Morgunblaðið - 12.12.1998, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
UM ÆRUMORÐ OG
ÖNNUR MORÐ
í kjölfar brunans á Kálfatjörn
MÉR hnykkti nokk-
uð við daginn eftir að
Kálfatj amarhúsið
brann öðru sinni, þeg-
ar góður og gegn
hreppsbúi, frændi
minn, birtist á staðn-
um þungur á brún og
vændi okkur
Kálfatjarnarfólkið um
að hafa komið af stað
orðrómi þess efnis, að
ákveðnir aðilar hefðu
kveikt í húsinu. Meðal
annars spurði hann
mig, hvort „okkur
dytti í hug, að fullorðið
fólk og þar á ofan
frammámenn í
hreppnum hefðu vitandi vits og
viljandi kveikt í húsinu.“ Og enn
sagði hann við mig: „Gerir þú þér
grein fyrir því, Friðrik, að þótt
morð sé Ijótur glæpur, þá er morð
á æru fólks jafnvel enn verra, því
með því verður það að lifa?“
Mér féll allur ketill í eld. Á ýmsu
gat ég átt von en tæpast þessu og
það á dánardægri frænda míns,
heitins, þess orðvara og gætna
heiðursmanns, Gunnars Erlends-
sonar, bónda á staðnum. Eftir að
hafa jafnað mig og reynt að átta
mig á hvert maðurinn væri að fara
með alvarlegum ásökunum sínum,
komu efth-farandi atriði upp í huga
minn:
Eflaust hefði okkur orðið á að
segja eitthvað, láta í ljós hugrenn-
ingar og grun í hita leiksins og í
hitanum frá bálinu þarna um nótt-
ina, þegar húsið brann hið fyrra
sinnið. En að það gæti hleypt af
stað orðrómi á ásökunum á til-
tekna aðila var ofar mínum skiln-
ingi. Ég, fyrir mitt leyti, hafði
greint örfáum einstaklingum frá
Friðrik H.
Olafsson
ákveðnum atriðum
varðandi bnma, sem
varð steinsnar frá
kirkjunni í austurátt
214 ári fyrr, m.a. því,
að þar var talið, að
kviknað hefði í útfrá
sólargeisla í kók-
flöskubroti, en um
slíkt hafði ég efasemd-
ir vegna veðurlags á
brunadaginn. - Og ég
hafði sagt við lög-
reglumenn og líklega
slökkviliðsmenn þarna
á brunanóttina á
Kálfatjöm, að það
væri einstaklega
óheppileg tilviljun, að
sunnudaginn fyrir brunann, laust
eftir klukkan 17, var sveitastjóra,
fyrir hönd hreppsnefndar birt
Máli þessu hefur verið
faríð fram með lymsku-
brögðum og baktjalda-
makki, segir Friðrik
H. Olafsson, þar sem
Herdís Erlendsdóttir,
ábúandi á Kálfatjörn,
hefur verið virt að
vettugi og réttur henn-
ar fyrir borð borinn.
stefna varðandi jörðina Kálfatjörn
(og kem ég að tilurð þeirrar stefnu
síðar) en kl. rúmlega 1 um nóttina
eftir stóð húsið á Kálfatjörn í
björtu báli. - Þá hafði ég orð á því
við einhverja, að tveir svartklædd-
ir ungir menn voru að væflast í
nánd við afleggjarann að bænum,
er við yfirgáfum staðinn undir
myrkur á sunnudaginn, og flæmd-
ust þeir undan, er reynt var að tala
við þá. Það var því hálfgerður
óhugur í okkur, er við héldum til
afmælisveislu móður minnar. -
Loks vil ég geta þess að við báðum
um að lögregla vaktaði staðinn,
þ.e. brunnið húsið á Kálfatjörn, í
sólahring og gætti þess, að engir
aðilar á vegum Golfklúbbs Vatns-
leysustrandar né meirihluta
hreppsnefndar, kæmu á staðinn.
Þetta var gert af tveimur ástæðum
af okkar hálfu: - í fyrsta lagi
vegna þess, að okkur þótti sem
fullskjótt hefði verið brugðist við
að fella veggi húss þess í nágrenni
kirkjunnar sem brann fyrir
nokkrum misserum og áður er get-
ið. Og í öðru lagi sökum þess að
deilur hafa staðið undanfarið um
túnið á Kálfatjöm, vegna hins
ákveðna vilja golfklúbbs og meiri-
hluta hreppsnefndai- Vatnsleysu-
strandarhrepps, að gera þar golf-
brautir um allar grandir. Þótti
okkur að í ljósi þessa yrði slíkt
jafnt í þágu beggja aðila. Eftir á að
hyggja var þetta e.t.v. rangt mat
hjá okkur og til þess fallið að valda
misskilningi, en ég vil leggja á það
ríka áherslu, að hér er í fyrsta sinn
skýrt frá þessu opinberlega eða yf-
irleitt af okkar hálfu. Hinsvegar
virðist sem sólarhringsvaktinni,
sem við fórum fram á, hafi að ein-
hverju leyti verið áfátt, að minnsta
kosti tókst húsinu að brenna öðru
sinni nóttina eftir. Það var okkur
mikið áfall og raunar óskOjanlegt,
að húsið skyldi brenna aftur og þá
til grunna, ekki síst eftir fullyi’ð-
ingar slökkviliðs og lögreglu um að
engin hætta væri á ferðum. Við
Jólatilboð á hreinlætistækjum 20-50% afsláttur
Hitastillitæki
Huber, Mora, Grohe
sturtutæki frá kr. 7.094
Baðtæki frá kr. 8.980.
Biöndunartæki
í miklu úrvali:
Tveggja handa frá kr. 2.241
einnar handar frá kr. 4.543.
Salerni með setu.
Porsan frá kr. 10.640,
Gustavsberg frá kr. 15.032,
IFÖ frá kr. 16.944.
' ' fSWf-
Stálvaskar
1 hólf frá kr. 5.790,
2 hólf frá kr. 6.260,
11/2 hólf frá kr. 10.799.
Handlaugar
Warneton, IFÖ á
vegg frá kr. 2.795,
í borð frá kr. 5.588.
Skolvaskar frá kr. 3.098
Hornbað m. svuntu, kr. 54.352.
Sturfuklefar og hurðir í miklu úrvali.
Ofangreint er aðeins lítill hluti af úrvali okkar.
^ VATNS VIRKINN ehf
^yr Ármúla 21,108 Reykjavík,
~ grænt númer 800 4020,
sími 533 2020 - bréfsími 533 2022.
hefðum ugglaust staðið vörð sjálf,
örþreytt sem við vorum, hefðum
við ekki treyst mati þessara aðila,
þar sem ýmislegt var heillegt úr
innbúi og burðarviðir (sem reynd-
ar voru merkilegir fyrir þá sök að
þeir voru úr strönduðum skipum),
bárujám og gluggar sýndist ekki
mjög skemmt enda húsið nýendur-
gert.
En ég get sagt af heilum huga
og vil undirstrika, að ekkert okkar
Kálfatjamarfólks grunar nokkurn
frammámann í hreppnum, né
nokkum samsveitung yfirleitt, um
að hafa verið viðriðinn branann á
Kálfatjörn, hvað þá kveikt í þar.
Slíkt hvarflar ekki að neinu okkar,
og sé einhver orðrómur slíks á
sveimi, get ég mælt fyrir munn
okkar allra, að við hörmum það og
viljum allt til vinna að kveða slíkt
niður.
Rannsóknaraðilar gáfu fljótlega
út þá yfirlýsingu, að líklegast hefði
kviknað í út frá rafmagni í kjall-
ara, en það breytir ekki því, að við
gætum haft gransemdir um, að
einhverjir utanaðkomandi óláns-
menn hafi brotist inn í húsið, látið
greipar sópa og kveikt síðan í því,
viljandi eða óviljandi. Annað eins
hefur því miður gerst, og ýmislegt,
sem ég rek ekki hér, hefur vakið
þennan grun okkar og hann hefur
fremur styrkst eftir að við fóram,
líkt og fornleifafræðingar við upp-
gröft, í gegnum 4 gáma fulla af
ösku, koluðum plönkum og saman-
kýttu járnadóti, skóflu fyrir skóflu
- mér liggur við að segja skeið fyr-
ir skeið - með árvökulum augum.
Við fundum ýmislegt, s.s. skeiðar,
gamla skartgripi (meira og minna
ónýtt), hálfbrannar ljósmyndir og
bréf, prjónaskap og fleira. En eftir
stendur, að allt ævistarf aldinnar
konu er þurrkað út, öll hennar
búslóð, fatnaður, hannyrðir, auk
margra dýrgripa frá fyrri tíð er
horfið. Og líka það, sem okkur
finnst skiýtið, að ekki finnst silfur-
borðbúnaður með sérstöku
munstri, ekki bakkar úr silfri og
stáli, kertastjakar dýrmætir, né
peysufataskart, möttull og fleira.
Þá ekki rammgert járnkoffort,
sem geymdi dýi-mætt frímerkja-
safn og gamlar 78 snúninga plötur,
né tangur eða tetur af 2 sjónvarps-
tækjum, þó innvols úr útvörpum
hafi fundist. Þetta finnst okkur
gransamlegt sem og það að
smekklás útidyra, sem fannst í
öskunni, var læstur í opinni stöðu,
þótt honum hafi verið lokað, er
húsið var yfirgefið. Vegna alls
þessa, viljum við, sem köllum okk-
ur Kálftirninga, að málið verði
rahnsakað til hlítar á þessum for-
sendum. Og lái okkur hver sem
vill.
En nú langar mig að víkja að til-
urð þeirrar stefnu er fyrr var getið
og var birt viðkomandi síðla dags
fyrir branann.
Forsaga þessa máls er sú, að
skömmu eftir að frændi minn,
Gunnar Erlendsson, erfðabóndi á
Kálfatjöm, lést fyrir 3 áram (11.
nóvember 1995), fór systir hans,
sem hafði alið þar allan sinn aldur,
síðustu 40 árin sem bústýra og
með búskap sjálf, fram á það við
jarðadeild landbúnaðarráðuneytis-
ins, að mega búa áfram á jörðinni
og nytja hana. Var af þeirra hálfu,
Nokkur verðdæmi: Salerni, baðker og handlaug frá kr. 24.107. Sturtubotnar frá kr. 3.556. Stálvaskar frá kr. 4.483.
Sturtuhorn frá kr. 16.425. Sturtuklefar heilir frá kr. 39.082 o.m.fl. Hressið upp á heimilið fyrir jól!!!
Jakkapeysuúrvalið
er í Glugganum
Glugginn
Laugavegi 60, sími 551 2854