Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 29
ERLENT
Kohl heiðraður á
leiðtogafundi ESB
Reuters
Sviss og Evrópusambandið
Tvíhliða samn-
ingar frágengnir
Vín. Reuters.
HELMUT Kohl, fyrrverandi
kanzlari Þýzkalands, kom í síð-
asta sinn fram á svið alþjóða-
stjórnmála í gær til að taka við
útnefningu til heiðursborgara
þeirrar Evrópu sem hann átti
sinn þátt í að móta.
Kohl sló á létta strengi er hann
tók við þessari æðstu heiðurs-
nafnbót Evrópusambandsins
(ESB) úr hendi Viktors Klima,
kanzlara Austurríkis, í Hofburg-
höllinni í Vín, en í austurrísku
höfuðborginni fer nú fram leið-
togafundur ESB með þátttöku
ríkisstjórnar- og þjóðarleiðtoga,
utanríkis- og fjármálaráðherra
ESB-landanna 15, auk forseta
framkvæmdastjórnar ESB og
Evrópuþingsins.
„Eg er ekki minnismerki,“
sagði Kohl. „Þið vitið hvað kem-
ur fyrir minnismerki. Fuglar
koma og setjast á þau. En flestir
þeirra láta sér ekki nægja að
sitja bara, þeir gera svolítið,"
sagði hann og uppskar hlátur
viðstaddra.
Hér óskar Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands, Kohl til
hamingju, á meðan aðrir ráða-
menn ESB klappa honum lof í
lófa. Frá vinstri: Lamberto Dini,
utanríkisráðherra Italíu, Bertie
Aherns, forsætisráðherra fr-
lands, Massimo D’AIema, forsæt-
isráðherra Ítalíu, Tarja Halonen,
utanríkisráðherra Finnlands, og
við hlið Kohls stendur Viktor
Klima, kanzlari Austurríkis og
gestgjafi leiðtogafundarins.
Aðeins einum manni hefur áð-
ur hlotnazt sami heiður og Kohl
var sýndur í gær. Frakkinn Jean
Monnet, sem lagði manna mest af
mörkum til stofnunar Evrópu-
handalagsins fyrir rúmum 40 ár-
um, hlaut hann fyrstur.
Eining um skattasamræmingu
Á leiðtogafundinum bar það
helzt til tíðinda í gær, að sam-
þykkt var samhljóða að stefna
að aukinni samræmingu skatta í
sambandinu. Á þessum fyrsta
degi hins tveggja daga langa
fundar urðu leiðtogarnir sam-
mála um að fela fjármálaráð-
herrum ríkjanna 15 að vinna
með hraði að tillögum um
hvernig berjast megi gegn
„ósanngjarnri skattasam-
keppni“, sem lagðar skyldu fyrir
næsta leiðtogafund, sem fram
fer í Köln í júní.
Annars snerust viðræður leið-
toganna að miklu leyti um
hvernig ESB-ríkin geta gert
átak í að fjölga störfum til að
fækka í hópi hinna 17 milljóna
sem eru án atvinnu í samband-
inu, en einnig var deilt um fjár-
mál sambandsins. Samþykkt var
að ljúka samn-
ingum um um-
bótaáætlunina
„dagskrá 2000“,
sem snýr að
landbúnaðar-
og sjóðakerfí
ESB, í marz nk.
en ekkert
breyttist í deilunni um það hve
mikið hvert aðildarríki skuli í
framtíðinni greiða í sameigin-
lega sjóði ESB. Þjóðverjar, sem
taka við formennskunni í ráð-
herraráðinu um áramótin, krefj-
ast lækkunar á greiðslum sínum
í þá.
TVIHLIÐA samningar Sviss og
Evrópusambandsins (ESB), sem
hafa verið í undirbúningi í fjögur ár,
tóku loks á
fimmtudagskvöld
á sig endanlega
mynd, sem ráð-
herrar ESB geta
undirritað, en
þeir eru nú sam-
ankomnir á leið-
togafundi sambandsins í Vín.
Meirihluti Svisslendinga hafnaði
aðild að Evrópska efnahagssvæðinu í
þjóðaratkvæðagreiðslu í desember
1992, og þurfti því að leita tvíhliða
samninga við ESB til að tryggja
tengingu Sviss við innri markað Evr-
ópu, þangað sem tveir þriðju af öllum
útflutningi Sviss fer. Flavio Cotti, ut>
anríkisráðherra Sviss, sagði er samn-
ingamir voru í höfn að nánari tengsl
við ESB væru „grundvallarforsenda
framþróunar í landinu" og því væru
samningslokin mikið fagnaðarefni.
Síðustu hindruninni var rutt úr
vegi í samningaviðræðum fulltrúa
Austurríkis, sem gegnir formennsku
í ráðherraráði ESB, og Hans van
den Broeks, sem fer með utanríkis-
mál í framkvæmdastjórn ESB, við
Jaime Gama, utanríkisráðherra
Portúgals, en Portúgalir höfðu sett
fyrirvara við þá niðurstöðu sem áður
hafði náðst. Sneri fyrirvarinn að því
að Portúgölum þótti þeir frestir of
langir sem gilda áttu samkvæmt
samningnum um gildistöku frjálsra
flutninga vinnuafls milli ESB-ríkj-
anna og Sviss.
Ósætti um
færeyska
stjórnar-
skrárnefnd
FÆREYSKA stjórnarandstað-
an styður ekki tillögu land-
stjórnarinnar um að skipa
nefnd til að semja stjórnarskrá
fyrir Færeyjar. Átján þing-
menn af 32 styðja stjórnina svo
að tillagan fæst líklega sam-
þykkt, að því er fram kemur í
Aktuelt
Tillagan um stjórnarskrána
var tekin fyrir á þinginu í byrj-
un vikunnar og réðust stjórnar-
andstöðuffokkai-nh' harkalega á
hana. Gekk Marius Dam, þing-
maður Sambandsflokksins, sem
er fylgjandi áframhaldandi
ríkjasambandi við Dani, raunar
svo langt að rífa tillöguna í
ræmur í ræðustól.
Joannes Eidesgaard, formað-
ur Jafnaðarmannaflokksins,
gagnrýndi stjórnina fyrir að
láta röng atriði hafa forgang.
Fyrst yrði að tryggja að
Færeyingar gætu staðið á eigin
fótum fjárhagslega áður en tek-
in yrði ákvörðun um sjálfstæði.
Eidesgaard sagði hins vegar að
þrátt fyrir að flokkur hans
myndi greiða atkvæði gegn til-
lögu stjórnarinnar myndu jafn-
aðarmenn taka þátt í starfi
nefndarinnar sem semja á
stjórnarskrá til að geta haft
áhrif á starfið. Fulltrúum allra
flokka sem sitja á þingi verður
boðið sæti í nefndinni.
Samþykki Lögþingið stjórn-
arskrárdrögin, sem eiga að
liggja fyrir um mitt ár 2000,
verða þau borin undir þjóðarat-
kvæði.
yí
MILLET
dúnúlpur
( á stráka og stelpur )
Með ekta skinni
Fallegar
finnskar úlpur
1
ð* *
VVVJVi
ufi'tfðS
Ytrabyrði úr burstuðu leðri,
innra byrði úr Gore-Tex.
Léttir, sterkir og umfram
allt þægilegir!
Nike Nike Oslo
anorakkur dúnúlpa
V
Munið eftir
Fríkortinu
mm i
9.800,-
UTILIF
GLÆSIBÆ • S: 581 2922
mm
Verölauna
gönguskór