Morgunblaðið - 12.12.1998, Page 24
24 LAUGAKDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
gardeur
- b u x u r
fierm
GARÐURiNN
-klæðirþigvel
Soiuslu()ir:
Daíía
FiikiiíVni IJ. s. 568 9120
BLÓMAHÖLLÍN
Ilamrabnr'í í -3. s. 551 0380
----
snegla
islenskir lisímunir
t e x t í 11
I e i r I í s t
m y n d I i s t
s i I k i s I æ ð u r
c.ngta bjöllur
ullai treflai
s m á m v n d i r
tc.xtíltöskui'
kertastjakar
leirvasat
myndvefnaöur
siikimvndir
GRETIISGÖTU V/KLAPPASTÍGUR, S. 562 0426
VIÐSKIPTI
52 milljóna króna hagnaður Tanga fyrstu níu mánuðina
Hefur tekið á móti 60 þús.
tonnum af loðnu og síld
HAGNAÐUR af rekstri Tanga hf. á
Vopnafirði nam 52,4 milljónum
króna á fyrstu níu mánuðum yfír-
standandi rekstrarárs samkvæmt
óendurskoðuðu uppgjöri en hagnað-
urinn nam 50,8 milljónum króna á
fyrstu tíu mánuðum ársins á undan
en þá var ekki gert níu mánaða upp-
gjör. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsgjöld nam 232 milljónum
á fyrstu níu mánuðum ársins og
veltufé frá rekstri nam 158,1 milljón.
Hagnaður er minni nú en í sex
mánaða uppgjöri félagsins og
skýrist það fyrst og fremst af mikl-
um breytingum á fjármagnsliðum
sem rekja má til gengisbreytinga á
langtímalánum og lægri verðbreyt-
ingartekna, svo og til aukinna af-
skrifta, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Tangi hf. seldi
skuttogarann Eyvind Vopna í lok
ágúst og nótaskipið Sunnuberg í
október og munu þær ráðstafanir
leiða til minni afskrifta á síðustu
mánuðum ársins.
4.400 tonn á
japansmarkað
Frá áramótum og til dagsins í
dag hefur Tangi hf. tekið á móti
u.þ.b. sextíu þúsund tonnum af
loðnu og síld. Par af voru fryst 4.400
tonn af loðnu á Japans- og Rúss-
landsmarkað. Tangi hf. gerir út
togarann Bretting NS-50 sem fryst-
ir aflann um borð og nótaskipið Vík-
urberg GK-1. Þá rekur félagið
frystihús fyrir bolfísk, fullkomið
loðnu- og síldarfrystihús og físki-
mjölsverksmiðju.
„Ég er þokkalega sáttur við það
sem reksturinn gefur af sér þó að
auðvitað sé slæmt að sjá hagnaðinn
lækka svona mikið á milli tímabila,“
segir Friðrik Mar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Tanga hf., í
fréttatilkynningu.
Fjármagnsliðir hækka
Friðrik Mar segir að á fyrstu sex
mánuðum ársins hafí fjármagns-
gjöld fyrirtækisins aðeins numið
rúmlega níu milljónum króna vegna
gengisþróunar tímabilsins. Það sé
Tangi hf Úrárshlutareiknmgi
rl«ii mmsÉm, | jan.-sept. JAN.-OKT.
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1998 1997
Rekstrartekjur 1.327,6 1.396,4
Rekstrargjöld 1.095.6 1.158.2
Hagnaður fyrir afskriftir og fjárm.liði 232,0 238,2
Afskriftir -131,8 -119,0
Fjármagnsliðir nettó -62,7 -62,2
Hagnaður af reglulegri starfsemi 37,6 56,9
Aðrir liðir 14,8 -6,1
Hagnaður (tap) árssins 52,4 50,8
Efnahagsreikningur
1 Eipnir: | Milljónir króna
Veltufjármunir 427,4 432,9
Fastafjármunir 2.036,5 1.581,4
Eignir samtals 2.463,9 2.014,3
| Sku/dir og eigid fé: | Miltjónir króna
Skammtímaskuldir 723,7 561,5
Langtímaskuldir 1.076,8 846,5
Eigið fé 663,4 606,4
Skuldir og eigið fé alls 2.463,9 2.014,3
Sjóðstreymi og kennitölur
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 158,1 169,8
Veltufjárhlutfall 0,59 0,77
Eiginfjárhlutfall 26,92% 30,10%
Ný gagna-
flutnings-
þjónusta
Landssímans
LANDSSÍMI íslands hf. mun taka í
notkun nýja gagnaflutningsþjón-
ustu, svokallað ATM-net í mars á
næsta ári. Þessi nýja þjónusta mun
svara ört vaxandi þörf fyrir gagna-
flutningi, en til eru spár sem gera
ráð fyrir 140% árlegri aukningu
gagnaflutnings á heimsvísu næstu
árin. Því er jafnvel spáð að gagna-
fjarskipti verði orðin meiri en hefð-
bundinn talsímaflutningur strax á
næsta ári að því er segir í fréttatil-
kynningu frá Landssímanum.
I könnunum, sem Landssíminn
hefur látið gera á meðal fyrirtækja
og stofnana hér á landi, hefur komið
í ljós mikill áhugi á nýjum kostum í
gagnafjarskiptum. M.a. vilja fym’-
tæki eiga kost á afkastameiri teng-
ingum við Internetið, samtengingu
staðarneta útibúa, samtengingu
símkerfa og öfiugum tengingum við
upplýsingaveitur.
ATM (Asynchronous Transfer
Mode) er gagnaflutningsháttur, sem
nýtir þann mikla flutningshraða,
sem fæst á ljósleiðarasamböndum.
Með ATM má því flytja bæði hljóð
og mynd og fullnægja jafnframt
þörf fyrir aukinn flutningshraða í
tölvusamskiptum. Gera má ráð fyrir
að gagnaflutningur með ATM leysi
á næstu árum af hólmi flutning um
leigulínur, Gagnanet og Háhraðanet
símans, en tvö síðarnefndu netin
verða fyrst um sinn flutt á ATM-
netinu.
langframa og gengislækkanir lang-
tímalánanna hafi að mestu leyti
komið til baka í lok september.
„Fjármagnsliðir hækka þannig úr
9,3 milljónum króna í 62,7 milljónir
á þriggja mánaða tímabili. Þá koma
einnig fram fullar afskriftir af Ey-
vindi Vopna og Sunnubergi á þessu
tímabili, en bæði þessi skip hafa nú
verið seld í stað Víkurbergsins sem
keypt var fyrr á þessu ári,“ segir
hann.
„Það sem skiptir meginmáli er að
fjármunamyndun í rekstrinum er
um 11,9% af veltu tímabilsins og að
vergur hagnaður er í samræmi við
væntingar okkar,“ segir Friðrik
Mar í fréttatilkynningu.
*
Utskriftarnemar Tækniskólas
gefa út blað um markaðsmál
UTSKRIFTARNEMAR í alþjóða-
markaðsfræði við Tækniskóla Is-
lands hafa gefið út blað um markaðs-
mál og útflutning sem ber heitið
Markmið. Tilgangur með útgáfu
blaðsins er að færa lesendum grein-
ar tengdar markaðsmálum, kynna
nám í alþjóðamkarkaðsfræði og þá
nemendur sem útskrifast um ára-
mót, að því er kemur fram í rit-
stjómarspjalli Markmiðs. í blaðinu
eru fjölmargai’ greinar um viðskipti
og markaðs- og útflutningsmál. Upp-
lag blaðsins er 4 þúsund eintök og
verður því dreift til fyrirtækja, allra
meðlima ÍMARK, stofnana og skóla.
Útskriftarhópurinn, sem stendur
að blaðinu, er fyrsti hópur nemenda
frá Tækniskólanum með B.Sc. próf í
rekstrarfræðum af alþjóðamarkaðs-
fræðisviði, en áður útskrifuðust
nemendur af útflutningsmarkaðs-
fræðisviði. Nafnbreytingin endur-
speglar þær áherslubreytingar sem
orðið hafa á náminu til aukins vægis
markaðshluta þess.
Fulltrúar hluthafa um samruna Hraðfrystistöðvar Pórshafnar og Skála
Allt íjárnum
í Skálum
SAMRUNAÁÆTLUN Hraðfrysti-
stöðvar Þórshafnar og Skála ehf.
er í járnum þessa dagana. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er málið á viðkvæmu stigi og
spenna í hluthafahópi Skála vegna
þess.
Eins og greint var frá í blaðinu
fyrr í vikunni var tillaga um sam-
runa HÞ og útgerðarfélagsins
Skála ehf. felld á hluthafafundi
HÞ vegna þess að minnihluti hlut-
hafa í Skálum samþykkti sam-
runaáætlunina ekki og óskaði þess
að fá útgreiddan hlut sinn sam-
kvæmt mati, í stað þess að fá hlut
í sameinuðu félagi, eins og sam-
runaáætlunin hafði gengið út á, að
sögn Isaks Olafssonar sveitar-
stjóra á Þórshöfn og stjórnar-
manns í HÞ.
Isak segir að finna verði aðrar
leiðir til að af samrunanum geti
orðið en sagði að menn væru ekki
farnir að ræða frekar saman. Hann
sagði að búið væri að eyða miklum
tíma og peningum í gerð samruna-
áætlunarinnar og því hafí það verið
vonbrigði að ekki gekk saman.
„Menn töldu að allir væru í þessari
vinnu af heilum hug og myndu
standa á bakvið áætlunina, enda
var búið að leggja mikinn kostnað
og vinnu í að koma henni saman,“
sagði Isak.
Hann segir að Skálar ehf. hafí
verið stofnað í upphafí vegna þess
að Þórshafnarhreppur og Vopna-
fjarðarhreppur ætluðu að standa
saman að aukinni loðnulöndun á
báðum stöðunum. I dag er því hins
vegar ekki þannig farið, samstarfið
fór í háaloft að sögn ísaks, og
Vopnafjarðarhreppur vill út úr fé-
laginu.
„HÞ hótaði og felldi
samrunann"
Friðrik Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðarfélagsins
Tanga hf. sem var einn þriggja að-
ila minnihlutans sem óskaði inn-
lausnar, segir að samkvæmt hluta-
fjárlögum eigi minnihlutinn rétt á
innlausn, komi til samruna, og eigi
þá að fá greitt út samkvæmt mati.
Hann segir að þegar sú krafa lá
skýr fyrir þá hafí hluthafar HÞ
fellt samrunann og fundi hafi síðan
verið frestað til 15. janúar næst-
komandi í síðasta lagi.
Friðrik segir að Tangi, sem er
15,4% hluthafi í Skálum, vilji losna
úr félaginu og hann segir að Hrað-
frystistöð Þórshafnar hafi alltaf
notað félagið eins og hún ætti 100%
hlut í því en ekki 35,9% eins og
raunin er. „Við ætluðum að nýta
rétt okkar á innlausn og á hluthafa-
fundinum var spurt hvort einhverj-
ir myndu óska þess en því jafn-
framt hótað að samruninn yrði
felldur, óskuðu einhverjir innlausn-
ar,“ sagði Friðrik.
Aðspurður hvort um mikla pen-
inga væri hér að ræða, sagði Frið-
rik að svo væri.
Skálar ehf. rekið
sjálfstætt
Útgerðarfélagið Skálar ehf. var
stofnað 1993 samhliða kaupum á
nótaskipinu Júpíter sem gerir út á
loðnu og sfld. Arið 1997 var öðru
nótaskipi bætt við, Neptúnusi, sem
gerir út á sömu veiðar.
Frá upphafi hefur stærsti hlut-
hafinn í félaginu, Hraðfrystistöð
Þórshafnar sem á 36% hlut, annast
rekstur félagsins. Starfsemi þess
felst eingöngu í útgerð skipanna
tveggja.
Að sögn Hólmars Astvaldssonar,
fjármálastjóra Skála, landa Júpíter
og Neptúnus meirihluta aflans á
Þórshöfn. Hann sagði þó, að félagið
væri rekið sjálfstætt og því væri
því í sjálfsvald sett hvar það land-
aði.
Skálar eru svokallað hlutdeildar-
félag HÞ þar sem eignarhluti HÞ
er ekki nægjanlegur til að félagið
geti kallast dótturfélag þess.
Aðspurður hverju samruninn
myndi skila eða breyta, sagði
Hólmar Astvaldsson að rekstur fé-
lagsins hefði gengið vel en hinsveg-
ar myndi samruni einfalda rekstur-
inn og styrkja bæði félögin.
Hluthafar í Skálum eru, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins, Hraðfrystistöð Þórshafnar, 01-
íufélagið hf. ESSO, Sjóvá hf. ,
Vopnafjarðarhreppur, Tangi hf.,
Þórshafnarhreppur, Svalbarðs-
hreppur, Lárus Grímsson, Útgerð-
arfélagið Bjarg og Verkalýðsfélag
Þórshafnar.
Minnihlutinn, sem óskaði inn-
lausnar, er Tangi, Vopnafjai’ðar-
hreppur og Lárus Grímsson, sem
samanlagt eiga 26% hlut.
Isak er ekki stjórnar-
formaður
Rétt er að leiðrétta það sem kom
fram í frétt Morgunblaðsins sem
birt var um samrunann fyrr í vik-
unni.
Sagt var ranglega að ísak Ólafs-
son hefði verið kjörinn formaður
stjómar HÞ en hið rétta er að ísak
var kjörinn í stjórn í stað Rein-
hards Reynissonar sem verið hefur
stjómarformaður félagsins. Beðist
er velvirðingar á þessu.