Morgunblaðið - 12.12.1998, Side 30
80 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eigur Nicolaes Ceausescu, fyrrverandi Rúmeníuleiðtoga, og eiginkonu hans boðnar upp á Netinu
HLUTI pelsasafnsins.
MAN-rútan, sem búin var sex símum m.a. á baðherberginu.
ENGINN veit með vissu hversu
miklum auði Nicolae Ceausescu, ein-
ræðisherra í Rúmeníu, og eiginkona
hans, Elena, höfðu náð að sanka að
sér er þau kvöddu þennan heim í
kúlnaregni á jóladag árið 1989. Hitt
er víst að veraldleg ágirnd kommún-
istaleiðtogans og konu hans var í
senn hamslaus og smekklaus. Nú
hafa stjórnvöld í Rúmeníu loks
ákveðið hvað gera ber við eigur
þeirra hjóna, þær verða boðnar upp
á Netinu á næsta ári er tíu ár verða
liðin frá þau Nicolae og Elena voru
leidd fyrir aftökusveit.
Þau hjónin voru klædd þykkum
yfirhöfnum er þau flúðu undan æst-
um múgnum í þyrlu af þaki bygg-
ingar miðstjórnar rúmenska komm-
únistaflokksins í Búkarest 22. des-
ember 1989. Þau voru handtekin
skömmu síðar, ekki langt frá höfuð-
borginni. Efnt var til skyndiréttar-
halda yfir þeim og þremur dögum
síðar voru þau leidd út í bakgarð í
herstöð þeirri þar sem þau höfðu
verið í haldi og tekin af h'fi með
miklu kúlnaregni. ,Anti-Kristur er
allur,“ lýsti þulur rúmenska ríkisút-
varpsins yfir er skýrt var frá því að
„leiðtoginn" hefði verið drepinn
ásamt eiginkonu sinni, sem Rúmen-
ar lögðu jafnvel enn meira hatur á.
Ýmsum spumingum er í raun enn
ósvarað um rúmensku „byltinguna"
fyrir réttum níu árum. Sannfærandi
rök hafa verið leidd að því að hér hafi
raunar alls ekki verið um byltingu að
ræða heldur valdarán. Undirsátar
Ceauseeus komust til valda og héldu
þeim allt til ársins 1997 er stjómar-
andstöðunni tókst loks að velta
kommúnistunum gömlu úr sessi.
Uppboð á næsta ári
Allt frá því þetta gerðist hafa
menn velt því fyrir sér hvernig ráð-
stafa beri þeim mikla auði sem
Ceausescu-hjónin komust yfir á 25
ára valdaferli sínum. Nú hafa ráða-
menn í Rúmeníu ákveðið að hyggi-
legast sé að bjóða gripina upp og
ekki mun galtómum ríkissjóði veita
af fjármunum þessum.
Akveðið hefur verið að uppboðið
fari fram um Netið á næsta ári. Hins
vegar geta menn nú þegar kynnt sér
það sem í boði verður og má fullyrða
að margir munu renna hýra auga til
margra gripa úr búi einræðisherr-
ans.
Skipta má uppboðinu í fernt. f
fyrsta lagi verða bílar einræðisherr-
Grænir pelsar
og glæsivagnar
Afráðið hefur verið að
bjóða upp auðæfí
Ceausescu-hjónanna
rúmensku á Netinu.
Asgeir Sverrisson
skoðaði það sem í boði
er og fékk augastað á
ljósgráum leðurskóm.
ans boðnir upp. Síðan verða a.m.k.
þrír bátar seldir, þá fatnaður og loks
aðrir gripir. Ekki er gert ráð fyrir
að glæsihýsi og hallir þær sem
Ceausescu-hjónin héldu til í verði
seldar að þessu sinni og hið sama
mun gilda um listgripi ýmsa sem
þau áttu og vom margir hverjir úr
hófi fram ósmekklegir.
Gjöf frá Nixon
Bílarnir munu vafalaust freista
margra. Mesta athygli mun trúlega
vekja Buick Electra 225 árgerð 1975
sem Richard Nixon færði Ceausescu
að gjöf er hann sótti hann heim árið
1976. Ceausescu naut lengi umtals-
verðrar virðingar á Vesturlöndum og
réði þar mestu sú ákvörðun hans að
taka ekki þátt í innrás Varsjárbanda-
lagsríkjanna í Tékkóslóvakíu 1968.
Buickinn er óvenju glæsilegur
vagn, búinn V8 vél sem eyðir 28 lítr-
um á hverja hundrað kílómetra.
Vagninn er aðeins ekinn um 12.000
kílómetra.
Annað magnað og sögulegt öku-
tæki verður boðið falt en það er
fyrsti Dacia-bílinn sem framleiddur
var í Rúmeníu. Ceausescu var ákaf-
lega stoltur af bflaíramleiðslunni
enda boðaði hann lengi að Rúmenar
ættu með öllu að vera óháðir öðram
þjóðum. Dacia-bílinn sem er frá ár-
inu 1965 minnir raunar mjög á
DAF-bfla og þaðan var teikningin
BUICK-bifreiðin sem Nixon gaf Ceausescu.
SKÓR einræðisherrans verða
boðnir upp.
vísast komin. Bflinn er aðeins ekinn
rúmlega 33.000 kflómetra og með
fylgir varadekk og útvarp af gerð-
inni SINAIA. Síðar framleiddu
Rúmenar Dacia-bfla samkvæmt eig-
in teikningum og höfðuðu þau öku-
tæki mjög til skopskyns margra.
„Leiðtoga-rúta“ með
sturtuklefa
Annan glæsivagn er þarna og að
finna, Mercedez Benz 350SL sport-
bfl, árgerð 1973. Þennan bfl pantaði
Ceausescu hjá Benz-verksmiðjunum
og var hann ætlaður dóttur hans,
Zoe. Þetta er 200 hestafla, sérbúinn
sportbfll og hann er aðeins ekinn
4035 kflómetra.
Hápunktur bflauppboðsins hlýtur
þó að vera sérútbúin „leiðtoga-rúta“
sem MAN fyrirtækið færði
Ceausescu að gjöf. Bfllinn er dökk-
rauður og innréttingin lyginni lík-
ust. Þarna er að finna rúmstæði,
baðherbergi, sturtuklefa, salerni
fyrir starfsfólk, eldhús og „stofu“
búna hægindastólum. Athygli vekur
að bflinn er búinn sex símum og gat
einræðisherrann gefið fyrirskipanir
beint úr sturtuklefanum.
Auk þessara bíla verða boðnir upp
sérhannaður Hilmann, árgerð 1974,
sem smíðaður var í íran og Reza Pa-
hlavi keisari gaf Ceausescu og veiði-
bfll einræðisherrans, Volkswagen-
jeppi, árgerð 1971, sem er sérstak-
lega búinn til veiðiferða en þær vora
helsta gaman leiðtogans. Bflinn er
m.a. búinn sérstakri skotvopna-
geymslu og skotgötum þannig að
unnt er að hleypa af beint úr aftur-
sætinu. Þessi bfll er aðeins ekinn
6.250 kflómetra.
Lúxusbátar og pelsasafn
Ceausescu-fjölskyldan hafði af því
mildð yndi að líða um á glæsibátum
sínum á vötnunum lygnu í nágrenni
höfuðborgarinnar. Almenningi var
að sjálfsögðu bannað að vera þar í
nágrenninu og sá öryggislögreglan
illræmda, Securitate, um að halda
forvitnum í hæfilegri fjarlægð. Tveir
bátai- „Snagov 1“ og „Snagov 2“
verða seldir á næsta ári. Þetta eru
rúmgóðir, vel búnir og glæsilega inn-
réttaðir bátar. Að auki verður hrað-
báturinn „Rockets" (skýringu vantar
á nafninu) seldur hæstbjóðanda.
Ceausescu-hjónin vora annáluð
fyrir smekkleysi og það gilti einnig
um klæðaburð þeirra. Mikið af fatn-
aði verður seldur sem og mökkur
skópara en bæði voru þau hjónin
ástríðufullir skósafnarar. Heimsæki
menn uppboðshaldarana á Netinu
má sjá á einni myndinni hluta af
safni leiðtogans og vekja gráir leð-
urskór sérstaka athygli bæði sakir
litar og lögunar. Pelsasafn eiginkon-
unnar verður og selt og munu marg-
ir vafalaust ágirnast grasgrænan
loðfeld einn, sem hlýtur að teljast
einstök flík. Þá er og þama að finna
kápu úr blálituðu hlébarðaskinni,
sem ábyggilega verður slegist um.
Svo virðist sem kvikmyndasafnið
verði ekki boðið upp en Ceausescu
safnaði myndum um hárlausa lög-
regluforingjann „Kojak“. Eiginkon-
an horfði hins vegar einkum á
myndbönd sem sýndu ástalíf undir-
manna þeirra og Securitate tók upp
með leynd fyrir hana.
Bflarnir hraðskreiðu dugðu
skammt og þykkur fatnaðurinn kom
Ceasuescu-hjónunum að litlum not-
um er þau voru leidd fyrir aftöku-
sveitina. „Þið fluttuð inn matvöru og
rándýran munaðarvarnig frá útlönd-
um. Þið rænduð fólkið Þið eruð
ásökuð um glæpi gegn þjóðinni,"
sagði „saksóknarinn" í máli þeirra
áður en dómurinn var upp kveðinn.
Hluta þessa varnings geta menn
nú skoðað á Netinu. Slóðin er
www.ines.ro.
1 Myndlampi Black Matrix
’ 50 stöðva minni
’ Allar aðgerðir á skjá
1 Skart tengi • Fjarstýring
’ íslenskt textavarp .
A öllum tækjum er öryggi
sem slekkur á sjónvarpinu
þegar útsendingu lýkur!
A» Myndlampi Black Matrix
• 100 stöðva minni
• Allar aðgerðir á skjá
• Skart tengi
1 Fjarstýring
■ Aukatengi f. hátalara
■ Islenskt textavarp
1 Myndlampi Black Matrix
’ 50 stöðva minni
■ Allar aðgerðir á skjá
’ Skart tengi • Fjarstýring
■ Islenskt textavarp
BRÆÐURNIR
BEKO fékk viðurkenningu í hinu
virta breska tímariti WHAT VIDEO
sem bestu sjónvarpskaupin
Lá g m ú
2800
Umbobsmenn um allt I a n d
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Vestflrölr: GeirseyrarbúÓin, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvlk.Straumur.lsafiröi. Noröurland: Kaupfélag V-Hún.,Hvammstanga. Hegri.SauÖárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA, Lónsbakka. KEA.Dalvík. Kaupfólag Vopnfiröinga, Vopnafiröi.
Austurland: Vélsmiöja Hornafjaröar, Hornafiröi. KHB, Egilsstööum. Kaupfélag Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. Kaupfólag Stööfiröimga, Stöövarfiröi. Suöurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Geisli.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavík. Rafborg.Grindavík.