Morgunblaðið - 12.11.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.11.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 258. TBL. 86. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bandarikjamenn undirbúa hugsanlegar loftárásir á skotmörk í Irak Senda 129 herflugvélar og liðsauka til Persaflóa Marrakech, London, Sanieinuðu þjóðunum, Tel Aviv, Bagdad, Washington, Kaíró, Bonn. Reuters. Bandarískum sendiráðsmönnum heimilað að fara frá Kúveit og Israel Reuters ÍRAKAR halda á matvælapokum frá Rauða krossinum og Rauða hálf- mánanum í Bagdad. Irakar eru teknir að birgja sig upp af matvælum vegna liugsanlegra hernaðaraðgerða Bandaríkjamanna. BANDARÍSKA varnarmálaráðu- neytið ákvað í gær að senda 129 her- fiugvélar og 3.000 manna liðsauka til herstöðva við Persaflóa á næstu dög- um og talið er mjög líklegt að Bandaríkjamenn grípi til hernaðar- aðgerða gegn írak vegna þeirrar ákvörðunar þarlendra stjómvalda að slíta samstarfí við vopnaeftirlits- nefnd Sameinuðu þjóðanna, UNSCOM. Bill Clinton Bandaríkja- forseti sagði að Bandaríkjamenn væru „tilbúnir tii aðgerða" ef Irakar hæfu ekki samstarf við nefndina að nýju en ráðamenn í arabaiákjunum og Rússlandi sögðust andvígir því að hervaldi yrði beitt. Clinton kvað Saddam Hussein Iraksforseta stefna stöðugleika á Persaflóasvæðinu í hættu og sagði að Irakar myndu geta framleitt gjör- eyðingarvopn innan nokkurra mán- aða ef vopnaeftirlitinu yrði hætt. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði að Saddam Hussein færi villur vegar ef hann héldi að er- lend ríki myndu heykjast á því að beita íraka hervaldi, endurskoðuðu þeir ekki ákvörðun sína um að slíta samstarfi við eftirlitsnefndina. AUt starfsfólk SÞ farið frá írak Kofí Annan, framkvæmdastjóri SÞ, batt í gær enda á heimsókn sína til Norður-Afríku og hélt aftur til New York vegna deilunnai'. Fyrr um daginn hafði Annan ítrekað áskorun sína til íraksstjórnar um að taka aft- ur upp samstarf við UNSCOM. Allir starfsmenn SÞ í írak fóru fyrirvaralaust frá landinu í gær- morgun að beiðni Bandaríkjamanna. Heimiluðu Bandaríkjamenn einnig hluta starfsliðs sendh'áða sinna í Kúveit og Israel að fara þaðan í var- úðarskyni nú þegar auknar líkur eru á að hafnar verði hernaðaraðgerðir gegn Irak. Ráðlögðu þeir einnig bandarískum ríkisborgurum að hafa sig á brott. Hið sama gerðu Bretar og ísraelar sögðust vera við öllu búnir en í Persaflóastríðinu 1991 létu írakar sprengjum rigna yfir ísrael. Henry Shelton, yfirmaður banda- ríska herafians, sagði í samtali við CNN að írökum hefði verið gefinn nægur tími til að endurskoða ákvörðun sína og að héðan í frá væru allir kostir í stöðunni til athugunar þótt reyndar hefði ekki enn verið tekin ákvörðun um hernaðaifhlutun. Var hins vegar haft eftir Tai-eq Aziz, aðstoðarforsætisráðheiTa íraks, að stjórnvöld í Bagdad léðu ekki máls á því að endurskoða ákvörðun sína þrátt fyrir hættu á loftárásum bandamanna. Loftárásir gætu hafist innan tveggja vikna Bandaríkjamenn fyrirskipuðu í gærkvöldi flutning 129 herflugvéla, m.a. stórra sprengjuþotna, og meira en þrjú þúsund hermanna til her- stöðva við Persaflóa vegna hugsan- legra hernaðaraðgerða. Khalid Shahab al-Douri, yfirmaður utanrík- isnefndar þingsins í Irak, sagðist vitaskuld vonast til að ekki yrði af loftárásum Bandaríkjamanna en að írakar myndu verja hendur sínar og fósturjörðina ef til þess kæmi. Hvatti Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, Iraka til að gefa eftir í deilunni en ítrekaði að hann væri hlynntur því að hún yrði leyst með friðsamlegum hætti. „Eg veit ekki til að nokkur arabaþjóðanna styðji beit- ingu hervalds í Irak,“ hafði dagblað í Kaíró eftir Mubarak. Rússar sögðust einnig vera and- vígir hernaðaríhlutun en hvöttu Iraka jafnframt til að hefja aftur samstarf við UNSCOM. Vakti at- hygli að Joschka Fischer, utanríkis- ráðherra Þýskalands, sem ræddi við hinn rússneska starfsbróður sinn í Moskvu í gær, lýsti því yfir að hann væri andvígur hemaðaríhlutun. Kvaðst hann efast um að árásir bæru tilætlaðan árangur. Vestrænir stjómarerindi'ekar sögðu að loftárásir kynnu að hefjast innan tveggja vikna. Mál Clintons Ekki svipt- ur embætti en saksótt- ur síðar? New York. Reuters. BANDARÍSKI öldungadeild- arþingmaðurinn Ai'len Specter lagði til í gær að Bandaríkja- þing hætti við rannsókn á máli Bills Clintons forseta, sem leitt gæti til málshöfðunar til emb- ættismissis, og greiddi fyrir því að forsetinn yrði sóttur til saka eftir að hann lætur af embætti í janúar árið 2001. „Málinu væri þá lokið af hálfu þingsins og dómstólarnir látnir um að leiða það til lykta, þannig að almenningsálitið, kosningar og flokkadrættir myndu ekki hafa áhrif á með- ferð þess,“ skrifaði Specter, repúblikani frá Pennsylvaníu, í New York Times. Ráðgert er að dómsmála- nefnd fulltrúadeildarinnar yf- irheyri Kenneth Starr, sem stjórnaði fjögurra ára rann- sókn á málum Clintons og hef- ur sakað forsetann um að hafa framið meinsæri og lagt stein í götu réttvísinnar til að reyna að leyna sambandi sínu við Monicu Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku í Hvíta húsinu. Repúblikanar í dómsmála- nefndinni hafa sagt að þeir ætli ekki að hætta við rann- sóknina þrátt fyrir slæmt gengi repúblikana í kosningun- um í vikunni er leið og skoð- anakannanir sem benda til þess að málshöfðun til emb- ættismissis njóti lítils stuðn- ings meðal almennings. ísraelar staðfesta friðarsamning en vara PLO við sjálfstæðisyfirlýsingu Hóta að innlima hernumin svæði Jerúsalem. Reuters. STJÓRN ísraels staðfesti í gær samninginn við Palestínumenn um að hún flytti herlið sitt frá 13% Vestur- bakkans til viðbótar í áfóngum á næstu þremur mánuðum. Stjórnin setti þó ýmsa fyrirvara, sem gætu orðið til þess að samningnum yrði ekki komið í framkvæmd að fullu, og Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra Israels, hótaði að innlima í reynd hluta Vesturbakkans í ísrael ef Palestínumenn lýstu yfir stofnun sjálfstæðs ríkis án samþykkis Israela. Samningurinn var samþykktur með átta atkvæðum gegn fjórum í atkvæðagreiðslu í stjórn Netan- yahus. Fimm ráðherrar sátu hjá og samningurinn fékk því ekki stuðning meirihluta ráðherranna 17. Stjórnin staðfesti samninginn með fyrirvara um að Frelsissamtök Pal- estínumanna (PLO) samþykktu í at- kvæðagreiðslu á fundi, sem ráðgerð- ur er í næsta mánuði, að ógilda gi-ein í stofnskrá sinni þar sem hvatt er til tortímingar ísraelsríkis. Palestínu- menn höfnuðu þessari kröfu og bentu á að ekki er kveðið á um at- kvæðagreiðslu í samningnum. Samkvæmt samningnum á brott- flutningur ísraelskra hersveita að hefjast á mánudaginn kemur, en Arafat hefm- þó fallist á að því verði frestað um nokkra daga. Netanyahu sagði að stjórnin myndi koma aftur saman þegar fyrsta áfanganum lyki til að meta hvort Palestínumenn hefðu staðið við skuldbindingar sínar. Hótun Arafats ítrekuð Heimildarmenn úr röðum ísra- elskra stjórnmálamanna sögðu að á meðal þriggja annai-ra skilyrða, sem stjórnin hefði sett, væri að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, félli frá þeiiri hótun sinni að lýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis ef samkomu- lag næðist ekki um framtíðarstöðu sjálfstjórnarsvæðanna fyrir 5. maí. Hassan Asfour, samningamaður Pal- estínumanna, áréttaði þessa hótun eftir viðvörun Netanyahus í gær. Reuters Stríðsloka minnst í París JACQUES Chirac, forseti Frakk- lands, og Elísabet Bretadrottning tóku í gær þátt í hátíðahöldum í París í tilefni af því að 80 ár eru lið- in frá lokum fyrri heimsstyrjaldar- innar. Þjóðhöfðingjarnir lögðu blómsveiga að gröf óþekkta her- mannsins, sem var jarðsettur undir Sigurboganum til minningar um þá sem féllu í styrjöldinni. Bretadrottning afhjúpaði einnig þessa 3,2 m háu bronsstyttu af Win- ston Churchill, forsætisráðherra Bretlands í síðari heimsstyrjöldinni, við bakka Signu. Drottningin hélt síðan til Belgíu og tók þátt í minn- ingarathöfn í flæmska bænuin Mesen ásamt Mary McAleese, for- seta Irlands, og er þetta í fyrsta sinn sem þjóðhöfðingjar Bretlands og Ir- lands koma fram saman við opin- bera athöfn. Drottningin skoðaði einnig belgíska bæinn Ieper, sem var lagður í rúst í fyrri heimsstyij- öldinni. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, ákvað að taka ekki þátt í hátíðahöldunum í París og tals- maður hans sagði í gær að hann hefði ekki getað það vegna anna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.