Morgunblaðið - 12.12.1998, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 71
Aðventa
Aðventuhátíð
barnanna í
Dómkirkjunni
NÚ ER aðventan hálfnuð og við
fullorðna fólkið á kafi í undirbún-
ingi. Jólasveinninn er meira að
segja kominn á stjá og jafnvel hann
þarf á okkar aðstoð að halda við sín
verk. Já, það er svo sannarlega nóg
að gera hjá okkur stóra fólkinu.
Saman við þetta allt er svo litla
fólkið okkar sem þarf mikla um-
önnun á þessum tíma og finnst að
jólin æth aldrei að koma. í miðju
atinu kemur það fyrir að við
gleymum innihaldi jólanna og
gleymum því einnig að njóta að-
ventunnar með fjölskyldunni.
Kannski erum við Hka oft svo
þreytt við brauðstritið að erfitt er
að skapa innihaldsríkar yamveru-
stundir sem fjölskylda. A aðvent-
unni leitast íslenska þjóðkirkjan
við að bjóða til samverustunda sem
henta fjölskyldufólki.
Sunnudaginn 13. desember kl.
14 verður aðventuhátíð bamanna í
Dómkirkjunni. Þangað er öll fjöl-
skyldan velkomin, ekki síst afar og
ömmur. Lúðrasveit Laugarnes-
skóla spilar jólalög, kveikt verður á
aðventukransinum og saga jólanna
er flutt í máli og myndum svo eitt-
hvað sé nefnt. Lítum upp úr amstri
daganna og sækjum innhald að-
ventu og jóla til kirkjunnar. Leyf-
um okkur að hvfla í þeim Guði sem
fæddist á jólum fyrir nær 2000 ár-
um. Það er ótrúlega nærandi.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir.
Jólavaka við
kertaljós í Hafn-
arfjarðarkirkju
HIN árlega jólavaka við kertaljós
verður haldin í Hafnarfjarðar-
kirkju 3. sunnudag í aðventu 13.
desember og hefst hún kl. 20.30.
Jólavakan er Hafnfirðingum svo
og öðrum sem hana sækja augljós
vottur um nánd og komu helgra
jóla. Líkt og jafnan verður mjög til
hennar vandað.
Ræðumaður kvöldsins verður
Pétur Gunnarsson, rithöfundur.
Barna- og unglingakór kirkjunnar
flytur söngleikinn „Fæðing frelsar-
ans“ eftir sr. Hauk Ágústsson und-
ir stjóm Hrafnhildar Blomster-
berg og kór kirkjunnar flytur að-
ventu- og jólatónlist undir stjórn
Natalíu Chow. Eyjólfur Eyjólfsson
leikur á þverflautu og einnig verð-
ur leikið á slagverk. Við lok vök-
unnar verður kveikt á kertum þeim
er viðstaddir hafa fengið í hendur.
Gengur þá loginn frá helgu altari
til hvers og eins í kirkjunni sem
tákn um það að sú friðar- og ljóss-
ins hátíð sem framundan er vill öll-
um lýsa, skapa samkennd og vinar-
þel. Safnaðarheimilið Strandberg
verður opið eftir vökuna og boðið
þar upp á kaffi og piparkökur í
glæstum Hásölum.
Megi nú sem íyrr fjölmargir eiga
góða og uppbyggilega stund á jóla-
vöku við kertaljós í Hafnarfjarðar-
kirkju.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Aðventukvöld
Óháða safn-
aðarins
AÐVE NTUKVÖLD Óháða safnað-
arins verður sunnudagskvöldið 13.
desember kl. 20.30. Ræðumaður
kvöldsins er Einar Már Guð-
mundsson, rithöfundur Al-
heimsengla og Fótsporamaður á
himnum. Guðrún Lóa Jónsdóttir
syngur einsöng, Guðrún Birgis-
dóttir og Martíal Nardeau leika á
flautu og Camila Södérberg á
blokkflautu. Kór safnaðarins syng-
KIRKJUSTARF
ur við undirleik organistans Péturs
Máté.
í lokin er smakk á smákökunum
í boði safnaðarins.
Aðventu-
helgistund Sam-
takanna ‘78
SAMTÖKIN ‘78 halda aðventu-
helgistund í Neskirkju sunnudag-
inn 13. desember kl. 16.
Séra Ólafur Oddur Jónsson,
prestur í Keflavík, prédikar. Hann
er einn skeleggasti baráttumaður
fyrir málefnum samkynhneigðra
innan þjóðkirkjunnar og var for-
maður nefndai- sem skrifaði skýrsl-
una Samkynhneigð og kirkja.
Almenn þátttaka félaga verður í
messunni og sönghópur leiðir safn-
aðarsöng undir stjóm Einars Am-
ar Einarssonar organista.
Samkynhneigðir, vinir þeirra og
fjölskyldur eru velkomin að koma
og njóta stundar í kirkjunni og
syngja jólalögin.
Aðventusöngvar
í Hjallakirkju
AÐVENTUSÖNGVAR verða í
Hjallakirkju sunnudaginn 13. des-
ember fyrir hádegi og um kvöldið.
Dagurinn hefst með tónlistarguðs-
þjónustu kl. 11 árdegis. Eldri nem-
endur úr Tónlistarskóla Kópavogs
koma í heimsókn og flytja aríur úr
kantötum eftir J.S. Bach. Ein-
söngvarar em Aðalheiður M.
Gunnarsdóttir og Þórhalla Stefáns-
dóttir. Edda Bj. Jónsdóttir, Sólveig
Þórðardóttir og Tanja Þorsteins-
dóttir leika á flautur, Sólveig Stef-
ánsdóttir á fiðlu og Andri Stefáns-
son og Birna Hallgrímsdóttir á pí-
anó. í guðsþjónustunni syngur
einnig eldri kór Digranesskóla
undir stjórn Kristínar Magnús-
dóttur. Organisti er Jón Olafur
Sigurðsson.
Um kvöldið, kl. 20.30, verða að-
ventusöngvar í umsjá Kammerkórs
Hafnarfjarðar. Einsöngvari með
kórnum er Þómnn Guðmundsdótt-
ir og söngstjóri er Helgi Bragason.
Kirkjugestir munu einnig taka þátt
í fjöldasöng. Allir em hjartanlega
velkomnir.
Jólasveifla end-
urtekin í Kefla-
víkurkirkju
JÓLASVEIFLA verður endurtek-
in í Keflavíkurkirkju sunnudags-
kvöldið 13. kl. 20.30. Söngvarar
verða Birta Rós Sigurjónsdóttir,
Ólöf Einarsdóttir, Einar Júlíusson,
Rúnar Júlíusson og Einar Örn Ein-
arsson.
Unglingar flytja leikþátt undir
stjóm Mörtu Eiríksdóttur og sr.
Sigfúsar B. Ingvasonar. Kór Kefla-
víkurkirkju syngur nokkur lög.
Poppband Keflavíkurkirkju leikur
undir, en það skipa Guðmundur
Ingólfsson, Þórólfur Ingi Þórsson,
Baldur Jósepsson og Einar Örn
Einarsson. Einnig koma fram Þór-
ir Baldursson og Baldur Þórir
Guðmundsson. Stjómandi tónleik-
anna er Einar Örn Einarsson org-
anisti. í lokin verður sungið við
kertaljós.
Starfsfólk Keflavíkurkirlqu.
Aðventutónleik-
ar í Sandgerði
AÐVENTUTÓNLEIKAR verða í
safnaðarheimilinu í Sandgerði
sunnudaginn 13. desember kl. 17.
Nemendur úr Tónlistarskólanum í
Sandgerði leika á hljóðfæri. Kórar
Útskála- og Hvalsneskirkju
syngja. Einsöngvai’ar verða Hjör-
dís Einarsdóttir, Sigurður Karl
Mannfreðsson, Þorsteinn Pétur
Mannfreðsson og Steinn Erlings-
son. Stjórnandi og undirleikari er
Ester Ólafsdóttir. Ávarp flytur
sóknarpresturinn sr. Björn Sveinn
Bjömsson.
Aðventu-
tónleikar
í títskálakirkju
AÐVENTUTÓNLEIKAR verða í
Útskálakirkju sunnudag kl. 20.
Nemendur úr Tónlistarskólanum í
Garði leika á hljóðfæri. Kórar Út-
skála- og Hvalsneskirkju syngja.
Einsöngvai-ar verða Hjördís Ein-
arsdóttir, Sigurður Karl Manfreðs-
son, Þorsteinn Pétur Manfreðsson
og Steinn Erlingsson. Sþjórnandi
og undirleikari er Ester Ólafsdótt-
ir. Ávarp flytur sóknarpresturinn,
sr. Björn Sveinn Bjömsson.
Aðventuhátíð
í Víðidals-
tungukirkju
AÐVENTUHÁTÍÐ verður haldin í
Víðidalstungukirkju, Vestur-Húna-
vatnssýslu sunnudaginn 13. desem-
ber kl. 16.
Að venju verður flutt fjölbreytt
efni fyrir eldri sem yngri kirkju-
gesti, tónlist og talað mál og al-
mennm’ söngur. Kirkjukórinn,
undir stjóm Guðmundar St. Sig-
urðssonar, syngur gömul og ný að-
ventulög, börn úr Laugarbakka-
skóla syngja og fermingarbörn
flytja helgileik. Jólasaga verður
lesin af Einari R. Haraldssyni, og
Jón Isberg, fyi-rv. sýslumaður, flyt-
ur aðventuhugvekju. Hátíðinni
stýrir sr. Guðni Þór Ólafsson,
sóknarprestur. Allir em velkomnir
að eiga helga stund í kirkju til að
geta betur tekið á mótum jólum og
boðskap þeirra.
Helgistund
í Grinda-
víkurkirkju
HELGISTUND á aðventu verður
haldin hátíðleg á sunnudag kl. 17.
Þá munu kórar kirkjunnar
syngja saman og sér, aðventu- og
jólalög, fermingarbörn verða með
upplestur og flytja helgileik og
sóknarprestur flytur hugvekju.
Sóknamefndin hvetur bæjarbúa
alla til að koma og taka þátt í und-
irbúningi hátíðarinnar.
Safnaðarstarf
Vígsluafmæli
Askirkju
ÞRIÐJA sunnudag í aðventu, 13.
desember nk., verður þess minnst í
Áskirkju í Reykjavík að 15 ár em
liðin frá vígslu kirkjunnar, en hún
var vígð 3. sunnudag í aðventu
1983 sem þá var 11. desember.
Við guðsþjónustu dagsins kl. 14
syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir ein-
söng og Láms Sveinsson leikur á
trompet ásamt dætmm sínum,
Hjördísi Elínu, Ingibjörgu og Þór-
unni. Þau munu einnig leika á
hljóðfæri sín í samsæti í Safnaðar-
heimili Áskirkju að guðsþjónustu
lokinni og þar syngur Sigrún
Hjálmtýsdóttir einsöng við undir-
leik Önnu Guðnýjar Guðmunds-
dóttur.
I guðsþjónustunni syngur
kirkjukór Áskirkju og sóknar-
prestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Ibúum dvalarheimila og
annarra stærstu bygginga sóknar-
innar gefst kostur á akstri til og frá
kirkju í tengslum við guðsþjónust-
una og samveruna í safnaðarheim-
ilinu.
Um kvöldið kl. 20.30 heldur
Kirkjukór Áskirkju aðventutón-
leika í Áskirkju. Efnisskrá tónleik-
anna er fjölbreytt og flytur kórinn
mörg íslensk og erlend aðventu- og
jólalög frá ýmsum tímum auk þess
sem Gústav Hj. Gústavsson, Mar-
grét Árnadóttir og Rósa Jóhannes-
dóttir syngja einsöng. Þá leikur
Haukur Guðlaugsson söngmála-
stjóri Þjóðkirkjunnar einleik á org-
el kirkjunnar og undir sum söng-
laganna, en söngstjóri Kirkjukórs
Áskirkju er Kristján Sigtryggsson
organisti. Allir era hjartanlega vel-
komnir til þessara hátíðisstunda í
Áskirkju á sunnudaginn.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyr-
ir unglinga kl. 21.
KFUM og KFUM v/Holtaveg. Á
morgun, sunnudag, kl. 17, verður
samkoma í aðalstöðvum KFUM og
KFUK við Holtaveg. Starf KFUM
og K með augum lögreglunnar:
Geir Jón Þórisson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn. Drengjakór Laugar-
neskirkju syngur og sr. Ólafur Jó-
hannsson, fonnaður KFUM í
Reykjavík, verður ræðumaður
dagsins. Eftir samkomuna verður
boðið upp á piparkökur og heitt
súkkulaði. Allir velkomnir.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al-
menn samkoma kl. 14. Allir hjart-
anlega velkomnir. Basar sunnu-
daginn 13. desember kl. 14-17. Þar
verða m.a. á boðstólum heimabak-
aðar kökur, skreytingar og ýmsar
fallegar gjafavörar. Nýbakaðar
vöfflur með rjóma og rjúkandi
kaffi. Lofgerð og tónlist verður
leikin og sungin. Allir hjartanlega
velkomnir.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri
bama (6 ára og yngri) kl. 11. TTT-
starf í safnaðarheimilinu Vina-
minni kl. 13.
Krossinn. Unglingasamkoma kl.
20.30 að Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan
í Reykjavík
Laugardagur kl. 12.00
Jólafundur Bræðrafélagsins [
Safnaðarheimilinu.
Dagskrá: Jólahlaðborð, hugvekja,
skemmtiatriði og söngur.
Guðsþjónusta kl. 14.00 í
kirkjunni á sunnudag. Barnakór
Snælandsskóla kemur í heimsókn og
syngur í guðsþjónustunni.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson,
Fríkirkjuprestur.
ff
1 I i 1 1
4