Morgunblaðið - 12.12.1998, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENPAR GREINAR
Einkavæðum
framhalds-
skólana
ÁRIÐ 1996 voru
samþykkt ný lög um
framhaldsskóla og í
febrúar sl. lagði
menntamálaráðherra
fram drög að nýrri
menntastefnu fyrir
grunnskóla og fram-
haldsskóla. Þessa dag-
ana er einnig verið að
semja nýja námskrá
fyrir framhaldsskól-
ana. Þrátt fyrir þessar
breytingar hefur ótrú-
lega lítil umræða farið
fram um þetta skóla-
stig að undanförnu.
Ekki ætla ég að sinni
að fjalla um þessa
þætti nema að því leyti sem þeir
snerta umfjöllunarefni mitt, einka-
væðingu framhaldskólanna. Tel ég
vera tímabært að hefja umræðu
um það hvort hægt sé að bæta
skólana með því að einkavæða þá
að einhverju leyti.
Allir framhaldsskólar landsins
eru í dag reknir af ríkinu, að Verzl-
unarskóla íslands undanskildum.
Það þýðir að á fjárlögum hvers árs
er gert ráð fyrir ákveðinni upphæð
til reksturs ríkisskólanna. Jafn-
framt er gerður sérstakur samn-
ingur við Verzlunarskólann. Nú ný-
lega hafa verið gerðir samningar
>»
Eg tel tímabært, segir
Olafur Haukur John-
son, að einkavæða
framhaldsskólana.
við skólana, svonefndir „skóla-
samningar" þar sem nánar er skil-
greind þjónusta þeirra og hvernig
fjárhagsiegum rekstri þeirra skuli
háttað. í megin atriðum er þar gert
ráð fyrir að skólamir haldi sig inn-
an ákveðinna marka í útgjöldum
sínum. Fari skólarnir fram úr þess-
um útgjöldum þurfa þeir að sætta
sig við lækkun á framlagi ríkisins
næsta ár sem því nemur.
Þetta allt virðist við fyrstu sýn
vera sæmilega hagkvæmt fyrir-
komulag og því má spyrja: Er það
til hagsbóta að breyta þessu fyrir-
komulagi? Svar mitt er að svo sé.
Tel ég að rekstur skólanna sé í
raun ekki mjög hagkvæmur í dag
og þar sé hægt að bæta ýmislegt.
Því tel ég tímabært að huga að því
að stíga næsta skref með því að
einkavæða framhaldsskólana. Eg
geri samt ráð fyrir að kostnaður
við rekstur þeirra verði áfram
greiddur af ríkinu þannig að allir
eigi greiðan aðgang að skólakerf-
inu svo sem verið hefur.
Hverju mun einkavæðingin
skila nemendum?
Einkavæðingin mun skila nem-
endum betri skólum. En hvað mun
breytast? Það sem mun breytast
við einkavæðingu skólanna er að
svigrúm stjórnanda mun aukast til
að stjórna stofnun sinni, skapa
henni tekjur, stjórna útgjöldum og
ráða hæfustu starfsmennina. Mun
þetta veita aðhald, aðhald sem nú
skoi-tir. Nemendum verður þannig
tryggð betri kennsla þegar fram
líða stundir. Vel reknir skólar með
góða kennara og hæflleikaríka
stjórnendur verða eftirsóttari og
munu skila betur menntuðum nem-
endum.
Hverju mun einkavæðingin
skila kennurum?
Einkavæðingin mun skila kenn-
urum betri launum og starfsskilyrð-
um. Hvemig má það vera að einka-
væddur skóli skili betri
launum og starfsskil-
yrðum? Svarið felst í
því að tenging mun
myndast á milli afkomu
skólans og tekna kenn-
arans, enda er gert ráð
fyrir því í hugmyndum
mínum að þeir verði,
ásamt öðmm
starfsmönnum, eigend-
ur stofnunarinnar.
Hagnaður af rekstri
skólanna mun skila sér
í arði til kennara eins
og annarra eigenda.
Einnig mun skapast
möguleiki á að laða að
hæfileikaríka kennara
með því að greiða þeim betri laun.
Hveiju mun einkavæðingin sköa
skólastjórnendum?
Það er ákaflega mismunandi.
Þeir sem hafa náð góðum árangri
við rekstur skóla sinna munu sjá
hag í einkavæðingu, enda munu
laun þeirra að líkindum hækka til
samræmis við launagreiðslur í
einkafyrirtækjum. Margir skóla-
stjómendur reka skóla sína af rögg-
semi og fagmennsku í dag. Þeirra
bíða spennandi verkefni og svigrúm
til athafna mun vaxa. Hinir sem
reka skóla sína illa munu verða verr
settir en áður. Eigendur rekstrar-
ins munu gera til þeirra auknar
ki'öfur. Raunar má segja að þetta sé
einn megin kostur einkavædds
menntakerfis, þ.e. kröfumar munu
vaxa og þeim verður fylgt eftir.
Hveiju mun einkavæðingin
skila foreldrum?
Eigendur skólanna munu, út frá
markaðslegu sjónarmiði, sjá sér hag
í að veita þeim áhi-if í stjórnum skól-
anna og þannig geta þeir fylgt betur
eftir þeim hagsmunamálum sem
snerta þá og böm þeirra. Aukin
samkeppni sem fylgir einkavæðingu
og breyttu rekstarformi mun knýja
skólana til að sinna betur þörfum
viðskiptavina sinna en hingað til
hefur verið gert, þ.m.t. samstarfi
við foreldra.
Hveiju mun einkavæðingin
skila þjóðfélaginu?
Þjóðfélagið í heild mun fá betra
menntakerfi. Kerfi þar sem sam-
keppni á milli skóla, skóla-
stjómenda, kennara og nemenda
mun tryggja framsækið skólastarf.
I seinni grein minni um einka-
væðingu framhaldsskólanna mun ég
fjalla um framkvæmd einkavæðing-
arinnar og stjórnun framhaldsskól-
anna.
Höfundur er viðskiptnfræðingur og
skólasljóri Hraðlestrarskólans.
Handboltinn
á Netinu
mbl.is
__ALLTAf= E!TTH\/AO NYTT
Ólafur Haukur
Johnson
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 63r
GSM Frelsi kr. 3.500,-
Gsœ
SkafHtHt
-
CE37000
Gjaldfrjálst þjónustunúmer
PÓSTURINN
SIMINN
Sölustaðir GSM Frelsis:
Síminn: Ármúla, Kringlunni, v/Austurvöll, Akureyri, Sauðárkróki, Selfossi og Síminn Internet.
Reykjavík og nágrenni: Nýherji, Radíómiðun, Kaplan, Hátækni, Heimilistæki, Rafmætti, Símvirkinn, Smith & Norland og Elkó.
Select Opið allan sólahringinn Suðurfelli Breiðholti, Öskjuhlið og Vesturlandsvegi. Opið til 23:30 Birkimel (Vesturbær).
Landið: Tölvu- og rafeindaþj. Suðurl., Eyjaradíó, Naust Akureyri, Hljómsýn Akranesi, Tölvuþj. Akranesi, Árvirkinn, Rafeind og Bókval.
Afgreiðslustaðir íslandspósts.
www.gsm. is/frelsi
GSM Frelsi er ný þjónusta hjá
Símanum GSM sem felur í sér að
símtöl eru greidd fyrirfram.
Þannig ákveðurþú hversu míkinn
kostnaðþú vilt hafa afGSM símanum
og bætir sjálfur við inneignina þegar
þér hentar.
GSM Frelsi er einföld og þægileg leið
til að vera ígóðu GSM sambandi.
Með GSM Frelsifrá
Símanum færðu:
- GSM númer
- talhólfsnúmer
- 2000 kr. inneign
-1000 kr. aukainneign
við skráningu
Kostirnir eru ótvíræðir:
- engir reikningar
- engin mánaðargjöld
- engin binding