Morgunblaðið - 12.11.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.11.1998, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Fjölmargir gestir tóku þátt í „þjóðhátíðardegi“ Grímseyinga sem var haldinn hátíðlegur í gær Minnisvarði um Willard Fiske afhjúpaður Grímseyingar og góðir gestir þeirra, alls um 100 manns, gerðu sér dagamun í gær, en árlega hafa þeir haldið nokkurs konar „þjóðhátíðardag“ 11. nóvember, á fæðing- ardegi Willards Fiske, mikils velgjörðar- manns eyjarskeggja. Meðal gesta voru þeir Halldór Blöndal samgönguráðherra og Day Olin Mount sendiherra Bandaríkj- — anna á Islandi. GRÍMSEYINGAR voru í hátíðar- skapi þegar þeir tóku þátt í hátíðar- dagskrá í tilefni dagsins. Hún hófst með því að afhjúpaður var minnis- varði um Willard Fiske, en það gerðu bræðumir Jöhannes og Bjarni Magnússynir. Báðir eru þeir á meðal stofnenda Kiwanisklúbbs- ins Gríms í Grímsey sem gaf minn- isvarðann en klúbburinn átti 20 ára afmæli fyrr á þessu ári. Gunnar Arnason myndhöggvari gerði minn- ismerkið en texta sem á því er og hljóðar svo gerði Hreiðar E. Geir- dal: Willard Fiske í röðulrúnum réði sérhvern staf. Ærinn hlut af auði sínum eyjarbúum gaf. Minning hans skal ávallt eiga æðsta sæti hér, meðan ægir örmum vefur okkar litla sker. Donald Jóhannesson, skólastjóri Grunnskólans í Grímsey, stjómaði athöfn í félagsheimilinu Múla og nefndi m.a. að veðrið léki við eyjar- skeggja á þessum hátíðisdegi, en daginn áður höfðu allt að 9 vindstig mælst í eyjunni. Pá nefndi hann þá rausnarlegu gjöf sem Fiske færði Grímseyingum, en í erfðaskrá hans vora íbúum ánafnaðir 12.000 dollar- ar sem að núvirði era um 20,4 millj- ónir króna. Fyrir peningagjöfina reistu Grímseyingar m.a. skóla, sem reyndar er nú búið að rífa, og bættu við bókasafn sitt. „Þetta var þó fyrst og fremst stuðningur við bætt mannlíf í Grímsey,“ sagði Donald. Kom aldrei til Grímseyjar Willard Fiske var Band- aríkjamaður, fæddur 1831 en hann lést árið 1904. Fiske kom aldrei til Grímseyjar. Hann kom fyrst til Húsavíkur og sá hann Grímsey aðeins af hafi er hann sigldi framhjá eyjunni. Hann ferðaðist vítt og breytt um Island og talaði jafnan ís- lensku er hann dvaldi hér á landi. Til er foss í Öxarfírði sem nefndur er eftir honum, Wiilardsfoss. Fyrir tilstuðlan hans fengu íslendingar stóra bókagjöf árið 1874 og sendi hann bókagjafir til Islands í 25 ár samfleytt. Þá bjó hann til skákbóka- safn í Landsbókasafninu, stofnaði fyrsta skákblaðið sem gefið var út á Islandi og í Bandaríkjunum og stóð að fyrstu heimsmeistarakeppni í skák. Gaf hann einnig tafl á hvert heimili í Grímsey. Síðustu æviár sín bjó hann í Flórens á Ítalíu, en hann lést sem fyrr segir árið 1904. Kristján Karlsson, fiutti ávarp í Grímsey í gær en hann var bóka- vörður við Fiske-safnið í Cornell í New York fylki í Bandaríkjunum í eterna —EXCELLENT— Morgunblaðið/Kristján BRÆÐURNIR Bjarni og Jóhannes Magnússynir t.v. afhjúpuðu í gær minnisvarða um Willard Fiske, velgjörð- armann Grímseyinga. Með þeim á myndinni er Þorlákur Sigurðsson, oddviti. ferra GARÐURINN -klæðirþigvel GÓBIR gestir á flugvellinum í Grímsey. Fremst standa Day Olin Mount, sendiherra Bandaríkanna á íslandi, og Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari en þau tóku bæði virkan þátt í hátíðardagskránni. nokkur ár í kringum 1950. Aldrei var skrifuð ævisaga Fiske og sagðist Kristján hafa byggt sína umfjöllun á sögusögnum, bréfasafni og greinum sem um hann vora skrifaðar. Merkilegur maður „Fiske var mjög merkilegur og jafnframt sjálfstæður maður. Hann festi hvergi rætur og fór mjög víða. Fiske rækti sín áhugamál af dugnaði og krafti sem kom m.a. fram í áhuga hans á Islandi og þá sérstaklega Grímsey. Hann sá Grímsey sem ísland í hnotskurn og hreifst mjög af dugnaði og menn- ingaráhuga eyjarskeggja, sem hon- um fannst skrýtið að færi saman þ.e. þessi mikla þörf fyrir æðra menningarlífi,“ sagði Kristján. Við athöfn í félagsheimilinu Múla léku Guðný Guðmundsdóttir fiðlu- leikari og Gerrit Schuil píanóleikari fyrir gesti, m.a. lag eftir Atla Heimi Sveinsson, tónskáld, sem var viðstaddur. Guðný er barnabarn sr. Matthíasar Eggertssonar sem eitt Minjasafnið á Akureyri Útboð Minjasafnið á Akureyri auglýsir útboð vegna breytinga í sýningarsölum í norðurálmu safnhússins. I verkinu felst m.a. smíði og uppsetning handriða, frágangur á loft-um og góflum, endurnýjun giers, málun o.fl. Utboðsgögn verða afhent gegn 10 þús. kr. skilatryggingu á skrif- stofu Minjasafnsins, Aðalstræti 58, Akureyri, á skrifstofutíma frá og með fimmtudeginum 12. nóvember 1998. Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 24. nóvember 1998 kl. 14.00. HALLDÓR Blöndal samgöngn- ráðherra flytur ávarp í félags- heimilinu Múla í Grímsey. sinn var prestur í Grímsey og bjó þar í 43 ár. Afi hennar var einn þeirra sem fékk manntafl að gjöf frá Fiske, en hann gaf á sínum tíma tafl á hvert heimili í eyjunni. Hélt sr. Matthías minningu Fiske ávallt á lofti. Gagnkvæm virðing og samvinna Day Olin Mount, sendiherra Bandaríkjanna á Islandi, tók einnig þátt í hátíðarhöldunum, ásamt konu sinni og fulltrúum Fiske-stofnunar- innar í Reykjavík. í máli sendiherr- ans kom m.a. fram að nítjándu aldar maðurinn Willard Fiske hefði hvorki ráðið yfir tölvupósti né far- sítna en með þeim takmörkuðu sam- göngum sem þá stóðu til boða hefði honum tekist að mynda samband við íslendinga sem stóð hjarta hans næst til æviloka. „Samband hans við ykkur Grímseyinga er einkar ánægjulegt og alveg sérstakur þáttur í sam- skiptum hans við íslendinga og mér er mikill heiður að standa hér á eyj- unni sem honum var svo hjartfólgin en auðnaðist aldrei að sækja. Sam- band Fiske við land ykkar og þjóð hefur að vissu leyti endurspeglast í samskiptum þjóða okkar undan- fama áratugi. Þau hafa einkennst af gagnkvæmri virðingu, samvinnu á mörgum sviðum og af mikilli ein- lægni og vináttu. Samband íslands og Bandaríkjanna er til eftirbreytni í viðsjálum heimi og ég vona að í framtíðinni muni öðrum þjóðum famast eins vel og okkur," sagði Day Olin Mount. Grímseyingum bárast gjafir frá sendiráði Bandaríkjanna og Fiske- stofnuninni í Reykjavík, 500 dollara peningagjöf og kassi af bókum frá Bandaríkjunum. KRISTJÁN Karlsson, sem starfaði við Fiske-safnið í Corn- ell, flutti fróðlegt erindi um Willard Fiske. Halldór Blöndal samgöng- uráðherra hefur áður tekið þátt í hátíðarhöldum með Grímseyingum á þessum degi. Sagði Halldór 11. nóvember þjóðhátíðardag Grímsey- inga, þar sem ungir sem aldnir kæmu saman til að minnast velgjörðarmanns síns og væri það sérstök upplifun að taka þátt í þeirri hógværa gleði sem efnt væri til, en hún lýsti samheldni og þraut- seigju eyjarskeggja. Var samgöng- uráðherra ekki í vafa um að minn- ing Fiske væri heilög í hugum Grímseyinga, hvatning og áminning um samheldni og kjark. „Það er gaman að vera hér á þessum degi,“ sagði Halldór. Tveir af þekktustu skákmeistur- um landsins, Jóhann Hjartarson og Friðrik Ólafsson, settust að tafli, auk þess sem Friðrik flutti ávarp. Fram kom í máli Friðriks að fram- lag Fiske til skáklistarinnar á Is- landi væri ómetanlegt. í raun hefði Fiske lagt granninn að þeirri skák- mennt sem við búum við nú. Skólabörn í eynni fluttu einnig dagskrá, sungu nokkur lög og fluttu fróðleik um Fiske. Þá stóð Kven- félagið Baugur fyrh' kaffisamsæti, þar sem gestum var boðið upp á glæsilegar veitingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.