Morgunblaðið - 12.12.1998, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 65
SKOÐUN
ar veitingu allra einkaleyfa. Saman-
burður við einkaleyfi á lyfjaþróun
er því fullkomlega eðlilegur og
sanngjarn.
Áhætta íslenskrar
erfðagreiningar
Vangaveltur forstjóra Nýsköpun-
arsjóðs um áhættu Islenskrar
erfðagreiningar vegna þessa verk-
efnis eru furðulegar. Hann veltir
fyrir sér þeim möguleika að sérleyf-
ishafi verði málsóttur vegna veiting-
ar leyfisins og að bagalegt sé fyrir
fyrirtækið að vera háð misvitrum
stjórnmálamönnum um mikilvægan
þátt í rekstri sínum.
Því er til að svara að færustu
Iagasérfræðingar landsins hafa lýst
því yfir að veiting sérleyfis myndi
ekki stangast á við samkeppnislög.
Einnig hinu, að íslensk erfðagrein-
ing treystir stjórnmálamönnum að
sjálfsögðu til þess að skapa fyrir-
tækinu eðlilegt starfsumhverfi.
Slíkt gera allir þeir sem reka fyrir-
tæki í hugverkaiðnaði sem á allt
sitt undir lagalegri vernd afurða
sinna.
Undarlegt er, að hvergi minnist
forstjóri Nýsköpunarsjóðs á þá gíf-
urlega fjárhagslegu og markaðslegu
áhættu sem íslensk erfðagreining
er tilbúin að taka við gerð gagna-
grunnsins. Eg get fullvissað for-
stjóra Nýsköpunarsjóðs um, að sú
áhætta er stjómendum Islenskrar
erfðagreiningar mun ofar í huga,
heldur en hugsanleg málaferli eða
misvitrir stjórnmálamenn.
Mikilvægi tímans
Forstjóri Nýsköpunarsjóðs telur
að annar aðili gæti óskað eftir heim-
ild til að byggja upp gagnagrunn
hér á landi eftir nokkur ár. Hann
virðist ekki gera sér neina grein
fyrir þeim hraða sem ríkir á alþjóð-
legum líftæknimarkaði. Síðan al-
þjóðlega samstarfsverkefninu „The
Human Genome Project“ var ýtt úr
vör árið 1990, hafa tæplega 5% af
genamengi mannsins verið rað-
greind. Þrátt fyrir það er stefnt að
því að ljúka verkinu árið 2005 og
mun heildarkostnaður þessa verk-
efnis þá væntanlega nema yfir 700
milljörðum íslenskra króna.
Að auki etja fjölmörg einkafyrir-
tæki kappi við „The Human Genome
Project“ og hefur eitt þeirra lýst því
yfir að það ætli sér að ljúka verkinu
á næstu 12 mánuðum, en önnur inn-
an 2-3 ára. Þetta kapphlaup byggist
á möguleikanum til einkaleyfís-
verndar á uppgötvunum á þessu og
afleiddum sviðum, s.s. við lyfjagerð.
Að tala um „nokkur ár“ er eins og
heil eilífð í erfðafræðikapphlaupinu,
og fráleitt að halda að sér höndum
aðeins vegna þess að annar aðili
„gæti“ komið fram.
Nýsköpun
Ef af verður, er þessi fjárfesting
eitt stærsta verkefni, sem ráðist
hefur verið í hérlendis. Inn í þjóðfé-
lagið koma allt að 20 milljarðar
króna, eða 80-falt árlegt ráðstöfun-
arfé Stofnsjóðs Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins. Bein atvinnusköpun
er talin nema um 400 störfum, utan
þein'a margfeldisáhrifa sem gerð
gagnagrunnsins mun hafa í íslensku
þjóðfélagi. Ef vel tekst til, munu þar
til viðbótar ómæld önnur tækifæri
skapast innan íslensks líftækniiðn-
aðar.
Það vekur furðu, að forstjóri Ný-
sköpunarsjóðs skuli ekki taka þessu
fagnandi, en láta að því liggja að
þar sem hjá íslenskri erfðagi'ein-
ingu starfi nú þegar yfir 200 manns,
þá sé ekki ástæða til að veita fyrir-
tækinu leyfið. Honum ætti öðrum
fremur að vera ljóst mikilvægi ný-
sköpunar hjá ungum og öflugum
fyrirtækjum.
Þátttaka ríkisins
I upphafi og lok greinar sinnar
rekur forstjóri Nýsköpunarsjóðs
almenna kosti markaðshagkerfis-
ins, en að undanskildum ágætum
tillögum um lagabreytingar vegna
hlutafjárkaupa frumkvöðla, nefnir
hann markaðshagkerfið ekki frek-
ar, en ræðir hins vegar nokkuð
hvernig ríkið geti komið að gerð
gagnagrunnsins! Forstjóri Ný-
sköpunarsjóðs gerir að tillögu
sinni að ríkið greiði Islenskri
erfðagi'einingu fyrir að þróa lausn-
ir fyrir heilbrigðiskerfið og styðji
fyrirtækið jafnframt með framlög-
um til rannsóknar- og þróunar-
starfssemi í tengslum við gagna-
grunninn.
Islensk erfðagreining hefur ekki
farið fram á nokkra þátttöku ríkis-
ins í gerð eða fjárhagslegri áhættu
gagnagrunnsins né annarrar starfs-
semi sinnar. Verkefnið mun hins
vegar leiða til einstæðrar nýsköpun-
ar og kosta tölvuvæðingu og sam-
tengingu sjúkrastofnana að veru-
legu leyti. Ef vel tekst til, mun ríkið
eignast afar mikilvægar upplýsing-
ar til kostnaðarstýringar í heil-
brigðiskerfinu og trúlega skatt-
leggja sérstaklega rekstrarhagnað
gagnagrunnsins.
Það er sérkennilegt hvernig for-
stjóri Nýsköpunarsjóðs, sem er
ábyrgur fyrir milljörðum króna af
opinberu fé, metur áhættu og arð-
semi ríkisins. I stað þeirrar lág-
marksáhættu og umtalsverðrar arð-
semi sem ríkinu stendur til boða,
telur hann æskilegt að ríkið taki að
hluta til þátt í áhættunni við verk-
efnið.
Fer engum sögum af því hvort þá
væri allt í einu orðið réttlætanlegt
að „hindra samkeppnina" með því
að ríkið starfi aðeins með einum
einkaaðila, eða hverjar líkur for-
stjóri Nýsköpunarsjóðs telur á að
þetta risavaxna og áríðandi verkefni
takist giftusamlega undir forsjá rík-
isins.
Fari svo að íslensk erfðagreining
fái einkarétt á gerð gagnagrunns-
ins stendur ekki til að leita til Ný-
sköpunarsjóðs með fjármögnun.
Verkefnið tæki allt ráðstöfunarfé
Stofnsjóðs Nýsköpunarsjóðs næstu
áttatíu árin, og svo lengi getum við
ekki beðið. Þar sem forstjóra Ný-
sköpunarsjóðs virðist hins vegar
lítast vel á hugmyndina er mér
spurn: Ef Nýsköpunarsjóður hefði
bolmagn til, væri hann tilbúinn að
fjármagna gerð gagnagrunnsins
með hlutafé, án þess að tímabund-
inn einkaréttur kæmi til, en hver
sem er fengi að nýta sér upplýsing-
arnar í viðskiptaskyni jafnharðan
og þær yrðu til? Ef ekki, virðist for-
stjóri Nýsköpunarsjóðs hafa orðið
fyrir eigin voðaskoti. Páli verkfræð-
ingi vini mínum til hugarhægðar vil
ég þó minna á að það kemur fyrir á*--
bestu bæjum. I nýsköpunarkapp-
hlaupi t.a.m., er iðulega heillavæn-
legra að skjóta strax þótt stundum
hitti menn eigin fót, heldur en að
miða og miða þar til fuglinn er flog-
inn.
Höfundur er framkvæmdasljóri
þróunarsjóðs íslenskrar
erfðagreiningar.
Seály er stærsti \
dýnuframleiðandi
í Bandaríkjunum og *
eru dýnumar hannaðar ■
í samvinnu við færustu 1
beinasérfrœðinga þar í 1
landi enda þekkt fyrir
dýnukerfi sem gefa réttan
bakstuðning frá sjónarmiði
lækna. Það er því ekki að
ástæðulausu að Sealy eru
mest seldu dýnurnar í
Bandaríkjunum. Vertu
velkomin/n í verslun okkar
og fáðufaglega ráðgjöfum
dýnu sem hentar þér.
74.100
ra Sealy
fremstir í flokki dýnu
framleiðenda í
Bandaríkjunum
■Sag naver
Við styðjum við bakið á þér