Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 27
Texaco hættir vioræoum við Shell
Stefnt að
bandalagi?
New York. Reuters.
TEXACO Inc. kann að stefna að
samruna í stað bandalags, segja
sérfræðingar um þá ákvörðun
bandaríska olíufélagsins að slíta við-
ræðum við ensk-hollenzka félagið
Royal Dutch/Shell Group varðandi
samruna hreinsunar- og markaðs-
starfsemi félaganna í Evrópu.
Talsmaður Texaco, Chris Gidez,
sagði aðeins að félagið mundi
„kanna alla möguleika á að bæta
starfsemina og hag hluthafa.“ Hætt
hefði verið við viðræðurnai' vegna
þess að bæði fyrirtækin „skildu að
þau gætu ekki tryggt hluthöfum
þær hagsbætur, sem þau hefðu gert
sér vonir um.“
Talsmaður Shell i London sagði
að viðræðunum hefði verið slitið
vegna „gagnkvæmra efasemda," en
ekki vegna viðræðna við annað fyr-
irtæki.
Fyrr á þessu ári gerðu fyrirtækin
samkomulag sín í milli og við ríkis-
olíufélagið Aramco í Saudi-Arabíu
um samræmda hreinsunar- og
markaðsstarfsemi.
Fáir einir á báti
Auk Texaco eru Chevron Corp.
og Atlantic Richfíeld þau stórfélög í
olíuiðnaði sem hafa ekki sameinazt
öðrum til að draga úr kostnaði.
Pótt Chevron og Texaco tækju
höndum saman fyrir mörgum árum í
Caltex-fyrirtækinu, sem einbeitir sér
að Asíu, Miðausturlöndum og Af-
ríku, er ólílegt að félögin sameinist í
Vesturheimi að sögn Fadels Gheits,
sérfræðings Fahnestock & Co. „Það
mundi ekki gera þau að voldugu afli -
þau yrðu aðeins í 4. efsta sæti í at-
vinnugreininni,“ sagði hann.
„Teningunum er kastað,“ sagði
Gheit, „Arco, Chevron og Texaco
geta valið um BP, Exxon og Royal
Dutch Shell.“
Gheit spáði því að þrjár megin-
samsteypur mundu koma fram -
sameinaðar fylkingar BP Amoco og
Chevron; Exxon, Mobil og ARCO,
og Royal Dutch/Shell og Texaco.
„Chevron er of lítið og gengur
sennilega BP á hönd til að fá sem
mest út úr samvirkni. ARCO er
minnsta stóra félagið og þarf að
sannfærast um að það getur ekki
aukið verðgildi hlutabréfa sinn eitt
síns liðs. Sennilega er bezt að það
gangi í bandalag með Exxon-
Mobil,“ sagði Gheit.
Breytingar á æðstu stjórn Shell
Olíurisinn Royal Dutch/Shell Group
hefur breytt stjórnarfyrirkomulagi
tveggja helztu deilda fyrirtækisins
svo að auðveldara verði að taka
skjótar ákvarðanir og til að undir-
búa fleiri breytingar, sem munu
verða kunngerðar í næstu viku.
Sérfræðingar telja þó ólíklegt að
fyrirtækið fari að dæmi keppinaut-
anna British Petroleum og Exxon
og reyni að taka við stjórn annarra
fyrirtækja, þótt um það hafi verið
rætt að risinn hafi áhuga á Ch-
evron.
Að sögn Shell hafa Paul Skinner
og Phil Watts verið skipaðir aðal-
framkvæmdastjórar olíuafurða-
deildar og leitar- og framleiðslu-
deildar í stað nefnda framkvæmda-
stjóra, sem hafa stjórnað deildun-
um.
„Runninn er upp nýr tími þegar
taka verður skjótar ákvarðanir og
ekki má fara á milli mála hvar
ábyrgðin hvílir,“ sagði Mark Moody
Stuart, formaður framkvæmda-
stjórnar fyrii-tækisins.
Á mánudaginn munu sérfræðing-
ar mæta á fundi með Shell, sem
þrýst hefur verið á að bæta frammi-
stöðu sína eftir afleitan þriðja árs-
fjórðung. Á fundinum mun Shell
gera grein fyrir framtíðarstefnunni.
„Petta er skref í rétta átt og frá-
hvarf frá því embættismannakerfi
sem hefur verið við lýði,“ sagði sér-
fræðingur verðbréfafyrirtækisins
Williams de Broe.
Fyrirtækið minntist ekki á frétt í
Financial Times um að það hafi
einnig í hyggju að skipa voldugan
aðalframkvæmdastjóra á banda-
ríska vísu til að stjórna fyrirtækinu.
Sérfræðingar telja það skynsam-
legt, en segja að umræðum um mál-
ið sé ekki lokið og það hafi mætt
mótstöðu.
“i„u / mt
LACOSTE
ekta jólagjöf
fertu
GARÐURiNN 1
-klæðirþigvel
ART CALLERY
Rauðarárstíg 14, sími 551 0400,
Kringlunni, sími 568 0400.
fold@artgalleryfold.com
v Þegar íslenski osturinn er kominn á ostabakkann,
þegar hann kórónar matargerðina - bræddur eða
djúpsteiktur - eða er einfaldlega settur beint í munninn
f)slensAm' ^eiw
Himneskur í salatið, sem
meðlæti eða snarl.
lid/
Á ostabakkann og með
kexi og ávöxtum.
<z>twu/-isÉ)iman/
Ómissandi þegar vanda
á til veislunnar.
^Kfémaaslm/
Einn og sér, á ostabakkann
og í matargerð.
Á kexið, brauðið,
í sósur og ídýfur.
<=XauIwi/kasiali
Með ferskum ávöxtum
eða einn og sér.
C3^WCMS'-Cljlfa
Mest notuð eins og hún
kemur fyrir en er einkar góð
sem fylling í kjöt- og fiskrétti.
Bragðast mjög vel djúpsteikt.
‘ttlasearfone/
/JSliPtY
fá.ifmu ?
Góður einn og sér og
tilvalinn í matargerðina.
eamoCi^
Sígildur veisluostur,
fer vel á ostabakka. Alltaf
góður með brauði og kexi.
tPani/ Salul
Bestur með ávöxtum,
brauði og kexi.
^iááaastiM/
Tilvalinn til matargerðar
í súpur, sósur eða lil fyllingar í kjöt-
og flskrétti. Góður einn og sér.
^^taíilaoAsAúe/
Kærkominn á ostabakkann,
með kexi, brauði og ávöxtum.
ÍSLENSKIR
Ostar. y-
Kryddar hverja veislu.
vvww.ostur.is
■■i—.—ii.