Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ__________________________________________PTTmn__________________________LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 41
Vakningardraumar
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
UM OG eftir aldamótin síðustu
varð mikil félagsleg vakning í
sveitum landsins, þá mótuðust
hugmyndir og hugsjónir manna
til sjálfstæðis í menningarlegum
sem efnahagslegum efnum. Sá
mikli sjálfstæðis- og framsóknar-
andi skilaði okkur því Islandi far-
sældar og framfara sem við
byggjum í dag. Nú við ný alda-
mót er eins og ný vakning sé að
ryðja sér braut. Andleg vakning
sem setur hugvísindi, drauma,
æðri máttarvöld og aðra heima á
stall til skoðunar, skilnings og
notkunar í leit okkar að nýjum
gildum, uppfinningum, efnistök-
um og framfórum til hugar og
handa. Þarna munu draumamir
gegna meira og stærra hlutverki
en þeir gera í dag, því draumar
eru aflvaki hugmynda og þeir
beinlínis gefa mönnum hugmynd-
ir að nýjum uppfinningum og
lausnum á flóknum pælingum
sem lent hafa í öngstræti, svo
sem spurningunni um kjarna efn-
isins, hraða þess og tíma. Þessi
vakning mun ýta á menn að
skoða hug sinn upp á nýtt, setja
sér ný mið svo sporin til framtíð-
ar verði gengin á nýjum skóm
með skýjuðum sóla. Jólin eru sá
tími sem mönnum er gefinn til
íhugunar og andlegs þankagangs,
þá leggjast menn í hugðarefni sín
en láta kvaðir nútímans lönd og
leið. Á þessum tíma rósemdar þar
sem andi jólanna svífur yfir gefst
mönnum sýn á innri veruleika
sinn og draumanna, tími til að
skoða hug sinn og þann heim sem
draumurinn býr hverjum manni.
Sú skoðun gefur manni leyfi til að
líða í dagdraumi, fljóta í sögu-
draumi, móka í milliveggja-
draumi eða vakna frá nætur-
draumi vakinn til vitundar um
innra afl til sköpunar og nýsmíði
á nýrri öld. Það er kjarni málsins.
„Draumasóley“ dreymir
I. Ég var í lest í London með
Hannesi (æskuvini), Daða
(frænda) og Andra (misheppnað
ástarsamband). Ríkjandi litur í
vagninum var sandstrandargulur
en allt frekar skítugt. Ég sofhaði
og þegar ég vaknaði voru strákam-
ir horfnir, lestin kyrr á endastöð og
vagninn tómur fyrir utan gamian
og illa lyktandi róna. Ég varð hálf-
móðursjúk og róninn vildi fara að
hugga mig en ég rauk út úr vagn-
inum og leitaði logandi ljósi að
strákunum en fann ekki. Á tröpp-
um inni í lestarstöðinni (rauðbrúnir
litir ríkjandi) fann ég Unu Strand
(stelpa sem ég er málkunnug) og
hún sagði að ég gæti gist hjá sér
og róaði mig niður. Þá koma strák-
amir og Hannes tekur utan um
mig og segir: „Mikið er ég feginn
að finna þig, ég hélt ég væri búinn
að týna þér.“ Hinir sögðu ekki
neitt, horfðu bara á mig.
II. Ég var á gangi í vesturbæn-
um með kærastanum mínum og
hélt á lítilli dóttur okkar í fanginu
(við eram bamlaus). Hún var með
dökkrauða húfú sem bundin var
fyrir neðan höku. Það var kalt.
Ég var að svipast um eftir Vest-
urgötu 50 en fann hvergi. Allt í
einu varð bamið veikt. Ég tók af
henni húfuna, athuga ennið og vil
fara einhvers staðar inn til að
hringja á lækni en þá fer barnið
að taia og segir: „Nei, þú þarft
ekki að hringja á lækni, það verð-
ur allt í lagi með mig.“ Við það
verður mér aðeins rórra og allt í
einu fer að hlýna.
III. Þennan draum dreymdi
mig fyrir mörgum áram. Ég var á
eyju og á flótta undan óvinum
mínum. Ég var alveg að örmagn-
ast á hlaupunum þegar hávaxinn
handstór maður og mjög dökkur
yfirlitum (ég sá aldrei andlitið)
kemur undan kletti og tekur í
höndina á mér, við það endumýj-
ast kraftar mínir og við hlaupum
niður að strönd þar sem bíður
okkar fleki. Við stökkvum út á
flekann og róum frá landi, út í
grænan illa lyktandi sjó af meng-
un. Hann rær og ég horfi til baka
á óvinina öskrandi í flæðarmálinu.
I sjónum flýtur gamalt rasl og
hvergi sér til lands en ég veit að
ég er öragg hjá vemdara mínum.
Ráðning
I. Draumurinn lýsir vissum
erfiðleikum sem þú átt við að
stríða. Hann talar um að þér
finnist þú hafa misst af lestinni
(lffinu) sem veldur þér hugar-
angri (lestarvagninn var sand-
strandargulur en frekar skítug-
ur) og eftirsjá (félagamir þrír).
Þetta hugarvíl (róninn) leiðir það
af sér að tilfinning þín fyrir lífinu
er að allt sé komið í strand (Una
Strand). En nafnið Una er fyrir
því sem er raunverulegt og þú
stjórnar. Draumurinn segir að
fyrrnefndir erfiðleikar séu að
baki (með þínum vilja) því Daði
(nafnið táknar dauða/erfiðleika)
og Andri (nafnið táknar snjó-
komu/erfiðleika) þögðu, þeirra
þáttur var liðinn. Hannes (nafnið
táknar gott) kom hins vegar og
sagði: „Mikið er ég fegin að finna
þig, ég hélt ég væri búinn að
týna þér.“
II. Þessi draumur gefur í skyn
að þú þurfir ekki að leita langt yf-
ir skammt að hamingju þinni, hún
muni nær en þig granar.
III. Þessi gamli draumur vísar
til þess að þú hafir eytt mörgum
áram af lífi þínu í tóma vitleysu og
sóað eigin gæðum og annarra í
tóma hít. Hann er því árétting á
fyrsta draumi.
•Þeir lesendur sem vilju fá
drnumn sína birta og ráðna sendi
þá með fullu nafni. fæðingardegi
og ári ásamt heimilisfangi og dul-
nefni til birtingar til:
Draumstafír
Morgunblaði
Kringlunni 1
103 Reykjavik
Æ
K
U
S
E
M
G
O
T
T
E
R
G
E
F
A
EINSTAKAR
BÆKUR
SEM FÁST HJÁ
ÖLLUM HELSTU
BÓKSÖLUM!
Louise
Tantra
Listín að elska meðvitað
Mörg þúsund ára gömul samskipta» og
kynlífsfræði í nútímabúningi. Hið
virta tímarit Yoga Joumal hafði þetta
að segja: „Ögrandi og tímabær lesning
fyrir nútímaparið. Bókin lýkur upp
tantrískum leyndarmálum um sam«
bönd, nánd og ástríðurif.
Hjálpaðu
sjálfum þér
Louise L. Hay gefur einstaka
innsýn og heilræði sem virka.
Bókin hefur selst í milljónum
eintaka um allan heim og
hjálpað þúsundum íslendinga,
nú er komið að þér.
Eldað
undir jökli
Heilsusamlegur matur sem kitlar
bragðlaukana. Gómsætar uppskriftir
án þess að notað sé hvítt hveiti, hvítí
ur sykur, ger eða mjólkurafurðir.
Bókin geymir upplýsingar um
hráefni og vinnsluaðferðir. Ætti að
vera til í hveiju eldhúsi.
... DREIFING i SÍMA 544 8070.
Lblt)AKLJuj TÖLVUPÓSTURleidar@centrum.is
Æ
K
U
R
S
E
G
O
T
T
E
R
E
I
G
A