Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 31
ERLENT
• •
Ocalan
boðar
afsögn
KÚRDÍSKI skæruliðaforing-
inn Abdullah Öcalan sagði í
viðtali sem birt var á Italíu í
gær að hann myndi segja af
sér sem leiðtogi Kúrdíska
verkamannaflokksins (PKK) í
sjónvarpsávarpi. Öcalan tjáði
kommúnistablaðinu II Mani-
festo að ákvörðun sín um að
víkja úr leiðtogasætinu tengd-
ist endurskipulagningu hreyf-
ingarinnar sem hann stofnaði í
því skyni að berjast fyrir sjálf-
stæðu Kúrdistan.
Max Streibl
látinn
MAX Streibl, sem var forsæt-
isráðherra Bæjaralands á ár-
unum 1988-1993, lézt úr
hjartaslagi í
Munchen í
gær. Streibl
tók við af
Franz-Josef
Strauss sem
leiðtogi CSU,
flokksins sem
stjórnað hef-
ur Bæjara-
landi með hreinum meirihluta
í áratugi, en hann sagði af sér
forsætisráðherraembættinu
1993 í kjölfar svokallaðs
Amigo-hneykslis, sem snerist
m.a. um boðsskemmtiferðir
sem hann og fleiri stjórnmála-
menn hefðu þegið af viðskipta-
jöfrum. Streibl var 66 ára.
Jiang ber lof
á Murdoch
ÁSTRALSKI fjölmiðlakóng-
urinn Rupert Murdoch, sem
berst fyrir því að fá kínversk
stjórnvöld til að opna kín-
verska fjölmiðlamarkaðinn,
átti í gær fund með Jiang
Zemin, forseta Kína, sem bar
lof á fréttaflutning fjölmiðla
Murdochs frá Kína. Úmmæli
sem Murdoch lét falla 1993
þess efnis, að gervihnattasjón-
varp og nútímafjarskipta-
tækni skapaði „ótvíræða
hættu fyiár alræðisstjórnir
hvar sem er,“ féllu ekki í
kramið hjá ráðamönnum í
Peking. Síðan þá hefur Mur-
doch lagt sig í líma við að
koma samskiptunum við Kína-
stjórn í lag. Akvörðun hans
um að úthýsa fréttum BBC úr
gervihnattasendingum sínum í
Asíu er álitin í beinum tengsl-
um við viðleitni hans til að
friðmælast við kínverska ráða-
menn.
Hirschfeld
handtekinn
ABE Hirschfeld, fasteignajöf-
ur í New York og margmillj-
ónamæringur, sem vakti at-
hygli í októ-
ber sl. er
hann bauð
Paulu Jones
eina milijón
dollara fyrir
að hætta
málarekstri
gegn Bill
Clinton, for-
seta Bandaríkjanna, hefur
verið handtekinn, ásakaður
um að hafa lagt á ráðin um að
myrða viðskiptafélaga sinn,
Stanley Stahl, fyrir tveimur
árum.
Hirschfeld
Reuters
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti ræðir við Nikolaj Bordjuzha, nýskipað-
an starfsmannasljóra sinn.
Jeltsín til vinnu
eftir sjúkraleyfi
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
mætti til vinnu í Kreml í gær í ann-
að skipti í vikunni en hann hefur
legið á sjúkrahúsi með lungna-
bólgu í á þriðju viku. Jeltsín fund-
aði með Nikolaj Bordjuzha, starfs-
mannastjóranum sem hann skipaði
sl. mánudag öllum að óvörum. Öleg
Sysujev, aðstoðarmaður Jeltsíns,
sagði í gær að Jeltsín hefði með
breytingunum viljað styrkja sig í
sessi og gera Rússum ljóst að hann
hygðist sitja í embætti út kjörtíma-
bilið.
Þá gat forsetinn hrósað sigri í
gær þegar stjórnlagadómstóll
landsins úrskurðaði að honum væri
heimilt að tilnefna sama forsætis-
ráðherrann í þrígang eins og hann
gerði í sumar er hann hugðist
þvinga dúmuna, neðri deild þings-
ins, til að samþykkja skipan Vikt-
ors Tsjernómyrdíns í stól forsætis-
ráðherra.
Jeltsín lét undan andstöðu
dúmunnar og í kjölfarið kærði hún
tilnefndingarnar til stjórnlagadóm-
stólsins.
Grenilengjur
2,7 M.
Kr. 499,
JOLASYPRIS
Kr. 199,-
JÓLASNJÓR
Kr. 99,-
Servíettu-
HRINGIR
6 í PAKKA
Kr. 499,-
Fjöltengi
Kr. 199,-
ERLULENGJUR
BJÖLLUM
Kr. 219,-
JÓLAENGILL
Kr. 49,-
JÓLA-
KERTAHRINGUR
Kr. 129,-
Jólatrés-
TOPPUR
Kr. 299,-
Englavakt
KERTA SLÖKKVARI
3 í PK.
JÓLASVEINN
Á VEGG
Kr. 98,-
Kr. 99,-