Morgunblaðið - 12.11.1998, Blaðsíða 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
Það besta
úr báðum heimum!
[
unix og NT = hp
OPINKERFIHF
f/ffl| hewlett
mL tíÆ PACKAPD
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Skortur
á dag-
mæðrum
MIKILL skortur er á vist fyrir
börn hjá dagmæðrum í vesturbæ
Reykjavíkur og miðbænum. Dag-
mæður þurfa starfsleyfi hjá Dagvist
barna og er þeim heimilt að hafa að
hámarki fimm börn í vist. Astandið
er betra í úthverfum borgarinnar.
Bergur Felixson, framkvæmda-
stjóri Dagvistar barna, segh- að
þensla á vinnumarkaði hafi áhrif á
framboð á vistun hjá dagmæðrum.
„Það bjóðast færri dagmæður til
starfa núna,“ sagði Bergur.
Hann sagði að vandræðaástand
væri hjá sumum foreldrum en Dag-
vist bai'na hefði engin úrræði fyrir
þá. Biðlisti væri hjá dagmæðrum í
vesturbænum og í miðbænum.
Hann sagði að starfandi dagmæðr-
um hefði fækkað að undanfórnu og
einnig hefði leikskólapláss aukist í
borginni. „En þenslan á vinnumark-
aðnum veldur því að fólk sækir síð-
ur í störf af þessu tagi,“ sagði Berg-
ur.
Stórmeistar-
ar í „Fiske-
afmæli“ í
Grímsey
SANNKÖLLUÐ hátíðarstemmn-
ing ríkti í Grímsey í gær, er eyjar-
skeggjar og góðir gestir af fasta-
landinu minntust fæðingardags
Willards Fiske. Afhjúpaður var
minnisvarði um Fiske, sem gefinn
var af Kiwanisklúbbnum Grími.
Willard Fiske var Bandaríkja-
maður sem var uppi 1831-1904.
Þótt iiann hafi aldrei komið til
Grímseyjar, heillaðist hann mjög
af Grímsey og eyjarskeggjum og
studdi þá af mikium myndarskap.
Fiske var mikill skákáhugamaður
og gaf tafl á hvert heimili í eynni.
Stórineistararnir Jóhann Hjart-
arson og Friðrik Ólafsson voru á
meðal gesta af fastalandiuu í
„Fiske-afmælinu“ og settust þeir
að tafli. Hér fylgjast yngstu
Grímseyingarnir með þeim félög-
um etja kappi á taflborði sem
Fiske gaf á sínum tíma.
■ Minnisvarði/20
Deila meinatækna og Ríkisspítala er komin í hnút á nýjan leik
Morgunblaðið/Kristján
Meinatæknar hafa engan
áliug a á en du rráð niiigu 111
DEILA meinatækna og viðsemj-
enda þeirra fór í hnút á nýjan leik í
gær og enginn þeirra réð sig til
starfa á Landspítalanum eins og út-
lit var fyrir eftir samningalotu í
fyrrakvöld.
Nokkrir meinatæknanna hugðust
hefja störf í gær og aðrir næstu
daga, en þeir hættu við þegar í ljós
kom að einum meinatæknanna var
gert að sækja skriflega um stöðu
sína. Um er að ræða yfirmanns-
stöðu og rennur umsóknarfrestur
um hana út 15. nóvember.
Verulegur vilji var fyrir hendi
Meinatæknarnir komu saman til
fundar í gærkvöld og að honum
loknum sagði Anna Svanhildur Sig-
urðardóttir, talsmaður meinatækn-
anna, að þeir væru sárir út í Ríkis-
Morgunblaðið/Kristinn
MEINATÆKNAR komu saman í gærkvöld til þess að ræða stöðuna.
spítaia og engan langaði til að end-
urráða sig þai'.
„Eg held að fólk sé bara að
sleikja sárin. Ég veit ekki hver
framvindan verður og það er eins
og það megni bara enginn að gera
neitt í þessari stöðu. Við höfum ekki
einu sinni athugað hver fyrir sig
hver persónuleg staða verður þegar
komið er til baka og fólk hefur
hreinlega ekki haft orku í að skoða
það hvort fleiri þurfi að sækja um
stöður sínar,“ sagði Anna Svanhild-
ur.
Hún sagði meinatæknana hafa
undrast hve mikil pressa væri lögð
á þá af hálfu viðsemjendanna og til-
gangurinn væri greinilega sá að
koma þeim úr jafnvægi en það virk-
aði einfaldlega ekki lengur.
„Það var verulegur vilji hjá fólki
að koma inn aftur og ljúka þessu
ástandi en sá vilji er ekki lengur
fyrir hendi og framhaldið er óráðið.
Við reiknum svo sem ekki með
neinu en okkur liggur ekkert á
núna,“ sagði Anna Svanhildur.
Kaupir allan hlut
ÍS í Vinnslustöð-
inni og Ishafí
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Ker
ehf., dótturfélag Olíufélagsins hf.,
gekk í gær frá kaupum á öllum
hlutabréfum Islenski'a sjávarafurða
hf. í Hlutabréfasjóðnum Ishafi hf. og
Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyj-
um. Kaupverð er 650 milljónir króna.
Nafnverð keyptra hluta í Hluta-
bréfasjóðnum Ishafi er tæpar 322
milljónir króna sem er um 56% af
heildarhlutafé félagsins. Nafnverð
keyptra hluta í Vinnslustöðinni er
rúmar 118 milljónh' króna sem er
tæplega 9% af heildarhlutafé
Vinnslustöðvarinnar.
Olíufélagið hf. og Ker ehf. eiga
fyrir eignarhluti í Vinnslustöðinni og
helstu félögum sem Hlutabréfasjóð-
urinn Ishaf er eignaraðili að. Mark-
mið með kaupunum er að stuðla að
endurskipulagningu félaganna og
aukinni arðsemi þeirra í framtíðinni,
að því er segir í fréttatilkynningu,
sem undirrituð er af Geir Magnús-
syni, forstjóra Olíufélagsins, og Her-
manni Hanssyni, stjórnarformanni
ÍS.
Af hálfu Islenskra sjávarafurða er
sala hlutabréfanna liður í fjárhags-
legri endurskipulagningu félagsins
og í samræmi við þá stefnumörkun
þess að fjárfesta öðru fremur í
markaðsstarfi en ekki í framleiðslu-
fyi'irtækjum sjávarafurða.
Fjármálaráðherra fjallar um Efnahags- og myntbandalagið
Inntökuskilyrði orðin al-
þjóðleg’ lágmarkseinkunn
INNTÖKUSKILYRÐIN fyrir aðild
að Efnahags- og myntbandalagi
Evrópu (EMU) gera ekki aðeins
kröfur til aðildarríkjanna, heldur
eru orðnar að „eins konar lág-
markseinkunn í efnahagslegu tilliti
á alþjóðlegum vettvangi“, að því er
kom fram í ræðu, sem Magnús Pét-
urssori, ráðuneytisstjóri í fjái-mála-
ráðuneytinu, flutti fyrir hönd Geirs
H. Haarde fjármálaráðherra á ráð-
stefnu um áhrif evrunnar á íslenska
hagsmuni í gær.
„Þau ríki, sem ekki uppfylla skil-
yrðin, fá einfaldlega ekki sæti í úr-
valsdeild alþjóðaefnahagsmála,“
sagði í ræðunni. „Það þýðir að þessi
ríki njóta lakari lánskjara og eru á
annan hátt talin ótryggari en ríki,
sem uppfylla aðildarskilyrðin."
Þriggja ára aðlögunartími
Evran verður tekin í notkun í 11
ríkjum Evrópusambandsins um
áramót. Gert er ráð fyrir þriggja
ára aðlögunartíma í aðildarlöndun-
um, en eftir 1. janúar árið 2002
verði evran eini gjaldmiðill svæðis-
ins;
I ræðu fjármálaráðherra kom
fram að búast mætti við því að um
leið og alþjóðamarkaðurinn mæti
stöðuna þannig að hagstjórn væri
að fara úr böndum kæmi refsingin í
formi kröfu um hærri vexti eða
þrýstings á gengi.
Vegna evrunnar og aukinnar al-
þjóðavæðingar væru nú gerðar
miklar kröfur um ábyrga hagstjórn
í löndum, sem vildu láta taka sig al-
varlega á alþjóðlegum vettvangi:
„Þetta þýðir einkanlega, hvort sem
okkur líkar betur eða verr, að þau
lönd, sem standa utan bandalagsins,
þurfa að setja markið hærra en gert
er innan þess.“
■ Lönd utan EMU/44