Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gagnagrunns-
frumvarpið úr nefnd
Meirihlut-
inn gerði
tvær
breytingar
HEILBRIGÐIS- og trygginganefnd
Alþingis afgreiddi gagnagrunns-
frumvarpið frá sér í gær og fer það
nú til þriðju umræðu.
Meirihluti nefndarinnar leggur til
tvær breytingar. í fyrsta lagi að
ákvæði um svonefnda aðgengisnefnd
verði felld út úr frumvarpinu en að
samið verði um aðgengi innlendra
vísindamanna á sérkjörum sem verði
lægri en markaðsverð í samningum
milli væntanlegs starfsleyfishafa,
heilbrigðisstofnana og sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfsmanna. í
öðru lagi verði samkeyrsla upplýs-
inga úr erfðafræðigrunni við heilsu-
farsupplýsingar úr miðlægum
gagnagrunni látin fara eftir sérstöku
vinnuferli sem samþykkt verði fyrir-
fram af tölvunefnd og óháðum aðila
til að tryggja persónuvernd.
Fulltrúar minnihlutans vöruðu við
því að væru settar inn í gagnagrunn-
inn erfðafræðilegar upplýsingar,
aðrar en þær sem fram koma í
sjúkraskrá, væri líklegt að inn í hann
færu upplýsingar sem hefðu ekkert
með heilsufar að gera og persónu-
verndinni væri þar með líklega koll-
varpað.
Ossur Skarphéðinsson, formaður
nefndarinnar, telur að meirihluti
hennar hafi brotið lýðræðislegar
vinnuhefðir í þinginu með því að
neita um áheym nokkrum þeirra
samtaka sem annaðhvort leituðu eft-
ir að senda fulltrúa á fund hennar
eða minnihlutinn óskaði eftir að rætt
væri við. Frumvarpið var afgreitt úr
nefndinni í gær.
■ Gagnagrunnsfrumvarpið/11
Morgunblaðið/Amaldur
Jólaköttur-
inn hreiðr-
ar um sig
KRÆFUR högni hefur gert sig
heimakominn í Jólamarkaðinum í
Bankastræti undanfarnar vikur,
en markaðurinn hefur verið
starfræktur um mánaðarskeið.
Kötturinn fór fljótlega að læðast
inn og hefur stöðugt fært sig upp
á skaftið. Nú er það svo að hann
kemur á hverjum degi, leggur
sig í hillunum og virðir fyrir sér
viðskiptavinina sem sumum
hverjum mun hafa brugðið þegar
það sem þeir héldu að væri stytta
af jólakettinum fór að bæra á
sér. Starfsmenn markaðarins
hafa gefið kettinum að borða
annað slagið og láta almennt vel
af dýrinu, sem þeir kalla að sjálf-
sögðu Jólaköttinn. Ef eigandi
högnans saknar hans og ber
kennsl á hann af þessari mynd
getur hann gengið að honum vís-
um í einhverri hillunni.
Alþingi
Óvíst hve-
nær jóla-
leyfi hefst
REIKNAÐ er með að annarri
umræðu um fjárlagafrumvarpið
ljúki á Aiþingi í dag auk nokk-
urra mála sem þurfa að komast
til þingnefnda eftir fyrstu um-
ræðu, samkvæmt upplýsingum
Ólafs G. Einarssonar, forseta
Alþingis.
A mánudag verða nefnda-
fundir og atkvæðagreiðsla um
fjárlög. Ekkert liggur hins veg-
ar enn fyrir um hvenær alþing-
ismenn fara í jólaleyfí.
Sjukrahús og öldrunarstofnanir á höfuðborgarsvæðinu
Mikil vöntun á heil-
brigðisstarfsfólki
Söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar og RÚV
Þrjár milljónir til hjálparstarfs
RÚMAR þrjár milljónir króna
söfnuðust í gær til hjálparstarfs í
Mið-Ameríku í tengslum við sér-
staka dagskrá á Rás 2 á vegum
Hjálparstarfs kirkjunnar og Ríkis-
útvarpsins. Anna Ólafsdóttir,
fræðslufulltrúi Hjálparstarfsins,
segist hafa búist við að 2-3 milljón-
ir myndu safnast og er því alsæl
með útkomuna og vill koma á fram-
færi sérstöku þakklæti til lands-
manna.
Anna minnir á að gildi þessara
peninga sé margfalt í Mið-Ameríku
miðað við hér. „Peningunum verð-
ur ráðstafað af samtökum í
Hondúras sem eru aðilar að ACT,
sem er alþjóðaneyðarhjálp kirkna
og Hjálparstarf kirkjunnar er
einnig aðili að. Þetta fer í öll mögu-
leg neyðargögn; mat, lyf, vatn, við-
gerðir, teppi, neyðarskýli og
fleira.“
íslendingar sem hafa verið
skiptinemar í Mið-Ameríku og aðr-
MIKILL skortur er á hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og Sóknarstarfs-
mönnum á sjúkrahúsum og öldrunarstofnunum á höfuðborgarsvæðinu.
Skortur á hjúkrunarfræðingum nemur 210 stöðugildum, skortur á sjúkra-
liðum 59,5 stöðugildum og Sóknarstarfsmönnum 42 stöðugildum svo full-
mannað sé í allar stöður. Þetta kemur fram í svari Ingibjargar Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Þórunnar H. Sveinbjörnsdóttur vara-
þingmanns. Þórunn spurði einnig hverriig viðkomandi deildir ættu að
bregðast við ef meira en helming starfsmanna vantaði og hvort til væri
neyðaráætlun.
Heilbrigðisráðherra segir að að-
gerðir vegna undirmönnunar hafi
meðal annars verið fólgnar í því að
sameina deildir, flytja til starfsfólk,
endurskoða vinnuferli, flytja verk-
efni milli starfsstétta, kaupa auka-
vaktir, flytja sjúklinga sem þurfa
mikla þjónustu milli deilda og
fleira. Viðbrögð deilda við því að
meira en helming starfsmanna
vanti séu á þann veg að loka deild-
um eða hluta deilda. Sumar stofn-
anir hafi formlegar neyðaráætlanir
sem grípa megi til vegna undir-
mönnunar en aðrar leysi málið eft-
ir aðstæðum hverju sinni þar eð
hefðbundinn uppsagnarfrestur gefi
stjórnendum nokkurn fyrirvara til
viðbragða.
Þórunn spurði hvort borist hefðu
formlegar kvartanir frá heilbrigð-
isstofnunum vegna skorts á starfs-
mönnum. Heilbrigðisráðherra seg-
ir að skorturinn sé alvariegastur á
Ríkisspítulunum þar sem vanti um
74 hjúkrunarfræðinga, í 48 stöður
sjúkraliða og í 20 stöðugildi Sókn-
arstarfsmanna. Á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur vanti 123 hjúkrunar-
fræðinga og í stöður 14 Sóknar-
starfsmanna. Stofnanir sem hafi
átt við mönnunarvanda að stríða
hafi leitað til Vinnumiðlunar
Reykjavíkur eða Hafnarfjarðar og
af svörum stofnana að dæma virð-
ist árangur hafa verið lítill.
Þórunn spurði til hvaða að-
gerða ráðherra hygðist grípa
vegna alvarlegs skorts á starfs-
fólki í heilbrigðisstofnunum á höf-
uðborgarsvæðinu í mörgum
starfsgreinum. í svari heilbrigðis-
ráðherra kom fram að hann hefur
þegar falið starfsfólki í ráðuneyt-
inu að setja á laggirnar starfshóp
sem ætlað er að greina nánar um-
fang og orsakir mönnunarvand-
ans og skorts á starfsfólki í fram-
angreindum stéttum heilbrigðis-
starfsmanna og skila ráðherra til-
lögum til úrbóta.
Morgunblaðið/Kristinn
HEIÐAR Orn Stefánsson, Ragnheiður Sverrisdóttir, Inga Kristbjörns-
ddttir og Halldór Guðmundsson í útsendingu Rásar 2 í gær.
ir sjálfboðaliðar tóku á móti fram-
lögum í síma meðan á útsending-
unni á Rás 2 stóð. Inn á milli voru
viðtöl við fólk í Hondúras og Ník-
aragva og ýmsa hér á landi sem
þekkja til.
2.400 kvótaumsóknir
Sjávarútvegsráðuneytinu
höfðu síðdegis í gær borist um
2.400 umsóknir um veiðileyfi og
kvóta.
í kjölfar dóms Hæstaréttar í
máli Valdimars Jóhannessonar
hafa umsóknir streymt irin til
ráðuneytisins. Þar fengust þær
upplýsingar að heldur virtist lát
á fjöldanum. Á fimmtudag bárust
um 600 umsóknir en í gær um
300.
Sérblöð í dag
Jón Arnar Magnússon
þriðji besti í heiminum/B1
Manchester United getur
náð toppsætinu/B4
m sfeUíi
A LAUGARDOGU
¥ :
WM--4 B-C ■ MOIU UNBLADSINS •
LíIj CJMAVF.
HHIHII.......
Blaðinu í dag
fylgir átta
síðna
auglýsinga-
bæklingur frá
Intersport
„Jól 98“.