Morgunblaðið - 12.12.1998, Side 14
14 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fyrirlestur til minningar um Vilhjálm Stefánsson
Unnið að áætlun um sjálf-
bæra þróun á norðurslóð
*
Aætlun um sjálfbæra þróun á norðurslóð-
um var meginviðfangsefni erindis sem dr.
Oran R. Young, prófessor og forstöðu-
maður við Stofnun í arktískum fræðum
við háskólann í Dartmouth í Bandaríkjun-
um, flutti á vegum Stofnunar Vilhjálms
Stefánssonar á Akureyri á þriðjudag.
Auðunn Arnórsson ræddi við Young um
efni fyrirlestrarins.
FYRIRLESTUR Youngs vai' fyrsti
formlegi minningarfyrirlesturinn
um Vilhjálm Stefánsson, sem stofn-
unin sem kennd er við hinn kunna
vestur-íslenzka frumkvöðul norður-
slóðarannsókna stendur fyrir - við
lok fyrsta starfsárs hennar - en að
sögn Níelsar Einarssonar, forstöðu-
manns stofnunarinnar, er ætlunin
að gera slíka fyrirlestra að árvissum
viðburði. Stofnuninni er ætlað að
vera samstarfsvettvangur þeirra
sem sinna málefnum norðurslóða og
að efla þátttöku Islendinga í al-
þjóðasamstai'fí á sviði sjálfbærrar
þróunar og umhverfísrannsókna.
Young er prófessor í umhverfís-
fræðum og þekktur fræðimaður á
sviði auðlindastjórnunar og áhrifa
hnattrænna umhverfis- ------------
breytinga á norðurslóð-
um. Eftir hann liggur
fjöldi fræðirita á þessu
sviði.
í samtali við Morgun-
blaðið segir Young að
áhugi sinn beinist einkum
að alþjóðlegri samvinnu um málefni
norðurslóða. Þessi samvinna skiptist
í tvennt eftir eðli sínu, þ.e. samvinnu
vísindamanna og samvinnu manna
sem koma að stefnumörkun, þ.e.
stjómmála- og embættismanna. A
síðastliðnum tíu árum hefur orðið
hálfgerð bylting í alþjóðlegri sam-
vinnu á þessu sviði; ríkin átta sem
landsvæðin í kring um norðurheim-
skautið heyra undir hafa tekið upp
samstarf á ýmsum sviðum sem áður
var aðeins mögulegt í smærri eining-
um, svo sem milli Norðurlandanna.
Þörf á að
finna nýja
nálgun sem
ailir geta
sætzt á
Til glöggvunar skal hér nefnt, að
þau landsvæði sem átt er við era Is-
land, Grænland, Færeyjar, norður-
héruð Skandinavíu, Rússlands og
Kanada, auk Alaska.
Or þróun á síðustu árum
„Aður fyrr, á dögum kalda stríðs-
ins, voru möguleikarnir á alþjóð-
legi'i samvinnu mjög takmarkaðir,"
segir Young. Því sé það mjög at-
hyglisvert að verða vitni að því hve
hratt þau alþjóðlegu samvinnuverk-
efni, sem efnt hefði verið til, hefðu
þróazt frá lokum kalda stríðsins,
„eða öllu heldur frá því Sovétiíkin
byrjuðu að riða til falls,“ segir
Young, og vitnar til ræðu sem síð-
asti Sovétleiðtoginn, Míkhaíl Gor-
batsjov, hefði haldið árið
1987 (árið eftir Reykja-
víkurfund hans með Ron-
ald Reagan Bandaríkja-
forseta). „Glasnost" og
„perestrojka", hin nýja
„opnunarstefna" Sovét-
leiðtogans, hefði skilað
sér í nánari tengslum vísindamanna
Rússlands og Vesturlanda, og fleiri
aðila sem létu sig málefni norður-
slóða varða.
Árið 1989 var Alþjóðlega vísinda-
nefndin um rannsóknir á norður-
skautssvæðinu, IASC, sett á lagg-
irnar. Þremur árum síðar sam-
þykktu stærstu löndin áætlun til
verndar norðurheimskautsumhverf-
inu (AEPS) og hefur ísland komið
að hlutaáætlunum hennar. Og fyrir
tveimur árum var Norðurheim-
skautsráðið stofnað, með aðild allra
Nýtt Nýtt - Engar pillur!
Megrunarúðinn
frá Kare Mor slær í gegn.
Ekkert samviskubit yfir jólin, þú nýtur jólanna og lætur hinn byltingarkennda
megrunarúða frá Kare Mor vinna verkið. í honum eru áhrifamiklir fitubrennar-
ar auk nauðsynlegra vítamína. Bæði lundin og líkaminn verða léttari.
ENGIN FYLLINGAREFNINÉ ÓÆSKILEG AUKAEFNI.
Upplýsingar hjá Frídu s. 5657808, Kristín s. 4267043,
Þórunni s. 898 8220 og Kristínu s. 426 7043.
Aðeins kr. 2.500,- mánaðarskammtur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Oran R. Young
átta ríkja (íslands, Danmerkur,
Noregs, Svíþjóðar, Finnlands,
Rússlands, Bandaríkjanna og
Kanada). Með því hófst heildarsam-
starf um málefni norðurslóða upp á
milliríkja- og ríkisstjómarstig.
„I Ottawa-yfírlýsingunni [stofn-
skrá Norðurskautsráðsins] segir, að
Norðurskautsráðið eigi að taka við
og halda áfram þeim skipulögðu
verkefnum sem farið hefðu af stað
undir AEPS,“ segir Young. A meðal
undiráætlana AEPS eru AMAP,
umhverfiseftirlits- og matsáætlun
norðurskautssvæða og CAFF,
starfshópur um verndun lífríkis á
norðurslóðum (Working Group on
the Conservation of Aretic Flora
and Fauna), en hann hefur aðsetur
á Akureyri.
Skuldbinding í stofnskrá Norð-
urskautsráðsins
„Þá segir í Ottawa-yfirlýsingunni,
að Norðurskautsráðið skuli til við-
bótar því að halda áfram umhverfis-
verndaráætluninni gera áætlun um
sjálfbæra þróun,“ segir Young. Það
hafi hins vegar sýnt sig á þeim tíma
sem liðinn er frá því Ottawa-yfirlýs-
ingin var undirrituð að ráðinu hefur
reynzt erfitt að leggja drög að slíkri
áætlun um sjálfbæra þróun. „Það
hefur farið fram víðtæk umræða, en
ekkert samkomulag náðst um hver
grundvallaratriðin í slíkri áætlun
eigi að vera,“ segir Young.
I fyrirlestrinum á Akureyri bauð
Young upp á það sem að hans áliti
gæti nýtzt sem grundvöllur að slíku
samkomulagi. „Hvemig getum við
mótað og þróað grundvallarupp-
byggingu áætlunar um sjálfbæra
þróun fyrir Norðurheimskautsráð-
ið?“ var útgangsspuming Youngs.
„Eitt af því sem gerðist þegar ver-
ið var að undirbúa AEPS, sem varð
að veruleika með Rovaniemi-yfii'lýs-
ingunni frá 1991, var að búin voru til
drög að áætluninni í formi
vinnuplaggs, sem nýttist í samninga-
viðræðum sem grundvöllur þess sem
:: :
Mikið úrval af
glæsilegum fatnaði
síðan var samþykkt í Rovaniemi.
Fyrir stofnfund Norðurskautsráðs-
ins í Ottawa tókst okkur ekki að
leggja fram sambærileg drög að
áætlun um sjálfbæra þróun, sem
hefði verið hægt að samþykkja þá á
sama hátt og umhverfisvemdaráætl-
unin var samþykkt í Rovaniemi. Nú
hefur Norðurskautsráðið því það
hlutverk að þróa áætlun um sjálf-
bæra þróun, en hefur engin drög að
styðjast við,“ segir Young.
I fyrirlestrinum rakti Young
hvernig hægt væri að bæta úr þessu,
þ.e. hann lagði sem vísindamaður
fram tillögu að drögum að áætlun
um sjálfbæra þróun á norðurslóðum,
sem stjómmála- og embættismenn
frá aðildarríkjum Norðurskautsráðs-
ins gætu notað sem grandvöll samn-
inga um slíka áætlun.
Óformlegl samráð lykilmanna
til að liðka fyrir samningum
„Hér komum við að athyglisverðu
atriði," segir Young. „Ég legg til að
við komum á fót óformlegu sam-
ráðsferli, þar sem lykilmenn í
ákvarðanatökunni í málinu væru
kallaðir saman til óformlegra við-
ræðna, þar sem þátttakan væri á
persónulegum forsendum, ekki op-
inberam." Hugmyndin væri að
þessir lykilmenn, vísindamenn og
embættismenn, 20 talsins eða svo,
kæmu saman til að ræða vandamál-
in óformlega, án skuldbindinga. I
lok níunda áratugarins segir Young
að skapaður hefði verið
svipaður vettvangur,
vinnuhópur um alþjóðleg
norðurslóðasamskipti
(Working Group on Arct-
ic International
Relations). í honum
hefðu tekið þátt menn frá ”“““
öllum ríkjunum átta, þar á meðal
embættismenn úr utanríkisráðu-
neytunum í Moskvu og Washington.
„Þetta var í fyrsta sinn sem þessir
menn ræddust við óformlega," segir
Young. Þar sem þátttakendur í um-
ræðum á þessum vettvangi voru
ekki bundnir af opinberri afstöðu
stjórnvalda hvers lands fyrir sig og
þurftu ekki að undirrita neinar yfir-
lýsingar eða þess háttar, var hægt
að taka vandamálin fyrir með mark-
vissari hætti, einangra ásteytingar-
steinana og liðka þannig fyrir sam-
komulagi. Young bendir á, að fyrsti
fundur þessa vinnuhóps hafi farið
fram í Hveragerði árið 1988.
Þetta er hugmyndin að endur-
taka til að liðka fyrir samkomulagi
um bindandi áætlun um sjálfbæra
þróun á norðurslóðum. I opinberum
viðræðum á vettvangi Norður-
skautsráðsins hefur ágreiningur
verið mjög greinilegur hvað varðar
hugmyndina um sjálfbæra þróun.
Þar hafa það reyndar verið banda-
rísk stjómvöld, sem hafa stigið fast-
ast á bremsuna.
„Þess vegna verðum við að fmna
einhverja þægilega leið til að leysa
Sjálfbær nýt-
ing sjávar-
spendýra fell-
ur undir sjálf-
bæra þróun
ágreininginn án þess að nokkrum
þyki hætta á að einn sé að „vinna“
og annar að „tapa“; við þurfum að
finna einhverja nýja hugsun, nýja
nálgun að vandamálunum, sem allir
geta sætzt á,“ segir Young.
Pólitískt viðkvæm atriði
Næsti ráðherrafundur Norður-
skautsráðsins verður haustið 2000.
Æskilegt væri, að mati Youngs, ef
takast mætti fyrir þann tíma að
komast að samkomulagi um drög að
áætlun um sjálfbæra þróun, sem
hægt yrði að ræða á ráðherrafund-
inum. Ljóst sé að vísu að tillit þurfi
að taka til svo margra atriða, sem
sum séu pólitískt mjög viðkvæm, að
ekki sé víst að úr rætist fyrr en að
lengri tíma liðnum. Hitt sé ljóst, að
áríðandi sé að finna lausn, því mikið
sé í húfi fyrir hagsmuni norður-
heimskautssvæðisins.
En hvað er það sem er svona
mikill ágreiningur um? Nefna má,
að meðal þess sem hugtakið sjálf-
bær þróun nær yfír er sjálfbær nýt-
ing náttúraauðlinda, sem í sam-
hengi norðurslóða á ekki sízt við um
nýtingu sjávarspendýrastofna. I
Ijósi þess hve veiðar á hval, sel,
rostung o.s.frv. eru viðkvæmt mál
víða um heim er ekki erfitt að sjá
fyrir sér að t.d. bandarískir emb-
ættismenn eiga í erfiðleikum með
að fallast opinberlega á áætlanir
sem fela meðal annars í sér viður-
kenningu á réttmæti slíkra veiða.
Fjórskipt áætlun
í tillögu Youngs, sem hann
kynnti á Akureyri að drögum að
áætlun um sjálfbæra þróun á norð-
urslóðum, er lagt til að áætlunin
skiptist í fjögur svið. Fyrst er
stjórnun á nýtingu lifandi auðlinda
norðurslóða, þ.e. auðlinda hafsins,
skóga o.fl. Undir þetta svið fellur
m.a. hvernig bregðast skuli við
starfsemi róttækra dýraverndun-
arsinna, en meginverkefnið er þó
að finna leiðir til að stjórna nýtingu
auðlindanna á sjálfbær-
an hátt og í sátt við
menningarlegar og fé-
lagslegar aðstæður og
hefðir fólksins sem býr á
norðurhjara.
Annað sviðið, sem
““““ Young leggm- til, nær til
þess hvernig stýra skuli og bregðast
á sjálfbæran hátt við áhrifum iðnað-
ar á náttúra og mannlíf norðurslóða.
í þriðja lagi leggur Young til að gef-
inn skuli gaumur að sjálfbærri
byggðaþróun á norðurslóðum, og
loks í fjórða lagi hvemig vemda beri
norðurskautssvæðið fyrir ytri þiýst-
ingi. Þessi þrýstingur getur verið
margs konar, að mati Youngs. Fyi'st
sé það mengun sem berist úr suðri
og safnist upp t.d. í lífkeðju norður-
slóða. Dæmi um þetta sé þung-
málmamengun. Reyna beri að sam-
eina krafta þeirra sem bera hags-
muni norðurslóða fyrir brjósti með
alþjóðlegum umhverfisverndarsam-
tökum, sem berjast fyrir málefnum
sem norðurslóðum er hagur í.
Young bendir á, að Aætlunin um
vernd norðurheimskautsumhverfis-
ins (AEPS) frá 1991 hafi skipzt í
fjögur undirsvið. Því hafi sér þótt
ráðlegt að leggja til að væntanleg
áætlun um sjálfbæra þróun, sem
ætti að verða hliðstæð AEPS sem
verkefni undir hatti Norðurheim-
skautsráðsins, skiptist einnig í fjög-
ur undirsvið. Nú er bara eftir að sjá
hvað úr verður.
Hagsmunir sjávarbyggða
verði í fyrirrúmi
Giraanon
Reykjavíkurvegi 64, simi 565 1147
BÆJARSTJÓRN Bolungarvíkur
fjallaði á fundi á fimmtudag um
fyrirhugaðar breytingar á lögum
um stjórn fiskveiða og í bókun sem
hún hefur sent frá sér er tekið ein-
dregið undir ályktun stjórnar
Fjórðungssambands Vestfirðinga
og þess krafist að við væntanlegar
lagabreytingar á lögum um stjórn
fiskveiða verði hagsmunir sjávar-
byggða hafðir í fyrirrúmi.
Bæjarstjórn ítrekar fyrri áskorun
sína vegna sama máls til alþingis
frá 21. október 1997 og skorar á
sjávarútvegsráðherra og alþingi að
íhuga vel og vandlega afleiðingar
núverandi frumvarps að lagabreyt-
ingum verði þau samþykkt. Bent er
á að í sóknarkerfi njóta sjávar-
byggðir á Vestfjörðum nálægðar-
innar við fiskimiðin.
Þá krefst bæjarstjórnin þess að
allar breytingar á lögum um
stjórn fiskveiða stuðli að verndun
og hagkvæmri nýtingu nytjastofna
íslandsmiða um leið og lögin
tryggi trausta atvinnu og byggð í
landinu.