Morgunblaðið - 12.11.1998, Blaðsíða 70
MORGUNBLAÐIÐ
70 FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998
:
Leikur a mbUs
Taktu þátt í skemmtilegum
netleik á mbl.is og þú getur
unniö bíómiöa á The
Avengers, geisladisk meö
tónlistinni frá Spori, Músík
og myndum eöa glæsilegan
herra- eöa dömufatnaö aö
verömæti 35.000 krónur frá
tískuversluninni Centrum.
llm þossar mundir or njosnamyndin
Tho Avongors frumsynd on hun or
gorð i anda samnofndra sjónvarps-
þatta som nutu vinsælda a sjöunda
aratugnum. Myndin shartar goðum
lcihurum s.s. Uma Thurman, Soan
Connory og Ralph Fionnos otf or talin
likjast að nokhru Mission Impossiblo
og Jamos Bond myndunum.
FRÉTTIR
Rætt um rafmagn, vetni
og gas í samgöngum
RAFMAGN, vetni og gas - nýir
valkostir í ílutningum og samgöng-
um, er heiti á ráðstefnu og sýningu
um umhverfisvænni farkosti en nú
gefast sem haldin verður í Ráðhúsi
Reykjavíkur fóstudaginn 20. nóv-
ember næstkomandi. Þar munu ís-
lenskir og erlendir sérfræðingar
fjalla um tækniútfærslur á um-
hverfisvænni farartækjum, um að-
gerðir á næsta ári og stefnumótun.
Að ráðstefnunni standa Iðn-
tæknistofnun Islands, Landsvirkj-
un og Rafmagnsveita Reykjavíkur í
samstarfi við Samorku, Sorpu og
ráðuneyti umhverfismála, sam-
gangna og iðnaðar. Þá verða sýnd-
ar vistvænar vélar og farartæki,
m.a. frá þremur bílaumboðum,
Toyota, Jöfri og ístraktor, og
kynnt verður ýmislegt efni sem
tengist umfjöllunarefni ráðstefn-
unnar. Verður sýningin opin áfram
alla þá helgi.
Markmiðið með ráðstefnuhaldinu
er að vekja áhuga á nýjum orku-
gjöfum og möguleika þess að velja
vistvænni orku, meta áhrif nýrra
orkugjafa í samgöngum og flutn-
ingum og draga fram líklega þróun.
I dagskrárhefti ráðstefnunnar
kemur fram að á Islandi séu nú um
125 þúsund fólksbílar í umferð og
staðhæft er að í Reykjavík sé út-
blástur frá bílum einn stærsti
mengunarþátturinn. Gera megi ráð
fyrir að hver bensínbíll sleppi frá
sér fjórum tonnum af koltvísýringi
árlega og þannig gætu 50 þúsund
rafbílar sem kæmu í stað jafn-
margra bensínbíla minnkað heild-
arútstreymi um 200 þúsund tonn.
Er það um 10% af heildarlosun ís-
lendinga á koltvísýringi.
Námstefna Félags
eldri borgara
Betri heilsa og
meiri hamingja
á efri árum
FÉLAG eldri borgara mun næstu
tvær helgar gangast fyrir náms-
stefnu þar sem fremstu menn halda
erindi um ýmislegt, sem hefur áhrif
á heilsufar fólks á efri árum. Bent
er á mörg atriði, sem geta skapað
fólki betri heilsu.
Erindi flytja: Laugardag 14. nóv-
ember kl. 13-17:
Sögusagnir um ellina, Pálmi
Jónsson, yfirlæknir, Forðist sjúk-
dóma og fötlun, Pálmi -Jónsson, yfir-
læknir, Slitgigt og liðskipti, Ríkarð-
ur Sigfússon, læknir, Kynlíf aldr-
aðra, Guðm. Vikar Einarsson, lækn-
ir og Benedikt Sveinsson, læknir.
Laugardag 21. nóvember kl.
13-17:
Hreyfing og hreysti, Guðrún Ni-
elsen íþróttakennari og Bergþóra
Baldursdóttir, sjúkraþjálfari, Bein-
þynning, Gunnar Sigurðsson, pró-
fessor, Augnsjúkdómar aldraðra,
Einar Stefánsson, prófessor, Þvag-
leki, Þór Halldórsson, yfirlæknir,
Fjármál aldraðra, Hrafn Magnús-
son, framkvæmdastjóri og Gunnar
Baldursson, forstöðumaður.
Ennþá er hægt að komast að en
væntanlegir þátttakendur eru beðn-
ir að hringja í skrifstofu FEB.
Háskólafyrir-
lestur um
friðargæslu SÞ
DR. THANT Myint-U, fræðimaður
við Trinity College í Cambridge-há-
skóla, flytur opinberan íyrirlestur í
boði heimspekideildar Háskóla ís-
lands og Alþjóðamálastofnunar Há-
skóla fslands föstudaginn 13. nóv-
ember kl. 16.15.
I íýrirlestrinum mun Thant My-
int-U fjalla um friðargæslu Samein-
uðu þjóðanna og þá sérstaklega út
frá reynslu sinni í Bosníu og öðrum
hlutum fyrrverandi Júgóslavíu.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku.
Thant Myint-U lauk doktorsprófi
í sagnfræði frá Cambridge-háskóla
árið 1996 með ritgerð um nýlendu-
stjórn Breta í Burma á síðari hluta
19. aldar. Thant Myint-U hefur víð-
tæka reynslu af starfi fyrir Samein-
uðu þjóðirnar, en á árunum
1987-1993 vann hann á vegum sam-
takanna að ýmsum verkefnum í As-
íu, m.a. sem aðstoðarmaður for-
stjóra eftirlitsskrifstofu mannrétt-
indamála í Kambódíu. Arin
1994-1995 var hann talsmaður frið-
argæslusveita Sameinuðu þjóðanna
í Sarajevó og 1996 var hann sér-
stakur sendimaður aðalritara SÞ í
Bosníu-Herzegóvínu.
Fyrirlesturinn er öilum opinn og
verður haldinn í stofu 101 í Lög-
bergi.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
DANSPÖRIN Halldóra Ósk
Reynisdóttir og Isak Nguyen
Halldórsson og Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Sigrún Ýr
Magnúsdóttir.
Tvö íslensk
danspör
keppa í
Hollandi
ÍSLANDSMEISTARARNIR í 10
dönsum, Isak Nguyen Halldórs-
son og Halldóra Ósk Reynis-
dóttir og Gunnar Hrafn Gunn-
arsson og Sigrún Ýr Magnús-
dóttir, sem lentu í 2. sæti á ís-
landsmeistaramótinu um helg-
ina eru á leið til Hollands til
þátttöku í stórri alþjóðlegri
danskeppni „Open Dutch
Championships 1998“ sem hald-
in er í Slageren í Hollandi dag-
ana 13., 14. og 15. nóvember.
Þetta er ein af stærri opnu
danskeppnum heims. Skemmst
er að minnast árangurs Isaks
og Halldóru á German Open í
ágúst þar sem þau lentu í 5.
sæti í latin-dönsum og árangurs
Gunnars Hrafns og Sigrúnar Ýr
frá því í London í haust þar sein
þau lentu í 3. og 4. sæti einnig í
latin-dönsum.
Hver hefur
rétt til að dæma
Pinochet?
MÁLFUNDAFÉLAG alþjóðasinna
heldur málfund um efnið: Heims-
valdasinnar hafa ekki rétt til að
dæma Pinoceht; hverjir eru lær-
dómar af ríkisstjórn Allende í Chile
1970-73, föstudaginn 13. nóvember
kl. 17.30 á Klapparstíg 26, 2. hæð.
Frummælendur eru Sigurður J.
Haraldsson, félagi í Ungum sósí-
alistum og Gylfi Páll Hersir, félagi í
Dagsbrún-Framsókn.