Morgunblaðið - 12.12.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
284. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR12. DESEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLADSINS
Óttast að hundrað manns hafí farist þegar flugvél brotlenti við slæm veðurskilyrði í Taflandi
Reuters
TVEIR af farþegum Airbus-vélarinnar halla sér hvor upp að öðrum eftir að hafa verið bjargað út úr flakinu.
Dómsmálanefnd samþykkir ákæru á hendur Bill Clinton
Segist sætta sig
við ávítur þingsins
Washington. Reuters.
DÓMSMÁLANEFND fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings samþykkti
í gær að senda ákærur á hendur Bill
Clinton Bandaríkjaforseta til emb-
ættismissis til afgreiðslu í fulltrúa-
deildinni. Var hér um að ræða
fyrstu tvær ákærur af fjórum á
hendur forsetanum en ekki var ljóst
þegar Morgunblaðið fór í prentun
hvort allar fjórar yrðu samþykktar.
Féllu atkvæði nokkuð nákvæmlega
eftir flokkslínum, en í nefndinni
sitja tuttugu og einn repúblikani og
sextán demókratar.
Akvörðun dómsmálanefndarinnar
kom ekki á óvart, enda eru
repúblikanar þar í meirihluta, og
hafði Bill Clinton skömmu áður flutt
stutt ávarp í Hvíta húsinu vegna yf-
irvofandi niðurstöðu. Sagðist hann
afar leiður yfir
því að hafa blekkt
þjóð sína um sam-
band sitt . við
Monicu Lewinsky
og kvaðst tilbúinn
til að sætta sig við
að Bandaríkja-
þing vítti hann
fyrir blekkingarn-
ar. Verður einmitt í dag, laugardag,
tekin fyrir í dómsmálanefndinni til-
laga demókrata um að látið verði
nægja að víta forsetann, en afar
ósennilegt er að hún verði samþykkt.
,Ákveði þeir að mistök mín séu verð
ávítna þá mun ég sætta mig við það.“
Talið er að forsetinn hafi með
ávarpi sínu viljað höfða til hófsamra
repúblikana sem líklegir eru til að
ráða úrslitum í atkvæðagreiðslu í
þinginu. Forsetinn gekkst hins veg-
ar ekki við því að hafa framið mein-
særi, eins og margir repúblikana
hafa sagt nauðsynlegt eigi þeir að
hugleiða að greiða atkvæði gegn því
að forsetinn verði ákærður til emb-
ættismissis.
Fulltrúadeild þingsins mun
væntanlega greiða atkvæði um
ákæru dómsmálanefndarinnar
næstkomandi fimmtudag og sam-
þykki hún tillöguna, sem ekki er
útilokað, fer hún fyrir öldungadeild
þingsins. Par þurfa hins vegar 2/3
þingmanna að samþykkja
ákæruna, til að Clinton verði svipt-
ur embætti, og er talið nánast úti-
lokað að svo mikill stuðningur fáist
í öldungadeildinni.
Fjörutíu og
sex bjargað
ár flakinu
Bangkok, Phuket. Reuters.
AÐ MINNSTA kosti sextíu og sjö
fórust þegar taílensk flugvél flugfé-
lagsins Thai Airways brotlenti í ná-
grenni Surat Thani í suðurhluta Ta-
ílands í gær. Flugvélin, sem var af
gerðinni Airbus A310-200, var í inn-
anlandsflugi, á leið frá Bangkok til
Surat Thani, og hafði innanborðs 132
farþega og 14 í áhöfn, samtals 146
manns. Fjörutíu og sex manns hafði
í gærkvöld verið bjargað úr flakinu
en óttast var að þeir þrjátíu og þrír,
sem enn átti eftír að ná úr flakinu,
væru látnir. Var búist við að þá væri
að finna í afturenda vélarinnar, þar
sem eldur hafði geisað.
Slysið átti sér stað um kvöldmat-
arleytið að taílenskum tíma, um há-
degisbil að íslenskum tíma. Brotlenti
flugvélin á gúmmíekru eftir að flug-
maðurinn hafði í þrígang reynt að
lenda vélinni við slæm veðurskilyrði
á flugvellinum í Surat Thani sem er
á Malakkaskaga í Suður-Taílandi.
Kviknaði umsvifalaust mikill eldur í
afturenda vélarinnar er hún skall til
jarðar í miklu votlendi um fjóra kíló-
metra suðvestur af flugvellinum.
Tók það björgunarmenn nokkrar
klukkustundir að slökkva eldinn.
Flugfreyja úr vélinni, Akradej
Burimas, sem komst lífs af, sagði á
sjúkrabeði að veður hefði verið afar
slæmt. „Flugmaðurinn reyndi að
lenda vélinni en mistókst. Hann
reyndi aftur, og mistókst aftur.
Hann sagði að ef lendingin mistæk-
ist í þriðja sinn myndi hann snúa
aftur til Bangkok. En eftir að þriðja
tilraun mistókst líka tókst honum
ekki að ná vélinni upp aftur og við
nauðlentum." Sagðist Burimas hafa
fyrirskipað farþegum að búa sig
undir nauðlendingu. „Pegar vélin
lenti tókst áhöfninni að komast að
neyðarútgöngudyrunum og koma
nokkrum farþeganna út. Síðan
blossaði upp eldur í vélinni."
Að minnsta kosti tveir erlendir
farþegar voru í hópi þeirra sem lét-
ust og einnig einn þingmaður Jafn-
aðarmannaflokksins, sem fer með
völd í Taílandi, auk aðstoðarríkis-
stjóra Surat Thani-héraðs. Mátti
sjá á sjónvarpsmyndum hvar
nokkrir þeirra sem komust lífs af
voru fluttir blóðugir og ringlaðir á
svip á sjúkrahús til aðhlynningar.
Meðal þeirra sem komust lífs af
var flugmaður vélarinnar,
Orsök slyssins ekki ljós
Björgunaraðgerðir gengu seint
vegna erfiðra aðstæðna á slysstað.
„Við verðum að vaða mikla eðju til
að ná farþegunum úr vélinni,"
sagði einn hjálparstarfsmanna.
Mörg líkanna voru illa brunnin
enda höfðu margir farþeganna ekki
átt undankomu auðið þegar eldur
kom upp í búk vélarinnar.
Sagði talsmaður Airbus
Industries í París að A310-200-vélin
hefði General Electric-þotuhreyfla.
Var vélin afhent flugfélaginu í apríl
1986 og hafði flogið 23.000 flug-
stundir. Sögðust fulltrúar Airbus
ætla að senda nokkra menn á sínum
vegum til að aðstoða við rannsókn á
orsökum slyssins.
Gen orms
kortlögð
Washington. Reuters.
VÍSINDAMENN hafa borið
kennsl á og sundurliðað ná-
kvæmlega öll 97 milljón gena-
brotin sem þaif til að skapa einn
h'tinn orm, og þar með hafa vís-
indamenn í allra fyrsta skipti
„genakortlagt" lífveru. Segja
sérfróðir menn að þessi tíðindi
gætu orðið til að veita alveg nýja
innsýn í þróun mannsins, og
ýmsa sjúkdóma sem þjaka hann.
Afrekið gefur eins konar
framkvæmdaáætlun að, og
möguleika á, að sjá skref fyrir
skref hvernig taugakerfi, melt-
ingarvegur og æxlunarkerfi líf-
verunnar verða til, auk annarra
líkamshluta, en margt af þessu
er ótrúlega líkt í ormi og manni.
Framsalskrafa spænsks dúmara á hendur Pinochet tekin fyrir í London
Viðurkennir ekki
lögsögu dómstólsins
London, Santiago. Reuters.
AUGUSTO Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í
Chile, mætti í hjólastól fyi-ir rétt í London í gær
en þá var tekin fyrir framsalskrafa spænsks dóm-
ara á hendur honum. Lýsti einræðisherrann fyrr-
verandi því yfir að hann viðurkenndi ekki lögsögu
dómstólsins í málaferlum sem byggðust á „lygum
Spánar“. Var málinu frestað tíl 18. janúar næst-
komandi.
Rödd Pinochets, sem er 83 ára, þótti veikluleg
og hikandi er hann gerði grein fyrir sér á spænsku
fyrir réttinum í London í gær. Kvaðst Pinochet að
því búnu ekki viðurkenna lögsögu neins annars
dómstóls en í Chile í þessum málaferlum.
Þá var skilyrðum stofufangelsisins yfir Pin-
ochet breytt en hér eftir verður honum leyfilegt
að fara í gönguferðir í næsta nágrenni sveitaset-
ursins sem hann leigir. Bar lögmaður hans því
við að það væri „ómannúðlegt" að leyfa einræðis-
herranum fyrrverandi ekki að hreyfa sig. Að því
búnu var málinu frestað fram í miðjan næsta
mánuð en þá verður fjallað um hvenær framsals-
krafa Spánverja verður tekin formlega fyrir.
Spænskur dómari hefur biit ákæru á hendur
Pinochet þar sem hann er sakaður um morð,
pyntingar og mannrán á spænskum ríkisborgur-
um á valdatíma sínum.
Reuters
Pinochet fyrir rétt
AUGUSTO Pinochet var færður til dómhúss-
ins í London í lögreglufylgd. Geysiströng ör-
yggisgæsla var á meðan málið var tekið fyrir.
I yfirlýsingu sem Carlos Caceres, aðstoðar-
maður Pinochets, las fyrir blaðamenn í Santi-
ago í gær sagðist Pinochet algerlega saklaus
af þeim verkum sem hann er sakaður um.