Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 80
SO LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PRÆÐASETRIÐ í Sandgerði.
Starfsfólk Húsdýra-
garðsins í heimsókn
STARFSFÓLK Húsdýragarðsins í
Laugardalnum í Reykjavík kom í
heimsókn á Fræðasetrið og í Botn-
dýrarannsóknarstöðina í Sandgerði
í nóvember. Attu þau einn frídag
sem þau notuðu til að fara öll sam-
an og gera eitthvað fróðlegt og
skemmtilegt, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Völdu þau Suðurnesin og auk
Fræðasetursins fóru þau í Bláa lón-
ið. Sýndu þau Fræðasetrinu mikinn
áhuga enda tengjast þessir staðir
þar sem báðir eru að sýna og kynna
íslensk dýr, hvor á sinn hátt.
Fræðasetrið leggur aðaláherslu á
villtu dýrin til lofts og sjávar en
Húsdýragarðurinn leggur áherslu á
húsdýrin. Auk þess er Fræðasetrið
með sýningu á íslenskum steinum,
plöntum og skordýrum sem hægt
er að skoða nánar í víðsjám o.fl.
Mikil aukning hefur verið á gest-
um í Fræðasetrið á þessu ári, bæði
skólafólk, starfs- og félagshópar og
erlendir ferðamenn. Fræðasetrið er
opið alla daga frá kl. 13-17.
Jólastemmnmg• á
Laugaveginum
MIKIÐ verður um að vera í mið-
borginni um jólin. Gert er ráð fyrir
að vart færri en 300 uppákomur
verið í miðborginni fram að jólum
og þær eru upp á hvem einasta dag,
segir í fréttatilkynningu.
A daginn eru þrettán jólasveinar
á ferðinni í fjórum hópum. Þeir eru
á ferli kl. 14-16 um helgar og frá kl.
16-18 virka daga. Á kvöldin taka
svo við tónlistaratriði frá kl. 20-22
og til kl. 23 Þorláksmessu.
í dag, laugardag, fer Coca-Cola-
lestin frá Hlemmi niður Laugaveg-
inn kl. 16 og lýkur för sinni um kl.
18 í Kvosinni. Kórar og blásarar
taka lagið á sjö viðkomustöðum á
leiðinni. Sunnudaginn 13. desember
verða svo jólasveinamir á ferðinni
frá kl. 14, þeir ferðast í hópum þrír
jeppar og sex fótgangandi í tveimur
hópum. Áfram verða þeir svo á ferð-
inni út alla vikuna.
Verslanir verða opnar til kl. 22 í
kvöld og frá kl. 13-18 sunnudag.
Jólasveinar
í Húsdýra-
garðinum
FYRSTI jólasveininn kemur til
byggða á laugardag og kemur hann
við í Laugardalnum. Frá og með
laugardeginum 12. desember og
fram til jóla kemur jólasveinninn á
hverjum degi kl. 15.
Dagskráin um helgina er eftirfar-
andi: Kl. 14 verða trúðarnir Barbar
og Úlfar og kl. 15 mætir Stekkjar-
staur á svæðið. Á sunnudeginum kl.
14 verður jólasaga Brúðuleikhússins
Tíu fíngur, kl. 15 kemur Giljagaur í
heimsókn og kl. 15.30 syngur Gradu-
alekór Langholtskirkju jólalög.
-------------------
Tónlist hjá
Sævari Karli
HJÁ Sævari Karli í Bankastræti
verður boðið upp á lifandi tónlist
fram að jólum. Feðgamir Jónas Þór-
ir og Jónas Dagbjartsson koma í
heimsókn, Gunnar Kvaran Hrafns-
son, konstrabassaleikari ásamt gest-
um leika jólalög í léttum jass-stíl.
í næstu viku verða léttur hádegis-
tónleikar frá kl. 12-13 alla daga og
mOli kl. 17-18, á laugardögunum 12.
og 19. desember verður lifandi tón-
list milli kl. 14 og 17.
—
Olís færir
Mæðrastyrks-
nefnd gjafír
OLÍUVERZLUN íslands afhenti á
fimmtudag Mæðrastyrksnefnd gjaf-
ir af ýmsu tagi. Meðal þess sem
nefndinni var fært má nefna reið-
hjólahjálma, skólatöskur, bakpoka,
leikfóng, jólaskraut og ýmislegt
fleira. Það er von Olís að gjafimar
megi verða til að auka einhverjum
gleði um og yfir hátíðamar, segir í
fréttatilkynningu. íris Björk Haf-
steinsdóttir afhenti gjafimar fyrir
hönd Olís en Guðlaug Runólfsdóttir
og Kristín Ólafsdóttir veittu þeim
viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrks-
nefndar.
í DAG
VELVAK4JVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Bréf frá Moshe
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf:
„Fyrir tveimur mánuð-
um bar hópur kappsfullra
íslendinga fána sinn í
skrúðgöngu í miðborg Jer-
úsalem, en gangan var far-
in í þeim tilgangi að sýna
stuðning við Israelsríki á
fimmtíu ára afmæli þess.
Nú þegar þetta fólk er
komið heilu og höldnu
heim tii sín langar mig að
spyrja það að því hvað það
hafi verði að lýsa stuðningi
við og í umboði hvers?
Styður það ísraelsk lög
sem kveða á um að gyðing-
um sé óheimöt að ganga í
hjónaband með kiistnum
mönnum (jafnvel þótt þeir
séu Islendingar), áfram-
haldandi eignarnám á
palestínsku landi og niður-
rif palestínskra húsa
þannig að hægt sé að halda
áfram stækkun landnema-
byggða (þar sem aröbum,
jafnvel þótt þeir séu ísra-
elskir ríkisborgarar, er
óheimöt að búa). Eða
kannski áframhaldandi
hersetu Israela í Suður-Lí-
banon, sem kostar sífellt
fleiii líf saklausra kvenna
og barna?
Eg var bara að velta
þessu fyrir mér. Sjáumst á
nýju ári.“
Moshe Okon -
Jerúsalem.
Þröngar póstlúgur
RAUFAR fyrir póst, eða
svokallaðar póstlúgur, eru
víða bæði þröngar og
óhagræðislegar. Þetta
veldur óþægindum fyrir
blaðburðarfólk og póst-
bera.
Á þeim tímum þegar
Morgunblaðið verður
þykkara og þenst út, líkt
og púkinn á fjósbitanum í
Odda forðum daga, þá
víkka póstraufarnar ekki.
Afleiðingarnar verða þær
að erfitt verður að troða
lestrarefninu inn. Stund-
um getur eitthvað rifnað
og svo getur farið að það
verði að leggja íyrirferðar-
mesta póstinn fyrir utan
dyrnar. Það hlýtur að vera
kostur að fá Morgunblaðið
órifið inn um póstlúgurnar,
svo og annað lestrarefni.
Út frá því er nú skorað á
húseigendur að skipta um
lúgurnar þar sem svona
hagar tö.
I annan stað þarf að
vera til ákvæði í bygging-
arlögum þar sem gert er
ráð fyrir vissri lágmarks-
stærð póstlúga. Einnig að
blaðberar geti neitað að
bera í hús þar sem lúgurn-
ar eru þröngar eða óhent-
ugar.
Úlfhéðinn.
Góður lestur Arnars
MIG langar að taka undir
orð H.G. í Velvakanda í
dag, 10. desember, um
lestur Arnars Jónssonar á
Sjálfstæðu fólki eftir Haö-
dór Laxness. Hann las svo
snöldarlega vel að unun
var á að hlýða. Eg hef
heldur aldrei notið þessar-
ar frábæru sögu sem nú.
Arnar á miklar þakkir
skildar.
Þyrí.
Hvar er umhyggjan?
ÉG fylgist af og tö með
umræðunni um gagna-
grunnsfrumvarpið. Mér
heyrist stjórnarandstaðan
berjast með kjafti og klóm
á móti þvi að það nái fram
að ganga. Hvar er um-
hyggjan fyrir hinum sjúku
núna og möguleikum
þeirra að fá bót meina
sinna? Er meiningin að
ganga þvert á vilja meiri-
hluta landsmanna í þessu
rnáli. Það þarf engan að
undra þótt R-listinn og
önnur glundroðasamtök
komi öla út úr skoðana-
könnunum.
Eldri borgari.
Rétt svar við
rangri spurningu
YFIRLÝSINGAR lög-
fræðinga þess efnis að
frumvarpsdrög ríkis-
stjórnarinnar, sem unnin
eru í framhaldi af kvóta-
dómi Hæstaréttar, séu „í
samræmi" við niðurstöðu
Hæstaréttar eru að líkind-
um rétt svar við rangri
spurningu. I stað þess að
svara kröfum dóms í af-
mörkuðu máli þar sem nið-
urstaðan ræðst af kröfum
aðöa tel ég að spyrja verði:
standast önnur ákvæði en
5. gr. laga 38/1990 stjórn-
arskrá og mannréttindaá-
kvæði? Eg skora á sér-
fræðingana að vera ná-
kvæmir í orðavali i svo
mikövægu máli.
Kvótaumsækjandi.
Leið til rasisma
EG ER ekki sammála því
sem Hávar Sigurjónsson
skiifar í Viðhorfi Morgun-
blaðsins miðvikudaginn 9.
desember. Þar segir hann:
„Hvernig stendur á því að
ekki hefur verið sett upp
Skynsemisstofnun ríkisins
þar sem ungu fólki yrði
bent á óskynsemi þess að
láta tdfinningarnar ráða
við makaval." Mér finnst
það nokkuð langt gengið
þegar stóri-bróðir á að
fara að velja maka fyrir
okkur. Hitler og Stalín
reyndu að hafa áhrif á
þessi mál á sinum tíma og
ef þetta er ekki leiðin til
rasisma þá veit ég ekki
hvað er það.
Sverrir.
Tapað/fundið
Gult fjallahjól týndist í
Hafnarfirði
FJALLAHJÓL með áber-
andi gulu steöi og með
grófum dekkjum týndist
frá Víðistaðaskóla í Hafn-
arfirði fyrir viku. Þeir sem
hafa orðið varir við hjólið
hafi samband í síma
555 0263 og 555 2369.
SKAK
liinsjón Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp í skák
tveggja Spánverja á alþjóð-
legu móti í Elgoibar á Spáni
sem lauk í síðustu viku.
Fransisco Vallejo Pons
(2.450) var með hvitt og átti
leik gegn Felix Izeta (2.445)
17. Rfíi+' - Kh8! Eftir 17. -
gxf6 18. Dg6+ - Kh8 19.
Dxh6+ - Kg8 20. Hd3 hefur
hvítur óstöðvandi sókn) 18.
Bxf7 - Dxf2 19. Hhfl -
De3+ 20. Kbl - Dg5
(Drottningakaupin gera illt
verra, en 20. - gxf6 21. Hxf6
var einnig tapað) 21. Dxg5 -
hxg5 22. Rd7 - Bxd7 23.
Hxd7 - Had8 24. Hf3 - g6
25. He7 - Ild2 26. Hh3+ -
Kg7 27. Bc4+ - Kf6 28.
Hhh7 og svartur gaf, því
hann getur ekki varist mát-
hótuninni á f7.
Úrslit á mótinu urðu: 1.
Van der Wiel, Hollandi, 7 v.
af 9 mögulegum, 2. Izeta 6
v., 3.-4. Kornejev, Rúss-
landi, og V. Georgiev,
Búlgaríu, 514 v., 5. Ubilava,
Georgíu, 5 v., 6. Gomez
Esteban, Spáni, 414 v., 7.
Vallejo Pons 314 v., 8.
Mellado, Spáni, 3 v., 9.-10.
A. Fernandes, Portúgal, og
Bellon, Spáni, 2!4 v.
Guðmundar Arasonar mót-
ið, það fjórða í röðinni, hefst
á mánudaginn í Hafnarfirði.
Keppendur verða 30 talsins,
þar af fjórir stórmeistarar.
Átta erlendir keppendur
eru skráðir tö leiks.
Hvítur leikur og vinnur.
HÖGNI
HREKKVÍSI
„'flann, beftsvó lengC.aJSþab i/arkomib
&.ð lcokJbte/inum, /iza/T-s."
Yíkverji skrifar...
AÐ ER hvimleitt fyrir
notendur GSM-síma hversu
algengt er að símtöl rofni í miðjum
klíðum. Vissulega geta stundum
verið skiljanlegar ástæður fyrir
þessu, t.d. ef ekið er út fyrir
þjónustusvæði eða gengið inn í
lyftur, niður í kjallara eða hinar
farsímaheldu byggingar
Kringlunnar. ítrekað hefur það
hins vegar komið fyrir Víkverja að
samtöl rofna án þess að nokkur
sjáanleg skýring sé á því, t.d. hefur
ekki verið hægt að kenna síma eða
staðsetningu um.
Þá virðist sem á einstaka stöðum
í borginni séu „dauðir" blettir þar
sem símsamband rofnar. Víkverji
ekur daglega um Miklubrautina á
leið í og úr vinnu og þarf oftar en
ekki að taka símtöl á þeirri leið.
Hvað eftir annað gerist það hins
vegar þegar hann nálgast
gatnamót Miklubrautai- og
Snorrabrautar á leið vestur að
samtal slitnar í miðjum klíðum. Þar
sem ekki er um einangrað tilvik að
ræða heldur fjölda tilvika telur
Víkverji sér óhætt að draga þá
ályktun að eitthvað sé bogið við
GSM-skilyrði á þessum slóðum.
XXX
MIKIÐ hefur verið rætt um
notkun farsíma í bflum á
undanförnum mánuðum og þær
hættur er geta fylgt slíkri notkun.
Víkverji þekkir það af eigin raun
að það getur verið erfitt að halda
jafnt um símann sem aka bifreið í
hraðri umferð. Nær daglega sér
maður jafnframt í umferðinni
óreglulegt aksturslag ökumanna
sem við nánari grennslan reynast
vera með síma í annarri hönd. Ekki
síst vekur það ugg með Víkverja er
hann sér ökumenn vörubifreiða eða
álíka farartækja sigla um götur
með aðra hendi á stýri og hina um
símann.
Þar sem Víkverji vill síður vera
hættuvaldur í umferðinni varð
hann sér því úti um handfrjálsan
búnað fyrir nokkru og verður að
viðurkenna að slíkur búnaður
auðveldar ekki einungis það að
halda einbeitni við akstur heldur er
jafnframt að öllu leyti þægilegra að
tala í gegnum síma með slíkum
búnaði heldur en á hefðbundinn
hátt.
Færa má sterk rök fyrir því að
lögleiða ætti slíkan búnað hyggist
menn tala í síma á meðan á akstri
stendur.