Morgunblaðið - 12.11.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.11.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSIOFri AIVINNULÍF FRÉTTIR Stjórnarfrumvarp lagt fram á Alþingi Allt hlutafé ríkis- sjóðs í FBA verði selt á næsta ári LAGT hefur verið fram á Alþingi stjómarfrumvarp til laga um að heimilt verði að selja allt hlutafé ríkissjóðs í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins hf. (FBA). Frumvarpið er lagt fram í kjölfar þeirrar stefnumótunar ríkisstjórn- arinnar að hraða beri sölu hlutafjár í FBA og að stefna beri að því að allt hlutafé ríkissjóðs í bankanum verði selt á fyrri hluta ársins 1999 ef aðstæður leyfa. í athugasemdum við frumvarpið kemur m.a. fram að það sé mat ríkisstjómarinnar að hraða sölu hlutafjár í FBA einkum vegna þess að engin rök hnígi lengur að því að ríkið sé stór eigandi hlutafjár í bankanum. „Það er sameiginleg af- staða stjórnvalda og stjórnenda bankans að staða bankans á sam- keppnismarkaði verði betur tryggð með því að ríkið selji allan hlut sinn og að engin ástæða sé til lengri aðlögunartíma. Þá er sala hlutafjár í bankanum liður í aðgerðum til að sporna við þenslu, auk þess sem ríkissjóður fær góðar tekjur af söl- unni.“ Áfram stefnt að dreifðri eignaraðild Þá kemur fram að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvemig staðið verði að sölu umrædds hlutafjár í bankanum. Hins vegar er vísað í yf- irlýstan vilja stjómvalda um að áfram verði stefnt að dreifðri eign- araðild og sjálfstæði FBA sem sam- keppnisaðila á íslenskum sam- keppnismarkaði. Miðað sé við að hlutdeild hvers aðila í fmmsölu verði ekki hærri en sem nemur 5-10% hlutafjár í bankanum og hugað verði að skráningu félagsins á hlutabréfamarkaði erlendis, auk skráningar á Verðbréfaþingi Is- lands. Hagnaður FBA fyrstu sex mán- uði þessa árs var 349 m.kr. og var það 11% umfram áætlanir félagsins. Þá er eigið fé nú 8.474 m.kr. Morgunblaðið/Kristinn Snarsnerist í hálkunni STRÆTISVAGN snarsnerist í hálkunni, sem myndaðist síðdeg- is í gær, og lenti á ljósastaur eft- ir að hafa lent í árekstri við fólksbíl sunnan í Hraunsholts- hæð í Garðabæ. Var vagnstjór- inn að reyna að koma í veg fyrir aftanákeyrslu með þessum af- leiðingum. Að sögn lögreglunn- ar í Hafnarfirði varð hvorki farþegum né ökumönnum meint af og skemmdir voru ekki telj- andi. Umferð tafðist á tímabili þegar löng bflalest myndaðist en að sögn lögreglu voru það mest forvitnir vegfarendur, sem vildu fylgjast með framvindu mála. Nýr búnaður skráir viðskiptavini inn á líkamsræktarstöðvar Fingraför tekin af viðskiptavinum NYR búnaður sem sinnir skráningu viðskiptavina er þessa dagana að komast í gagnið hjá líkamsræktar- stöðinni World Class. Sambærileg- ur búnaður hefur verið til staðar í Hreyfingu frá því í byrjun septem- ber og hefur reynst vel. Búnaðurinn virkar þannig að þegar nýr gestur kaupir sér aðgang að líkamsrækt leggur hann þumal- fíngur á sérstakan nema sem leggur fingrafarið „á minnið“ og tengir nafni viðskiptavinarins og sérstöku númeri um leið. í hvert sinn sem gesturinn mætir, leggur hann þumalfingurinn á skráningarvélina og slær um leið inn númerið sitt. Ef númer og far passa ekki saman, eða ef aðgangur gestsins að stöðinni er útrunninn, hringja viðvörunarbjöll- ur og afgreiðslufólk kemur til skjal- anna enda neitar kerfið að opna hliðið. „I framtíðinni mun þumalfingur- inn duga til þess að opna hliðið, númerin detta út og afgreiðslan verður þannig skilvirkari," sagði Ágústa Johnsen, hjá Hreyfingu, við Morgunblaðið. „Við notum þessar upplýsingar hér eingöngu til þess að fylgjast með gildistíma líkamsræktarkorta og mér hefur satt að segja ekki dottið í hug að hægt væri að gera eitthvað annað við þetta,“ sagði hún, aðspurð hvort hún teldi að búnaðurinn samræmdist lögum um persónuvernd. Hún sagði svipaðan búnað vera notaðan í Bandaríkjunum, Þýska- landi og víðar, og að hér á landi væru fordæmi fyrir svokölluðum handskönnum þar sem öll höndin er lögð fram í stað fingurs. Brýtur ekki í bága við reglur „Ég hef aldrei haft áhyggjur af því að þetta kerfi bryti í bága við settar reglur því það geymir engar upplýsingar sem hægt er að nýta á annan máta,“ sagði Gunnar Jacob- sen, kerfisfræðingur og hönnuður umrædds hugbúnaðar. „Fingráförin eru skönnuð inn en geymd á þannig sniði (formati) að enginn, hvorki ég né annar, getur nýtt sér til annarra verka. Förin eru ekki geymd sem myndir líkt og hjá lögreglunni, og gefa þannig eng- ar upplýsingar um einstaklinginn," sagði hann. Björn Leifsson, eigandi World Class, sagðist sannfærður um að búnaðurinn stæðist lög og reglur enda væri ekki hægt að afkóða talnarunurnar sem samsvara fingraförunum. „Ýmsir staðir nota myndir af viðskiptavinum sínum til þess að skrá þá inn og safna þar með mun meiri persónuupplýsing- um en við. Ég ætti kannski að koma upp myndavélarauga í afgreiðslunni líka?“ sagði Björn og bætti við að þá fyrst yrði hægt að tala um per- sónunjósnir. MEÐ blaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýsinga- blað frá Nóatúni. Bjarnólfur gerir tveggja ára samning við Walsall / C1 Sebastian varði átta vítaköst frá Haukum / C3 Fasanar í Laugardal í FJÖLSKYLDU- og húsdýra- garðinum í Laugardal er að finna íjölmargar dýrategundir sem ýmist teljast til hús- eða villtra dýra. Alls eru þetta 22 tegundir sem eru allan ársins hring í garðinum en svo eru líka ýmsar fuglategundir sem eiga þar við- dvöl. Nýjustu meðlimir þessarar fjöl- breyttu fánu eru 3 ungir fasana- hanar sem komu í garðinn á föstudaginn. Hanarnir komu frá bænum Hafrafelli, sem er austur á Héraði, en þar er verið að gera tilraunir með ræktun fasana. Fasanarnir eru litskrúðugir með afbrigðum og mjög glæsilegir á að h'ta. j o mmm MEÐ blaðinu í dag fylgir átta síðna auglýsinga- blað í stóru broti frá Ný- kaup. Blaðinu er eingöngu dreift á höfuðborg- arsvæðinu. HUGBÚNAÐUR UMBÚÐIR Memphis í landvinníngum Þrengingar fyrirtækja Tugmilljóna samingar í burðarliðnum/D 1 Harðnandi samkeppni á markaði/D8 Forsætisráðherra í Þýzkalandsheimsókn Viðræður við Kohl og Schröder DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hélt að afloknu þingi Norðurlanda- ráðs í Osló til Bonn, þar sem hann mun í dag eiga fund með Helmut Kohl, fyiTverandi kanzlai-a Þýzka- lands. Á morgun hittir Davíð Gerhard Schröder, arftaka Kohls, en hann mun einnig ræða við Joschka Fischer utanríkisráðherra og Wolf- gang Seháuble, sem tekið hefur við af Kohl sem flokksformaður Kristi- legra demókrata og leiðtogi stjórn- arandstöðunnar eftir að jafnaðai’- menn og Græningjar mynduðu nýja stjórn eftir 16 ára valdatíð Kohls. í gær hélt Davíð erindi um „Is- land í alþjóðlegu samhengi" hjá Konrad-Adenauer-stofnuninni í Sankt Augustin hjá Bonn, að viðstöddum mörgum áhrifamönn- um úr þýzku stjórnmálalífi. Kon- rad-Adenauer-stofnunin er pólitísk rannsóknastofnun, sem tengist flokki kristilegra demókrata. Gistir í opinberu gestahúsi ríkisstjórnarinnar Þótt ferð forsætisráðherra til Bonn hefði að þessu sinni verið skipulögð sem óopinber heimsókn buðu þýzk stjórnvöld honum að dvelja í opinberu gestahúsi ríkis- stjórnarinnar á Petersberg- hæðinni íyrir ofan Bonn. Meðal ný- legra gesta í húsinu eru Bill Clinton Bandaríkjaforseti, Borís Jeltsín Rússlandsforseti og Elísabet II Englandsdrottning. í lok heimsóknarinnar mun Davíð skoða aðstæður í Berlín, þar sem verið er að reisa nýtt sendiráð Islands á sömu lóð og sendiráð hinna Norð- urlandanna. Erlendir sendierindrekar í Þýzka- landi flytja frá Bonn til Berlínar þegar stjórnarstofnanirnar flytja þangað, en stefnt er að því að af því verði næsta sumar. Karlmaður tekinn með fíkniefni á Akureyri KARLMAÐUR var handtekinn á Akureyri fyrr í vikunni en hann reyndist hafa í fórum sín- um 5 grömm af hassi og 10 grömm af amfetamíni. Var maðurinn færður í fangahús vegna rannsóknar málsins. Við yfirheyrslu viður- kenndi hann að eiga fíkniefnin. í tengslum við rannsókn málsins var annar maður hand- tekinn og viðurkenndi sá að eiga um helming efnanna. Báð- um mönnunum var sleppt að lokinni yfirheyrslu hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri. í dag www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.