Morgunblaðið - 12.12.1998, Page 38
38 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
SPILIN Í JÓLAPÖKKUNUM
Mikið
skoðað og
spekúlerað
Hvaða spil verða á borðum fjölskyldunnar
-----------r—-------------------------------
um jólin? Ur vöndu er að ráða enda vantar
ekki úrvalið. Pétur Blöndal kynnti sér
spilaflóruna og komst að því að spilafólk á
eftir að hafa nóg fyrir stafni um jólin.
s
G ER í Ijómandi skapi,“
segir Magni R. Magnússon
hressilega og er það viðeig-
andi á hátíð ljóss og friðar.
En ástæðan er ekki síður sú að jólin
eru hátíð spilafólks og Magni rekur
einmitt landsfræga spilaverslun á
Laugaveginum. „Það eru jól
framundan," segir Magni kampakát-
ur. „Úti er tíu stiga hiti og Svíar eru
fastir í sköflum,“ heldur hann áfram.
Hvers gæti maður óskað sér frekar?
Spilasalan fór hægt af stað um síð-
ustu helgi, að sögn Magna, enda er
fyrsti sunnudagur í mánuðinum alltaf
perudagur. Þá er fólk að fara yfír
jólaseríurnar sínai'. „Fólk er líka far-
ið að lifa svo mikið eftir kortunum að
ösin kemur með nýju kortatímabili,"
heldur Magni áfram. „En það er mik-
ið skoðað og spekúlerað og það verð-
ur í nógu að snúast um helgina." En
hver eru nýju spilin í ár?
Sögustund fjölskyldunnar
Orðaspilið Scrabble hefur
notið vinsælda undanfarin ár
og nú er komið nýtt spil frá
Eskifelli f sama dúr sem nefnist
Blanko. Það er ögn frábrugðið
Scrabble að því leyti að í stað
bónusreita eru
komnir reitir sem
kalla á að maður
dragi spjald og leysi
ýmsar þrautir.
„Taktu 10 stafí úr
bankanum. Settu
stundaglasið af stað.
Myndaðu orðið „blan-
ko“ og þú vinnur 20
stig,“ er dæmi um
slíkt spjald. Einnig má skipta um
stafí í orðum, breyta merkingu þeirra
og safna stigum í pottinn með því
móti. Uppsetning spilsins er einnig
meira „moderne“ en fyrra spilsins.
Reynsla blaðamanns er að spilið geti
tekið lengri tíma en Scrabble, jafnvel
teygt sig á milli kvölda, en að sama
skapi er erfitt að hætta eftir að mað-
ur er byrjaður.
Annar orðaleikui- frá Eskifelli
nefnist Blanko Junior og er fyrir
börn sem eru að læra að lesa. Spilið
hjálpar bömum að mynda orð og
snýst það um að þau nái að klára orð-
in. „Ég skal segja þér að það reynist
svo vel að það er notað út og austur
um skólann," segir Guðrún Þórarins-
dóttir, kennari í Kópavogsskóla.
„Það er vegna þess að spilið nýtist
vel í lestrarkennslunni í litlum hóp-
um í byrjendalestri grunnskólans; að
fínna staf sem vantar, búa til
orð með teningum og læra
að gera krossgátur. Við
notum spilið mikið við
kennsluna og erum
ekkert endilega að
binda okkur við
reglumar. Þetta er
alltaf spuming um
hvernig maður kemst
upp á lagið með að nota
spil og þetta spU hefur svo
sannarlega nýst okkur.“
Gettu hver nefnist
þriðja spilið frá Eskifelli
og snýst það um
að bera kennsl
á leyniandlit
andstæðingsins.
Þá er hægt að beita
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
ÞAÐ verður ekki mikið pláss fyrir mat á borðstofuborðinu um jólin.
útUokunarreglunni og spyrja t.d.
hvort leyniandlitið sé með gleraugu.
Það fer síðan eftir svarinu hvort
hægt er að útiloka alla með gleraugu
eða alla hina sem ekki eru með gler-
augu. Einfalt og auðlært spil.
Leikmeistarinn, Orðaleit og Sögu-
stund eru lítil og handhæg spU sem
geta nýst vel á ferðalögum, hvort
sem er í bUnum, stofunni eða uppi á
Esjunni. Sögustundin reynir ef til vill
mest á hugarflugið. Þá dregur maður
jafnmörg spjöld og talan segir til um
sem maður lendir á og hefur maður
eina mínútu til að spinna sögu með
orðunum á spjöldunum. Það verður
annaðhvort að vera gleðisaga eða
sorgarsaga. Eins og hin tvö spilin
getur Sögustund talist fyrir börn,
fullorðna og vel samkvæmishæft.
Orðaleit snýst um að finna orð sem
byrja á ákveðnum staf, t.d. M, og
verða þau að einnig að vera í tUtekn-
um flokki, t.d. „eitthvað sem er
drakkið". Lausnin gæti þá t.d. falist í
orðunum mysa eða mjólk. I Leik-
meistaranum dregur maður orð og á
að fá samherja sína til að giska á orð-
ið, hvort sem er með látbragði eða
orðskýringu með tUteknum orða-
fjölda. Öll eiga þessi þrjú spil sam-
merkt að geta skapað skemmtilegt
og skapandi andrúmsloft.
Að síðustu er Monopoly komið aft-
ur eftir tveggja ára hlé en það er spil-
ið sem Matador er byggt á. Bæði
byggjast spilin á sömu hugmýnd. I
þessari nýju útgáfu Monopoly er búið
að nútímavæða það og getur maður
keypt í Kringlunni eða lent í því að
greiða hátekjuskatt. Þá er það mun
veglegra en Matador.
Nýtt og dularfullt völundarhús
Dularfulla völundarhúsið nefnist
nýtt spil frá Andvara þar sem haldið
er áfram hefðinni sem skapast hefur
með spUunum Brjálaða völundarhús-
inu, Dularfulla völundarhúsinu og
Barnavölundarhúsinu. Þessi spil eiga
það sammerkt að vera með fallegu
spilaborði og gefur það nýjasta í röð-
inni hinum lítið eftir. Spilið er ætlað
10 ára og eldri en næsta víst er að
þegar börnin fara að sofa munu hinir
fullorðnu halda áfram að spila Dular-
fulla völundarhúsið fram á nótt.
Austurlenska spilið Lotus er fyrir
10 ára og eldri og er það sannarlega
fyrii- hina eldri líka því í eðli sínu er
það ekki alls ólíkt myllu eða skák;
hver leikur skiptir máli, nauðsynlegt
er að hugsa fram í tímann og spilið
byggist á útsjónarsemi en ekki
heppni þar sem ekki er notast við
teninga. Og ef maður passar sig ekki
getur maður tapað niður að því er
virðist auðunnu spili á síðustu
reitunum.
Froskaspilið Quaaki er
einnig frá Andvara og er það
minnisspil sem snýst um að
draga sem flesta í réttum lit upp
úr vatni og setja þá á samlit blóm
á tjörninni. Þannig gera þátttak-
endur froskana að vinum sínum
þótt ekki breytist þeir í prinsa
eða prinsessur. Hugmynda-
auðgi gætir við hönnun spilsins
og ætti það að geta skemmt bæði
börnum og fullorðnum. Þótt
kappastursleikurinn Grand
Prix snúist um hver verð-
ur fyrstur í mark með því
að kasta teningnum leynir hann á
sér því keppendur verða að leggja
brautina jafnóðum og ýmislegt getur
komið upp á eins og olíubrák, að bíll-
inn fari út af eða að það springi. Þá
getur verið gott að eiga stuðning
áhorfenda.
Rafmagnsspilið Elexion er
þroskaspil sem snýst um að tengja
myndir sem eiga saman með ljósa-
penna. Ef það er rétt gert kviknar
ljós á pennanum. Hlutir sem geta átt
saman eru t.d. hestur og folald.
Stundum er annar hluturinn stærri
en hinn eða einhver villa í stóru
myndinni sem sú minni leiðréttir.
Þetta er „voða flott“ tæknispil fýrir
yngstu kynslóðina. Loks má nefna
þroskaspilið Figurix sem snýst um
að kasta þremur teningum með mis-
munandi litum táknum. A spilaborð-
inu er svo öllum táknunum raðað
saman í mismunandi litum og eiga
allir þátttakendur að reyna að
merkja réttu myndina. Sá sem er
fyrstur að merkja sex mynd-
ir ber sigur úr býtum.
Þetta er spil frjálsrar
samkeppni
og í öllu
óðagotinu
getur það
verið þræl-
skemmti-
legt fyrir
fjölskyld-
k
Lögðum sál
okkar í spilið
HÆTTUSPIL og Latador eru lík-
lega veglegustu alíslensku spilin
sem koma út fyrir jólin. Latador
var kynnt í blaðinu í vikunni en
það er ærin ástæða til að kynna
líka Hættuspil.
Hættuspil
orðið að
veruleika
„Við höfum
verið með spilið
í þróun í tvö
ár,“ segir
Reynir Harðar-
son sem bjó til og hannaði spilið
ásamt Þórólfi Beck.
„Hugmyndin var einfaldlega sú
að gera gott spil. Það hefur verið
draumur hjá okkur lengi enda er-
um við miklir spilamenn. Við ætl-
uðum upphaflega að gefa það út í
fyrra og átti það að fjalla um lífið.
En við sáum að til þess að gera
gott alvöru spil þyrftum við að-
eins meiri tíma og frestuðum út-
gáfunni um eitt ár. Við lögðum sál
okkar í þetta. Ég sagði upp hjá Oz
og Þórólfur seldi Myndbandaskól-
ann þannig að við brenndum allar
brýr að baki okkur til að spilið
yrði að veruleika."
Spilið er einmitt þannig að
maður getur brennt allar brýr að
baki sér?
„Ég veit það nú ekki,“ segir
Reynir og hlær. „Nei, eiginlega
ekki,“ bætir hann við.
Kannski ekki... en í spilinu get-
ur maður engu að síður lent í
vítahring ofdrykkju og eiturlyfja.
En maður getur líka lagt rækt við
sjálfan sig og uppskorið eftir því.
Þá getur maður tryggt sjálfan sig
gegn óhöppum og byggt upp
hæfileika á ýmsum sviðum. Það
sem kom blaðamanni hvað mest á
óvart var að þrátt fyrir að spilið
sé margþætt er einfaldleikinn
ráðandi. Það sómir sér því vel
sem fjölskylduspilið yfir hátíðarn-
ar.
ÞÁ ER Hættuspilið byrjað. MorgunblaWHalktór
„Við blöndum saman borðspili
og kortaspilum," segir Reynir.
„Við höfum spilað kortaspil mikið
og á spil og lögðum til grundvall-
ar að maður þyrfti að geta haft
mjög mikil áhrif á mótspilarana
og menn þyrftu að geta sameinast
hver gegn öðrum svipað og í Risk.
Kortin gera manni kleift að grfpa
inn í atburðarásina hvenær sem
er og ná sér niðri á einhverjum
sem hefúr gert eitthvað á manns
hlut og halda aftur af óverðskuld-
uðum sigri, þ.e. allra annarra en
manns sjálfs.“
Hver hafa viðbrögðin verið?
„Ótrúlega góð,“ segir Reyn-
ir. „Allir sem hafa spilað spilið
hafa gefið því frábæra um-
sögn. Það virðast allir skilja
spilið og hasarinn er alltaf fyr-
ir hendi.“
Ætlið þið að halda áfram?
„Já, við ætlum að koma spil-
inu á erlendan markað og erum
þegar bókaðir á spilasýningar í
mars og byrjun apríl. Við erum
þegar farnir að hefja ináls á út-
gáfu á Norðurlöndum og það
Iofar góðu. Síðan erum við að
fara út í tölvuleikjaþróun og er-
um með tvö verkefni í gangi á
því sviði sem vinnsla hefst á þeg-
ar eftir áramót. Eitt verkefni er
fyrir íslenska aðila og eitt fyrir
alþjóðlegan markað. Við erum
þess vegna að leita að góðu
fólki, grafíkerum og forriturum,
sem hafa áhuga á tölvuleikjaþró-
un.“
Spilið h'tur vel iit og liggur
hlaðamanni forvitni á að vita
hvernig það var hannað.
„Spilið sjálft er mjög myndrænt
og er unnið í tölvum, sama þrí-
víddarkerfi og notað var til að
gera Jurassic Park og Twister,"
svarar Reynir. „Þetta er eitt þró-
aðasta þrívíddarkerfið á mark-
aðnum. Arnaldur Halldórsson tek-
ur myndirnar og fyrirsæturnar
eru Tvíliöfði, hið góða og hið
illa.“
Eitthvað að lokum?
„Má ég kannski koma að heima-
síðunni? Hún er: www.haettu-
spil.is
I