breidd. Nauðsynlegt er að fjölga starfs- fólki um leið og nýja sundlaugin verður tekin í notkun. Nú eru fjór- ir starfsmenn á vakt en Gísli Krist- inn sagði nauðsynlegt að fjölga um 3-4 starfsmenn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.